Vísir - 10.06.1972, Qupperneq 2
2
VÍSIR. Laugardagur 10. júni 1972.
VfclBSm:
Hvemig lizt yöur á það aö
verzlanir loki á laugardög-
um?
Stcinunn Sif'urftardóttir, húsmóð-
ir: bað yrði allt i lagi fyrir mig,
ég get verzlað aðra daga vikunn-
ar. Svo linnst mér lika að
verzlunarlólk megi fá fri eins og
aðrir á laugardögum.
Klsa .lónatansdóltir, skrifstofu-
stúlka: Ja, það yrði ekki þægi-
legt, ég hef nú meslan tima til að
verzla á laugardögum. Annars
finnst mér sjállsagt að verzlanir
verði lokaðar einhvern annan dag
en ekki endilega laugardag.
llolga Jónsdóttir, húsmóðir: Kg
erá móti þvi. Mér linnst eiginlega
ekki hægt að svipta mann þeirri
þjónustu, að hala opið á laugar-
dögum.
Ilelga lljartardóltir, húsmóðir:
Mér linnst alls ekki hægt að
verzlanir hafi lokað :i daga i röð
(þ.e. l'.h. á mánudögum ) l>að væri
l'rekar að hafa lokað á mánudög-
um en ekki laugardögum
Inga Gisladóttir, húsmóðir: Það
væri allt i lagi fyrir húsmæður, en
þá yrði lika að vera opið fyrir há-
degi á mánudögum.
Þorsteinn Þorleifsson, verka-
maöur: Það kæmi sér ekki illa
fyrir mig. Annars ætti fólk að not-
færa sér það að verzla nógu mikið
á íimmtudögum og föstudögum
og þá er allt i lagi að loka á
laugardögum.
FYRSTA KONAN í
SJÓMANNAFÉLAGINU
Kyrsti kvenmaðurinn hefur
vcrið samþykktur inn í karladeild
Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavikur. Það gerðist á fundi
fclagsins siðastliðinn miðviku-
dag, en þá var Astrid Jenssen,
kona á scxtugs aldri, samþykkt i
dcildina.
Kvennadeild stóð henni að
sjálfsögðu opin, en Astrid hafði
bara engan áhuga á að innlimast i
þann flokk. ,,Þegar ég, eftir
meira en tólf ár á sjónum geng i
félag, vil ég ganga i rétt félag
sagði hún ákveðið. ,,ég stunda
mina vinnu á sjónum og vil þvi
með réttu ganga i sjómannafélag,
en ekki i eitthvert kvennafélag i
landi, sem ekki hefur með hönd-
um samninga fyrir mig.”
Visir gerði i gær tilraunir til að
ná tali af þessari harðduglegu,
keflvisku konu, en án árangurs.
Hún var sögð vera á bátnum Ingi-
ber ólafssyni, sem hefur verið á
handfæraveiðum siðustu vikuna.
Eldar Astrid ofan i hásetana iinn
Það kann að vera, aðlitla telpan á
reiðhjólinu hafi verið að raula
fyrir munni sér lögin úr óperunni,
sem lögreglan söng fyrir yngri
vegfarendur á dögunum. Hvað
sem þvi liður þá gætti hún ekki
nógu vel að sér á hjólinu sinu i
morgun og hjólaði i veg fyrir bil á
mótum Miklubrautar og Kringlu-
mýrarbrautar. Hún var þegar
flutt undir læknishendur, en
meiðsli hennar reyndust ekki al-
varlegs eðlis — en kannski hún
gæti sin betur, næst þegar hún
hjólar um hin hættulegu gatna-
mót. —
SSÉK
ISsaasá-
S|UITSOIU
Ekki lengur bensínlausir um nœtur
Oliufélögin þrjú hafa nú ráðiö
talsverða bót á i bensinsölumál-
um á Reykjavikursvæðinu, en
til þessa hefur það verið ali-
miklum erfiöleikum bundiö að
fá afgreitt bensin og dieseloliur
frá þvi kl. 21,15 á kvöldin, þar til
S á morgnana. Að visu hefur
vcrið kvöldsala á Vitatorgi og
nætursala i Kópavogi, en oft
hefur það hent bina mætustu
menn að þurfa á ökutækinu að
halda eldsnemma dags, en vera
á siðustu dropunum.
