Vísir - 20.11.1972, Side 5
Visir. Mánudagur 20. nóvember 1972
AP/IMTB í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTL
Umsjon
Guðmundur Pétursson
Stjórnarflokkarnir 272 þingsœti, en andstaðan 224
„VEITIÐ MÉR TRAUST
YKKAR, SVO AÐ HEIM-
URINN HALDI ÁFRAM
AÐ TREYSTA OKKUR"
— sagði Willy Brandt við kjósendur sína og varð að ósk sinni
Willy Brandt vann
einn sinn glæsilegasta
stjórnmálasigur með
þvi að sigra i kosningun-
um í Þýzkalandi i gær.
Aðeins tveim timum
eftir að kjörstöðum var
lokað og fyrstu tölur
höfðu birzt, lá ljóst fyrir,
að Rainer Barzel, leið-
toga kristilegra demó-
krata, mundi ekki takast
að þoka Brandt úr
kanslarastólnum.
Barzel sendi þá þegar
Willy Brandt skeyti:
,,Þú hefur sigrað.”
Og nokkru seinna viðurkenndi
hann ósigur sinn i sjónvarpi, áður
en talningu var að fullu lokið, en
þá var fyrirsjáanlegt, að kristi-
legir demókratar höfðu tapað 18
þingsætum.
Socialdemókratar Brandts
höfðu hlotið 231 þingsæti, og hinn
stjórnarflokkurinn, frjálsir
demókratar, höfðu hlotið 41 þing-
sæti — og stjórnin þannig endur-
heimt þann meirihluta, sem hún
áður hafði á þingi og meira til.
Alls 27 þingmanna meirihluta.
1 hriðarmuggu og slyddu óðu
vestur-þýzkir kjósendur snjóinn
til þess að komast á kjörstaðina,
en þessi skilyrði dugðu ekki til
þess að draga úr kjörsókninni.
Kosningaþátttakan hefur aldrei
verið jafnmikil i vestur-þýzkum
kosningum áður, og alls neyttu
91% kjósenda atkævðisréttar
sins.
Allt hafði bent til þess, að
kosningarnar yrðu tvisýnar, og i
skoðanakönnunum kom i ljós, að
fjöldi kjósenda var ekki búinn að
gera upp hug sinn um, hverjum
þeir mundu greiða atkvæði sitt
— ekki fyrr en einum eða tveim
dögum fyrir kjördag. Og það var
ekki fyrr en á laugardag, að skoð-
anakannanir gátu gefið nokkra
visbendingu um, hvor mundi bera
sigur af hólmi. Virtist útkoma
þeirra vera Brandt aðeins i vil, en
niðurstaða siðustu skoðanakönn-
unarinnar, sem ekki var birt fyrr
en kjörstöðum hafði verið lokað i
gær, var mjög nærri þvi, sem úr-
slitin urðu, en þar var social-
demókrötum Brandts og frjálsum
demókrötum spáð 52,9% at-
kvæða.
Brandt flutti siðustu kosninga-
ræðu sina á fundi socialdemó-
„Þú hefur sigrað”, sagði Rainer Barzel i skeyti til Brandts, aðeins 2
timum eftir að kjörstöðum var lokað, en þessi mynd var tekin af þeim
keppinautum i þinginu i aprfl, eftir að feild hafði verið vantrauststillaga
Barzel, sem óskaði Brandt til hamingju með málalokin.
..Veitið mér traust ykkar, svo að...” sagði Willy Brandt i lokaávarpi
sinu til vestur-þýzkra kjósenda.
krata i Vestur-Berlin og komst þá
svo að orði:
„Við höfum nú mikla mögu-
leika á að útiloka loks strið i
Evrópu og tryggja frið um
margra kynslóða bil.”
En Brandt lagði mikla áherzlu
á árangur „austurstefnu” sinnar
i kosningabaráttunni, meðan
andstæðingar hans gagnrýndu
hann hart fyrir linlega efnahags-
stefnu og misheppnaðar tilraunir
til að stöðva verðbólguna.
„Sem maður getur ekki séð á
öllum fjáraustri þeirra i kosn-
ingabaráttuna,” svaraði Brandt.
t niðurlagsorðum sinum sagði
Brandt:
„Ég höfða til sjálfstrausts
vestur-þýzku þjóðarinnar. —
Veitið mér traust ykkar, svo að
heimurinn geti haldið áfram að
treysta okkur.”
Menn hafa ekki á reiðum hönd-
um skýringar á þessum yfir-
burðasigri stjórnarflokkanna,
sem i kosningunum 1969 hlutu 254
þingsætiá móti þeim 272 þingsæt-
um, sem þeir hlutu nú.
