Vísir - 14.06.1972, Qupperneq 9
8 VISIR. Miðvikudagur 14. júni 1972. VtSIR. Miðvikudagur 14. júnl 1972. 9
■
* m
iM
j|pÍiP7
Magnús i siðari hálfleik, næði að
krafsa með hendinni i boltann á leið-
inni.
Ekki fór það svo, að KR-ingarnir
skildu ekki sitt eigið snilldarhand-
bragð eftir á leiknum, en mark það
sem þeir skoruðu á 36. minútu var
fallegasta mark leiksins. Atla Þór
Héðinssyni var dæmd aukaspyrna
við endalinu, fast upp við vitateig
Keflavikur, . Hann spyrnti laglega
fram fyrir markið til Björns Péturs-
sonar, sem rétt nikkaði boltanum
yfir til bórðar Jónssonar, sem siðan
rak smiðshöggið á verkið, og skallaði
i netið.
Rangstöðutaktikin var á dagskrá
hjá Keflvikingum eins og fyrr, og
reyndist hún þeim vel. Vörnin var
sterk, Guðni Kjartansson og Einar
Gunnarsson sáu fyrir þvi, en i sókn-
inni voru Steinar Jóhannsson og
Ólafur Júliusson skemmtilegastir.
Einnig barðist Grétar Magnússon
vel.
Þórður Jónsson, Sigmundur
Sigurösson og Haildór Björnsson
voru allir skinandi góðir i vörninni
hjá KR, en Atli Þór Héðinsson og
Arni Steinsson sýndu lipran og góðan llalldór Björnsson gekk þarna frá einum Keflvíkingnum, sem
sóknarleik. gþ virðist stinga hausnum niður I fósturjörðina likt og strúturinn..
- Veðrið sveik sundfólkið ó fyrsta sund-
mótinu þar sem reynt var við lógmörkin
Ekki tókst Guðjóni Guðmunds-
syni að hnekkja tslandsmetinu i
100 metra bringusundinu i gær-
kvöldi, - það vantaði 2/10 úr
sekúndu til þess, - og þar með aö
ná Olympiulágmarkinu i
greininni. Það var heldur ónota-
legt veður, sundfólkið var óheppið
að mótið skyidi einmitt lenda á
þessu kvöidi en ekki t.d. kvöldinu
áður. Ef svo hefði verið, þá hefði
árangur ÍR—mótsins lika orðið
allur annar.
En Guðjón ætti að vera öruggur
eiginlega hvenær sem er að bæta
metið og það verulega. Mest kom
á óvart að sjá Leikni Jónsson i 4.
sæti á 1.19.0, sem er langt fyrir
neðan hans getu.
Annars er greinilegt að sund-
fólkiö er enn langt frá þvi að vera
komið i bezta form. Næstu
vikurnar mun þetta ugglaust lag-
ast verulega og nokkrir munu
reyna við lágmörkin fyrir
Munchen-leikana.
Guðmundur Gislason var hinn
öruggi sigurvegari i 200 metra
flugsundinu á 2.21.1 og i 200 metra
fjórsundinu var munurinn á hon-
um og næstu mönnum mikill.
Guðmundur synti á 2.22.8, eða lið-
lega 2.5 sek frá metinu sinu eins
og i flugsundinu.
Finnur Garðarsson á áreiðan-
lega eftir að láta meira að sér
kveða i 100 metra skriðsundinu,
hann vann á 57.0 i gærkvöldi, en
lágmarkið er 55.5, sem er 3/10
undir íslandsmeti hans frá i
fyrra. Athygli vakti Sigurður
Ólafsson, Ægi, sem varð annar á
59.9 sek.
Salóme Þórisdóttir, Ægi, vann
200 metra baksund kvenna á
2.49.1, en var langt frá metinu
sinu. Guðmunda Guðmundsdóttir
fékk timann 2.53.8.
Þá vann Helga Gunnarsdóttir
100 metra bringusundið á 1.25.8,
en átti i harðri keppni við Guö-
rúnu Magnúsdóttur, KR, sem
fékk timann 1.26.5. Guðmunda
Guðmundsdóttir, Selfossi var
yfirburðasigurvegari i 100 metra
flugsundinu á 1.19.1.
I 4x100 metra fjórsundi kvenna
vann Ægissveitin á 5.31.5 min., en
i karlaflokknum Armannssveitin
á 4.40.3.
