Vísir - 26.10.1972, Síða 5
Visir Fimmtudagur 26. október 1972.
AP/IMTB I MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN UTLÖND Í MORGU
5
«
Bardagar blossa aftur
upp í Vietnam
— en „vopnahléð átti að
hefjast 31. okt."
segir Hanoi-útvarpið
Hlé það á loftárásun-
um i Vietnam, sem.
Nixon Bandarikjafor-
seti hefur fyrirskipað,
á meðan á vopnahlés-
viðræðunum stendur —
hefur ekki orðið til þess
að draga úr átökunum i
styrjöldinni.
Norður-Vietnamar og Þjóð-
frelsisherinn gerðu 113 árásir
siðasta sólarhringinn viðsvegar
i Suður-Vietnam, og eru þetta
einhverjar stærstu sóknarað-
gerðir þeirra siðan i vor.
Harðir bardagar voru i gær á
Mekong-svæðinu um 80 kiló-
metra suður af Saigon. Fót-
göngulið Suður-Vietnam, stutt
af stórskotaliðinu, barðist þar i
fjóra tima samfleytt við
Vietkong og N-Vietnama.
Opinberir aðilar i Suður -
Vietnam fullyrða, að bardagar
þessir standi i beinu sambandi
við vopnahlésviðræðurnar að
undanförnu, þar sem
kommúnistar vilji ná á sitt vald
fleiri þýðingarmiklum svæðum
til þess að fá til ráðstöfunar, ef
til vopnahlés skyldi koma.
Voru sammála
um vopnahlé 31. okt.
Útvarpið i Hanoi sagði á
þriðjudag, að Bandarikin og
Norður-Vietnam hefðu i við-
ræðunum i Paris i siðustu viku
og þar áður orðið sammála um
vopnahléssamning, sem undir-
rita átti i þessum mánuði, ,,en
Bandarikin drógu sig út úr þvi
aftur, og báru þvi við, að þau
ættu i erfiðleikum með Saigon”,
sagði útvarpið.
„Þessir svonefndu erfið-
leikar Saigon eru ekkert nema
fyrirsláttur af hálfu Bandarikj-
anna til þess að draga á langinn,
að efna þau loforð, sem þau
höfðu þegar gefið um vopna-
hlé”, sagði Hanoi útvarpið.
Hanoi-útvarpið, sagði, að i
ljósi þessa dráttar af hálfu
Bandarikjamanna sæi stjórnin i
N-Vietnam sér ekki annað fært,
en að skýra frá efni hinna leyni-
legu viðræðna, sem Kissinger
átti i Paris ,,til þess að þjóðir
Vietnam og Bandarikjanna og
. allur heimurinn skilji sannleik-
ann i málinu”.
Ennfremur upplýsti Hanoi -
útvarpið, að það hefði verið
ætlunin, að vopnahlés-
samningur skyldi undirritaður
31. okt.', og strax 24 stundum
eftir undirritun hans átti að
sleppa úr haldi öllum striðs-
föngum, og erlendir herir áttu
að verða úr landinu, áður en 60
dagar voru liðnir. 1 kjölfar þess
áttu siðan að hefjast viðræður
milli Saigon — stjórnarinnar og
Viet Cong um lýðræðislegar
kosningar i S-Vietnam.
Enn hefur ekkert verið látið
opinskátt af hálfu stjórnarinnar
i Washington um viðræður
Kissingers við Norður -
Vietnama á fundunum i Paris,
né heldur um viðræður hans við
Thieu forseta i Saigon á
dögunum.
í fréttaskeyti frá AP segir, að
þessar yfirlýsingar Hanoi -
útvarpsins hafi verið bornar
undir ráðamenn i Washington,
en þeir hafi ekkert viljað um
málið segja.
Umsjón:
Guðmundur Pétursson
Fer í
mól við
Pófa
Luigi Fedeli, kjötsali og slátr-
ari Páfagarðsins i Róm hefur
höfðað mál á hendur Vatikaninu.
Vatikanið lét loks loka kjötbúð
Fedeli i april i vor og yfirtók mat-
sölustað hans, en nú hefur hann
leitað til dómstólanna og krefst
151 milljóna lira upp i ógreidd
vinnulaun og skuldir.
,,Ég hef verið þeirra dyggur
þjónn i 21 ár, en þá á svipaðan
hátt og þjónar voru á miðöldum”,
sagði hann i viðtali við blaða-
mann. — ,,En nú er nóg komið”.
Vatikanið réði föður Fedelis
sem páfalegan slátrara 1933, og
strax sem drengur að aldri vann
sonurinn i kjötbúðinni, meðan
Pius, XI var páfi.
Fedeli sagði, að sá páfinn, sem
hann hefði þekkt bezt, hefði verið
Jóhann XXIII, sem hefði verið
sérfræðingur i ostum.
,,Einu sinni hringdi hann sjálf-
ur i búðina til þess að láta vita, að
hann vildi heldur aðra tegund af
osti en honum hafði verið send”,
rifjaðist upp fyrir Fedeli,-
Hánoi-útvarpið upplýsir, að viðræður þeirra Le Duc Tho — for-
manns sendinefndar N-Vietnam iParis — og Henrys Kissingers
— ráðgjafa Nixons i Paris fyrir rúmri viku hafi leitt til sam-
komuiags um vopnahié, sem taka átti giidi 31. okt.
