Vísir - 02.08.1972, Qupperneq 7
Yísir Miövikudagur 2. ágúst 1972
7
Heimsmeistarinn
Leiö vinar mins Borisar
Spasskis aö heimsmeistara-
titlinum i skák var löng og erfið.
Ég ætla aö rifja upp feril lians i
fáum orðum allt frá þvi, aö liann
lióf aö tefla, fram að þeim tíma
sem hann stóö andspænis Tigr-
an l’etrosjan sein áskorandi i
annaö sinn, og sigraði.
i barnæsku þótti Boria, eins
og hann var venjulega kallaður,
efnilegur strákur. 15 ára stökk
hann 1,85 m. i hástökki, hafði
áhuga fyrir boxi en þó átti
skákin mest itök i þessum unga
dreng allt frá þvi hann náði 10
ára aidri.
12 ára gamall komst hann i
meistaraf lokk skákklúbbs
Leningrad og bar höfuð og
herðar yfir aðra jafnaldra sina.
Mikhael Tal hefur sagt að
enginn hafi náð svo góðum
árangri i skák á unga aldri sem
Spasski.
l. Alþjóðlega
skákmótið
Það er árið 1953. 15 ára
gamall er hann á leið á fyrsta
alvarlega skákmótið erlendis.
Rúmenar hafa boðið til alþjóð-
legs móts i Búkarest. Meðal
keppenda eru l'ræg nöfn,
Smislof, Boleslavski, Szabó og
Tolush. En hann er ekki orðínn
16 ára og fær þvi ekki íarseðil.
Hvernig á hann að komast til
Búkarest? Jú það bjargast.
Hann fær að fljóta með landa
sinum stórmeistaranum
Tolush. En Boris Spasski er
litill meðal stórra. Þarna eru
skákmeistarar sem hann hefur
aðeins lesið um i blöðum og
bókum, en á nú að mæta við
skákborðið. Hann sýnir þeim
samt r tvo heimana og leggur að
velli margan stórlaxinn, i þessu
alþjóðlega móti. Undir
íokin lendir hann i 4. sæti
af 18. Það er lofsverður árangur
hjá svo ungum dreng. Næsta
skrefið er Sovétmeistaramótið,
þar sem hann sigrar m.a.
Geller og Tajmanof og heldur
jöfnu á Keres og Botvinik.
Með þessum árangri hefur
hann tryggt sér rétt til þess að
tefla á millisvæðamótinu i
Gautaborg 1955. Hann byrjar
ekki vel, tapar fyrir Keres
Najdorf og Pannó, en lætur ekki
undan siga, Afram heldur hann
ótrauður, hafnar i 7. sæti og þar
með er hann kominn i fylkingar-
brjóst orðinn kandidat til
heimsmeistarakeppni, 18 ára
gamall, yngstur allra skák-
manna i heiminum fyrr ogsiðar.
Aður en hann heldur til fundar
við beztu skákmenn heimsins
gefur hann sér tima til að verða
sér úti um tignina
„Heimsmeistari unglinga i
skák”. Það var 1955 i Anvers.
Kandidatakeppnin ofl.
1956 i Amsterdam.
Kandidatakeppnin i skák.
Meðal keppenda Boris Spasski.
Af tiu köppum lendir Spasski i 3-
7 . sæti á eftir Smislof og Keres.
Smislof verður áskorandi
Botviniks. Eftir þetta er leið
Spasskis löng og torsótt til
æðstu tignar. 8 á r iiða þar til
hann er aftur i eldlinunni. Nóg
um það. I millitiðinni bar
fundum okkar saman i fyrsta
sinn. Moskva 1961. Eströdu-
leikhúsið þar sem keppnin um
heimsmeistaratitilinn milli Tals
og Botviniks fer fram. Boris
Vasillievitch Spasski virðist
mjög ungur næstum þvi
strákur. Ég rýk á hann og spyr
um einvigið. — Hver vinnur? —
Ég held að Tal vinni, þó hann
hafi ekki byrjað vel, segir hann.
