Vísir - 16.08.1972, Blaðsíða 5

Vísir - 16.08.1972, Blaðsíða 5
Visir Miðvikudagur 16. ágúst 1972 5 í MORGUN ÚTL.ÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND UMSJON: HAUKUR HELGASON Strokufongar rœndu farþegaflugvél og á náðir Allende flýðu Vinstri sinnaðir skæru- iiðar, sem höfðu tekið litinn flugvöll í Argentínu og síðan flogið flugvél til Chile, gáfust upp í morgun fyrir lögreglu. Þeir sögðust vilja gefa sig á vald vinstri stjórnar Chile og voru þeir settir í gæzluvarðhald. 90 farþegar og sex manna áhöfn flugvélarinnar, sem 10 skæru- liðar rændu, fögnuðu frelsi. Skæruliðar höfðu náð á sitt vald flugvelli i smábænum Trelew i Mið-Argentinu. Tiu þeirra skipuðu flugmanni að fljúga til Santiago, höfuðborgar Chile. Einn maður féll og margir særðust i uppreisn i fangelsi i i grennd við Trelew, sem var undanfari flugránsins. Lögregla og her umkringdi Trelew-flugvöll, en þar voru um 19 skæruliðar sagðir hafa nokkra starfsmenn flugvallarins i gisl- ingu. Flugvélin lenti skömmu eftir að skæruliðar tóku flugvöllinn. Um tiu þeirra, ein kona þar á meðal, ruddust um borð i flug- vélina með vélbyssur, hand- sprengjur og skammbyssur, og skipuðu flugmönnum að fljúga á loft. Annarri farþegaflugvél tókst að beina burt frá flugvellinum, en lögreglan telur, að þeir skærulið- ar, sem urðu eftir á vellinum mundu ella hafa notað hana til flótta. 800 fangar halda fangelsinu enn. Forseti Chile, Salvador Allende er sagður hafa heitið forseta Argentinu, Lanusse þvi, að al- þjóðleg lög verði höfð i heiðri i meðferð málsins. Þeir forsetarnir munu hafa ræðzt við i sima. Innanrikisráðherra Argentinu sagði i morgun að 800 fangar hefðu enn völdin i fangelsinu i Trelew eftir uppreisnina i gær. Herinn hefur umkringt fangelsið. Flugræningjarnir gáfust upp fyrir lögreglu i Chile eftir þriggja klst. viðræður við lögreglustjóra. Þeir ræddust við með leynd i móttökusal á flugstöðinni i Santiago. Fulltrúar sendiráðs Argentinu kvörtuðu sáran yfir þvi, að þeir fengu ekki að sitja fundinn. Lögreglan-segir, að skæruliðar séu úr ýmsum mismunandi flokk- um skæruliða i Argentinu. Einn var úr flokki Trotskyista, annar úr flokki Perónista. Fyrst ræddi lögreglustjóri við skæruliðaforingja i rúma klukku- stund, og á eftir fengu fimm fjöl- skyldur með börn að fara úr flug- vélinni, alls 16 manns. LAUSN HAFNARVERKFALLSINS llvað gerir Allende? Aftur tóku þeir til við talið, og gáfust skæruliðar siðan upp. Fréttamenn voru ekki vissir um, hve margir flugræningjarnir væru. Sumir töldu þá vera um 10, en aðrir sex eða sjö. EN HÖRÐ BARÁTTA Hörkusamningar þýzku landanna í uppsiglingu NÁLGAST, Vonir standa til, að sjái fyrir endann á þriggja vikna verkfalli brezkra hafnarverkamanna. Fulltrúar hafnarverka- manna í sambandi flutn- ingaverkamanna kváðust geta mælt með siðustu málamiðlun. Þeir töldu að nægilega hefði verið komið til móts við kröfur þeirra um tryggingu atvinnu fyrir hafn- arverkamenn, þótt betri tækni, notkun gáma, ryðji sér til rúms i höfnunum. 