Vísir - 26.10.1972, Blaðsíða 2

Vísir - 26.10.1972, Blaðsíða 2
2 Vísir Fimmtudagur 26. október 1972. risnism: Ilafið þér hugsað yður að sjá rússneska ballettinn í Þjóðleik- húsinu? Kristrún Guftjónsu. húsmóftir, Já, ég heffti ekkert á móti þvi. Ég hef gaman af að sjá ballett. Þessi rússneski ballett er áreiðanlega skemmtilegur. Stefán Bjarnason, flugvirki. Nei , ég geri ekki ráð fyrir að sjá hann. Éghef mjög litinn áhuga á hallett Rögnvaldur Bergsson, verksmiftjustjóri. Nei, ég hef litinn sem engan áhuga á ballett. Það stendur heldur ekki til að ég sjái hann, þvi að ég er ekki bæjar- maður. llólmfriftur Gisladóttir, húsmóðir. Það held ég ekki. Ég hef þó mjög gaman af að fara á ballettog bara yfirleitt i Þjóðleik- húsið. Guðrún Jóhannesdóttir, húsmóð- ir. Ég hef mjög mikinn áhuga á ballett, en i þetta sinn hef ég ekki tækifæri til að fara. Jónas Magnússon, bóndi.Nei, ég hef frekar litinn áhuga á ballett, en ég hef mikið gaman af sjón- leikjum. Það er ekki þar með sagt að ég myndi ekki fara að sjá bállettinn, ef ég hefði tækifæri til þess. Ég er gestur i bænum i stuttan tima, og i svoleiðis ferðalögum er litið um möguleika á að njóta lista. IÐNNÁM í FANGELSUM? Óvissa og rótleysi, sem refsingin skapar, leiðir marga ,, \ klefann" aftur Fangelsismálin hafa verift mjög mikift á dagskrá á undan- förnum mánuðum, og þykir mörgum aft miklu sé ábótavant i fangelsismálum okkar ts- lendinga. Fangelsi okkar eru fá og litil og aftstæður i þeim eru yfirleitt mjög slæmar og oft varla mönnum bjóðandi. Mikil þörf er á sérlærftu fólki vift fangelsin, t.d. sálfræðingum og félagsráftgjöf- um. t fyrrakvöld var i sjónvarpinu umræöufundur um fangelsismál- in og tóku þátt i honum ulsftir Jó- hannesson, dómsmálaráðherra, lögfræðingar, sálfræðingar, félagsráðgjafar og ýmsir aðrir sem að fangelsismálunum starfa eða láta sig þau einhverju skipta. Voru þar ræddir möguleikar á úr- bótum i þessum málum. Kom fram i umræðunum að alls engar kröfur eru gerðar um menntun fangavarða eða fangelsisstjóra. Er þvi hætta á þvi, að til þessara starfa geta val- izt menn sem ekki eru hæfir að gegna þeim. Fangar hafa kvartað yfir þvi að oft séu þeir látnir sæta refsingum vegna þess að ein- hverjum fangavarðanna sé per- sónulega illa við þá. Geti þvi fangaverðir notað sér aðstöðu sina til að ná sér niðri á föngunum og beita þá refsingum, t.d. inni- lokun um styttri eða lengri tima. Oft vita fangar ekkert hvers vegna þeir eru lokaðir inni og hversu lengi þeir eiga að vera i einangrun. Bókanir um hegðun fanganna og agabrot eru færðar inn i dagbækur fangelsanna, án þess að fangar hafi hugmynd um það eða fái nokkurt tækifæri til að tala sinu máli Ungir menn.eroft hafa fengið dóm fyrir smávægileg afbrot, eru látnir á staði, þar sem fyrir eru stórafbrotamenn og afbrota- menn, sem eru veikir á geði og ættu að vera á geðveikrahælum þar sem þeir væru undir umsjón geðlækna. Margir halda þvi fram að fangelsin bæti ekki, þau spilli og mun mikið vera til i þessari fullyrðingu. Margir fangar koma aftur og aftur i fangelsin eftir að þeim hefur verið sleppt. Sr. Jón Bjarman fangelsisprestur, sagði i umræðuþættinum i sjónvarpinu, að sitt álit væri að margir fangar sem lenda aftur i fangelsi, fari út i afbrot aftur þegar þeir koma út, vegna þess að þeir þola ekki vist- ina. Vinnumöguleikar fyrir fanga sem dvelja i fangelsum eða vinnuhælum eru litlir. Það er slæmt að menn sem eru hraustir bæði andlega og likamlega, geti ekki stundað vinnu sem er við þeirra hæfi. Á vinnuhælinu að Litla Hrauni hefur verið komið upp aðstöðu til föndurvinnu og kennslu fyrir fanga. Er þetta spor i rétta