Vísir


Vísir - 09.08.1972, Qupperneq 3

Vísir - 09.08.1972, Qupperneq 3
Visir Miðvikudagur 9. ágúst 1972 3 Þrjátíu þúsund þátttakendur — Daily Mirror efnir til skákþrautarkeppni, verðlaun ferð til íslands Tefla lika konur hér? Það var • Höllinni i gærkvöldi, að Sveinn Sæmundsson blaða- fulltrúi Flugfélags islands vék sér að mér og bauð mér upp á viðtal við fjóra unga Englend- inga sem nýkoinnir eru hingað til lands, en þeir höfðu hreppt vcrðlaun i skákþrautakeppni, scm stórblaðið Daily Mirror efndi til. Þeir eru allir ungir, sá yngsti 19 og elzti 27. Kenneth Watins stúdent i húsagerðalist frá Rochester, þar sem Dickens fæddist, verður fyrstur fyrir svörum: Þetta var skrambi þung þraut og ég þurfti lengi að liggja yfir henni. Ég hef teflt siðan ég var i barnaskóla og hef mikinn áhuga fyrir skák eins og svo margir i minum bæ. Þetta er alveg stór- kostlegt að vera allt i einu kom- inn hingað til Islands og auðvit- að gat maður ekki óskað sér neins frekað i sambandi við skák. Granville Robson sem er elztur og starfar i þjónustu þess opinbera i Birmingham segir: Ahuginn sem hefur vaknað i Englandi er engu likur, mér dettur helzt i hug heims- meistarakeppni i fótbolta, og hann brosir, það er leikið við okkur hér, búum á lúxushóteli og svo þetta hér i Höllinni, sem hlýtur að vera óskadraumur allra sem unna skák. Riehard Beery, húsgagnasölumaður frá Edinborg segir: Aldrei hefði mig dreymt fyrir þvi að sjá svona marga áhorf- endur á skákkeppni. Það hlýtur að vera óskaplega mikill áhugi fyrir skák hérna á Islandi. Tefla allir hérna og lika konur? Maurice Lowman, sem er skipateiknari segir:: Allur að- búnaður hér i Höllinni er með ólikindum. Ég hefði aldrei trúað að hægt væri að gera svona flott hér á Is- landi. Það hefur enginn þessara ungu manna komið hingað til Is- lands áður og hrifning þeirra af öllu, sem fyrir augu ber virðist ósvikin. Ég vil ekki tefja þá lengi frá skákinni en spyr þá að lokum með hvorum þeir standi i keppninni. Sinn skammturinn af hvoru ánægja og skák Þrir með Fischer og einn með Spasski. Blaðamaðurinn, sem með þeim er heitir Peter Moeller ungur maður og geðugur hann segir svo frá: Við á Daily Mirror efndum til þessarar keppni fyrst og fremst til að kanna áhuga lesenda okk- ar á skák. Arangurinn varð undraverður og fjöldi þátttak- enda fór langt fram úr þvi, sem Bent Larsen að útskýra 12. skákina: „Það er ekkert að marka hvað þeir leika. Ég þekki þetta afbrigði, lærði það þegar ég var krakki!” við höfðum gert ráð fyrir. Við fengum yfir þrjátiu þúsund lausnir. Keppnin var sem sagt fólgin i þvi, að leysa skákþraut og segja jafnframt i tólf orðum frá þvi af hverju viðkomandi hefði gaman af skák og lausnir þessara fjögurra, sem með mér eru voru beztar. Verðlaunin voru sem sagt fjögurra daga dvöl hér á tslandi og miðar á tvær umferðir ein- vigisins. Ahugi fyrir skák heima i Eng- landi hefur aukizt með ólikind- um þessa dagana og til að mynda hvergi hægt að komast yfir skákborð i verzlunum og auðvitað eru það áhrif frá keppninni hér, sem hefur komið þessari skriðu af stað. Ég er að vona að ég geti fengiö mynd af ungu mönnunum fjórum ásamt Spasski en við bú- um á sama hóteli og hann. Þá er meiningin að ferðast eitthvaö hér um nágrennið og hafa sinn skammtinn af hvoru ánægju og skák. Flugfélag tslands hefur mjög greitt götu okkar og er ég þakklátur þvi og hann bætir viö brosandi, annars stóð i járnum að einn pilturinn kæmist, hann á nefnilega tveggja ára giftingar- afmæli i dag, en skákferðalagið varð ofaná og við ætlum að halda upp á afmælið á eftir. Ertu danskur Peter spyr ég. Já hálfur Dani og hálfur Þjóð- verji en tala ekki dönsku svo það er þýðingarlaust fyrir mig að fara niður i kjallara til að hlusta á Danann Larsen skýra skákina. Að lokum óska ég þessum ungu mönnum góörar skemmt- unar og ánægjulegrar dvalar hér á tslandi. b „Fischer hefur hjálpað okkur geysilega" — rœtt við hótelstjóra og ferðaskrifstofumenn um áhrif einvígisins á ferðamannastrauminn „Jú, Fischer hefur áreiðanlega