Vísir - 12.10.1972, Blaðsíða 5
VÍSIR Fimmtudagur 12. október 1972.
5
AP/IMTB I MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN UTLÖND í MORGUN hAUKUr' HtLGft^ON
Spilla árásirnar
friðarsamningum?
Kissinger hœttir enn
við heimför - „Getur
ekki verið skyssa
flugmanns", segir
kanadískur
sjónvarpsmaður um
loftárásirnar
Kissinger hætti enn i
gærkvöldi á siðustu
stundu við heimferð frá
Paris. Kngin
skýring var gefin, en
sagt, að hann færi heim i
dag. Menn velta þvi nú
Ivrir sér, hvort loft-
árásirnar á Hanoi i gær,
Pompidou reiður
þar sem sprengjur féllu
á skrifstofur franskra
diplómata og ollu
manntjóni, muni spilla
Iriðarsamningum i
Paris.
##
Berst til
þrautar
#/
— segir Thieu — Fjölskylda mín samþykkir ekki
samsteypustjórn", stendur ó spjöldum
Thieu forseti Suður-
Vietnam sagði i morgun,
að hann mundi berjast
gegn öllum tilraunum til
að ,,neyða samsteypu-
stjórn upp á Suður-
Vietnam”.
Thieu sagði i ræðu, að hann
hefði lagt til friðarsamninga, sem
fælu i sér, að hann segði af sér,
eftirað friður yrði tryggður. ,,En
ég ætla ekki að segja af mér, áöur
en friður verður tryggður,” sagði
hann.
,,Ég mun berjast til þrautar, ef
einhver reynir að koma á sam-
steypustjórn.”
Spjöld eru uppi viða i húsum i
Saigon, þar sem segir: „Fjöl-
skylda min samþykkir ekki sam-
steypustjórn.”
Spjöldin eru i fánalitum Suður-
Vietnam.
Orðrómur hermir, að framtið
Thieus forseta sé helzta hindrun á
vegi samninga Kissingers og
kommúnista um frið i Vietnam.
Starfsmaður bandariska sendi-
ráösins i Paris, Harry Mitchell,
hafði verið lengi á Orly-flugvelli
til að fylgja Kissinger til flug-
vélar. Þá bárust fregnir um, að
Kissinger færi ekki.
Bandarikjamenn hafa hreyft
þeim möguleika, að eldflaugar,
sem Norður-Vietnamar hafi
skotið að bandariskum flug-
vélum, kunni að hafa fallið á hús
Frakkanna i hjarta Hanoi.
Pompidou Frakklandsforseti
segir hins vegar, að þetta hafi
verið bandarískar sprengjur, og
telja fréttamenn, að svo hafi
verið. Laird hermálaráðherra
Bandarikjanna segir einnig, að
vera kunni, að flugmönnum hafi
skeikað, en þeir áttu að varpa
sprengjum sfnum fimm kiló-
metrum frá þessum stað. Banda-
rikjastjórn hefur fyrirskipað
rannsókn á málinu.
Kanadiskur blaðamaður
sá alburðinn
Michael Maclear, fréttamaður
kanadiskrar sjónvarpsstöðvar,
Tckst Kissinger að veröa „maður ársins?’
kvaðst hafa séð árásina. Hann
segir, að frönsk kona og fimm
Vietnamar hafi látið lifið.
brjár herþotur hafi farið
margar ferðir yfir borginni.
„Ég taldi að minnsta kosti tylft
sprengjuskota frá flugvélunum
og sá, þegar ein þeirra stakk
sér þrátt fyrir harða loftvarnar-
SADAT HINDRAÐI
,ANNAÐ MÍÍNCHEN'
Leyniþjónusta Egypta-
lands kom upp um sam-
særi arabískra skæruliða
um að gera árás við há-
tíðarhöld i minningu De
Gaulle.
Skæruliðar álitu, að hermdar-
verk við þessa athöfn skammt
frá heimili Oe Gaulle i Colom-
bey-les-I)caus-Eglise” mundi
vekja hcimsathygli, hugsanlega
á borð við olympiuleikana.
En leyniþjónustan egypzka
afhjúpaði ráðabruggið og skýrði
Sá'dat forseta frá þvi. Hann
gekkst fyrir þvi, að það var
hindrað, segir blaðið Jerusalem
Post.