ár, en enn vantar mikið á að vinnumöguleikar fyrir fang- ana séu nægir. I umræðunum kom fram að búskapur er nú eng- inn stundaður á Litla Hrauni, sem er þó stór og góð jörð. Vel mætti láta fanga vinna að búskapnum og eru þarna ónotaðir miklir vinnumöguieikar fyrir fanga. Laun þau sem fangar fá fyrir þá vinnu sem þeir hafa möguleika á að stunda á vinnuhælum og i fangelsum á lslandi eru aðeins 100 krónur á dag. Þar af verða fangar að borga klæði, lyf og snyrtivörur sem þeir þarfnast. Geta fangar þvi litið sem ekkert lagt fyrir og standa oft uppi alls- lausir þegar þeim er sleppt laus- um. Þá vantar þá húsnæði, vinnu og mat. Félagssamtökin Vernd og fangahjálp Óskars Clausens hafa reynt að aðstoða fanga þegar þeir koma út, en ekki ráða þessir aðil- ar við öll þau vandamál, sem við er að striða. Mjög mikið skref i rétta átt væri, ef föngum byðust möguleik- ar á að stunda eitthvert nám, á meðan þeir dveljast i fangelsum. Koma þyrfti upp aðstöðu til að þeir gætu stundað iðnnám eða lært eitthvað annað, sem þeir gætu gripið til er þeir losna. óvissa um, hvað við tekur þeg- ar fangar losna úr fangelsum, þjáir marga þeirra mjög. Ef fangar vissu hvert þeir gætu snú- ið sér, þegar út er komið og hvar þeim yrði veitt hjálp til að finna fótfestu á ný, er liklegt að fækka ííliindi mikið þeim tilfellum er þeir gerast bfOt'egir á ný, strax og þeir eru lausir. Oft er það að dómar fyrnast vegna þess að ekki er pláss fyrir mennina i fangelsum eða hælum. Samt er vinnuhælið á Litla Hrauni ekki fullsetið. f mörgum tilfellum er málið þannig, að menn hafa aðeins verið dæmdir fyrir smávægileg brot og hafa fasta vinnu og ekki gerzt brotlegir aftur. f slikum tilfellum er engin ástæða að láta menn afplána dómana. Einnig eru til þau tilfelli að menn þora ekki að fá sér vinnu vegna hræðslu um að þeir séu sóttir og þeim stungið inn. Ef þeir reyna að skrifa til viðkomandi yfirvalda og spyrjast fyrir um, hvort þeir eigi að afplána dóminn eða ekki, er þeim oft á tiðum alls ekki svarað. Margir þessara manna fara þá út i afbrot aftur, aðeins vegna hræðslu og óvissu. Um siðustu áramót munu 237 hafa átt óafplánaða dóma hang- andi yfir sér. Rætt er um að byggja rikis- fangelsi, þar sem deild fyrir geð- veika afbrotamenn sé fyrir hendi, og þar verði starfandi geðlæknar. Margir eru nú þeirrar skoðunar að fangelsin ætti að leggja niður að mestu, en koma upp góðum vinnubúðum i stað þeirra. Neitað hefur verið að taka við geðveik- um afbrotamönnum á sjúkrahús- um hér. Flestir eru sammála um það, að geðveikir afbrotamenn og stórafbrotamenn eiga ekki sam- leið með ungum piltum sem dæmdir hafa verið fyrir smá af- brot, hvort sem rikisfangelsi er lausnin eða ekki. —ÞM Sumum föngum finnst oft aft bjálkinn sé i auga dómsvaldsins. LESENDUR JkHAFA ORÐIÐ Banna œtti togveiðar á landgrunninu P. skrifar eftirfarandi: ,,Mér finnst að það hafi verið haldið heldur klaufalega á land- helgismálinu. Að minum dómi hefði átt að banna allar veiðar með botnvörpu á landgrunninu, en auðvitað leyfa handfæra- linu- og lagnetaveiðar, og þá aðeins íslendingum. Þetta togveiðibann ætti að gilda i 3-5 ár og taka það siðan til endurskoðunar. Um siðustu aldamót réri ég til fiskjar, vor og haust, Þá var að- eins veitt á handfæri, linu og i lag- net, engar botnvörpur eða drag- nætur. En þar sem ég á full- orðinsárum hafði mikil viðskipti við útgerðarmenn sem banka- starfsmaður, fór ég nokkrum sinnum út á Flóann með togurum. Ég get fullyrt, að ekki var hægt að hirða nema 1/3 af þvi sem kom i vörpuna i hvert sinn. Hinu var 'mokað i sjóinn og sögðu sjómenn- irnir að þessi seiði dræpust öll og spilltu