Vísir - 04.11.1972, Side 3

Vísir - 04.11.1972, Side 3
Visir. Laugardagur 4. nóvember 1972 3 „Hausaveiðarareglur við ráðningarnar" Nú hefur verið ákveðið að stofna Félag lausráðinna rikis- starfsmanna, en stofnandi félagsinserSiguröur Jónasson.Til- gangur félagsins er að efla sam- stöðu þeirra starfsmanna rikisins, sem ekki njóta fyllstu réttinda i samræmi við lög um rikisstarfsmenn. Að sögn Sigurðar munu lausamenn rikisins vera á 2 þúsund. Við svonefna fastráðningu hefur rikisvaldið farið að ráðum já-manna sinna að hverju sinni, að sögn Sigurðar ,,og notað að- ferðir innansveitarmanna á Borneo, þ.e. bent á mikilvægi hvers einstaklings eftir flokks- legum þörfum, nánar tiltekið hausaveiðarareglunni”. Rikisvaldið hefur gengið lengra og lengra inn á þá braut að laus- ráða starfsmenn til ýmissa starfa, að sögn Sigurðar. Þeir hafi þurft að gegna öllum skyldum en réttindi þeirra hafi verið fótum troðin, þannig að samlikingar er aðeins að finna hjá vanþróuðu þjóðum Hvetur Sigurður alla lausráðna rikis- starfsmenn að ganga i félagið. —ÞM Verður gerð kvikmynd um fótboltaprestinn? Fólk frá irska sjónvarpinu var hér eigi alls fyrir löngu. Mun það hafa komið að máli við fótbolta- prestinn svonefnda, Róbert Jack, og lýst áhuga sinum á að gera kvikmynd um ævi hans. Málið er enn á umræðustigi og óákveðið hvort af þessu verður. Þar ræður meðal annars að irska sjónvarpið mun ekki hafa mikla peninga til umráða, enda efnahagsástand slæmt á irlandi. Þrátt fyrir peningaskort lögðu Irarnir þó upp i reisu hingað norður i haf, til að gera kvikmynd um landhelgismálið. Þetta fólk, og írar almennt, mun mjög ein- dregið á bandi tslendinga i land- helgismálinu. Er gott til þess að vita að við.eigum bandamenn svo skammt undan ströndum Eng- lands. Ef til vill sézt til irsks sjón- varps á Englandi og þannig komist upplýsingar hagstæðar okkur inn á brezk heimili. —LÓ BYRJAÐIR Á r NYJUM í gærmorgun hófust framkvæmdir við nýja miðbæinn i Kópavogi. Þá var byrjað að grafa fyrir húsum þeim sem eiga að risa i fyrsta áfanga. Svæði það sem fyrsti áfanginn á að risa á, er á svæðinu frá Vallar- tröð að austan og frá Alfhólsvegi að norðan. Fyrirtæki þau sem fengið hafa þennan fyrsta hluta framkvæmd- anna eru,,Miðbæjarframkvæmdir s.k., en innan þess fyrirtækis eru fjórir smærri aðilar. Þetta MIÐBÆ fyrirtæki fékk austurhlutann, og með vesturhlutann eru Trésmiðja Hákonar og Kristjáns, og Magnús Baldvinsson, múrarameistari. Einnig hefjast bráðlega fram- kvæmdir við 2. hluta miðbæjarins nýja. Búið er að úthluta einum hluta framkvæmdanna við seinni áfangann, Þær framkvæmdir verða við Digranesveg, á svo- kölluðu vestursvæði. Það er Byggingafélagið Bær sem fékk úthlutað þeim framkvæmdum. Það sem á að risa núna i fyrsta áfanga, eru tæplega 300 ibúðir, 2.000 fermetra verzlunarsvæði og 200yfirbyggð bilastæði. Áætlað er að þessum framkvæmdum verði að fullu lokið eftir þrjú ár. —ÞM ,,Varð allt i einu miðdepill i feiknarlegum deilum” — Dave Duford og kona hans i Reykjavik. „Bretar reka ekki úr landi hljómlistarmenn" — „eins og reynt er að gera við mig," segir Dave Duford „Mér og konunni minni var alls staðar tekið opnum örmum, þegar við komum til islands. Ég vissi ekki um nein vandamál, fyrr en allt i einu, að ég er miðdepill- inn i feiknarlegum deilum milli félags hljómlistarmanna, eða öllu heldur formanns þess, og Rifsberja”. Þetta segir Dave Duford, brezki trommuleikarinn umdeildi. ,,Ef þúsund brezkir hljómlistarmenn kæmu til, Isíands þá gæti Sverrir Garðar- sson rifizt með rétti, en árásir hans