Tal er skemmtilegri skák-
maður. Hann veit hvernig hann
á að beita stil sínum —
Við getum ekki talað lengi
saman i þetta sinn. Spasski er
einn af útskýrendum skákanna
ásamt Petrosjan Keres og
Smislov, þó að mér finnist hann
frekar eiga heima i stól
áskorandans. Strangar reglur
skákarinnar hafa samt skipað
svo fyrir að þvi sæti nái hann
ekki fyrr en eftir mörg
löng ár.
Tal og Spasski
Tal og Spasski teknir tali árið
1962. — Hve'rnig fannst ykkur
Kandidatamótið i Curaco. Tal:
— Ég var langt frá minu bezta.
Vil sem minnst um það tala . —
Spasski: — Ég var ekki þar
meðal keppenda. Horfði ekki
einu sinni á mótið. Samt sem
áður var óvæntur árangur af
keppninni. — Hvað finnst ykkur
um nýja einvigisform ið i
Áskorendakeppnum. Tal: —
Maður verður að taka þvi eins
og hermaður i striði. Fara eftir
skipunum yfirmannanna. Það
er allt og sumt. Spasski: — Ég
er ihaldsmaður i þessum
málum. Þó ég hafi ekki náð
góðum árangri i Askorenda-
keppnum, held ég ennþá að
„gamla kerfið” sé betra. Þ.e.
færri skákir i stað einvigisfyrir-
komulagsins. (10 skáka einvigin
eins og nú tiðkast). — Hvaða
heilræði viljið þið gefa þeim
Botvinik og Petrosjan sem tefla
Er það satt að enginn efniviður
i góða skákmenn fyrirfinnist i
dag. Ekki einu sinni i
Rússlandi? Tal: — Eiginlega
ekki siðan 1955-56. Spasski: —
Það er ekki gott að segja. Ég
heid samt að efniiega
skákmenn sé helzt að finna i
Rússlandi . — Hvaða álit hafið
þið, hvor á öðrum.? Tai: —
Spasski er góður félagi og
erfiður andstæðingur. Spasski:
— Það sama um Tal. — Hvernig
stendur á þvi að svo snjail skák-
maður eins og Spasski skuli ekki
hafa náð lengra en hann hefur
gert hingað til? Tal: — Ég held
að það hafi verið taugarnar
áöur. En það hefur sýnt sig að
menn sem ná góðum árangri á
barnsaldri eru seinni til að
komast i fremstu röð, en hinir.
Spasski: — Kannski er ég
óheppinn. En það er ennþá
tækii'æri..
1 i)<»4 — Amsterdam
Loksins 1964 er Spasski aftur i
viglinunni. Það er millisvæða-
mótið i Amsterdam siðasti á-
fangi Áskorendakeppninnar.
Árangurinn: 1-4. sæti ásamt
Larsen og Co. — Hvenær var þér
ljóst að þú myndir sigra?
Spasski: — Hvenær? Fyrir
siðustu umferð. Er það ekki
alltaf þannig: — Hvaða vonir
gerðirðu þér fyrir mótið?
Spasski: — Ja. Ég sagði við
sjálfan mig áður en keppnin
hófst: Það er ágætt ef ég verð
annar eða þriðji. — Og hverjum
ætlaðirðu sigurinn? Spasski: —
Viktor Kortsnoj.
Horis Spasski, Dimitrije Bjelica, höfundur greinarinnar og
Tigran Petrosjan, sein var liemismeistari þegar þessi mynd var
tekin 1966 i Moskvu.
J.W.W.W.W.W.V.W.W.W.W.W.W.ViWiV.W.V^AVW/AW.V.V.WAV/W.VA'.WWWAVAVJ
|
Í
Dimitrijé Bjelica frá Júgóslavíu:
Vinur minn Boris Spasskí
Greinarkorn og glefsur úr viðtölum sem höf. hefur ótt við Spasski ó undanförnum órum
‘..■.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.’.V.V.V.VAV.'.V.V.V.V.V.V.V.V/.VV.'.V.V.V.V.V.V.VAV.VVAW.V.’