I sjónvarpsviðtali i gærkvöldi
treysti Rainer Barzel sér ekki til
að skýra ósigur flokks sins.
En fyrst og fremst lita menn á
úrslit kosninganna sem persónu-
legan sigur fyrir Brandt og fram-
lag hans i þágu friðar i Evrópu.
Peron fús til samkomulags
við herforingjaráðið
fjöldans. Peron birtist með base-
ball-húfuna sina frægu, sem hann
jafnan bar á mótorhjólaferðum
sinum i valdatið sinni.
Átti viðrœður í gœr
við formann
nœststœrsta
stjórnmálaflokksins
Iiinn 77 ára gamii Peron og kona hans Isabel (44 ára) veifa til
Peronista.
Peron átti i gær viðræður við
Kicardo Balbin, formann næst-
stærsta stjórnmálaflokks Argen-
tinu, og sagði eftir viðræðurnar,
,,að þær hefðu veriö árangursrik-
ar.”
Herforingjaráðiö i Argentinu,
þar sem herinn hefur öll vöid,
veitti á laugardag Peron leyfi til
þess aö ávarpa fund Peronista,
sem er stærsti stjórnmálaflokkur
landsins.
Höfðu Peronistar sakað her-
foringjaráðið um að hefta ferðir
Perons og halda honum föngnum.
Fúllyrtu þeir, að 30.000 öryggis-
varðarlið, sem umkringdi flug-
völlinn við komu Perons til
Buenos Aires og vörðurinn um-
hverfis hótel hans — væru fanga-
verðir Perons.
Stöðugur straumur fólks hafði
legið að flugvallarhótelinu, þar
sem Peron dvaldist fyrstu
klukkustundirnar eftir komuna til
Buenos Aires, þar til honum var
leyft að flytjast i 96.000 dollara
lúxusvillu, sem Peronistar höfðu
keypt handa þeim hjónum.
Eftir ásakanir Peronista voru
hermennirnir fjarlægðir frá húsi
Perons og gefin út yfirlýsing um,
að hann fengi leyfi til að ávarpa
fund Peronista i einni af hinum
stóru iþróttahöllum höfuðborgar-
innar, þar sem komast fyrir
100.000 áheyrendur.
Lorenzo Miguel, formaður
járniðnáðarmannasambands
Peronista, tiikynnti, að enginn
funduryrði haldinn: „Peron furð-
ar sig á þvi, að þeir skuli ákveða
stað og stund fyrir fundi hans.
Það mun hann ákveða sjálfur,
þegar honum þykir sjálfum
henta.”
Eftir að verðir höfðu verið f jar-
lægðir frá húsi Perons og aðeins
50 lögreglumenn skildir eftir, sem
gerðu enga tilraun til þess að
halda fólki f jarri, söfnuðust strax
um 300 manns i garðinum og á
gangstéttinni fyrir.framan á
laugardagskvöld.
Peron birtist i glugga og veifaði
og móttók hrifningarhróp fjöld-
ans með breiðu brosi, en afsakaði
sig með þvi, að hann væri orðinn
þreyttur eftir ferðalagið, „enda
ekki farið úr skónum i þrjá
daga.”
En hrópunum og köllunum
linnti ekki og klukkustundu siðar
urðu Peron og kona hans enn að
koma fram á svalirnar, i þetta
sinn á náttfötunum, og veifa til
Meðan Peron hefur dvalizt i út-
legð, hefur herinn, sem á sinum
tima hrakti Peron frá völdum,
rikt i Argentinu og hindrað
Peronista að taka þátt i forseta-
kosningum landsins. Lanusse
hershöfðingi tók þó upp breytta
stefnu i þessu tilliti, þegar hann
varð forseti i fyrra og nam úr
gildi þau lög, sem héldu Peron i
útlegð.
Heimkoma Perons varð fljót-
lega eitt aðalágreiningsatriðið i
þeirri togstreitu, sem er á milli
hersins og b.orgaraflokkanna.
Herinn leitar nú fyrir sér eftir
liklegu forsetaefni úr röðum
óbreyttra borgara fyrir forseta-
skiptin i marz næstkomandi —
einhverjum þeim, sem herfor-
ingjaráðið getur fellt sig við. En
Peron hefur lýst sig fúsan til sam-
komulags við Lanusse hershöfð-
ingja.
Fylgismenn Perons marséra frá flugvellinum til Buenos Aires, eftir að
þeir höfðu tekið á móti átrúnaðargoði sinu, sem loks er komið heim
eftir 17 ára útlegð.