Vísir - 26.10.1972, Síða 6

Vísir - 26.10.1972, Síða 6
6 Visir Fimmtudagur 26. október 1972. vísm Útgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Bif-gir Pétursson ./ Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611 Afgreiðsla: Hverfisgötu 32. Simi 86611 Ritstjórn: Siðumúla 14. Simi 86611 (7 linur) Askriftargjald kr. 225 á mánuði innanlands i lausasölu kr. 15.00 eintakiö. Blaðaprent hf. Bretar i vanda Bretar eru skæðir samningamenn. Utanrikis- þjónusta þeirra hefur langa reynslu af málaþrasi. Þetta fáum við nú að reyna i landhelgismálinu. Þeir gera sem minnstar tilslakanir og gæta þess um leið að vekja athygli á, að það séu þeir, sem séu reiðu- búnir til frekari viðræðna. Með þessu reyna þeir að forðast útspil, um leið og þeir slá ryki i augu manna heima fyrir og erlendis. Mesta vandamál Breta er, að þegar skuli hafa- samizt i deilu íslendinga og Belga. Ekki hefur heyrzt annað en bæði Belgar og íslendingar séu ánægðir með þann samning. Belgisk stjórnvöld hafa meira að segja lýst þvi yfir, að samkomulagið sé i samræmi við það skilyrði Efnahagsbandalags Evrópu fyrir gildistöku viðskiptasamningsins við Island að „fullnægjandi” lausn fáist á landhelgis- deilunni. Framhjá þessari staðreynd komast Bret- ar ekki, hversu skæðir sem þeir eru i samningum. Það er skynsamlegt af islenzkum stjórnvöldum að svara Bretum i sömu mynt og leika biðleiki eins og þeir. Ástæðulaust er að gefa þeim minnsta grun um, að við séum að linast i landhelgismálinu. Við stöndum i taugastriði, þar sem sá tapar, er fyrr guggnar á spennunni. Við höldum áfram tilraunum okkar til að hreinsa landhelgina. Það gerum við sem fyrr með þvi að stugga við brezkum togurum, gera þeim veiðarnar erfiðar og klippa stöku sinnum togvira þeirra. Nú fer vetur i garð og við það versnar aðstaða brezku togaranna til mikilla muna. Þeir þurfa að leita vars og hafnar i vondum veðrum og eiga þá á hættu að verða kyrrsettir. Sem betur fer er taugaveiklun að aukast i liði Breta. Afgreiðslubannið, sem brezku verkalýðs- félögin settu á flutninga til íslands og frá, var sann- kallaður bjarnargreiði. Það veldur okkur tiltölulega litlum vandræðum, en kemur sér illa fyrir marga brezka framleiðendur. Jafnframt veikir afgreiðslu- bannið þann áróður, sem Bretar hafa haldið úti málstað sinum til stuðnings. Brezk bíöð hafa bent á, hve óheppilegt afgreiðslubanhið sé. Svo virðist einnig sem brezk stjórnvöld séu komin á fremsta hlunn með að senda herskip inn i land- helgi íslands brezkum togurum til verndar. Það gerðu þau i siðasta þorskastriði og með hörmuleg- um árangri. Brezkum stjórnvöldum tókst þá ekki að draga hulu yfir nýlendusjónarmið sin i landhelgis- deilunni. Herskipaverndin sá fyrir þvi. Svo kann að fara, að Bretar geri sömu mistök nú. Það mundi styrkja málstað Islendinga, bæði á alþjóðlegum vettvangi og heima fyrir i Bretlandi. Rikisstjórnin hefur nú tilkynnt brezku rikisstjórn- inni, að af íslands hálfu sé ekki talinn grundvöllur til frekari viðræðna, nema jafnhliða svæðum og veiðitimabilum sé einnig rætt um fjölda, stærð og