hjálpað okkur með þessu bram- bolti sinu. Hann hefur auglýst nafn íslands mjög rækilega undan- farnar vikur og það á án efa eftir að koma fram á ferðamannastraumnum til landsins næstu árin”. Þetta er álit þriggja manna, sem við spjölluðum við um ein- vfgið og áhrif þess á ferðamanna- strauminn til landsins. Við töl uðum fyrst við Erling Aspelund hótelstjóra á Hótel Loftleiðum og sagði hann að hann teldi ótvírætt að Island hefði fengið mjög já- kvæða auglýsingu í sambandi við einvigið '. „Orðið Island hefur farið viða, og það ætti að hafa áhrif, þótt enn sé of snemmt að segja hversu mikil þau verða. Og allt standið á Fischer hefur aug- lýst landið mikið”, sagði Erling. Geir Zöega, ferðaskrifstofufor- stjóri, var sama sinnis. Hann kvaðst hafa verið i Englandi i sumar og þar hefði nafn Islands komið i sjónvarpi svo til daglega. „Þetta var gifurleg auglýsing, sem hlýtur að hafa mikil áhrif. Og ég held að vitleysan i Fischer hafi lika haft jákvæð áhrif fyrir Is- land”, sagði Geir. Að lokum töluðum við við Njál Simonarson hjá Ferðaskrifstofu Olfars Jacobsen og sagði hann að þótt ekki væri hægt að tala um bein áhrif ennþá af einviginu, þá ætti það áreiðanlega eftir að hafa áhrif á ferðamannastrauminn til landsins. „Fischer hefur hjálpað okkur og komið nafni landsins á framfæri miklu oftar i erlendum fjölmiðlum en ef hann hefði bara komið og sezt þegjandi i stólinn”, sagði Njáll. —ÞS Frammistaða Spasskís ekkert einsdœmi Menn hafa áður unnið upp 2-3 vinninga forskot Þrátt fyrir slaka frammistöðu hjá Spasski i einviginu þá er það ckkert einsdæmi að annar kepp- andi i einvigi um heimsmeistara- titilinn hafi þurft að vinna upp 2-3 vinninga forskot. 1935 i einviginu milli Euwe og Alhekines var sá siðarnefndi kominn þrem vinn- ingum yfir en Euwe náði að jafna og sigra i einviginu. 1956 vann Vassili Smyslof upp þriggja vinn- inga forskot þáverandi heims-. meistara Mikaels Botviniks og jafnaði, en Botvinik hélt þótitlin- um. Allt getur þvi gerzt i einviginu milli Spasskis og Fischers enda er keppnin aðeins hálfnuð. GF Loksins sorphreinsun í Bessastaðahreppi Ilallærisástand hefur lengi Bessastaðahreppi. Hefur engin rikt i sorphreinsunarmálum i skipulögð sorphreinsun veriö i Eins og stendur veröur hver aö bjarga sér eins og bezt hann getur með sorpið sitt i Bessastaðahreppnum. hreppnum, og hver og einn orðið að losa sig við sorp eins og hann bezt gat. Hafa af þessu orðiö inikil óþægindi og óþrifnaöur. 1 haust stendur til að þetta ástand breytist til batnaðar, þvi að þá verður tekin upp skipu- lögð sorphreinsun i hreppnum, eins og gerist viðast hvar i fjöl- menni. Oddviti hreppsins, Ey- þór Stefánsson,sagði blaðinu að staðið hefði til i vor að byrja á sorphreinsun, en þar sem breytingar voru fyrirhugaðar á sorphreinsuninni i Garðahreppi, var ákveðið að hefja sorp- hreinsunina i Bessastaða- hreppnum um leið og þær breytingar hefðu verið gerðar. Hafa nú verið teknar i notkun körfur með pokum i Garða- hreppnum og slikar körfur verða teknar upp i Bessastaða- hreppnum i haust og þá mun sorpbillinn sækja allt sorp þang- að lika. —ÞS Eingöngu af kœruleysi að minkar sleppa út „Það er bara af kæruleysi, sem minkurinn hefur sloppið út. Ég hef skoðað þau þrjú minkabúr, sem líklegust eru, og óneitanlega er umgengnin á þeim misgóð. En allir bera þetta af sér og ómögu- legt viröist vera að fá úr þvi skor- ið, af hvaða búi þessi minkur slapp”, sagði veiðistjóri, Sveinn Einarsson, er blaðið haföi sam- band við hann i morgun og spurði frétta af rannsókninni á ali- minknum, sem nýlega fannst uppi á Kjalarnesi. Sagði Sveinn aö fyrir nær tveimur árum hefði aliminkur fundizt á sviþuðum slóðum, en þá heföi ekki verið hægt að finna út hvaðan hann kom. „Það leynir sér ekki, þegar um alimink er að ræða, en hins vegar er ógerlegt að finna út af hvaða búi hann er. Minkarnir eiga alls ekki að geta komizt út, og ég álft að hér sé ein- göngu um kæruleysi að ræða”, sagði Sveinn að lokum. —ÞS.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.