bráðlega um heimsmeistara-
titilinn i skák? Tal: — Að
Mikhael Moyseyvich tefli eins
og hann gerði á móti mér i
siðasta einvigi. Petrosjan tefli
betur en ég! Spasski: — Ég
vona bara að þeir tefli báðir eins
og andinn blæs þeim, Botvinik
ekta Botvinikstil og Petrosjan
verði eins og Petrosjan. —
Bobby Fischer hefur ásakað
ykkur Rússa fyrir að vinna
saman með þvi að gera jafntefli
innbyrðis i mótum og nú siðast i
Áskorendakeppninni. Tal: —
Það eina sem við gerðum
sameiginlega var að vinna
Fischer. Litum á árangur hans
gegn þrem efstu mönnum i
Curacao. Fimm vinningar af 12
skákum. Spasski: — Það hefur
þá verið eini möguleiki Fischers
til sigurs, að Rússar gerðu
jafntefli innbyrðis. Haldið þiö
að hann sé orðinn fullþroska
skákmaður? — Tal:. Spuröu
Fisclier sjálfan aö þvi. —
Eftirlætisskákmaðurinn ykkar?
Tal & Spasski: — Emanuel
Lasker. — Hverjir haldið þið að
verði á toppnum eftir 10 ár?
Tal: — Það er of stuttur timi til
að segja nokkuð um hvað verður
ofan á. Spasski: — Ætli það
verði ekki þeir sömu og núna. —
Bent Larsen, góðvinur okkar og Spasski með friðum félögum.
(Liklega er þetta kona Spasskis, en þó er þaö ekki vist.)
Áskorendakeppni —
nýtt snið
Tiu ár eru nú liðin frá þvi
Boris Spasski tefldi siðast i
Áskorendamóti. Nú er kerfið
öðruvisi. Stutt einvigi og
útsláttarkeppni. Loft er lævi
blandað i Amsterdam þar sem^
keppendur draga um
andstæðinga. Ég sit viðhliðina á
Spasski og fylgist spenntur með
þegar hann dregur úr
miðunum i körfunni. Paul
Keres. — Áttu möguleika á að
vinna hann Boria? Spasski: —
Veit ekki. Þetta verður
örugglega • spennandi. Ég er
heldur ekki viss um að Tal vinni
Portisch.
En Spasski er harður i horn að
taka. Hann kemur jafnvel
aðdáendum sinum á óvart með
þvi að vinna Keres 6:4 og siðan
Geller 5 1/2:2 1/2. Tiflis i
nóvember 1965. Siðasti
áfanginn:. Mikael Tal.
Heimsmeistarinn fyrrverandi
mætir til leiks lOdögum áður en
andstæðingurinn til að undirbúa
sig fyrir átökin. Hvernig lyktar
þeim? Boris Spasski áskorandi
eftir langa og stranga mæðu.
Einvígið við Petrosjan
1966
Majakovski, skáldið, segir að
heimurinn hefji göngu sina á
Rauða torginu. Rauða torgið er i
Moskvu og Moskva er vettvang-
ur heimsmeistaraeinvigisins
milli Borisar Spasskis og
Tigrans Petrosjans. Slagurinn
fer fram i Eströdu þar sem við
dokuðum við árið 1961 og fylgd-
umst með keppn. Tal: Botvin-
ik. Það er taugaspenna i leik-
húsinu og þjálfararnir fara ekki
varhluta af þvi. Igor
Bondarevski/Boris Spasski,
Isak Boleslavski/Tigran
Petrosjan. Báðir eiga keppend-
ur sér trygga áhangendur. Tina
kona Petrosjans og David
Oistrakh fiðluleikari fylgja
heimsmeistaranum fastar að
málum en aðrir áhorfendur. 1
blaðamannastúkunni eru fræg
nöfn. Snjallir skákmeistarar.
Tal, Kotov, Bronstein,
Averbakh, Flor, Lilliental.
Suetin o.fl. Það er ekki fyrr en i
7. skákinni að von er á fyrsta
sigrinum i þessu einvigi. Það
kemur i hlut Petrosjans.