80 fulltrúar hafnar- verkamanna um landið allt komu til fundar i London i morgun og verður það undir þeim komið, hvort verkfalli verður nú aflýst. Snemma i morgun var enn óttazt, að þeir róttækustu i þessum hópi mundu geta fengið þvi framgengt að málamiðlunin yrði felld. Ólga er mikil, og hafa verið gerðar ráðstafanir til að vernda fulltrúa á þessu þingi hafnar- verkamanna. Róttækasti armur- inn hvatti fólk til að safnast sam- an við höfuðstöðvar sambands flutningaverkamanna til að fylgja eftir kröfum og hindra, að fulltrúarnir samþykktu að hætta verkfalli." Fyrirtækin, sem nota gámur i auknum mæli, hafa ráðið verka- fólk á lægra kaupi en hafnar- verkamenn hafa haft. Hafnar- verkamenn óttastatvinnumissi af þessum sökum, og er það ein helzta orsök verkfallsins. Jack Jones formaður sam- bands flutningaverkamanna og Aldington lávarður hafa reynt að semja um málamiðlun. Ef fulltrúarnir 80 samþykkja það i dag, gæði vinna hafizt næsta mánudag, segir i NTB-frétt. Nýr þáttur í samskiptum þýzku landanna hefst í dag. Fundir hefjast milli full- trúa Vestur- og Austur- Þýzkalands um samning um framtið þeirra. Egon Bahr fulltrúi V-Þjóðverja sagði við komuna til Berlinar, þar sem fundir verða, að samningar yrðu flóknir og erfiðir. Austur-Þjóðverjar sækjast eftir fullri viðurkenningu. Stjórn Willy Brandts vill ganga sem skemmst i viðurkenningu á stjórn Austur- Þýzkalands, en Brandt stefnir að samningum, sem gætu styrkt hann i þingkosningum i haust. Honum er mikið i mun að ná einhverjum slikum samningum, þar sem hann stendur illa að vigi um þessar mundir. Nakin Ameríka Og nú hafa þeir kjörið „ungfrú nakin Amerika”. Það er Judy Day, sem hér sést eftir sigurinn. Hún er 25 ára frá West Allis i Wisconsinfylki í Banda- rikjunum. Ljós- myndaranum hefur ekki verið gefið um nektina, mætti ætla af þessari mynd, en brosið er þó nakið. Sovétblað sakar stjórn landsins um eldsvoðann „Það er greinilegt, að menn hefðu átt að sjá eldsvoðann fyrir. Nú er unnt að gera sér grein fyrir hve mikill eldurinn var, og stjórnvöld eiga sökina að miklu leyti á þvi, hve miklir þeir urðu. Náttúrunni er ekki einni um að kenna”. Þetta segir i blaði sovézka rithöfundasambandsins Literturnaja Gazeta, i morgun um skógar- og mosaeidana i Sovétrikjunum. Blaðið birtir fréttayfirlit um eldana. Eftir þurrt sumar barst eldurinn út með miklum hraða og afli. Margir ferkilómetrar cru i ösku. Þúsundir fólks urðu að flytja frá heimilum sinum og mikill fjöldi húsdýra fórst, segir i blaðinu. Blaðið bendir á, að vitaii sé, að þurr mosi sé mjög eidfimur og hætt sé við sjálfsikveikju. „Hvers vegna var ekki séð um vatnsbirgðir og hvers vegna voru ibúarnir ekki varaðir við?” spyr blaðið. „Hvers vegna voru verðir ekki settir og sérstakir flokkar þjálfaðir til að fást við slikan vanda?” „Hvers vegna var seina- gangur svo mikill á þessum svæðum? Sérhverjum hleypidómalausum manni mátti vera ljóst, að óvenjulegt þurrkasumar mundi valda óvenjulegum eldsvoða,” segir blaðið. FÝLUFERÐ Brezki ráðherrann Rippon fór algera fýluferð á fund Amins Ogandaforseta. Amin varð ekki. þokað i ákvörðun sinni um brott- rekstur Asiumanna úr landi sinu. — A myndinni sést Amin i einni árásinni á Asiumenn I Úganda.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.