Vísir - 14.06.1972, Page 7
VÍSIR. Miðvikudagur 14. júni 1972.
7
cyiíenningarmál
Ólafur Jónsson skrifar um listahátíð:
íslenzkir hœttir
og finnskir
en hin sem þegar voru ánetjuð
múminheimnum. Og svo var
tækifærið notað til að hylla hina
elskulegu skáldkonu sem var við-
stödd sýninguna, ásamt Kirsten
Sörlie leikstjóra og Ernu Tauro,
höfundi tónlistarinnar, sem sjálf
lék undir leikinn.
Leikfélag Reykjavikur:
LEIKHÚSALFARNIR
Sjónleikur fyrir alla fjölskylduna
eftir Tove Janson
Tónlist og undirleikur: Erna
Tauro
Leikmynd og búningar: Steinþór
Sigurðsson, Ivan Török
Þýðandi: Sveinn Einarsson
Þýðing söngtexta: Böðvar
Guðmundsson
Leikstjórn: Kirsten Sörlie
Múminsögur Tove
Jansson eru einhverjar
hinar beztu bækur sem
lengi hafa borizt á minn
bæ — fullar af fólki og
ævintýrum, eins og
sögur eiga að vera.
Skáldleg imyndun og
praktisk lifsspeki lifa og
"þrifast þar hver með
annarri. Múminheimur-
inn er vissulega gerður
úr efnivið okkar eigin
heims og lifs. Hann er
bara betri og sannari en
okkar.
Fjórar sögur úr flokknum eru
þegar komnar út á islenzku og
hafa meir að segja lifað af hina
dapurlegu stil- og andlausu
þýðingu þeirra yfir á islenzku.
Samt er ekki vert að gleyma þvi
hve sögur Tove Jansson eiga
mikið komið undir máli og stil, að.
þar eru rætur múminheimsins, i
hversdagsheimi okkar hinna.
Það er auðskilið mál að
Leikhúsálfarnir skuli hafa orðið
vinsælt sviðs'verk i Finnlandi —
þar sem allir þekkja múmin-
álfana fyrir. Samanber aðsókn og
undirtektir áhorfenda að hinni
hryggilegu sýningu Þjóðleik-
hússins á Sjálfstæðu fólki.
Bjartur i Sumarhúsum lifir jafn-
vel hana af! En vera má að
sýning Leikfélags Reykjavikur á
listahátið gjaldi þess hve nær-
tækur er samanburður við vinnu
lag og verk Lilla teaterns frá
Helsingfors þar sem þessi leikur
var saminn, aðeins fluttur af leik-
flokki þess hingað til.
Leikurinn er gerður upp úr
örlaganóttinni, einni þeirri
múmin-sögu sem út hefur komið
,á islenzku, þeim köflum hennar
sem gerast i leikhúsinu. Efnið er
laust I reipunum, enda frjálslega
með það farið: tilgangur leiksins
sá einn að koma nokkrum
vinsælustu persónum úr sögunni
fram á sviðinu, og þeir væntan-
lega valdir til leiks sem bezt hafa
hentað leikendum i Lilla teatern i
upphafi. Vitanlega er heimsókn
þess I Þjóðleikhúsið i fersku
minni. En hvarvetna I sýningu
Leikfélags Reykjavikurur á
Leikhúsálfum fannst mér mega
greina viðleitni og þörf leiksins á
viðlika stilfæringu, sömu ýtar-
legu nákvæmni i vinnu-
brögðunum og við kynntumst af
Umhverfis jörðina á 80 dögum.
Þess var hins vegar varla að
vænta að Kirsten Sörlie leikstjóra
hefði tekizt að temja leikhópnum i
Iðnó þetta vinnulag. Sýnirigin var
laus i rásinni, ærslafengin og
stundum fjarska hávaðasöm. En
nákvæmnin brást, samstilling
smáatriðanna út i hörgul, sú
stefnu og stilfesta sem ein hefði
megnað að veita efniviðnum sitt
rétta lif og yndi. Og textinn var
undarlega bragðlaus, söngtextar
Böðvars Guðmundssonar, svo vel
og lipurlega kveðnir við hina
áheyrilegu tónlist, komust ekki
einu sinni til skila i flutningnum.
Sem var fjarska bágt — af þvi hve
viturlegar múminsögurnar eru.
Þar fyrir var sitthvað vitaskuld
vel og skemmtilega gert i sýning-
unni — minnisverðust kannski
Vesla Guðrúnar Asmundsdóttur.
Guðrúnu lætur sýnilega vel
skringileikur sem þessi, og stil-
færsla og hermilist er það sem
leikurinn þarf á að halda, að
islenzkum hætti ef ekki
finnskum. Einnig Borgar
Garðarsson naut lifsins i gervi
múminsnáðans sjálfs með bæði
höfuð og hjarta á réttum stað.
Rósavalsinn hans múminpabba
varð með þakklátustu stundum
leiksins i meðförum Borgars. Og
slikar stundir, andartök urðu sem
betur fer fleiri, þrátt fyrir allt.
