Vísir - 10.06.1972, Page 8
8
VtSIR. Laugardagur 10. júni 1972
Þetta mikilúðlega ljón fer með veigamikið hlutverk I Disney-myndinni
Napoleon og Samantha, en hér er einn leikaranna I myndinni, að blaða
með dýrinu I gegnum sögu af Mikka mús. Þó • svo aö Mikki hafi verið sú
figúra, sem raunverulega hratt Disney-myndagerðinni af stað, ber
Ijónið Major ekki meiri viröingu fyrir músinni en þaö, aö það geispar
langdregið undir lestrinum. Kannski sögur af sllkri pisl sem Mikka
mús sé heldur ekki rétta lesefnið til að vekja áhuga ljóns.??!!!!
Músin og
Ijónið
Enginn friðarreykur!
Þetta er ábyggilega stærsti reykjarhringur,
sem um getur, cn hann kemur nú heldur ekki
frá reykingamanni, sem stcndur inni i rörinu
og æfir sig með einn pakka af sigarettum.
Reykjarhringurinn myndaðist þegar nýverið
var gerð tilraun meö sprengiefni i gifurlega
löngu röri viö Albuquerque i Bandarikjunum.
Þessi sami rörbútur hefur veriö notaður viö
tilraunasprengingar atombomba — svo hér
cr síður en svo um friðarreyk að ræða.
Patrick Thomas 73 ara var oröinn
þreyttur á að sitja á reiðhjóli sinu, svo
að hann tók sig til og bjó til reiðhjól
sem hann gat legið á á leiðinni i vinn-
una. Hjólið er 2 1/2 metri á lengd og
svo langt aö Thomas getur hæglega
legið á maganum við að hjóla.
Hér höfum við mynd af þessu
furðuhjóli og vonumst til þess að farjð
verði að framleiða þau i stórum stil.
1 20.000
plöntutegundir
að deyja út.
Eitthvað i kringum tuttugu þús-
und plöntutegundir jaðra við að
deyja út á jarðarkringlunni, eða
nær tiundi hluti allra plöntuteg-
undanna, sem þekkjast, að þvi er
fræg rannsóknastofnun i Banda-
rikjunum hefur skýrt frá. Astæö-
an er sögð vera fyrst og fremst ör
fólksfjölgun og útrýming náttúr-
unnar. Stöðugt fleira fólk kallar á
stööugt meira rými fyrir hýbýli,
verksmiðjur og annað þar fram
eftir götunum.
Er hann eitthvað
skrítinn?
ÓTTALEGUR káifur getur þessi
maður verið, að aka svona blá-
kaldur yfir alla þessa hvössu
brodda, sem standa upp úr vegin-
um. Ja, nema hvað....??? Ætli
hann meini eitthvað með þvi? Jú,
raunar. Þarna er verið að fram-
kvæma könnun á vegum banda-
riskra neytendasamtaka, en
samtökin vildu komast að þvi af
eigin raun, hvaða hjólbaröar
stæðu sig bezí. Könnunin fór fram
I Laredo, Texas. Niðurstöðurnar
höfum við þvi miður ekki.
LÆKNIR HRYGG-
BROTINN — VILL
Ntf FÁ HEIM-
SÓKNIRNAR
GREIDDAR
Ungur læknir i Madrid hefur
krafizt sem næst 290 þúsund
Islenzkra króna af unnustu sinni
fyrrverandi fyrir þær 728 heim-
sóknir, sem hann varöi i hana þar
til hún visaði honum á bug. Hann
hefur skýrt svo frá, að hann hafi
reiknað saman upphæðina meö
hliðsjón af sinum venjulega taxta
fyrir vitjanir.
Byssusafnarinn
John Wayne
Maöur skyldi ætla, aö John
Wayne, sem ieikið hefur I meira
en 200 kúrekamyndum fái meira
en nóg af pistólum og riflum i
starfi sinu. Svo er þó langur vegur
frá, hann blátt áfram elskar slik
verkfæri og hefur komið sér upp
allgóöu safni þeirra. Hér sjáum
við hann handfjatla nokkra
„safnmuni" — giaðan sem barn á
aðfangadag jóla.
Umsjón:
Þórarinn Jón
Magnússon
Úr réttarsalnum
í Vatikanið...
Raymond Burr, sem
nú er 54 ára og bezt
þekktur fyrir leik sinn i
Ironside og Perry
Mason, hefur nú tekið
sér á herðar hlutverk,
gerólikt hinum tveim:
hann á að leika Jó-
hannes páfa 23ja i kvik-
mynd, sem gerð verður i
sumar.
— Þetta er tvimælalaust hlut-
verk ævi minnar, segir Raymond.
Það hefur alltaf verið minn
stærsti draumur að fá einn góðan
veðurdag hlutverk Jóhannesar
páfa, þvi ég hef dáð hann mjög.
Hann er mikilfenglegasti maöur,
sem ég hef fyrir hitt.
Jóhannes páfi, sem lézt i
janúarmánuöi ársins 1963, fékk
fjórum sinnum heimsóknir af
Raymond Burr i Vatikanið, þegar
leikarinn var við kvikmyndaleik i
Róm.
— Fyrsta skiptið, sem ég gekk á
fund hans ásamt nokkrum Itöl-
um. eekk hann rakleiðis á móti
mér, greip þéttingsfast i hendi
mina og hvislaði hratt i eyra mér:
,,Ef þér bara vissuð, hvað það
skapraunar- mér, að mega ekki
horfa á sjónvarpsdagskrána. En
ég hef þó náð að sjá nokkra þætti
þina. Virkilega ánægjulegir þætt-
ir.”
Mia Farrow
var fyrst gift Frank Skúbídúbídú
Sinatra, sem kunnugt er. ,,Mér
finnst ég raunverulega getað
hjálpað Andre (Andre Previn
eiginmanninum núna) og hann
geti stutt við mig. En i hjónaband
mu með Frank....já, mér íannst
ég ekki beinlinis geta hjálpað
honum svo mikið. Hann var fær
um flest upp á sitt eindæmi þá
þegar.”
Mia Farrow er fslenzkum kvik-
myndahúsgestum sennilega
einna eftirminnilegust fyrir leik
sinn i myndunum „Rosemary’s
Baby” og „John and Mary”. Nú
siðast lék hún i kvikmynd, sem
ber heitiö „Blind Terror”, en i
þeirri mynd fer hún með hlutverk
blindrar stúlku, sem upplifir hina
óhugnalegustu martröð. Mynd,
sem kvikmyndagagnrýnendur
hafa hafið upp til skýjanna.
Mögnuð spenna segja þeir að sé
óslitið frá upphafi til enda, þær 89
minútur, sem myndin er á hvita
tjaldinu. Meðfylgjandi mynd er
úr einu atriöi myndarinnar.
Sarah (Mia Farrow) uppgötvar
skyndilega nærveru einhvers
þegar hún er i baði.