Vísir - 14.07.1972, Síða 1
62. árg. — Föstudagur. 14. júli 1972 — 157,tbl.
KÓRINN HLAUT VERÐLAUN
OG SKEGGIÐ FAUK!
Fóstbræður hlutu önnur verðlaun i kórakeppni i Wales fyrir skömmu.
Einn fóstbræðra hafði heitið þvi að raka af sér mikið og vandað yfirvara-
skegg,sem hann hafði ræktað af alúð i langan tima, ef kórinn hafnaði i ein-
hverju af fyrstu þrem sætunum. Og hann stóð við heitið!
Sjá bls. 3
Verður hann dœmdur úr leik?
„Hvernig getur einn
maður hagað sér
svona?", hugsar Stein,
lögfræðingur myndatöku-
manna Fox-félagsins sem
nú stendur í stappinu við
Fischer, þar sem hann
stendur með margra
þumlunga vindil sinn uppi
á sviði Hallarinnar í gær
og talar við blaðamenn
eftir að Fischer hafði
tapað skákinni gegn
Spasski með því að mæta
ekki. i nótt hittust þeir í
anddyri Loftleiða-
hótelsins, Fischer og Fox,
og að sögn voru þeir
ekkert allt of vingjarn-
legir við hvorn annan,
landarnir.
(Ljósmynd: Fox/Skák-
samband islands)
Brezk innrás
í IRA-hverfið
Sjá bls. 5
•
Von í heimsmet
skolaðist burt
í rigningunni
Sjá íþróttir í opnu
Farísei í himnaríki
Þorsteinn Thorarensen segir
idag „barnasöguna" um þaft
þegar fariseinn kom til
Himnarikis, — þ.e.a.s. þegar
Robcrt James Fischer kom
til Kefla vfkurflugvallar og
þar meö til tslands. —
SJA BLS: 8
Liz að hœtta?
aldeilis á kúpunni!
Þeir eru sko alls ekki neitt
blankir hjá borginni, — eiga
hreina eign upp á 10 mill-
jaröa kr- Meðal eignanna
eru t.d. fangahús á Skóla-
vöröustig, sem metið er á 10
milljónir. — Sjá nánar á bls.
2.
Liz Taylor hefur lengstum
þótt hin ásjálegasta kona á
hvita tjaldinu, og þótt furðu-
legt kunni aö virðast, þá eru
nú liöin 30 ár frá þvi hún hóf
kvikmyndaleik. ,,Ég er al-
varlega aö hugsa um aö
hætta kvikmyndaleik", sagöi
hún á dögunum i viðtali i
BBC. — SJA BLS. 4
Borgin ekki
Lothar Schmid er nú á
mikilvægum fundi ásamt
dómnefnd sem fjalla á um
kvartanirog hegðun Bobby
Fischers. Schmid barst í
gærkvöldi bréf frá Bobby
Fischer þess efnis að 2. ein-
vigisskákin yrði dæmd
ógild vegna þess að ekki
var gengið að kröfum hans
um að fjarlægja kvik-
myndatökuvélarnar.
Samkv. reglum FIDE hefur
Fischer þegar tapað skákinni
vegna þess að hann mætti ekki til
leiks og skákin þvi dæmd töpuö,
ef annar aðilinn kemur ekki eftir
að klukka hans hefur gengið i eina
klst. Schmid sagði i gær að 3.
skákin væri áætluð á sunnudaginn
kl. 5 og ef Fischer mætti ekki á
umsömdum tima þá hefði hann
tapað þeirri skák lika. En nú
verða sem sagt örlög Fischers
ráðin á fundi Schmid og dóm-
nefndarinnar. 1 gærdag haföi
Fred Cramer einn af fulltrúum
Fischers samband við Schmid og
bar fram munnleg mótmæli, en
samkv. reglum FIDE um einvigið
þarf keppandi að koma með skrif-
leg mótmæli 6 klst. áður en skák
hefst. Schmid félst að sjálfsögðu
ekki á mótbárur Cramers og
Bandarikjamennirnir gerðu eng-
ar aðrar ráðstafanir varðandi
þennan rétt sinn til að skrifa
Schmid. bað er þvi algjörlega á
valdi Schmid og dómnefndarinn-
ar hver örlög Fischers veröa i
þessu máli og nú spyrja menn.
Verður Bobby Fischer dæmdur
endanlega úr leik?
öll ráð höfðu verið reynd gegn
Fischer til að fá hann til að koma
og tefla i gær. En hann þverneit-
aði og hélt fast við sitt að tefla
ekki nema gengið væri að kröfum
hans um að fjarlægja allar kvik-
mynda- og ljósmyndavélar úr
sinni návist. Hann dvaldi allan
timann á Loftleiðahótelinu ásamt
fulltrúum sinum Cramer, Lom-
bardySeo.og sinnti engum fortöl-
um. Kl. 18^,30 stigu upp á svið
Hallarinnar þreytulegir menn,
Chester Fox og félagar, ásamt
lögfræðingi hans Richard Stein.
Þeir sögðust hafa reynt allt til að
fá Bobby Fischer til aö mæta til
leiks. Stein sagði aö þeir hefðu
skrifað honum bréf þar sem þeir
buðust til þess að gera allt sem i
þeirra valdi stæði, koma tökuvél-
um þannig fyrir að þær trufluðu
ekki.en ekkert svar hafði borizt
frá snillingnum.
„Fáið þið nokkuð út úr honum,
ef þið farið i mál við hann’ spurði
einn fréttamaðurinn Stein.
„Þetta er erfið spurning, sem
við getum ekki svarað, sagði
Stein. „Honum viröist vera sama
um allt og alla, sagöi Chester Fox
mæðulega um Bobby Fischer.
Og nú er aö vita hvort Fischer
mætir til 3. skákarinnar eða ekki.
GF
Apótekin
smitast af
laugardags-
lokuninni
Verulegar breytingar hafa
verið gerðar á afgreiöslutfmum
lyfjabúða i Reykjavík. A laug-
ardögum veröa 2 lyfjabúöir
opnar frá 9—23, auk þess Arbæj-
arapótek og Lyfjabúö Breið-
holts frá 9—12. Aörar eru lokaö-
ar á laugardögum. A sunnudög-
um og almennum fridögum
veröur aöeins ein lyfjabúö opin
frá kl. 10—23. A virkum dögum,
mánudega til föstudags, er opið
frá 9—18, auk þess 2 búðir frá
18—23. Næturvakt i Stórholti 1
verður óbreytt fyrst um sinn.
HARMLEIKUR EDA FÓRN
- Sjá grein á bls. 2