Af yngra fólkinu vakti sund
Arnar Ólafssonar úr Hafnarfirði
mesta athygli, hann synti 100
metra bringusund á 1.18.5 aðeins
14 ára gamall. t 50 metra skrið-
sundi telpna vann Jóhanna
Stefánsdóttir Hveragerði á 32.7 og
i 100 metra bringusundi telpna
var Jóhanna Jóhannesdóttir,
Skagamær, sigurvegarinn á
1.32.7. —
NÆST, GUÐJONI
GUÐJÓN, — aðeins 2/10 frá OL- lágmarkinu i gærkvöldi og sann-
arlega engin ástæða til annars en að senda félögunum svolitiö bros.
Ve/ varið hús fagnar vori....
VITIETEX
heitir plastmálningin frá SLIPPFÉLAGINU.
Hún ver steinveggi gegn vatnsveðrum haustsins
og frosthörkum vetrarins.
VITRETEX plastmálning myndar óvenju sterka húð.
Hún hefur þvi framúrskarandi veðrunarþol.
Samt sem áður „andar" veggurinn út um VITRETEX
plastmálningu.
Munið nafnið VITRETEX það er mikilvægt - þvi:
endingin vex með V/TRETEX
Framleiðandi á íslandi:
Slippfélagið íReykjavíkhf
Málningarverksmiðjan Dugguvogi - Simar 33433 og 33414
KR
BETRA
tímanum leið
Hundruð gesta á
Laugardalsvellinum i
gærkvöldi þurfa að fara
til úrsmiðsins og láta
athuga klukkur sínar.
Það er álit dómara leiks
KR og Keflavikur i gær-
kvöldi, — og linuvarð-
anna tveggja.
Nema þá að þeir hafi haft rang-
ar klukkur eða slæma sam-
vizku? „Leiktiminn stóð 45 min-
útur”, fullyrti Valur Benedikts-
son dómari i þessum leik við
fréttafnann Visis. ,,Að sjálfsögðu
var timinn réttur”, sagði ungur
linuvörður i þessum leik Guð-
mundur Sigurðsson. Ragnar
Magnússon, hinn linuvörðurinn
var sama sinnis.
Staðreyndin, sem ALLIR viður-
kenndu var hinsvegar þessi:
1) Fyrri hálfleikurinn stóð i
fullar 54 minútur.
2) A þessum tima voru tvö
mörk skoruð, fyrsta og annað
mark Keflavikur, — á 48. og 52.
min.
3) Fyrra mark Keflavikur var
augljóslega ranglega skorað,
markvörðurinn hafði hönd á
knettinum, en Keflvikingar sóp-
uðu boltanum inn þrátt fyrir það.
4) Hörður Markan viðhafði ljót-
an munnsöfnuð við dómarann
vegna dómsins, — fékk RAUTT
SPJALD, — var sem sé visað af
leikvelli.
Staðreyndin er sú að gert var út
um þennan mikilvæga leik i
leikhléinu.
„Nei, nei, klukkan er i finasta
lagi,” sagði Valur Benediktsson
og benti mér á forláta dómaraúr,
sem virtist þó þesslegt að geta
platað bezta dómara, sérstaklega
ef linuverðirnir hefðu nú ekki
sinnu á að hnippa i hann. „Linu-
verðirnir gáfu mér heldur ekki
merki”, sagði Valur, „og á með-
an sá ég enga ástæðu til að stöðva
leikinn.”
„Klukka dómarans er vist eina
klukkan, sem mark er tekið á”,
sagði Hafsteinn Guðmundsson
formaður IBK. „Við höfum tapað
úrslitaleik i yngri flokkunum á
svipuðu atviki, en það var vist
ekkert hægt að gera i þvi. Sjálfur
tók ég ekki timann og veit ekki
hvað gerðist”.
Þeir voru þó fjölmargir.á vell-
inum, sem höfðu tekið timann, og
það var sama hvaöa félagi þeir
tilheyrðu, allir viðurkenndu að
timatakan var röng, og að gert
hafði verið út um leikinn i leikhlé-
inu.
