Vísir - 03.07.1972, Blaðsíða 12
12
VtSIR Mánudagur 3. júli 1972
VtSIR Mánudagur 3. júli 1972
13
Umsjón Hollur Símonarson
149. íslandsmet
Guðmundar G.
Guðmundur Gislason, sá
i'rækni sundmaður, var eini
islendingurinn sem setti
islandsmet i landskeppninni
við íra — stórbætti met sitt i
200 metra baksundi og þetta
met hans er 141). einstaklings-
metið, sem hann setur i sund
inu, en auk þess hefur
hann sett tugi íslandsmeta i
hoðsundum.
Guðmundur synti 200 m. baksundið á
2:25.8 min. og bætti eldra met sitt um
nákvæmlega eina sekúndu. Satt bezt aö
segja, aö þá kom það talsvert á óvart, að
Guðmundur skyldi setja met einmitt I
þessu sundi.
Fyrri dag keppninnar tók hánn ekki
þátt i baksundi en þremur öörum
greinum. Sigraði meö yfirburöum i 200
m. íjórsundi, en varð að láta sér nægja
þriðja sætið i 100 m. flugsundinu á'eftir
báðum' trúnum, og var langt frá sinum
bezta árangri á þessum vegalengdum.
Torfi Tómasson, formaöur Sundsam-
bands Island, sagöi nýlega i viötali hér i
blaðinu, að Guðmundur hefði aldrei verið
betri en núna, 31 árs að aldri, og styður
þetta met Guðmundar þá kenningu Torfa.
Hins vegar gat Torfi þess einnig, að
Guðmundur hefði miðað við að vera i sem
beztri æfingu eftir þrjár vikur — eða
siðast i þessum mánuði — vegna átta-
landa-keppninnar i Edinborg, Sund-
meistaramótsins og sú æfing á að vera i
hámarki fram yfir Olympiuleikana i
Miinchen.
1 baksundinu var einnig sett irskt met.
Hinn ágæti íri, E. White synti á 2:18.7.
min. eða mun betri tima en Guðmundur,
en þess ber að geta, að baksundið er
algjör aukagrein hjá Guðmundi þó svo
hann sé beztur i baksundinu hér á landi.
Ásgeir meiddur-
Eyleifur í liðinu
Einn nýliði i íslenzka landsliðinu
t>eir llennann Gunnarsson,
Val, og Ásgeir Eliasson,
Kram, sein voru valdir í
landsliöió gegn Dönum i
kvöld, meiddust báðir i
úrslitaleik Iteykjavikur-
mótsins i vikunni og eru
meiðsli Ásgeirs það alvarleg,
að hann komst ekki i gegn-
uin lokaprófun á Laugarvatni
i gær og tekur þvi ekki þátt i
landsleiknum, sagði Hafsteinn
Guðmundsson i gærkvöldi.
Hins vegar stóðst Hermann
prófið og verður með.
Ég hef valiö Eyleif Hafsteinsson,
Akranesi, i landsliðið í staðinn fyrir
Asgeir og leikur Eyleifur i stöðu fram-
varðar, sagði Hafsteinn ennfremur, og
landsliðshópurinn er nú sextán menn.
tslenzka liðið verður þannig skipað og i
þvi er einn nýliöi Teitur Þóröarson, 19 ára
frá Akranesi:
Siguröur Dagsson, Val, (sjö landsleikir
áður), Jóhannes Atlason, Akureyri, (23),
Ólafur Sigurvinsson, Vestmannaeyjum,
(5) Guðni Kjartansson, Keflavik, (21),
Einar Gunnarsson, Keflavik, (10),
Marteinn Geirsson, Fram, (4), Guðgeir
Leifsson, Viking, (6), Eyleifur Hafsteins-
son, Akranesi, (23), Hermann Gunnars-
son, Val, (17),TeiturÞóröarson, Akranesi
(0), og Elmar Geirsson, Fram, (13).
Varamenn eru Þorsteinn ólafsson,
Keflavik, (1), Þröstur Stefánsson,
Akranesi, (5), Tómas Pálsson, Vest-
mannaeyjum, (3), Óláfúr Júlíiisson,
Keflavik, (2), og Asgeir Sigurvinsson,
Vestmannaeyjum (0).