gerð brezkra skipa á Islandsmiðum. Þessi tilkynning felur i sér nokkra tilslökun, þ.e.a.s. að bent er á fordæmi samkomulagsins við Belga. Bretar eiga nú um tvo kosti að velja. Annars vegar geta þeir náð samkomulagi á belgiska grund- vellinum. Hins vegar geta þeir reynt að kreista út betri samning fyrir sig, en það mun aðeins leiða til þess, að þorskastriðið harðni. Slikt væri þeim áróðurslega mjög i óhag. Og um leið harðnar af- staða íslendinga i samningaviðræðunum. HVER TEKUR VIÐ AF MAO? ) Vangaveltur fjölmiðla \ um arftaka Maos hafa ( skipað mikið rúm i / dagblöðum eftir fund ) Cou En-Lais, forsætis- \ ráðherra með 22 banda- ( riskum ritstjórum á / dögunum. ) Þær hugleiðingar hafa ( komið þeim, sem vel I þekkja til mála i Kina, rnokkuð spánskt fyrir Ísjónir. ( Ritstjórarnir 22 sögðu, /að Chou hefði talað mjög Jopinskátt um það, hverjir væru hugsan- legir eftirmenn Maos, en seinna hefur komið á daginn, að ummæli hans ( hafa verið túlkuð á ( margvislega vegu. ) — Flestir diplómatar i Peking Cliou En-Lai telja sennilegast að eftir daga Maos og Chou En-Lais verði valdaspilin stokkuð upp og skipt i fleiri en einn stað, vegna þess að báöir mennirnir gegni slikum eindæma stöðum, að óhugsandi sé að nokkur einn maður geti annað þvi eftir þeirra dag. Eins og reyndar þó einn rit- stjórinn vék að og hafði eftir Chou: ,,í svona stóru landi..með öll þau vandamál, sem við stöndum frammi fyrir...hvernig á einn maður að sjá fram úr þvi? A hinn bóginn sögðu aðrir tveir ritstjórar eftir áheyrnarfundinn meö Chou, að nafn hugmynda- fræðings flokksins, Yao Wen llllllllllll Umsjón: Guðmundur Pétursson Yao Wen-Yuan Yuans hefði verið eins og „ljósviti” i samræðunum — sifellt skotið upp. En i Peking þykir mönnum það litlar fréttir. Eins og einn Vesturlandafulltrúi i Peking sagði: ,,Ég get vel imyndað mér að Chou forsætisráðherra hafi nefnt Yao, þegar hann var spurður um yngri mennina i flokksforystunni. Astæðan er sjálfsagtsú, að Yao er eini maðurinn i flokksforystunni, sem kallazt getur ungur. En það þarf ekki að tákna, að hann sé neitt sérstakl. áhrifamikill eða hafi eitthvað meira tilkall til krúnunnar.” Yao er á fertugsaldri, en ekki er vitað nákvæmlega, hve gamall hann er. Um þessar mundir gegnir hann starfi aðalritstjóra flokksmálgagnsins „Dagblað fólksins.” Hann hefur átt sæti i mið- stjórninni siðan 1969, en af þeim 21 sem þá sátu þar, hafa nú margir horfið af sjónarsviðinu. Aðrir meðlimir með- stjórnarinnar, sem sýnast standa fullt eins mikið i sviðsljósinu, eru: Mao sjálfur. Chou, sem verið hefur i fararbroddi siðan Lin Piao féll frá. Yeh Chien-Ying. Aðstoðarforsætisráðherra. Li Hsien-Nien. Eiginkona Maos, Chiang Ching og Chang Chun- Chiao frá hinum volduga flokksarmi i Shanghai. Frú Chiang Ching og „liðs- foringjar hennar tveir” frá Shanghai — Chang og Yao — voru þau þrjú, sem næst stóðu menningarbyltingunni. Það var reyndar hún, sem flutti þau þrjú i fremstu raðir. Og eftir þvi sem lengra liður frá menningarbyltingunni, dofna áhrif þeirra — að mati manna i Peking. Og einkum og sér i lagi hefur