Nú hefur sjálfsafgreiðslufyrir-
komulag verið tekið upp við
dælur, sem settar hafa verið
upp við Umferðarmiðstöðina. I
nætursölunni verða 100 króna
peningar seldir þeim sem þurfa
á bensíni að halda og verður
hægt að fá bensin þar frá kl. 9 að
kvöldi til 6 að morgni, nema á
sunnudögum til kl. 12 á hádegi.
„Við setjum þetta upp i þeirri
von að dælurnar fái að vera i
friði fyrir skemmdarvörgum”,
sögðu talsmenn oliufélaganna i
gær.
Sjálfsala á bensini hefur rutt sér
til rúms viða erlendis, og er þá
gjarnan selt á hagstæðara verði
en þar sem afgreiðslumenn sjá
um að fylla tankinn. Verðið hér
verður hið sama og á venjuleg-
um afgreiðslum. Þá er rétt að
vara ökumenn við að dælan
heldur sjálf eftir slumpum, sem
verða eftir, þegar búið er að
fylla tankinn. Það er sem sagt
ekki ráðlegt að fylla upp i topp
þegar átt er við „ómennskan af-
greiðslumann” eins og þarna
verður.
—JBP
LESENDUR
JbHAFA
/Ám ORÐIÐ
Aðsóknin er nú
ekki mœlikvarði
Snobbaður skrifar:
Einhversstaðar var látið að þvi
liggja á dögunum, að aðsóknin
núna að Listahátiðinni yrði
grundvöllur á þvi mati, hvort
Listahátfðar, sem slikar ættu að
eiga hér framtið. Ekki hafi verið
að marka aðsóknina að þeirri
fyrstu. Þá hafi nýjabrumið verið
slikt. — Þetta er svo sem nógu
gott, svo langt sem það nær.
Gallinn er þó sá, að það virðist
hafa gleymzt að reka næean
áróður fyrir Listahátiðinni.
Kannski væri þó réttara að segja
rétta tegund af áróðri. Mest af þvi
efni sem birzt hefur um Listahá-
tiðina er nefnilega frekar fúlt, og
ekki til þess liklegt, að laða aö
nema þá áhorfendur, sem fyrir-
fram þekkja til þess, sem á boð-
stólum verður.
Mér er vel kunnugt um fjölda
manna, sem hefðu farið á margt
það, sem ekki hefur verið
nægjanlega sótt, einfaldlega
vegna þess að það vissi ekki af
hverju það var að missa. List i
hugum almenmings á tsli er þvi
miður heldur leiðinlegt fyrirbæri,
vegna þess að hér hefur verið
alltof mikið af þvi gert að hlaða
undir miðlungi góða og þaðan af
verri listamenn og list. Til þess
að eyða slikri tortryggni hjá fólki,
að hér sé eitthvað slikt á ferð,
þarf góða kynningu, góða sölu-
mennsku ekki aðeins venjulegar
og búralegar islenzkar full-
yrðingar um að eitthvað sé
„heimsfrægt, frábært”, o.s.frv.