á mig eru eins og ég væri að baka honum persónulegt tjón. Kannski vill hann, að Rifsberja bjóði honum starf trommu- leikarans. Ég hef reynt að standa utan við deilurnar”. Dave neitar þeirri fullyrðingu Sverris Garðarssonar, formanns félagsins, að Bretar mundu ekki taka sérlega velámóti islenzkum trommuleikara, og nefnir Dave fjöldan allan af erlendum hljóm- listarmönnum, sem spila i Bret- landi: Focus frá Hollandi, hljómsveitir frá Jamaika og Afriku, svo sem Osibisa, Ginger Johnsons African Drummers, Bukutu , Ominah Brothers, og einstaklinga eins og Glen Fortin- berri og Perry Sinclave og Glen Campbell. Bretar taki útlendum hljómlistarmönnum kannski ekki opnum örmum, segir hann, en þeir reki þá ekki úr landi eins og formaður félagsins hér sé að reyna að gera við sig. —HH ffllUWU 14. skók Olympíumótsins -og styzta skók mótsins Fyrri skák þáttarins í dag er frá 14. umferð Olympiuskák- mótsins, cn þá stóð keppni Sovétmanna og Ungverja um 1. sætið hvað hæst. Sovézka sveitin hafði loks náð forystu og tefldi við Argentinu. Þar varð jafn- tefli á öllum borðum og Ung- verjar lögðu allt kapp á að vinna andstæðinga sina, Hollendinga, með hvað mestum mun. A 1. borði gaf Portisch löndum sin- um tóninn og vann Donner með svörtu. Hann beitti sömu upp- byggingu i Nimzoindverskri vörn og Fischer gegn Spassky i 5. einvigisskákinni. Líkt og Fischer, náði Protisch snarlega undirtökunum og þó Donner gjörþekki þetta afbrigði, hlaut hann slæma útreið. Þetta varð skákin sem gaf Ungverjum vinningin gegn Hollendingum, 2 1/2 : 1 1/2. Hvitt : Donner Svart : Portisch 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3 c5 5. Bd3 Rc6 6. Rf3 Bxc3 + 7. bxc3 d6 8. e4 e5 9. d5 Re7 10. Rh4 h6 11. f3 (Spassky lék 11. f4! og tapaði eftir 27 leiki. Donner hefur teflt þetta afbrigði áður og náði betri stööu eftir 11. .. g5 12. Rf5 Bxf5 13. esf5 Da5 14. Dc2 0-0-0 15. h4 e4 16. Bxe4 Rxe4 17. fxe4 Hd-e8 18. Kf2 f6 19. Be3 Kb8 20. e5! Donner: Djamanovic 1972.) 11. Da5 12. Dc2 g5 13. Rf5 Rxf5 14. exf5 Bd7 (Liktoghjá Spassky: Fischer er svarta staðan mun betri. Biskupar hvits eru lokaðir af með eigin peðum og verksvið- þeirra þvi heldur litið.) 15. h4 g4 16. fxg4 Rxg4 17. Be2 Hg8 18. Bxg4? (Hvitur stenzt ekki þá freistingu að næla sér i eitt peð. Reynandi var að leika 18. Hh3, þó svartur hafi vissulega yfirburða tafl.) 18. Hxg4 19. Bxh6? Bxf5! B ii 1 i A # tttA' & Hi i i # i lS @ a. B C O E F G H (örlög Donners minna um margt á örlög Spasskys. Hin vandræðalega staða hvitu mannanna gefursvörtum þunga pressu og hvita staðan gefur hreinlega eftir.) 20. Dxf5 . Dxc3+ 21. Kf2 Db2+! 22. Ke3 Hgxg2 Gefið Hvitum eru allar bjargir bannaðar. T.d. 23. Dd3 Df2+ 24. Ke4 f5 mát. Eða 23. Ha-el Dd4 + 24. Kf3 Hf2+. Þá skulum við lita á styztu skák Olympiumótsins, en hún sýnir að ekki eru það allt ofurmenni sem þar tefla. Hvitt : Levy, Skotlandi Svart : Martines, Boliviu. 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. d4 (Levy er þjóðerni sinu trúr og teflir skozka bragðið.) 3. exd4 4. c3 d5 5. exd5 Dxd5 6. cxd4 Bb4 + 7. Rc3 Bg4 8. Be2 Bxf3 9. Bxf3 (Allt er þetta vel þekkt og talið bezta framhald svarts. 1 skák Marshalls: Capablanca frá 1924 var leikið 9. .. Dc4 10. Be3 Bxc3+ ll.bxc3 Dxc3+ 12. Kfl Dc4+ 13. Kgl Re7 14. Hcl Dxa2 15. Hal Dc4 jafntefli. En nú kemur Martines með einn leik frá eigin brjósti. ) 9. .. Dxd4?? Lengri varð skákin ekki þvi svartur sá um ieið og hann tók peðið,að eftir 10. Bxc6+, fellur drottningin. Jóhann örn Sigurjónsson

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.