þau fiskimiðunum þegar þau rotnuðu. Ef við friðuðum eigin fiskimið algerlega i nokkur ár fyrir öllum botnvörpuveiðum, þyrfti ekki að kviða fiskleysi i framtiðinni og heldur ekki ófriði við þá sjóræn- ingja, sem nú eru að hrella okk- ur.” Svar frá Ferðafélaginu ..G.Guðmundsson skrifar i Visi i gær og hefir áhyggjur af, að Þórsmörk verði eyðilögð með vegagerð og átroðningi, á sama hátt og Landmannalaugar hafa þegar verið eyðilagðar að hans áliti. Ferðafélagið fær árlega smá- upphæð úr Fjallvegasjóði, sem skoða má sem leigu Vegagerðar- innar fyrir afnot vegagerðar- manna af húsum félagsins. Þetta framlag hefir ekki verið tekið út undanfarin ár, heldur runnið beint i einhverjar vegabætur, sem Vegagerðin framkvæmir á fjöllum uppi. Ferðafélagið hafði að sjálfsögðu áhuga á vegagerð i Landmannalaugar vegna starf- semi sinnar þar og einnig i sam- ræmi við markmið félagsins frá stofnun þess árið 1927. Tveggja " ára framlag félagsins úr Fjall- vegasjóði var þvi sett i þessa vegagerð, og með þvi móti hafði félagið áhrif á málið. Bændur úr Landssveit höfðu einnig áhuga á þessari vegagerð, þvi að leitar- menn höfðu oftar en einu sinni orðið að sundriða Kvislina i haustleitum, og slikter ekki alltaf grin á þeim árstima. Sumarið fyrir vegalagninguna hafði lika einn þekktasti öræfabilstjórinn sett 30 manna fjallabil sinn á kaf i ána og skemmt hana fyrir næst- um þvi þá upphæð sem vegalagn- ingin kostaði. Nýtizku fjallabilar kosta nú orðið 4-6 milljónir og rekstur þeirra er orðinn mjög erfiður, m.a. vegna skattbyrða rikisins og meirihlutinn af þess- um sköttum rennur einmitt til vegagerðar. Það kann að hafa verið „æfintýri” að fara yfir Jökulgilskvislina eða að horfa á bila festast þar, og fólkið i bilun- um, kannski konur og börn, kom- ast naumlega upp á þakið og biða þar i ofvæni eftir björguninni. Slik óhöpp voru tið i þessu vatnsfalli, en ég efast um, að þarna hafi ein- ungis verið um „æfintýri’ að ræða fyrir eigendur bilanna eða far- þega. Krossá i Þórsmörk er að visu annars eðlis en Jökulgilskvislin, en samt hafa margir lent þar i alvarlegum vandræðum. Það er þvi engin fjarstæða að hugsa sér, að til brúargerðar geti komið yf- irKrossá, og þyrfti sjálfsagt ekki að vera svo kostnaðarsamt fyrir- tæki. Þá yrði oftast fært þangað fyrir jeppa og eins- eða tveggja- drifa rútubila, og það er langt frá þvi að öll sú umferð yrði á vegum Ferðafélagsins eða þvi til fram- dráttar. Að gera fólksbilafært i Þórsmörk er hins vegar mikið fyrirtæki, og verður sjálfsagt ekki gert á næstu árum eða áratugum. Viðtal mitt við sjónvarpið hefur brenglazt svoiitið hvað þetta atriði snertir. Það er sjálfsagt að vernda sem bezt fegurstu staði landsins, það á að vernda þá handa fólkinu en ekki frá þvi. Jafnframt verður þó að krefjast þess af „mestu menn- ingarþjóð i heimi”, að hún læri að umgangast landið á sómasamleg- an hátt. Umgengni i Landmanna- laugum hefir ekkert versnað vegna tilkomu vegarins, og það er engin ástæða til að ætla, að verr fari i Þórsmörk, þótt ferðin þang- að yrði auðvelduð með vegabót- um. Það voru heldur ekki allir likamlega færir um að ganga skriðuna heim i Laugar, og þetta fólk á lika nokkurn rétt. Reikningar Ferðafélagsins eru ekkert leyndarmál, og eru birtir i árbókum félagsins. Leiga á tækj- um Vegagerðarinnar er að sjálf- sögðu greidd, eins og leiga á öðr- um tekjum og er færð i viðkom andi gjaldaliði i reikningunum. Sigurður Jóhannsson, vegamála- stjóri og forseti Ferðafélagsins, er alveg saklaus af þvi að ivilna Ferðafélaginu á kostnað Vega- gerðarinnar.” Einar Þ. Guðjohnsen.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.