Þetta virðist mjög sterkt liö á islenzkan
mælikvarða . Aö vlsu er það mikill skaði,
að Asgeir Eliasson skuli ekki geta tekið
þátt i leiknum, þvi hann er I hópi okkar
albeztu knattspyrnumanna. Eyleifur
Hafsteinsson, sem kemur i hans staö, er
leikreyndasti leikmaður liðsins, sem
leikur sinn 24. landsleik i kvöld. Eyleifur
hefur oft veriö bezti leikmaður tslands I
landsleikjum og það er þvi góður maöur,
sem kemur i stað Asgeirs, og viö skulum
aðeins vona, aö Eyleifur nái sér vel á strik
— þá getur hann áreiðanlega gert stóra
hluti.
Einn nýliði er i liðinu - hinn sókndjarfi
miöherji Akraness-liösins, Teitur Þóröar-
son. Teitur hefur i vor og sumar sýnt mjög
góöa leiki og á hiklaust heima i lands-
liðinu — fljótur og meö góða knattmeð-
ferö. Faðir hans, Þórður Þórðarson, var á
sinum tima meðal kunnustu leikmanna
tslands, sem lék tugi landsleikja. Epliö
hefur þvi ekki falliö þarna langt frá
eikinni.
Þá er þarna annar leikmaður —
reyndar i varamannahópnum — Asgeir
Sigurvinsson, Vestmannaeyjum, sem
ekki hefur leikiö I landsliði. Hann er
aðeins sautján ára og eitt mesta efni, sem
fram hefur komið hér i knattspyrnunni.
Bróðir hans, Ólafur Sigurvinsson, er i
liðinu, svo möguleiki er á þvi i kvöld, aö
bræður leiki enn einu sinni i islenzka
landsliðinu. Slikt hefur komið fyrir
nokkrum sinnum áöur. Eitt sinn léku allir
þrir Felixbræðurnir, Hörður, Bjarni og
Gunnar, i sama landsliðinu, og þeir
Rikharður Jónsson og Þórður Jónsson,
léku saman i landsliði, svo og Jóhannes
og Þorbergur Atlasynir Óli B. Jónsson,
núverandi þjálfari Vals, og Guðbjörn
Jónsson léku báðir i landsliði, en ekki á
sama tima.
A upptalningunni á landsliðshópnum
sést, að þaö eru mjög leikreyndir menn,
flestir, sem taka þátt i landsleiknum.
Eyleifur Hafsteinsson og Jóhannes
Atlason leika báðir sinn 24. landsleik.
Guðni Kjartansson kemur skammt á
eftir, en hann leikur sinn 22. landsleik,
Hermann Gunnarsson sinn sautjánda og
Elmar sinn þréttánda. Einar Gunnarsson
er einnig með tveggja stafa tölu — leikur
sinn ellefta landsleik I kvöld.
Þetta verður jafn og góður
leikur og úrslitin eru tvísýn
sagði formaður dönsku landsliðsnefndarinnar, Jörgen Lescley Sörensen við komuna til íslands
Ég reikna fastlega
með jöfnum og
skemmtilegum lands-
leik milli íslands og
Danmerkur á Laugar-
dalsvellinum — og að
minu áliti eru úrslit tvi-
sýn, sagði Jörgen Les-
cley Sörensen, sá frægi
kappi, sem nú er for-
maður dönsku landsliðs-
nefndarinnar, en var eitt
sinn mjög frægur at-
vinnumaður á ítaliu.
Hann var á æfingu i gær
með danska landsliðinu
á Valsvellinum og sýndi
þá gamla takta ásamt
öðrum úr fararstjórn-
inni.
— Viö höfum orðið fyrir tals-
verðum áföllum aö undanförnu
með danska liðið, sagði Sörensen
ennfremur. Siöustu átta dagana
hafa þrir af hinum föstu leik-
mönnum liösins gengið yfir i raðir
atvinnumanna og verða þvi ekki
með i landsleiknum i kvöld, þar
sem við tökum þennan landsleik
við Island sem æfingu fyrir
Olympiulið okkar, það, sem leik-
ur i Munchen.