„Stundin okkar"
„Stundin ykkar"
Reykjavik, 4. júni 1972
Fyrir þrem árum var yngri
dóttir min sex ára. Þá skrifaði
hún dagskrárstjóra sjónvarpsins
og innti tiann þess, hvi stundin
þeirra væri kölluð stundin okkar,
og þá væntanlega átt við stund
barnanna. Hún tók það enn-
fremur fram, að sér þættu dag-
skrárlok skemmtilegust. Undir
þessa staðhæfingu hennar get ég
tekið, en þó vill svo illa til, að ég
lit einstöku sinnum á islenzka
sjónvarpið. Ofthefur það verið lé-
legt og þá sérlega þegar um
barnaefnisval er að ræða, en
sjaldan verra en i dag — sunnu-
daginn 4. júni 1972. Þvi miður
láðist mér að horfa með syni
minum s.l. sunnudag á skemmtun
þá, sem börnunum er boðið upp á
af islenzka sjónvarpinu og er
ástæðan sú, sem nefnd var hér á
undan. En nú get ég ekki oröa
bundizt lengur. Rússneska teikni-
myndin er ágæt, en sendút óþýdd.
Það hefði þótt óheyrilegt á dögum
Grallaraspóanna, en þá unnu
menn lika i sjónvarpinu og lögðu
meira að segja á sig að láta alla
texta vera með stóru letri fyrir
börn. A eftirhenni kom bandarisk
teiknimynd og var sú þýdd, en þó
heldur illa. Textar ekki alltaf i
samræmi við tal og of langir en
fáir miðað við það, hve lengi þeim
var haldið á skerminum. Og svo
kom rúsinan i pylsuendanum.
Ensk framhaldsmynd fyrir börn
og unglinga, sem er vist keypt af
norska sjónvarpinu, en án efa
lánuð þvi eða gefin frá Englandi,
sem kennslumynd i ensku. Er
Slim John ekki nægilegur? Var
ekki eins hægt að nota hann sem
skemmtiefni fyrir börn? Eða fá
þennan ágæta þátt sem fræðslu-
efni fyrir börn að láni frá British
Council eða álika stofnun án
norskrar ihlutunar?. Hvað um
framhaldið af Linette sem dýnd
var hér undir nafninu Lina og ljóti
hvutti og hefur hlotið einróma lof
þeirra, sem vit hafa á sjónvarps-
efni fyrir börn a Norðurlöndum.
Hvað um myndirnar um Linu
Langsokk i sænska sjónvarpinu?
Hvað yfirhöfuð um frambærilegt
efni fyrir börn, þótt enginn búist
við þvi að þeim sé gert svo hátt
undir höfði, að islenzka sjón-
varpið eyði st órfé til þess að gera
islenzkar barnamyndir, en eyði
þvi fé sem það hefur til þess i
þriðja flokks framleiðslu, sem
hvergi teldist gjaldgeng nema
hér?
Börnum leiðast leikfimis-
sýningar og kórsöngvar, ef þau
taka ekki sjálf þátt i þeim. Væri
ekki hugsanlegt að fá einhvern til
að velja barnaefni sem hefði vit á
þvi i islenzka sjónvarpið eins og
sem betur fer hefur tekizt hjá
hljóðvarpinu? Meira hef ég ekki
um þetta efni að segja i bili, nema
hvað ég er fegin, að sjónvarpið
tekur sér sumarleyfi. Þá þarf vist
enginn að njóta dagskrárloka.
Reið móðir.
Kókþambið er
ofbeldi
Ef verkamenn væru að grafa
skurð og hópur unglinga kæmi og
tefði fyrir vinnu þeirra, þá er hætt
við að lögreglan kæmi og fjar-
lægði þá. —Hvaðer svo gert, þeg-
ar kokkar tefja veitingahús-
reksturinn og sitja við kókþamb
svo að enginn kemst að? Þetta er
ofbeldi, og gæti slikt hvergi gerzt
nema hér á landi. Erlendis fær
fólk ekki að sitja lon og don við
borð veitingahúsa, þar fer strax
og það hefur lokið við að borða. —
tslendingar eru vanþróaðir, það
sér maður bezt, þegar maður hef-
ur verið lengi erlendis. Maður
skammast sin fyrir landið, þegar
svona lagað er látið viðgangast.
Kona
HRINGID í
SlMA 86611
KL13-15