Vísir - 26.10.1972, Blaðsíða 4

Vísir - 26.10.1972, Blaðsíða 4
4 Visir Fimmtudagur 26. október 1972 ........... £: I Negrar „f rysta" Sommy Davis útí stuðnings hons við Nixon iiy :: :: :: :: ■■ :: :: :: :: 1 | Nixon nýtur stuftnings Sammy :: Davis ir. .. ■■ J Blakki söngvarinn og leikarinn Sammy Davis jr., sem hefur „snúið baki við” Kennedyu-num og demokrötum öllum tií að styðja við bakið á Nixon, hefur fyrir vikið mætt megnri andúð blökkubræðra sinna. Þegar hann kom nýveriö fram i Chicago var tekið á móti hon- um með háværu blistri og pipi. Og i Washington og viðar hafa fjöldamargar hljómplötu- verzlanir stöðvað sölu á hljóm- plötum hans. En það er ekki aðeins Sammy, sem fengið hefur að finna fyrir barðinu á blökkumönnum, óvil- hollum repúblikönum. Sá þekkti soul-söngvari James Brown, sem einnig hefur stutt Nixon i kosningabaráttunni horfði ný- verið upp á söngskemmtun sina „frysta úti” i Baltimore. Fjöldahandtökur reyndust nauðsynlegar, þegar mikill fjöldi blökkumanna fór i mót- mælagöngu i gegnum borgina, þeirra erinda að fá komið i veg fyrir að Brown gæti látið til sin heyra i sönghöllinni. Blaðaútgefandi i Baltimore, William Scott, sagði: ,,Ég hef aldrei orðið vitni að þvilikum árekstri milli litaðra manna. Þetta var óhugnanlegt.” Þá hefur blökkumönnum einnig tekizt að „frysta úti” sýningará kvikmynd annars lit- aðs stuðningsmanns Nixons, nefnilega Jims Brown, sem var kunnur fyrir knattspyrnuleik áður en hann snéri sér að kvik- myndaleik. „VOIIUÐ KEYPTIR” Leiðari blaðs stærstu blökku- manna-samtakanna segir m.a.: „Nixon, sem i siðustu kosning- um fékk aðeins 12 prósent at- kvæða blakkra kjósenda, gerir með þessum hætti tilraun til að kaupa þá enn fleiri til fylgis við sig með mútum og alls kyns samningum — og það eru þvi miður alltof margir okkar, sem eru til sölu.” Þess má að lokum geta, að Sammy Davis var fyrir skömmu útnefndur af Nixon forseta i mikilvæga stjórnar- nefnd, sem falið hefur verið að leggja á ráðin varðandi barátt- una gegn fiknilyfja-vandamál- inu. mm Þannig túlkar margur blökkumaðurinn viðhorf Nixons forseta til hlakkra..... ::::::: Paul, og frú hans, Linda. Bæöi eru þau i Wings, hljómsveitinni, sem flytur titillagið i næstu James Bond kvikmynd nú Umsjón: Þ.J.M. P. McCartney semur fyrir Bond-mynd PAUL McCARTNEY heíur samið nokkuð af bljómlistinni fyrir næstu James Bond kvikmynd „Live And Let Die.” Þá mynd er þegar byrjað aö gera iAmeriku, og þá með fóst- bróðurinn Roger Moore i hlut- verki 007 i stað Sean Connery. Hversu mikið af hljómlist myndarinnar Paul mun semja er ekki ákveðið ennþá. En svo mikið er vist, að hann hefur lokið við gerð titillagsins — og það hefur verið hljóðritað fyrir kvik- myndina leikið af Wings, hljóm- sveit McCartneys. Einn umboðsmanna Bitilsins upplýsir að Paul sé jafnframt búinn að gera skil tveim eða þrem lögum fyrir myndina á sama hátt. „Það liggur bara ekki ljóst fyrir, hvort honum vinnst tími til að semja fleiri fyrir þessa Bond- mynd,” segir umbinn. „Það hefur verið farið fram á það við hann og honum verið boðnar svimháar upphæðir fyrir lagasmiðina. Coca-Colo - Það er drykkurinn Coca-Cola hefir hið ferska, lifandi bragð, sem fullnæqir smekk hins nýja tíma „Ég svaf ekki hjá Wilson!" Blaðakonan Nora Beloff við fréttablaðið Observer hlaut nokkra frægð fyrir stjórnmála- grein, sem hún nýlega skrifaði i blaðið. öllu frægari varðhún þó, þegar annað timarit hafði látið i veðri vaka, að blaðakonan hefði aflað sér mikilvægra upp- lýsinga i grein sina með þvi að sænga með Harold Wilson. Blaðakonan brást að sjálf- sögðu hin versta við þessari at- hugasemd og fór i meiðyrðamál við timaritið. Þvi hefur nú verið gert að greiða Noru Beloff sem svarar liðlega 600 þúsundum is- lenzkra króna i bætur. Timaritið bar þvi við fyrir rétti, að klausan i blaðinu hafi öll verið i gamni gerð. ÞYRLUFLUGMAÐURINN CHARLES RÍKISARFI Það er vist engum blöðum um það að fletta, þessi kankvisi herflug- maður er enginn annar en rikiserfinginn Charles, sem nú er orðinn 24ra ára gamall. Hann sézt hér búa sig undir flugtak á þyrlu, en hann fékk nýverið bréf upp á það, að hann væri nú orðinn fullnuma i að fljúga slikum vélum. Charles prins, sem gegnir stöðu undirliðsforingja i hernum, eyddi siðustu viku við þyrluæfingar yfir æfingabúðum flotans i Yeovilton i Sommerset. Prinsinn hafði annars komizt i kynni við þyrlur sömu tegundar og hann flýgur nú, áður en hann tók til við að læra á þær. Þá var hann að- eins farþegi um borð, en einhver tæknileg óhöpp áttu sér stað á fluginu og varð að nauðlenda þyrlunni á flugvelli skammt fyrir utan London. Hvorki prinsinum né öðrum um borð varð meint af.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.