Þegar við náðum þeim áfanga
að vinna okkur sæti i úrslita-
keppni Olympiuleikana með þvi
að vinna Rúmeniu vorum við
sterkt lið. Kjarninn er sá sami i
dag, þó svo þessir þrir séu ekki
meö okkur lengur, en þetta voru
allt framlinumenn, svo framlina
danska landsliösins er ekki eins
beitt og áður. En vörnin er sterk
— og ég hef lika heyrt aö vörn is-
lenzka liösins sé sterk — svo þetta
verður leikur tveggja sterkra
varnarliöa.
— Viö leggjum mikið upp úr
þessum leik við Island — hann er
liöur i undirbúningi okkar fyrir
Munchen. Danska liöið mun
sennilega leika þrjá aöra leiki
fyrir leikana — þaö er fyrst við
Manch. Utd, sem kemur til Kaup-
mannahafnar, einnig austur-
þýzkt lið og svo landslið Kolom-
biu. Það liö leikur einnig á
Olympiuleikunum, en ekki i sama
riðli og við, og kemur nokkuö
snemma til Evrópu fyrir leikana.
Þiö hafiö leikið nokkra leiki i
vor og sumar?
— Já, en þaö byrjaöi nú ekkert
of vel. Viö töpuöum bæði fyr-
ir ensku og þýzku áhugamanna-
liðunum i landsleikjum, en sið-
an komu hinir ágætu leikir
við Rúmena. Einnig lékum viö
nýlega viö hið kunna, pólska lið,
Gornik, og unnum 5-0, en þá voru
nokkrir atvinnumenn með.
Landsleikurinn við Svia i siöustu
viku tapaðist (0-2), en danska liö-
ið var þá aö mestu skipað at-
vinnumönnum. Þó voru i þvi þrir
leikmenn, sem leika hér. Ég held,
að það sé litið unniö við það að
nota atvinnumenn i landsleiki á
þessum tima — þeir eru i sumar-
frium og ekkert of áhugasamir
um knattspyrnu.
Danska liðið i landsleiknum i
kvöld verður þannig skipað.
Markvörður Mogens Thorkilssen,
OB. Varnarmenn Flemming Ahl-
berg, Frem, S. Andreassen,
B1903, Per Röntved, Brönshöj, og
Jörgen Rasmussen, Randers
Fre ja.
Framveröir. Hans Edwald
Hansen, B1901, Jack Hansen,
91913. Framherjar Stig Zegler,
Hvidovre, Alan Simonsen, Vejle,
Heino Hansen, Næstved og Kjeld
Bak, Næstvel.
Þeir brugðu sér á æfingu,
dönsku landsliðsmennirnir,
strax eftir að þeir komu til
Reykjavikur i gær. Það var
æft á Valsvellinum við
Hh'ðarenda undir stjórn hins
austuriska þjálfara liðsins.
Ljósmyndari VIsis, Bragi
Guðmundsson, var þar
staddur og tók þá þessa
mynd af landsliðsmönnun-
um.
Landsliðshópurinn islenzki æfði á
fimmtudagskvöld á túnunum
fyriri neðan Háskólann og þá tók
Bjarnleifur þessa mynd af
nokkrum þeirra við tröppur
Háskólans. Lengst til vinstri er
Teitur Þórðarson, sem leikur sinn
fyrsta iandsleik i kvöld. Aðrir á
myndinni eru, að neðan. ólafur
Júliusson, Þorsteinn Ólafsson,
Martcinn Geirsson, Sigurður
Ilagsson (með bolta), McDowell,
þjálfari, Þröstur Stefánsson,
Tómas Pálsson, Guðgeir Leifs-
son, Guðni Kjartansson, ólafur
Sigurvinsson og efst Eyleifur
Hafsteinsson, sem kemur inn i
liðið i kvöld i stað Asgeirs Eiias-
sonar.
Ákveðnir að sigra
danskinn í kvöld!
— íslenzku landsliðsmennirnir koma fró Laugarvatni i dag
—Það er mikill hugur i
strákunum, þeir eru
ákveðnir i að sigra
danska landsliðið i
Geirsson, Fram, kom frá Þýzka-
landi á föstudag og hefur veriö
með okkur hér fyrir austan. Hann
heldur strax út aftur að lands-
leiknum loknum.