Það var á KR-ingum að heyra i
gærkvöldi að leikurinn yrði kærð-
ur. Vissulega mundi Valur Bene-
diktsson verða maður að meiri að
viðurkenna mistök sin. Það er
sorglegt afspurnar ef dómari, og
tveir linuverðir, hafa samsæri sin
á milli að bera á borð rangar
staðhæfingar, ekki sizt þegar
hundruð vitna eru að þvi gagn-
stæða.
Hinsvegar verður að átelja það
að vallarlýðnum skuli leyft það
fortölulaust að kasta skit og
plastpokum fullum af vatni eftir
dómaranum. „Einhver hefðikall-
að þetta skrilslæti i Keflavik”,
varð einum Suðurnesjamannin-
um að orði, þegar hann yfirgaf
leikvanginn.
Hvað sem verður úr þessu máli,
verður að segja að dómari og
linuverðir hafa minnkað mjög i
áliti hjá þeim, sem urðu vitni að
atburðinum i gær. Allir vita að
dómari er ekki óskeikull, en
hann ætti að geta viðurkennt
annað eins og þetta, svo augljóst
sem það er.
Og sé einhver aganefnd eða eft-
irlitsnefnd lifandi meðal dómar-
anna, þá er ekki annað að sjá en
hún ætti að hefja rannsókn á
þessu máli og gera viðeigandi
ráðstafanir að henni lokinni.
JBP-
þegar dómarmn gleymdi hvað
Valur Benediktsson gengur til hins langþráöa leikhlés eftir 54
minútna hálfleik, — allt annaö en fallegt augnaráð, sem Sigmundur
Sigurðsson sendir dómaranum.
HA! VEIKUR?
HVER? ÉG?
Kastró er alveg að fara úr hjartveiki
var heiminum tilkynnt frá Póllandi í
síðustu viku af erlendum fréttamönn-
um, sem töldu sig hafa góðar heimildir
fyrir þessu.
Nú á laugardagsmorguninn var þessi
mynd svo tekin í Krakow í Póllandi.
Þar var sá hjartveiki á körfuboltaæf-
ingu gegn pólskum risum', og þá tók
fréttamaður U P l-f réttastof unnar
bandarisku þessa mynd, sem dreift var
víða um lönd.
Sannarlega leit Kaströ ekki út fyrir að
vera sérlega veiklulegur, þegar hann
renndi upp að pólsku varnarmönnun-
um og skaut á körfuna (það fylgdi
reyndarekki sögunni hvort Kastró hitti
körfuna).
Vonandi fáum við tækifæri innan
skamms til að mynda íslenzka lands-
feður í körfubolta eða einhverri íþrótt
annarri.
KIMUR OL-UD BRAZILÍU?
Albert heim of vel heppnuðu þingi Evrópusambandsins
Ekki er útilokaö að við fáum
góða heimsókn siðar i sumar, —
fáum hingað Olympiulið
Brazilíumanna, sem þá verður á
keppnisferð fyrir aðalkeppni OL
í Múnchen. Albert Guðmunds-
son kom heim í fyrradag frá
Vínarborg þar sem hann sat þing
Evrópusambandsins UEFA, en
á ferð i Paris hitti hann forseta
knattspyrnusambands Brazilíu
og fékk loforö um að allt yrði
gert til að reyna að koma inn ís-
landsheimsókn liðsins.
t ferðinni var ákveðið að Islands leiki
við Sviþjóð ytra 11. júli 1973, en við
Norðmenn i júlilok hér i Reykjavik og
Holland i ágúst erlendis, allt leikir
næsta sumar.
Albert kvað norræna samvinnu hafa
gefizt vel á þessu Evrópuþingi. Þar var
kjörinn maður i stjórn FIFA, alþjóða-
sambandsins, og tókst með sameigin-
legu átaki að fá Finnann Kartunen kjör-
inn. Þó tókst þetta ekki i fyrstu atrennu.
Það var ekki fyrr en Noröurlandamenn
áttuðu sig á að Bretar og Rússar höfðu
aðeins tillögurétt i kjörinu, ekki at-
kvæðisrétt, að borin var fram tillaga um
að endurtaka kosninguna. Eftir nokkurn
mótþróa Rússanna var þetta þó sam-
þykkt og með nýrri kosningu fór finnski
forsetinn inn i FIFA-stjórnina, ..en hann
erfyrrumfjármálaráðherra heimalands
sins. Er vitaskuld mikill styrkur fyrir
Norðurlöndin að fá fulltrúa i stjórnina.
