Vísir - 09.08.1972, Blaðsíða 7
7
Visir Miðvikudagur 9. ágúst 1972
Hjól með 17 tommu hjólaþvermáli.
„Klippið út og geym-
ið” stendur stundum i
smáauglýsingunum i
Visi. Kannski má segja
það sama um eftirfar-
andi ráðleggingar, sem
bera y firskriftina
„Hvernig á að kaupa
hjól”. Reiðhjólin eru
sennilega oftast keypt i
byrjun vors skömmu
áður en aðal reiðhjóla-
timinn hefst.
En við getum ekki
stillt okkur um að birta
þessar ráðleggingar
vegna þess, að nú
gengur yfir reiðhjóla-
faraldur.
Fyrst lítum við á verðið, sem
er auðvitað mismunandi. Þá á
að gæta þess, að dýrara verð
felist ekki i ónauðsyniegum
aukahlutum. Hins vegar er
nauðsyniegt að geta fengið
varahluti á hjóiin. Athugið það
áður en hjólið er keypt. Það get-
ur kannske tekið mánuði að út-
vega þá.
Það á að vera hægt að hjóla á
þægilegan hátt á hjólinu og gild-
ir þetta um alla og kemur
hvorki aldur né stærð þar við
sögu. Þess vegna ættu allir að
reyna hjólið áður en það er
keypt.
Eina reglu verður að hafa i
huga og það er, að nauðsynlegt
er að ná niður á jörðu með öðr-
um fætinum, þegar maður situr
i sætinu.
Önnur regla er sú, að hafa
sætið það hátt að hægt sé að
hafa fótleggina næstum beina
þegar maður stigur pedalana i
botn. Það er erfitt að hjóla með
beygðum fótleggjum.
Ög þriðja reglan er hæð
slánna frá jörðu, nægilegt er að
þær séu i 275 mm hæð.
Svo má geta þess, að það er
kostur, að slárnar séu smiðaðar
i einu stykki en ekki skrúfaðar
saman I sérstaka miðju.
Teinarnir eiga að vera ryðfri-
ir.
Fyrsta alvöruhjólið kemst á
dagskrá, þegar barnið er 5-6 ára
gamalt. Gott hjól fyrir 5-6 ára
aldurinn á að vera sömu teg.
og hjól fyrir fullorðna og eins
vel gengið frá þvi. Það á að vera
með góðum slám, góðum
bremsum og úr góðu efni.
Minnstu hjólin, sem eru þann-
ig úr garði gerð eru með 17
tommu hjól. Stærð hjólsins er
oftast gefin með þvi að mæla
þvermál hjólsins. Reiðhjól sem
hafa minni hjól eru oftast verri,
eina undantekningin eru lág hjól
fyrir börn.
Þessi lágu hjól er ný hjólateg-
und, sem er vinsæl a.m.k. er-
lendis. Gallin við þau er sá, að
erfitt er að stiga þau. Þau henta
bezt fyrir stuttar ferðir i bæn-
um.
Þetta er ekki eitt af alverstu „töffara-
hjólunum”.
Ekki gerður munur á kyni i þessari
hjólategund, sem fullnægir flestum
öryggiskröfum og er tiltölulega ódýrt.
„Lúxushjólin” sjáum við i æ rikari mæli á götunum i Reykjavik.
þeirra eru hættuleg?
Umsjón: Svanlaug Baldursdóttir
Stuðningshjólin eru fest hér rétt á.
En áður en við komum að
hjólum fyrir táninga og full-
orðna, þá skulum við athuga
nánar um hjól fyrir þau allra
minnstu.
Mörgum börnum á aldrinum
3-7 ára hentar að læra að hjóla á
hjóli, sem hefur stuðningshjól.
Þau eru lika betri en hjól, sem
eru með pedölum á framhjólun-
um. Það er hægt að kaupa þessi
stuðningshjól sér og þau eru
skrúfuð föst á afturhjólið og eru
ætluð hjólum i ólikri stærð. Það
er mikils virði að þau sitji mjög
fast.
Þegar barnið hefur lært að
hjóla eiga stuðningshjólin ekki
lengur rétt á sér sem aukalegur
stuðningur, þá geta þau skaðað
meira en gert gagn.
Foreldrar kannast flestir við
það hvað það er erfitt að segja
nei, þegar barnið eða unglingur-
inn krefst einhvers sem „allir
hinir eiga.” Einn af þessum
hlutum er hjólið. Og nú er ekki
sama hvernig hjólið er. Það
verður að vera eitt af dýru gerð-
inni með háu sæti eða breiðu
sæti, háum sveigðum stöngum,
aftan við sætið, háu stýri og gir-
um,jafnvel á miðju stýri. Mörg
af þessum hjólategundum eru
hættuleg, segir sænsk rann-
sókn, sem birtist f blaðinu „Vi
för31drar”.
Þessi sannkölluðu „lúxus-
hjól” sjáum við i æ rikari mæli á
götunum hér i Reykjavík. Það
skal enginn mælikvarði lagður á
það hver þeirra séu hættuleg og
hver ekki, en óneitanlega c:u
þessi háu stýrishandföng ógn-
vekjandi, ef maður hefur slysa-
hættu I huga.
Þá komum við að einu atriði I
sambandi við hjól, sem við höf-
um kannske furðað okkur á en
ekki hugsað út i. Það er þverslá-
in á hjólunum. Kannske ungl-
ingunum finnist sport i þvi að
skilja á milli hjóltegunda eftir
kyni með þverslánni. En það er
miklu þægilegra að hjóla á hjóli,
sem er ekki með neinni þverslá,
einnig fyrir karlmenn, sem eru
ekki háir i loftinu. Rannsóknir
hafa sýnt það — að hjól með
engri þverslá, opið hjól, er alls
ekki óstöðugt eins og hefur
stundum verið sagt. Hins vegar
getur komið fyrir óhapp, þegar
fætinum er sveiflað yfir þver-
slána, fóturinn getur krækzt i
eða festst svo að maður dettur.
1 lokin komum við að mikil-
vægu atriði. Börn yngri en tíu
eða tólf ára eru ekki fær um að
bjarga sér í umferðinni á hjól-
um.
Það má geta sér þess til, að
mörg börn fái fyrstu hjólin sin,
þegar þau eru þriggja til fjög-
urra ára gömul. Og sjö ára
gömul eiga vist alflest hjól. Við
vitum lika oft koma fyrir slys
á börnum i umferðinni þar sem
þau eru á hjólum.
Þess vegna verða hinir full-
orðnu að sýna börnum i umferð-
inni sérstaka tillitsemi en sam-
félagið ætti að aðstoða með þvi
að koma fyrir hjólreiðagötum
og fræðslu um umferðina og
hjólin.
Hver
—SB-
„LUXUSHJÓLIN"
HÆTTULEGU
• og ráðleggingar um hvernig
á að velja reiðhjól
!ÐAN