Við höfum haft þaö gott hér,
sagöi Hafsteinn ennfremur og
þessi dvöl á Laugarvatni hefur
sameinað strákana fyrir átökin
viö Dani i landsleiknum.
Haukar hlutu sín fyrstu st.
gegn ísfirðingum
ísfirðingar eru nú einir
ó botninum í 2. deild
lciknum i kvöld, sagði
landsliðseinvaldurinn
Hafsteinn Guðmunds-
son, þegar við náðum
tali af honum á Laugar-
vatni seint i gærkvöldi.
Landsliösmennirnir sautján,
sem valdir voru, hafa verið I
æfingabúðum á Laugarvatni frá
þvi á föstudag við léttar æfingar
undir stjórn landsliðsþjálfarans,
Skotans McDowell, og lands-
liöseinvaldurinn hefur einnig
verið þar þessa dagana. Þaö er
nokkuð langt siöan landsliðs-
mennirnir hafa verið þetta marga
daga saman i æfingabúöum hér
heima fyrir landsleik, enda ekki á
hverjum degi, sem danska lands-
liðiö kemur hingað til keppni.
Þrir leikmenn sem ég haföi hug á
i sambandi viö landsleikinn þeir
Þorbergur Atlason, Fram,
Steinar Jóhannsson, Keflavik og
Ingi Björn Albertsson, Val,
boðuðu forföll og gátu ekki tekiö
þátt i æfingunum, sagöi Hafsteinn
i gærkvöldi, og komu þeir Þor-
steinn Ólafsson, Keflavik, og
Ásgeir Sigurvinsson, Vestmanna-
eyjum i þeirra stað. Elmar
Haukar i Hafnarfirði hlutu sin
fyrstu stig i 2. deildarkeppninni I
sumar i hinum þýöingarmikla
leik sinum við tsfiröinga á
laugardag. Úrslit urðu þau, að
Ilafnfiröingar skoruðu eina
markiö i leiknum, sem háður var
á isafiröi og eftir hann sitja ís-
firöingar einir á botninum i deild-
inni — hafa ekkert stig hlotiö eftir
þrjá ieiki.
Þetta var verðskuldaöur sigur
Hauka, sem voru sterkara liðið i
leiknum, einkum i siöari hálf-
leiknum, þegar liðið lék undan
vindi. Um miðjan hálfleikinn kom
sigurmarkið. Elias fékk knöttinn i
opnu færi, en þegar hann ætlaöi
að skalla i markið, greip Björn
Helgason, sem nú lék sinn fyrsta
leik meö Isfirðingum i sumar, i
hann og dómarinn Hilmar
Svavarsson dæmdi vitaspyrnu.
Þráinn Hauksson skoraði úr
henni.
Þrátt fyrir tapiö léku Isfirð-
ingar betur en áður I mótinu og
Björn var þeirra bezti maður. Hjá
Haukum stóð Guðmundur Sig-
marsson sig vel, svo og. Axel
Magnússon, nýliöi i markinu, sem
kominn er i staö Stefáns Jóns-
sonar, sem nú hefur alveg snúið
sér að handknattleiknum.
Annar leikur i 2. deild var háöur
I B-riðli 3. deildar voru tveir
leikir háðir. Ólafsvikur-Vik-
ingarnir, sem nú taka i fyrsta
sinn þátt i deildakeppni, voru enn
á skotskónum og sigruöu Bolvik-
inga 5-1 i Ólafsvik. Guðmundur
á Húsavik og þar lék Völsungur
við Selfoss. Úrslit urðu þau, aö
Völsungur sigraði með 2-0 og
skoraði Hreinn Elliðason bæði
mörk heimamanna.
Gunnarsson skoraði 3 mörk
Vikings, en Friðálfur Karlsson,
Færeyingur, skoraði tvö.
Þá vann UMSB i Borgarnesi liö
Strandamanna með 6-1. Báöir
leikirnir voru háöir á laugardag.
ÓLAFSVÍKUR-VÍKINGAR ENN Á
SKOTSKONUM!