Leiknum var prýðilega tekið á
frumsýningu, börnin virtust
kunna að meta hann — þau e.t.v.
fremursem ekki þekktu sögurnar
Leikhúsálfar: Borgar Garðarsson: Múmlnsnáðinn, Sólveig Hauksdóttir: Mla, Sigrlður Hagalln
Filifjónka, Guðrún Asmundsdóttir: Vesla.
Gunnar Björnsson skrífar um listahátíð:
Samstilling hjartans
Tvær höfuðkempur
leiddu saman hesta sina
i Laugardalshöllinni á
mánudagskvöldið:
Yehudi Menuhin, fiðlu-
leikari og Vladimir
Ashkenazy, pianó-
leikari. Mérliggur við að
segja öttu hestum sinum
Vladimir Ashkenazy
saman, þvi að sára-
sjaldan heyrist góður
samleikur, þar sem
tveir góðir hittast og
hafa skamman tima til
æfinga. Hér var lika sú
raunin á, að samstill-
ingu hjartnanna var
ábótavant.
Það þarf enginn að halda, að
kammermúsik verði til i fljót-
heitum og gildir þá einu hvort
maður heitir Ashkenazy eða Jón
Pálsson. Það er ekki híustandi á
stofutónlist, nema flytjendurnir
eigi áralanga samvinnu að baki,
gjörþekki hver annan, hafi leikið
verkið þúsund sinnum (saman,
ekki hvor i sinu lagi), komi vel
saman o.s.frv.
Sónötur þeirra Brahms og
Beethovens guldu lika fljóta-
skriftarinnar i rikum mæli. Það
er mun skemmtilegra að hlýða á
miðlungskúnstnera, sem kunna
að leika saman, en stórstjörnur,
sem allan timann eru að berjast
Yehudi Menuhin
við að halda aftur af eigin prima-
donnu-mentaliteti. Enda var
Ashkenazy ótrúlega máttlaus,
einkum i Beethoven.
Svita Bachs handa einsamalli
fiðlu barg þessum tónleikum.
Tónlist Bachs blifur. Hér sýndi
Menuhin ágætan leik og við-
kunnanlega túlkun.
Aheyrendur voru flestir, sem
ég hefi séð á tónleikum, Laugar-
dalshöllin troðfull. Þeir tóku
listamönnunum firna vel.
í s^^jndi
Karlakórinn í
Austf jaröareisu
Fyrsta Austfjarðaferö Karla-
kórs Reykjavikur verður farin á
föstudaginn, þá flýgur kórinn til
Egilsstaða og syngur i Vala-
skjálfi. Daginn eftir et farið til
Neskaupstaðar og sungið þar i
Egilsbúð. A sunnudag syngur
kórinn i Sindrabæ i Höfn i Horna-
firði. Söngstjóri er Páll
Pampichler, einsöngvarar eru
Svala Nielsen og Friðbjörn G.
Jónsson, en undirleik annast Guð-
rún Kristinsdóttir.
Afgreiddu 200
óánægöa neytenduf.
Kvörtunarþjónusta Neytenda-
samtakanna annaðist 200 mál á
siðasta starfsári fyrir óánægða
neytendur, en sú hlið samtakanna
tekur mestan tima og mannafla,-
Félagar eru nú um 5000 talsins,
hefur fjölgað um 1000 og borga
þeir 400 króna árgjald, en opin-
berir sty.rkir mynda um fjórðung
heildarteknanna. 1 stjórn eru
Öttar Yngvason, hrl., dr. Bjarni
Helgason, jarðefnafræðingur,
varaform., Arnmundur Back-
man lögfr., ritari, Sigriöur Har-
aldsdóttir, hússtjórnarráðgjafi,
gjaldkeri og aðrir i stjórn þeir
Gisli Gunnarsson, sagnfræðingur,
Garðar Viborg, fulltrúi, og Frið-
rik Pálsson, viðskiptafræðinemi.
Bók um séra Hallgrím.
,,Um Hallgrimssálma og höf-
und þeirra” heitir nýútkomin bók
eftir séra Jakob Jónsson. Er efni
hennar ritgerðir um séra Hall-
grim og verk hans. Allur ágóði af
sölu bókarinnar rennur til bygg-
ingar Hallgrimskirkju.
Afmælisgetraun í
samvinnubúöunum
t tilefni 90 ára afmælis sam-
vinnuhreyfingarinnar i landinu
og 70 ára afmælis SIS hefur verið
ákveðið að efna til afmælisget-
raunar i búðum samvinnumanna
á sama tima og afmælanna verð-
ur minnzt i Reykjavik. Að sögn
Gunnsteins Karlssonar, auglýs-
ingastjóra S.t.S. er búizt við að
getraunin fari fram i 200 verzlun-
um og fjalla spurningarnar á
seðlunum um samvinnuhreyfing-
una. Seðlar munu fást dagana 21.
til 24. júni n.k. Verðlaun verða ein
i hverri búð, skreytt karfa með
vörum fyrir 3-4 þús. krónur. Að
auki taka allir þátttakendur þátt i
landskeppni þar sem i boði verður
utanlandssigling fyrir þá heppnu.