Vísir - 16.08.1972, Blaðsíða 1
«2. árg. — Miðvikudagur 16. ágúst — 184 tbl.
Sterkastur af öllum nírœðum
Ilann beygir járn og stál eins og
ekkert sé. og hann rekur nagla i
spýtur án þess að hafa hamar.
Og liann er 90 ára gamall. Þeir
eru sennilega ekki margir ni-
ræðir sem ganga um með hár
niður á herðar. skeggjaðir og
skritnir, og sennilega eru þeir
fæstir gæddir öðrum eins kröft-
um, og litli Samson, eins og
liann er kallaður. Er hann var
barn, var talið fullvist að hann
lifði ekki lenguren til 18 ára ald-
urs. Kn nú segist hann ætla að
verða 197 ára. Nánari upp-
lýsingar um „litla Samson’’ eru
á Nú siðu i dag, á bls. 4.
Útfœrsla okkar
plús og rnínus
fyrir Fœreyjar
Útfærsla islenzku landhelg-
innar er Færeyingum bæði
plús og minus. Þeir hafa orð-
ið að þola ofveiði við land-
steina sina. útlcndingar taka
langmestan aflann þar, en
Færeyingar sækja sjálfir á
fjarlæg mið, svo sem við is-
land. Tólf manna sendinefnd
Færeyinga er hingað komin
til að biðja um undanþágur.
Sjá bls. 6
Meiri byrðar ó bök
heimilisfeðra
„Þvi duglegri sem hin nýja
rikisstjórn verður við að
finna nýja skattlagningar-
möguleika og aö afnema frá-
dráttarmöguleika, svo sem
vaxtafrádrátt, i þvi skyni að
belgja rikisvaldið út á kostn-
að annarra þátta þjóölifsins,
þeim mun meiri byrðar mun
hún leggja á breiðu bökin,
venjulega heimilisfeður.”
Sjá nánar i leiðara á bls. 6
Frú þvi að þau
fœðast
Foreldrafélagið i Seltjarnar-
nesshreppi hefur á stefnu-
skrá sinni mál, er varða
börnin frá þvi að þau fæðast
og þar til þau hafa lokið
skólaskyldu. Með þvi er
verksvið þessa félags við-
tækara en annarra foreldra-
félaga, sem hafa verið stofn-
uð i tengslum við skólana.
Við segjum m.a. frá þessu
félagi og dagvistunarkönn-
un, sem það geröi, á bls. 7
Sovézkt blað
hundskammar
stjórn sína
Það er harla óvenjulegt, en
sovézkt blað hundskammar
stjórnina fyrir eldsvoðann
mikla, sem sviðið hefur stór
landflæmi og hrakið þúsund-
ir frá heimilum sinum. Blað-
ið segir, að stjórnin hafi
brugðizt hlutverki sinu.
Sjá bls. 5
Hneyksli —
eða hvað
Mikið er nú rætt um
Olympiuför islendinga til
Munchen jafnt meðal
iþróttamanna sem almenn-
ings óg sýnist sitt hverjum.
Eru fararstjórar of margir?
Atti að velja þennan iþrótta-
mann frekar en hinn fyrst
farið var út fyrir lágmarks-
afrekin? —
Sjá nánar iþróttir i opnu
Skúkstöðumyndir
ó bls. 2
FISCHER OG SPASSKÍ
SKATTBUBBAR 1973?
— eiga að greiða 6 milljónir í skatta samkvœmt lögum
Sú staðreynd blasir nú
við, að verðlaunafé
þeirra Spasskis og
Fischers verði skattlagt
hér eins og hver önnur
þénusta útlendinga hér-
lendis.
Verðlaunaupphæðin sem nemur
125,000 dollurum eða 11 millj.
Isl. kr. skiptist svo milli kepp-
enda, að sigurvegarinn fær i sinn
hlut 62 1/2% eða um 7 milljónir
Jsl. en sá sem tapar 37 1/2%, eða
um 4 milljónir isl. kr.
Samkvæmt islenzku skattalög-
unum ber að skattleggja Spasski
og Fischer eins og aðra útlend-
inga sem hér afla tekna. 1/3 hluti
tekna þeirra er frádráttarbær frá
skatti þannig að lagt er á 2/3 hluta
auk hlunnindapeninga sem Skák-
sambandið áætlar að séu um 2
milljónir isl. króna i þá tvo mán-
uði sem keppnin stendur yfir.
,,Ég hef persónulega ekki trú á
þvi að teknir verði skattar af
verðlaunafénu,” sagði Bergur
Guðnason hjá Skattstofunni i við-
tali við Visi, „þó að ekkert mæli á
móti þvi að það verði gert. Það er
ekki nóg að skattar væru teknir af
þvi hér, heldur einnig i löndum
keppenda. Það eru engir tviskött-
unarsamningar milli Islands og
Bandarikjanna eða Rússlands
þannig að eftir að við værum
búnir að taka okkar gjöld af fénu
þá yrði haldið áfram úti. Ég geri
ráð fyrir að við myndum taka
55% af þessum 11 milljónum en
það þýðir 6 milljónir.
Ég er hræddur um, að þegar
Bandarikjamenn væru búnir að
taka sinn skerf af hluta Fischers i
einviginu þá væri litið sem ekkert
eftir, og jafnvel að hann stæði
eftir slyppur og snauður.”
Og nú er að vita hvað
skattayfirvöldin gera. Skerst
fjármálaráðherra i leikinn og
hlifir þeim Spasski og Fischer,
eða þarf Alþingi til þess að gera
undanþágur?
GF
Tólf sóttu um
tollstjóraembœttið
Tólf umsóknir bárust um
ÞORISVATN STÆKKAÐ
tollstjóraembættið, sem Torfi
Hjartarson hefur sagt lausu
fyrir aldurs sakir.
Umsækjendur eru þessir:
Björn Hermannsson deildar-
stjóri i fjármálaráðuneytinu,
Björn Ingvarsson lögreglu-
stjóri á Keflavikurflugvelli,
Björn Sveinbjörnsson hrl.,
Elias Eliasson bæjarfógeti,
Erlendur Björnsson bæjarfó-
geti, Guðmundur Vignir
Jósefsson gjaldheimtustjóri,
ilalldór Sigurgeirsson fulltrúi
hjá borgarfógeta, Hallvarður
Einvarðsson fulltrúi hjá sak-
sóknara, Jón Oddsson hrl.,
Ólafur Jónsson tollgæzlu-
stjóri.Unnsteinn Beck borgar-
fógeti og Þorfinnur Egilsson
hdl. — SB —
F jögur hundruö kíló af
dýnamiti lokuðu bráða-
birgðar farvegi Köldu-
kvíslar, og héðan í frá
verður farvegur hennar
þurr frá Þórisvatni. En
15 ferkílómetra stórt
vatn myndast skammt
fyrir ofan búðir verka-
mannanna við Þóris-
vatn.
Eftir 1500 metra
löngum skurði mun
renna úr þessu vatni i
Þórisvatn, sem mun
stækka svo við það að
hér eftir verður það
stærsta stöðuvatn á ís-
landi.
Myndin hér er tekin,
þegar sprengd var burtu
síðasta hindrunin, áður
en vatnið gat byrjað að
renna eftir skurðinum til
Þórisvatns. Sjá bls. 3.