Róttœkasti mótmœl-
andínn lagstur veikur
William Craig, hinn róttæki
leiðtogi mótmælenda á Norður-
irlandi, hefur verið veikur siðan
hann féli saman eftir æsinga-
kennda ræðu, sem hann hélt i
London á fimmtudag isiðustu
viku.
Læknar segja að hann gangi
William Craig
með nýrnasjúkdóm og verðí að
hafa hægt um sig — en i frétta-
skeyti frá NTB segir að það sé
margra manna hald, að Craig
hafi fengið taugaáfall að lokinni
ræðu sinni.
William Craig lagðist i rúmið i
gær, og læknir hans segir, að
flytja verði hann á sjúkrahús til
frekari rannsóknar.
Ræða Craigs á fimmtudaginn
vakti athygli um allan heim, en
þar sagði hann, að fylgismenn
hans væru reiðubúnir „til að
skjóta til bana til að vernda
brezka arfleifð sina”.
Málrómur hans var þvoglu-
kenndur meðan hann flutti ræð-
una og á köflum vart heyranlegur
svo að áheyrendur héldu að' hann
væri ölvaður, en eftir á sagði
hann það stafa af kvölum, sem
hann hefði af nýrnaveikindum
sinum.
En ræða hans olli sliku uppþoti,
að nær hafði leitt til klofnings i
hans eigin flokki heima á Irlandi,
þegar hún fréttist þangað.
Olíukóngur gaf Rússum
milljón dollara mólverk
Bandariskur oliukóngur, dr,
Armand Hammer að nafni, sem
bjó i mörg ár i Rússlandi og var
góðkunningi Lenins, gaf á mánu-
daginn safni i Leningrad milljón
dollara málverk eftir Goya.
-s
■f
•s
■u
I
•fr
■»
*
*
•B
*
MUNIÐ
VÍSIR VÍSAR
ÁVIÐSKIPTIN
VISIR
Hammer 74 ára að aldri afhenti
málverkið um leið og hann opnaði
sýningu á einka málverkasafni
sinu, sem sýnt verður næstu daga
i Leningrad.
Hammer fór til Rússlands 1921
sem ungur læknir og starfaði þar,
þegar taugaveikisfarsótt brauzt
út, en hann ávann sér vinsemd
Lenins fyrir aðstoð sina þá.
Um tima hafði hann umboð 37
ameriskra fyrirtækja i Rússlandi,
og var fyrsti útlendingurinn sem
fékk námavinnslu- og verzlunar-
samninga við Ráðstjórnarrikin.
Um þessar mundir vinnur hann
að samningum við Sovétrikin um
150 milljón dbllara árleg við-
skipti, þar sem hann hyggst selja
Rússum fosfór-gerviáburð, en fá i
staðinn ammonium og fleira.
Nordkap fannst í nótt
Tveimur mönnum komið um borð til kokksins.
— Vœntanlegir til lands um hódegið.
Togbáturinn Nordkap frá
Esbjerg, fannstí nótt um 11
sjómílur út af Jótlandi, eft-
ir aö hans hafði verið leitað
síðan á mánudagskvöld.
„Stardust" — annar
vélbátur frá Esbjerg fann
Nordkap i nótt og tókst að
koma tveim mönnum um
borð, til kokksins, Jörgen
Christiansens. — Voru
bátarnir væntanlegir til
Esbjergs upp úr hádeginu í
dag.
Jörgen Christiansen rauk upp
frá félögum sinum i Aberdeen i
Skotlandi á mánudagskvöld, og
sagðist vera farinn heim. Hann
hélt beinustu leið um borð i bát-
inn, leysti festar og lagði af stað
út úr höfninni, en áður en hann
komst út á opið haf, rakst hann á
bryggju og skip i höfninni.
Skipstjórinn á Nordkap hóf
eftirför i öðrum vélbát, en þeim
tókst ekki að sigla Nordkap uppi,
og hvarf hún þeim.
Á þriðjudag heyrðu menn loks
til Jörgens i talstöðinni og töldu
sig geta miðað bátinn út, en þyrl-
ur fundu hann þó ekki. — Slæmt
veður hefur siðan hamlað leit úr
lofti, og voru menn farnir að ótt-
ast um afdrif hans, þvi að leiði
hefur verið slæmt á N-Atlanzhafi
þessa dagana.
Liklegt þykir, að kokkurinn,
sem af aðstandendum er sagður
hafa langað lengi til þess að verða
skipstjóri, hafi viljað sýna, að
hann gæti siglt skipi yfir úthafið.
— Hann „féll” á augnvottorðinu,
þegar hann fyrir nokkrum árum
ætlaði að verða sér úti um stýri-
mannsmenntun. Sjón hans stóðst
ekki þær kröfur, sem gerðar eru
til yfirmanna skipa.
Fyrsti vetrarsnjórinn í Noregi
Við höfum sloppið tiltölulega vel I umferðinni i fyrstu snjókomu vetrarins miðað við Norðmenn. öku-
menn i Kongsberg létu sér koma mjög á óvart, þegar hann för að snjóa á sunnudaginn, en fljótlega
myndaðist hálka á veginum, og lentu þá margir út af. Þessi mynd er tekin i Kongsberg-héraöinu, þar
sem margir sátu fastir á sunnudag.