Spasski gefst ekki upp. Hann er
stoltur og á erfitt með að bita i
það súra epli að tapa. Ég stend
álengdar bak við tjöldin og horfi
á hryggan vin minn á þessu fall-
ega Moskvukvöldi. Hann tapar
fyrstu hrinunni en ekki orrust-
unni....
Þegar á liður og komið er
fram i 10. skák, er Petrosjan
tveim vinningum yfir andstæð-
inginn. O’Kelly aðaldómarinn
segir við mig: „Þetta er búiö
hjá Spasski.” Eftir 12 skákir er
staðan 7:5 Petrosjan i vil. Þá
vinnur Spasski i 13. skákinni.
Seinni helmingurinn er hafinn.
Hvernig mun áskorandanum
reiða af og hverjar verða loka-
tölurnar? Aðdáendur hans
eygja nýja von. Jafnar hann
metin og sfgur fram úr hinum
járnharða heimsmeistara?
Sigur á
seinni hlutann
Jafntefli. Enn jafntefli. Loks-
ins. 1 19. skákinni jafnar Spasski
um andstæðinginn. Staðan er 9
1/2:9 1/2 Stræti og torg fyllast af
fólki og spenningurinn er i al-
gleymingi. Petrosjan yfirgefur
leikhúsið með bros á vör.
Spasski gengur út til fjöldans
sæll og glaður, og er fagnað
innilega. 20. skákin. Petrosjan
sækir. Spasski verst. Hann tap-
ar og Moskva er til vitnis um, að
sigurvonir Spasskis i einviginu
eru aö verða að engu.
— Ilvað get ég sag', segir
Spasski. Þetta eru vonbrigði.
Sár vonbrigði. — t hverju lágu
mistökin? Spasski: — Að vinna
ekki skákirnar sem eftir voru
þegar ég hafði jafnað. Ég fékk
tækifæri, en notaði mér það
ekki. Ég viðurkenni auðvitað,
að Petrosjan helur teflt vel, en
samt fannst mér ég glopra sigr-
inum út úr hiindunum. — 21.
skákin. Jafntefli. Petrosjan
eýkur forystuna enn, með þvi að
vinna 22. skákina og þar með
tryggir hann sér heimsmeist-
aratitilinn til næstu þriggja ára.
Áfram er þó haldið lil að Ijúka
einviginu. Spasski kemur á
óvart með að vinna næstu skák
og sigur Petrosjans i einviginu
er innsiglaður með friðsamlegu
jafntefli i siðustu skákinni.
Lokatölur 12 1/2:111/2 Spasski i
óhag.
Boris Ivkov um þennan at-
burð: „Spasski minnir mig á
mann sem helur velt stórum
steini upp á fjallstind aðeins til
þessað rúlla honum niður aftur.
3 ár eru farin til einskis. Nú
verður hann að byrja upp á nýtt
aftur.”
Eftirleikurinn
Eftirleikinn þekkja allir.
Spasskí varð áskorandi á nýjan
leik. Hann lagði að velli, Geller
Larsen og Kortsnoj og stóð enn
andspænis Tigran Petrosjan til
að keppa um heimsmeistara-
titilinn. „Ef ég vinn ekki núna,
sagöi hann fyrir keppnina, þá
tefli ég ekki kappskákir fram-
ar,” Sem betur fer varð ekki af
þvi. Við sjáum hann ennþá við
skákborðið. Hann vann Tigran
og þar með titilinn og nú er
komið að honum að verja sitt
íyrir áskorandanum Bobby
Fischer. „Það hefur tekið mikiö
á taugarnar að ganga i gegnum
öll þessi einvigi. Sérstaklega
þau stuttu (10 skáka.) Ég hef
alltaf verið mótfallinn þeim.
Ef ég á eftir að ganga i gegnum
þennan hreinsunareld einu sinni
enn enda ég feril minn á spit-
ala!” Þetta eru orð eins af
fremstu skákmeisturum sög-
unnar Borisar Spasskis, sem nú
ver heimsmeistaratitil sinn
fyrir Bobby Fischer i Reykja-
vik.
Dimitrije Bjelica/GF