vingjarnlegri afstaða Kina til erlendra rikja upp á siðkastið, dregið úr áhrifum þessarar þrenningar, svo að menn eru æ meir að komast á þá skoðun, að Yao nái ekki toppnum i þessari atrennu. Kínverjar rétta Bretum höndina Allra leiöir lágu til Rómar, en liggja nú orðið til Peking — að minnsta kosti hvað viðkemur liclztu stjórnmálamönnum Norður- og Vestur-álfu. Sir Alec Douglas-Home, utan- rikisráðherra Bretlands, leggur af stað um næstu helgi i fimm daga ferð til Peking til fundar við ráðamenn i Kina. Sir Alec verður þá æðsti embættismaður brezkra stjórn- valda, sem hefur heimsótt Kina, siðan kommúnistar tóku þar völd 1949. Reyndar verður hann æðsti fulltrúi Bretlands sem nokkurn tima hefur stigið þar fæti á land. Verkefni hans i Peking verða að binda endi á væringjar og diplómatiska árekstra landanna beggja siðustu 150 árin, og leggja grundvöll fyrir vinsam- legri sambúð rikjanna. Mögu- leikarnir á þvi að þetta heppnist eru góðir. Eins og einn frammámanna Kina orðaði það: „Ég gleðst yfir þvi, að Bretland er ekki lengur heimsvaldasinnað. Þjóðir okkar geta nú tekið upp eðlileg samskipti eins og tveir aðilar sem standa jafnfætis.” En það liggja reyndar önnur sjónarmið á bak við vilja Peking- stjórnarinnar til þess að bæta sambúðina við Stóra Bretland. Kina gefur þróuninni i Evrópu góðan gaum, og kinversku leið- togarnir eru sannfærðir um, að Bretland muni gegna þýðingar- miklu hlutverki i Efnahags- bandalagi framtiðarinnar. Og þar að auki hefur forsætisráðherra ihaldsstjórnarinnar, Edward Heath, haldið kuldalegri stefnu i garð Ráðstjórnarrikjanna. Kin- versk yfirvöld og málgögn hafa margsinnis hrósað ákvörðun Breta i fyrra, um að visa úr landi lOOsovézkum diplómötum, vegna gruns um njósnir. Heath hefur einnig átt frumkvæðið að tillögum um að sendinefndum rikjanna tveggja verði breytt i sendiráð. Og samfara þvi hefur Bretland rofið stjórnmálasambandið við Taiwan. — Allt saman eykur þetta veg Breta i augum Kin- verja. Kinverjar hafa margsinnis sýnt áhuga á þvi að kynnast starfsemi Efnahagsbandalagsins. Munu opinberar viðræður Cou En-Lais forsætisráðherra og Chi Pen-Fei utanrikisráðherra við sir Alec að miklu leyti snúast um það. Orð leikur á þvi, að Mao muni jafnvel veita ráðherranum viðtöku til merkis um, að Kina liti ekki leng- ur á Bretland sem heimsvalda- sinna. Bretarnir kváðu vera sér- lega fiknir i að slikur fundur eigi sér stað. einkum eftir að Maurice Schumann. utanrikisráðherra Frakklands, náði fundi Maos i heimsókn sinni til Peking i sum- ar. Franska sendinefndin kom á menningarsamskiptum landanna i milli, i heimsókn sinni i sumar, en sir Alec mun þó ekki hafa i hyggju að undirrita neina samninga meðan á dvöl hans stendur. 1 fyrstu atrennu mun hann einungis ræða möguleikana á auknum samskiptum landanna. En eitt málefni munu Kin- verjarnir áreiðanlega taka á dag- skrá og það er brezka nýlendan Hong-Kong. An efa munu þó Bretar sniðganga allar umræður um þessa mikilvægu hafnarborg i Austur-Asiu. Sir Alec Douglas-Home

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.