Vísir - 18.08.1972, Blaðsíða 1

Vísir - 18.08.1972, Blaðsíða 1
Þeir ættu ekki að verða læknislausir ibúarnir við fegurstu götu höfuðborgar- innar i ár, — Brekkugerðið, þeir eru a.m.k. þrír læknarnir. En frægastur allra ibúanna er þó pianó- ieikarinn heimsfrægi, Vladimir Azkenasy. Við heimsóttum götuna og ibúa hennar i eftirmiðdaginn i gær. — Sjá bls. 2. Engin kóróna ó höfuð heimsmeistarans? Nú fer aö verða skammt I krýningu (nýs?) heims- meistara i skák. Mun hún að öllum likindum fara fram i Laugardalshöllinni. Verður þá vafalaust mikiö um dýrðir. Eftir þvi sem þeir hjá Skáksambandinu segja þá verður engin kóróna sett á höfuð heimsmeistarans, i mesta lagi lárviðarsveigur um herðar hans. Það er nú frekar súrt i broti fyrir siguryegarann i einviginu livort sem það verður Spasski eða Fischer, að fá cnga kórónu til merkis um konungdóm sinn. Það verður þvi varla hægt að tala um neina krýningu ef engin krúna er. Skákin er á bls. 7 ★ Fjöldaflótti úr sœnsku fangelsi Mannheldasta fangelsi Svia hélt ekki morðingjunum frá Króatiu, sem myrtu sendi- herra Júgóslaviu i Stokkhólmi i fyrra. Með fimmtán sænskum ,,mjög hættulegum" föngum sluppu þeir i gær. — Sjá bls 5. ★ Dœmdir til einlífis? Eru þrjú þúsund islenzkir karlmenn dæmdir tii ein- lifis? Einn lesenda okkar segir að greinilega sé það svo. Hvetur hann islenzka karlmenn til aö herða upp liugann og ná sér i maka erlendis frá. — Lesenda- bréfin eru á bls. 2. Reykjavík 186 óra i dag er Reykjavik 186 ára, en i þvi tilefni flagga stofnanir borgarinnar og strætisvagnar. Reykjavik fékk kaupstaðarréttindi 18. ágúst 1786 og telst sá dagur afmælisdagur borgarinnar. — VJ ÓBÚNIR UNDIR ÞORSKASTRÍÐ? Starfsmenn Landhelgisgœzlunnar telja starfsaðstöðuna ónóga Aðeins hálfur mán- uður er nú til stefnu, þar til nýtt þorskastrið gæti hafizt við Breta. Starfsmannafélag Land helgisgæzlunar telur, að gæzlan sé ekki undir slikt búin, — ,,Ég vil ekki i einstökum at- riðum tilgreina hvað á skortir. Til slikt vera dónaskap við æðsta yfir- mann stofnunarinnar, dómsmálaráðherra, þar til hann hefur a.m.k. kynnt sér ábendingar okkar, sagði Valdimar Jónsson, formaður Starfsmannafélagsins i morgun i viðtali. við Starfsmannafélagið hefur bæði sent Ólafi Jóhannessyni, dóms- málaráðherra bréf og fariö til fundar til hans á þriðjudag til að koma ábendingum sinum á fram- færi. Starfsmannafélaginu mun þykja sem Landhelgisgæzlan hafi meir en nóg með að verja 12 milurnar — gæzla á 50 mílna landhelgi að óbreyttum að- stæðum sé þvi heldur vonlitiö verk. Landhelgisgæzlan er ekki með neinn sérstakan undirbúning fyrir 1. september a.m.k. ekki enn sem komið er, þó að nú séu aðeins tæpar tvær vikur þar til landhelgin verður færð út i 50 milur. Pétur Sigurðsson, forstjóri landhelgisgæzlunar, sagði að störf gæzlunnar gengju aöeins sinn vanagang Eins og skýrt hefur verið frá fékk Landhelgisgæzlan nýlega notaða Sikorsky þyrlu, sem eflaust kemur að góðum notum viö eftirlitsstörfin, en einnig bætist Þór við flotann i næsta mánuði, en hann hefur veriö úr leik undanfarna mánuði vegna mikilla viðgerða sem gerðar hafa verið i ÍUaborg. Að þvi er landhelgisforstjórinn sagði Visi er landhelgisgæzlan sæmilega birg af skotfærum. Grinista verður aö hryggja með þvi að kúlurnar eru allar danskar. Birgöir af brezkum kúlum, sem til voru hér frá strið- inu eru allar uppurnar. Og það stendur ekki til að gera vopna- pöntun i Bretiandi. —VJ FULLTRUI YNGSTU KYNSLÓÐARINNAR A ég aö koma i blööin?! — Meinaröu það i alvörunni? — Þá verö ég að laga inig ögn til. Biddu meöan ég hneppi tölunni. — Hvernig á ég annars að vera? Er þetta allt i lagi? — Æ, nei, þetta er alveg ómögu- legt” 1 garðinum i Laugardal hitti Ástþór ljósmyndari þessa ungu fyrir- sætu, og fékk að smella af henni eirmimynd, sem að okkar dómi sómir sér vel á öllu safninu af öðrum þokkadisum, eins og Ungfrú Unga Kyn- slóðin ’70, '71, og ’72 og þær allar. — Eruö þiðekkisammála? EKKI ÁKVEÐ- IÐ UM HERSKIP ENN Brezk yfirvöld hafa ekki enn ákveðið formlega að senda her- skip á islandsmið til verndar brezkum togurum eftir 1. september. Að þvi er bezt verður vitað er alveg óvist, að herskip vcrðisend. Þannig hcfir t.d. verið látið að þvi iiggja I erlendum blöðum, að mikil andstaða sé gegn þvi innan brezka flotans. Minningarnar frá þorskastriðinu eru ckki svo skemmtilegar. Viðhorfin innan brezka flotans i dag eru einnig nokkuð önnur en þá. Nú fyrirfinnst ekki lengur sérstök fiskeftirlitsdeild eins og þá var, en þessi deild hefur verið lögð niður. Það koma þvi upp sérstök tæknileg vandamál innan brezka flotans, ef hann verður við bón um herskípavernd á tslands- miðum fyrir brezka togara. Einhverja deild flotans yrði að skikka til að taka að sér verk- efnið, en flotaforingjar munu ekki frekar en aðrir menn hafa gaman af þvi að vera gerðir hlægilegir. Eina aðstoðin, sem opinberlega er búið að ákveða fyrir brezku togarana eru þrjú eftirlitsskip úr strandgæzlu Hennar Hátignar. Þessi skip eru aðeins mönnuð borgaralegum og þau eru að sjálfsögðu óvopnuð. Markmiðið með þeim, er fyrst og fremst það, að veita togurunum svo fullkomna þjónustu, að þeir þurfi ekkert að sækja til islenzkra hafna. — VJ

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.