Vísir - 02.06.1972, Blaðsíða 8

Vísir - 02.06.1972, Blaðsíða 8
8 VÍSIR. Föstudagur 2. júni 1972. 2—1x2 (feóttir vinningar Eftirtaldir vinningar frá þessu ári eru ósóttir: 12. leikvika — nr. 80149 13. leikvika — nr. 66003 16. leikvika — nr. 10312 16. leikvika — nr. 82106 17. leikvika — nr. 27029 17. leikvika — nr. 81262 17. leikvika — nr. 85316 2. vinningur: kr. 1.200.00 _■-------------- kr. 7.400.00 -------------------- kr. 2.200.00 ____________________ kr. 2.200.00 -------------------- kr. 1.700.00 -------------------- i<r. 1.700.00 -------------------- kr. 1.700.00 bessi númer eru öll nafnlaus og eru handhafar þessara seðla beðnir að senda stofn seðilsins með fullu nafni og heimilisfangi til Getrauna innan þriggja mán- aöa, ella fyrnist vinningurinn. GETRAUNIR — tþróttamiðstöðin —Reykjavik. AUGLÝSING um styrki úr Menningarsjóði Norðurlanda Árið 1973 mun sjóðurinn hafa tii ráð- stöfunar fjárhæð sem svarar til um 63 millj. islenzkra króna. Sjóðnum er ætlað að styrkja norrænt menningarsamstarf á sviði visinda, skólamála, alþýðufræðslu, bókmennta, myndlistar, tónlistar, leiklist- ar, kvikmynda og annarra listgreina. Meðal þess, sem til greina kemur að sjóðurinn styrki, má nefna: 1. Norræn samstarfsverkefni, sem slofnað er til i eitt skipti, svo sem sýningar, útgáfa, ráðstefnur og námskeið, 2. samstarf, sem efnt cr til í reynsluskyni, enda sé þá reynslutiminn ákveðinn af sjóðsstjórninni, :i. samnorræn nefndastörf, 4. upplýsingastarfsemi varðandi norræna menningu og menningarsamvinnu. Styrkir úr sjóðnum eru yfirleitt ekki veitt- ir til verkefna, er varða færri en þrjár Norðurlandaþjóðir sameiginlega. Umsóknum um styrki til einstaklinga er yfirleitt ekki unnt að sinna. Þeir, sem sækja um styrki úr sjóðnum til visindalegra rannsókna, þurfa að hafa i huga, að styrkir eru yfirleitt þvi aðeins veittir til slikra verkefna, að gert sé ráð fyrir samstarfi visindamanna frá Norður- löndum að lausn þeirra. Að jafnaði eru ekki veittir styrkir úr sjóðnum til að halda áfram starfi, sem þegar er hafið, sbr. þó 2. lið hér að fram- an. Sjóðurinn mun ekki, nema alveg sér- staklega standi á, veita fé til greiðslu kostnaðar við verkefni, sem þegar er lokið. Umsóknir skulu ritaðar á dönsku, norsku eða sænsku á sérstök eyðublöð, sem fást i menntamálaráðuneytum Norðurlanda og hjá Nordisk kulturfond, Sekretariatet for nordisk kulturelt samarbeid, Snaregade 10, 1205 Köbenhavn. Umsóknir skulu stilaðar til sjóðsstjórnar- innar og þurfa að hafa borizt skrifstofu sjóðsins eigi siðar en 15. ágúst 1972. Til- kynningar um afgreiðslu umsókna er ekki að vænta fyrr en i desember 1972. Stjórn Menningarsjóðs Norðurlanda. HVAÐAN KOMA VORURNAR? Bretland. Viðskipti islands og Bretlands hafa löngum verið mikil. Fyrr á öldum voru komur enskra kaup- skipa til iandsins tiðar. Eftir að einokunarvcrzluninni var komið á, var það mikið vandamál dönsku yfirvöldunum að hindra verzlun Englendinga. Um bcin viðskipti við Bretland er ekki að ræða aftur fyrr en ein- okunarverzluninni lýkur, en þá verður Bretland ásamt Dan- mörku fljótlega eitt helzta við- skiptaland okkar. Árið 1913 er 34,9% af heildar- innflutningnum frá Bretlandi og 17,3% af útflutningnum fer þang- að. Siðan er þróunin sú, að inn- flutningur þaðan minnkar hlut- fallslega, en hefur þó verið nokk- uð svipaður á siðustu árum eins og meðfylgjandi tafla sýnir. Útflutningurinn til Bretlands hefur verið breytilegur t.d. árin 1931-35 14,1% af heildarútflutn ingnum, en á striösárunum 1941- 45 fór hann nærri allur þangað, eða 82,7% að jafnaði. bessi hlut- fallstala minnkar eftir strið, en hefur verið nokkuð svipuð á sið- ustu árum, þó heldur minnkandi, svo sem sjá má meðfylgjandi töflu II. Helztu vörur frá Brctlandi: Vélar, verkfæri, bifreiðar, jarð- oliuafurðir, fatnaður, lyfja- og læknavörur, plastefni, sykur og hunang, te og fjöldi annarra vara. Til Brctlands: Fiskur- og fisk- afurðir, landbúnaðarvörur og ál og kisilgúr siðustu árin. Miklar sveiflur hafa verið i samsetningu útflutningsins. Má nefna að árið 1966 var sildarmjöl tæplega 60% af útflutningnum þangað, en sildarleysisárið 1969 aðeins 2,5%, en þá varál orðið um 28% af honum. Einnig hafði út- flutningur kindakjöts aukizt mikið á þessu timabili. Vonandi er að landhelgismálið um, sem eins og sjá má eru ekki verði þess ekki valdandi, að mikil siður hagstæð Bretum en Islend- röskun verði á þessum viðskipt- ingum. IIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIjl! iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniMin Tafla I. Viðskipti við Bretland 1959-1970 Ár Innfl. frá Bretiandi (cif.) i þús. kr. Útflutningur til Bretlands (fob.) iþús.kr. Útflutt umfram innflutt. bús. kr. 1959 138,248 90,096 4- 48,152 1960 310,234 387,222 76,988 1961 371,178 726,012 354.834 1962 500,312 691,808 191,496 1963 679,579 802,330 122,751 1964 749,841 834,219 84,378 1965 821,445 1.133,144 311,699 1966 917,160 996,978 79,818 1967 949,871 896,256 4- 53.615 1968 1,023,348 604,178 4- 419,170 1969 1,363,699 1,323,929 4- 39,770 1970 1,967,000 1,701,500 4- 265,500 1971 2,611,000 1,725,000 4- 886,000 NB: Krónutölur á verðlagi hvers árs. Innflutningur á cif.-verði, en útflutningur á fob.- verði. Áætla má að fob,- verð frá Bretlandi sé um 5-8% lægra að meðaltali en cif.- verð. Löndun I Bretlandi Tafla II. Hlutfallsleg hlutdeild Bret- lands í inn- og útflutningi 1959-1971. AR Innflutningur Útflutningur 1959 9,0% 8,5% 1960 9,3% 15,2% 1961 11,5% 23,6% 1962 13,1% 19,1% 1963 14,4% 19,9% 1964 13,4% 17,5% 1965 14,0% 20,5% 1966 13,4% 16,5% 1967 13,3% 20,8% 1968 13,6% 12,9% 1969 13,7% 14,0% 1970 14,2% 13,3% 1971 13,5% 13,19^

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.