Skýringin á þessum reglum um Breta og
Rússa mun sú, að þeir eiga menn i
ÓHEILLADAGUR
f RIGNINGUNNI
Keflvikingar sigruðu KR i
nokkuð skemmtilegum, en
nokkuð vætusömum leik á
Laugardaisvellinum i gær-
kvöldi. Skoruðu Keflvikingar
þrjú mörk, þar af tvö í „fyrri
hálfleik", en KR skoraði eitt
mark i siðari hálfleik.
Heldur þótti áhorfendum sem
leiktimi fyrri hálfleiks hefði farið
fram úr þvi sem lög gera ráð fyrir.
Taldistsumum til að fyrri hálfleikur
hefði staðið hartnær heilan klukku-
tima, en það sanna i málinum mun
vera að 54 minútur liðu frá þvi að
leikurinn hófst, þar til hann var
flautaður af. Að þessu athuguðu er
ckki fráleitt að álita að minnsta ann-
aö mark Keflavikur i fyrri hálfleik
hafi verið skorað eftir að leiktim-
anum átti að vera lokið. Það var þó
ekki svo að áliti dómarans, Vals
Benediktssonar, sem bar saman við
framburð beggja linuvarðanna um
að leiktiminn hefði verið með eðli-
legum hætti.
Ekki voru raunir KRinga allar
taldar með þessari ólukkuþróun með
leiktimann, heldur bættist það ofan
á, að Herði Markan var visað af leik-
velli rétt undir lok fyrri hálfleiks, og
fékk hann að sjá rauða kortið dómar-
áns fyrir mótmæli við hann.
M jög var baráttan jöfn fyrsta hálf-
timann eða svo. Liðin sóttu á vixl,
KR var kannski heldur meira með
boltann, án þess þó að tækifæri til að
skora sköpuðust. Sóknarlotur Kefl-
vikinganna voru öllu hættulegri, eins
og þegar Steinar Jóhannsson reyndi
skot aftur fyrir sig frá vitateigi KR,
með opið markið að baki sér.
Það mun hafa verið i nánd við 45.
minútuna, sem fyrsta mark Kefla-
vikur kom i leiknum, en vallarklukk-
an hafði stöðvast. Löng spyrna i átt
að KR-markinu hafnaöi hjá Herði
Ragnarssyni, sem skaut á markiö,
en hitti boltann illa, og hann rúllaði
af litlu afli i átt til vinstra mark-
hornsins. Magnús Guðmundsson,
markvöröur KR, hafði hönd á bolt-
anum og tókst að stöðva hann, en þar
var Hörður aftur kominn, tókst að
krafla boltann frá Magnúsi, og
renndi honum siðan i autt markið.
Það mun hafa verið í sambandi við
þetta atvik, sem árekstur dómarans
og Harðar Markan bar að, og skifti
það engum togum, að Hörður varð aö
fara út af.
Fjórar til fimm minútur munu
siðan hafa liðið þar til Keflviking-
arnir skoruðu annað markið sitt. Þar
var um mjög fallega samvinnu að
ræða milli Steinars Jóhannssonar,
sem gaf fyrir KR-markið frá vinstri,
til Jóns Ólafs Jónssonar út i teiginn
framan við KR-markið. Magnús
hljóp út úr markinu og Jón Ólafur
þrumaði i markið að baki hans — að
visu með viðkomu i höndum eins
varnarmanns KR, en markið stóð
gott og gilt.
Keflvikingarnir léku með vindinn i
bakið i siðari hálfleik, og fyrri hluti
hans var nokkuð erfiður fyrir KR,
sem tókst ekki að byggja upp svo
árangur yrði aö. Hins vegar áttu
Keflvikingarnir góð tækifæri —
Hörður Ragnarsson á 12. minútu, en
Steinar klúðraði. Jón Ólafur renndi
naumlega framhjá opnu marki á 21.
minútu, en loks á 33 minútu upp-
skáru Keflvikingar árangur erfiöis
sins. Þá lék Steinar Jóhannsson upp
að vitateig vinstra megin, og tókst aö
renna boltanum i hornið fjær, þrátt
fyrir að Pétur Kristjánsson sem
komið hafði i KR-markið fyrir
MÖRKIN SKORUÐ í LEIKHLÉI
- OG KR-INGI VÍSAÐ AF VELLI!