Vísir - 14.07.1972, Blaðsíða 4
Visir. Föstudagur. 14. júli 1972
ÞESSVEGNA ÆTLAR LIZ TAYLOR
AÐ HÆTTA í KVIKMYNDUM
nu
Ég œtla að helga mig
##
barnahjólpinni
##
Tæpum 30 árum eftir
fyrstu eldskirn sina á
hvita tjaldinu i „Lassie,
Come Home” er
Elizabeth Taylor farin
að hugsa til þess að
draga sig i hié. Hún seg-
ist vilja helga meira af
tima sinum til aðstoðar
bækluðum börnum.
Liz mun hafa alið i að minnsta
kosti tvö ár á þeirri hugmynd að
yfirgefa hinn ábatasama og slit-
andi kvikmyndaleik.
Fyrsta visbendingin á opinber-
ég tek að mér hlutverk i kvik-
mynd. Ég er búin að setja mér
vissar lifsreglur, sem ég ætla mér
að virða.
Ef eitthvað sprettur upp, sem
mér mun þykja til um, þá á ég
sjálfsagt bágt með að segja nei.
En mig langar i rauninni mest
til þess að gefa mér meiri tima til
starfa aö málefnum, sem ég hef
trú á.
Það er engin uppgerð i mér, að
ég vilji taka virkan þátt i barna-
hjálpinni — annaðhvort með
Sameinuðu þjóöunum eða með
hverjum þeim hætti, sem ég get
komið að einhverju gagni.
Annars vil ég helzt ekki tala
meira um þaö nema þá við bónda
Ilvildar þurfi:
Li/. Taylor hefur átt við slæma lieilsu að striða um töluverðan
tíma.
um vettvangi i þá átt kom i
brezka útvarpinu, BBC, þegar
hún i viðtali kom flatt upp á
hlustendur með þvi að segja:
,,Ég er alvarlega að hugsa um
að hætta kvikmyndaleik”.
Siðar i blaðaviðtali skýrði hún
þetta á þá lund, ,,að það er sifellt
verið að biðja mig að gera hluti,
sem ég fæ mig varla til þess að
gera i kvikmynd. — Ég hef
viðbjóð á þessu hugsjúka efni,
sem sifellt er tönglast á, og mér
þykir allar þessar nektarsenur i
kvikmyndunum hreinlega fárán-
legar. Mér finnst þróunin öll
stefna að niðurrifi siðgæðisins.
Alltaf stigið eitt skref neðar, og i
næstu mynd annað til viðbótar, og
þeirri þriðju þarf að ganga enn
lengra. — Ég er orðin leið á þessu,
og ég finn miklu meiri ánægju i
þvi að rétta bágstöddum ungling-
um hjálparhönd.”
Seinna i heimsókn i London,
það var i marzmánuði, bætti Liz
við:,,l framtiðinni ætla ég að lesa
handritin vandlega yfir, áður en
Umsjón G.P.
minn. Mér verður bara núið þvi
um nasir, að ég sé að snapa mér
auglýsingu.”
I íebrúar siðastliðnum i
fertugsafmæli hinnar fögru leik-
konu átti einn greinarhöfunda
Daily Mirror, stórblaðsins
brezka, stutt spjall viö eiginmann
hennar, Richard Burton:
„Liz er með ráðgerðir á prjón-
unum um að hætta kvikmynda-
leik. En það er á vissan hátt eins
og eiturlyfjafýsnin. Þú getur ekki
hætt á svipstundu, einkanlega
ekki, ef þú hefur varið æfi þinni
sem kvikmyndastjarna.
Liklegast mun hún um tima
leika aðeins i einni mynd á ári, og
siðan draga það við sig i einni
mynd aðeins annað hvert ár. Og
svo koll af kolli.” sagði Burton.
Aður hafði Burton sagt i öðru
blaðaviðtali: „Liz hefur átt við
slæma heilsu að striða. Það er öll-
um kunnugt orðið. — Staðreyndin
er sú, að hún er hvildar þurfi.
Heilsufar hennar og svo öll streit-
an, sem fylgir þvi, að hún er þind-
arlaustí sviðsljósinu, iþyngir orð-
ið öllum i fjölskyldunni.
Liz og ég höfum unnið mikið
sarnan, og höfum rakað saman fé
i félagi. Mér er ómögulegt að sjá,
hvers vegna viö ættum að’
draga það meir á langinn, að
njóta afraksturs erfiðis okkar.
,,Mér er sagt að þetta mynstur
sé sérstaklega vinsælt hjá kven-
fólkinu núna, herra”
Léleg hlutverk:
Li/ segist vera orðin leið að gera hluti, sem hún vill hel/t ekki
gera i kvikmyndum. Þessi sena er úr kvikmyndinni „X, Y og
Zee”, þar scm hún lék á móti Michael Caine.
„Hvað sjálfum mér viðkemur,”
bætti Burton við, ,,þá vildi ég
helzt hætta meðan ég er ennþá á
toppnum, en ég er búinn að binda
mig fram i timann, og get þvi ekki
leyft mér að hugsa til þess strax
að draga mig i hlé.”
Liz, sem aðeins 3ja ára gömul
kom fram opinberlega, þegar hún
dansaði fyrir Elizabetu prinsessu
(nú drottningu), sagði: „Núorðið
eru minar sælustu stundir þær,
sem ég er umkringd af börnum
minum. Og fyrsta barnabarnið
mitt er það bezta, sem ég hef
eignast i lifinu.
Ég hef reynt að fá fleiri börn i
fóstur, en það hefur ekki tekizt.”
„Börnin virðast ekki trúa okk-
ur lengur fyrir neinu”.
Sean Connery bregðursér í nýtt gervi
Beint úr hlutverki glæsilegs njósnara yfir i gervi
þreytts og vonsvikins lögreglumanns — það er
breytingin, sem oröið hefur á Sean Connery, og
sem hann viidi sjálfur.
Af manni, sem orðinn var jafn leiður á einu
hlutverki, og Sean Connery var orðinn á James
Bond, agent 007, þá valdi hann sér dálitið ein-
kennilegt hlutverk til uppörfandi tilbreytingar:
Bitran og lifsleiðan lögreglumann i kvikmynd
sem ber heitið „Eitthvað i likingu við sannleik-
ann” (Something like the truth).
Hann stendur sjálfur að framleiðslu þessarar
myndar. En kvikmyndafélagið United Artists
leggja til fjármagnið. Það er eins konar kaup
hans fyrir leikinn i myndinni „Diamonds are
forever”. öðru visi gátu þeir ekki fengið hann til
þess að rjúfa heit sitt um „aldrei að leika James
Bond aftur”.
Þeir ætluðu reyndar að fjármagna hann fyrir
tvær kvikmyndir og þetta er sú fyrri. Connery
fer þar með aðalhlutverkið, óeinkennisklæddan
lögreglumann, sem allt i einu er í vanda staddur
að þurfa að útskýra, hvers vegna grunaður
maður lézt i yfirheyrslum við rannsókn'máls,
sem reis upp vegna nauðgunar á stúlkubarni.
Það er ekki sami glæsibragurinn yfir lögreglumannsgerfi Sean Connery, sem hér sézt við upptökur i
London, eins og þegar hann var James Bond.