Vísir - 27.05.1972, Blaðsíða 9
Fórframúr okkar
björtustu vonum
— Velheppnað fimleikanómskeið
r
Fimleikasambands Islands
—Aðsókn hcfur verið svo mikil
að námskeiðinu, að færri hafa
komizt að en hafa viljað, sagði
Ásgeir Guðmundsson, formaður
Fimleikasambands tslands,
þegar við litum inn i iþróttahúsið
á Seltjarnarnesi i gær, en þar hef-
ur að undanförnu staðið yfir fim-
leikanámskeið, sem Norð-
maðurinn Tore Johansson hefur
stjórnað fyrir Ft og hann hefur
haft sér til aðstoðar unga, norska
landsliðskonu, Liv Gullbrandsen,
eina efnilegustu fimleikakonu
Noregs, og hefur hún jafnframt
sýnt á námskeiðinu.
Þessu námskeiði lýkur með
fimleikasýningu kl. þrjú i dag i
iþróttahúsinu og meðal annars
sýnir Liv þar listir sinar, sem eru
þess virði að skreppa vestur á
Nes.
Þetta námskeið hefur verið þri-
þætt, sagði Asgeir ennfremur. í
fyrsta lagi fyrir kennara og
þjálfara. 1 öðru lagi fyrir ung-
linga og i þriðja lagi fyrir fim-
leikafólk. Kennararnir og
þjálfarar hafa verið með ungl-
ingunum frá kl. 4-6 og hafa þá
jafnframt fengið verklega
kennslu, en fimleikafólkið hefur
mætt á kvöldin.
Námskeiðið hófst fyrra laugar-
dag, 20. mai, og ég tel að árangur
hafi fariðfram úr okkar björtustu
vonum, bæði hvað aðsókn og
kennslu viðkemur. Við munum
svo i framhaldi af þvi efna til
námskeiðs fyrir unglinga i byrjun
júni og vonumst einnig eftir góð-
um árangri af þvi, sagði Ásgeir
að lokum.
Bjarnleifur tók myndirnar hér
á siðunni á námskeiðinu A þeirri
efri eru ýmsir þátttakendur með
kennara sinum, en hér til hliðar
er Liv Gullbrandsen i erfiðri
æfingu, sem hún leysir mjög auð-
veldlega.
Fyrsta sundmót
sumarsins
Fyrsta sundmót sumarsins —
sundmót KR — fer fram i
I.augardalslauginni á sunnudag
og verður allt bezta sundfólk
landsins meðal keppenda.
Auk þess sem margir kepp-
enda eins og Guðjón Guðmunds-
son, Guðmundur Gislason, Finn-
ur Garðarsson og fieiri munu
keppa að lágmarksafrekum is-
lenzku ðlympiunefndarinnar,
verður einnig keppt um fagra
gripi eins og Flugfreyjubikarinn i
100 m skriðsundi kvenna, og af-
reksbikar SSl fyrir bezta afrek
mótsins samkvæmt finnsku stiga-
töflunni.
Sundfólk okkar er i mjög góðri
æfingu og verður gaman að sjá
hvernig þvi tekst upp á fyrsta
sundmótinu i útisundlaug (50
metra) á keppnistimabilinu.
Einnig verða unglingasundin at-
hyglisverð, þar sem unglingarnir
keppa að lágmarksafrekum fyrir
Norðurlandameistaramótið, sem
verður i Danmörku um miðjan
júli.
Þátttaka i mótinu er mikil eins
og sést af þvi, að alls veröa 137
viðbrögð á mótinu.