Fulltrúi S.Þ. myrtur
Fulltrúi Sameinuðu þjóðanna i
þróunaráætlun i Libanon var
skotinn til bana i morgun.
Tilræðismaðurinn mun hafa
skotiö sjálfan sig á eftir og
særðist hann.
skothrið og kastaði tveimur
sprengjum úr litilli hæð. Ég tel að
ekki geti verið um að ræða
skekkju hjá flugmanni”, segir
Maclear, sem starfar hjá sjón-
varpsstöðinni CTV.
Hann segir, aö engar sprengjur
hafi fallið á verksmiöjur i
grenndinni.
Réðust inn
á heimili
sendi-
herrans
Tveir menn réðust inn á heimili
scndiherra Jórdaniu hjá Samein-
uðu þjóöunum í fyrrakvöld og
hcldu varðmanni, barnfóstru og
tveimur börnum scndiherrahjón-
anna föngnum. Þeir komust und-
an með skartgripi og annaö verð-
mæti.
Annar þeirra skar á púls varð-
mannsins með hnifi i átökum sem
urðu, þegar barnfóstran komst I
annað herbergi og reyndi að
hringja til lögreglunnar.
Sumir vildu, að stjórn irska lýðveldisins yröu gerðir úrslitakostir.
Annaðhvort gerðu þeir skæruliða IRA landræka ellegar Irskir borgarar
i Bretlandi misstu réttindin. Whitelaw ráöherra Norður-irlands gaf sig
ekki.
Deilt á flokksþingi, en Whitelaw vann
FYRSTU HLUTFALLSKOSN-
INGARNAR Á NORÐUR-ÍR-
LANDI VERÐA í DESEMBER
Deilt er um Norður-lr-
land á flokksþingi brezka
Ihaldsflokksins. William
Whitelaw ráðherra visaði í
gær á bug öllum kröfum
hægri armsins um að beita
stjórn írska lýðveldisins
hörðu, þangað til hún upp-
rætti IRA-skæruliða, sem
hafa hæli þar.
Whitelaw kvaðst mundu halda
áfram að beita hvorutveggja i
senn, stjórnmálalegum og hern-
aðarlegum aðferðum. Hann lýsti
þvi yfir, að kosningar til sveitar-
stjórna skyldu fara fram i N-Ir-
landi 6. desember, og yrðu þær
fyrstu hlutfallskosningarnar. Ein
réttarbót, sem kaþólski minni-
hlutinn hefur fengið, eru hlut-
fallskosningar i stað ein-
menningskjördæma, sem þýðir,
að minnihlutinn gæti fengið fleiri
fulltrúa i sveitarstjórnum.
Kaþólskir ættu að geta fengið
um þriðjung fulltrúa viðást.
Jafnskjótt og brezka þingið sam-
þykkir lög um þetta, segir White-
iaw, mun verða ákveðið, að þjóð-
aratkvæðagreiðsla fari fram um,
hvort N-trland skuli vera áfram
hluti Stóra-Bretlands . eða sam-
einast trska lýðveldinu.
Mílljón irskir borgarar afla
tekna i Bretlandi.
Hægri armur thaldsflokksins
krefst þess hins vegar, að brezka
stjórnin beiti meiri hörku gagn-
vart kaþólskum. Einn hægri
mannanna, Henderson höfuðs-
maður, sagði, að IRA notaði
trska lýðveldið sem öruggt hæli,
sem gera mætti úr árásir yfir
landamærin. Hann sagöi, að IRA
bryti opinskátt og óhindrað gegn
lögum trska lýðveldisins, með
fjársöfnun til hermdarverka,
vopnasöfnun og áróðri.
Annar fulltrúi á flokksþingi
thaldsflokksins, Geoffrey Pattie,
krafðist þess, að Bretar gerðu
stjórn Johan Lynch i trska lýð-
veldinu úrslitakosti. Annað hvort
gerði hann tRA útlæg úr landinu
eða allir irskir borgarar i Stóra-
Bretlandi yrðu settir á bekk með
„útlendingum” i lagalegum
skilningi, sem þýddi mikinn
tekjumissi fyrir trska lýðveldið.
Um milljón borgara þess búa og
afla tekna i Stóra-Bretlandi, og
mundu þeir glata sérstöðu sinni,
ef farið væri eftir tillögum full-
trúans.
Flokksþingið samþykkti hins
vegar stefnu Whitelaws með yfir-
gnæfandi meirihluta eftir snarpar
sennur.