Vísir - 20.11.1972, Side 6

Vísir - 20.11.1972, Side 6
6 Visir. Mánudagur 20. nóvember 1972 vísm Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjóri Fréttastjóri Ritstjórnarfulltrúi Auglýsinga^tjóri Auglýsingar Afgreiösla Ritstjórn Reykjaprent hf. Sveinn R. Eyjólfsson Jónas Kristjánsson Jón Birgir Pétursson Valdimar H. Jóhannesson Skúli G. Jóhannesson Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611 Hverfisgötu 32. Simi 86611 Siöumúla 14. Simi 86611 (5 linur) Askriftargjald kr. 225 á mánuöi innanlands i lausasölu kr. 15.00 eintakiö. Blaöaprent hf. Friðarsigur Kosningaúrslitin i Vestur-Þýzkalandi voru fyrst og fremst persónulegur sigur Willy Brandts. Kosningarnar voru taldar hinar tvisýnustu, og þær voru taldar einhverjar mikilvægustu þing- kosningar i Evrópu eftir strið. Engir spáðu Brandt jafnglæsilegum sigri og raun varð á. Menn voru yfirleitt sammála um, að hann hefði yfirgnæfandi stuðning annarra þjóða manna i utanrikisstefnu sinni, en mikill vafi var um af- stöðu hans eigin þjóðar. Vestur-Þjóðverjar tóku af skarið. Greinilega hlaut dómsdagsáróður stjórnarandstæðinga ekki hljómgrunn. Sú þjóð, sem hafði allt frá striðslok- um veitt kristilegum demókrötum brautargengi, gert þá meirihlutaflokk i landinu,stærsta flokkinn allt til þessara kosninga, svipti þá þvi sæti. Kjós- endur úrskurðuðu nú, að þeir væru orðnir á eftir timanum. Kjósendur lýstu eindregnum stuðningi við raunsæisstefnu Willy Brandts. Þótt mörgum væri það vafalaust sárt, viðurkenndu kjósendur, að horfa bæri raunsæjum augum á völd kommún- ista i Austur-Þýzkalandi og yfirráð Pólverja yfir löndum, sem verið höfðu þýzk til striðsloka. Valdsmenn kommúnista eru þvi miður ekki á för- um frá Austur-Þýzkalandi. Hatrömm andstaða vestur-þýzku stjórnarinnar hafði áður engu þok- að. Þvert á móti hafði hún gert illt verra. Með „þiðunni” gagnvart kommúnistarikjunum hefur Willy Brandt tekizt að bæta raunverulega hag fólks i Austur-Þýzkalandi og Berlin. Með samningum hafa samskipti batnað og ,,skarð verið rofið i múrinn”. Hagurinn er fyrst og fremst almennings beggja vegna landamæranna, én einkum fólksins austan megin. Kjósendur veittu Willy Brandt umboð til að halda þessari stefnu áfram og leiða samningana til lykta. Fyrir kosningarnar hafði meirihluti stjórnar- flokkanna horfið vegna úrsagnar þingmanna, sem sumir hverjir voru með þvi að mótmæla utanrikisstefnu stjórnarinnar. Margt gekk Brandt á móti. I innanrikismálum tókst stjórn- inni illa að koma fram stefnumálum vegna inn- byrðis sundrungar. Karl Schiller, einn aðalbógur rikisstjórnarinnar, sagði af sér og hóf samvinnu við stjórnarandstöðuna. Kristilegir demókratar undir forystu Rainer Barzels og Franz Josef Strauss börðust af meiri hörku i kosningabaráttunni en dæmi eru um áður i Vestur-Þýzkalandi. Þeir mátu stöðuna svo, að nægilega margir kjósendur skelfdust samning- ana við kommúnistarikin og óttuðust hugmyndir sumra stjórnarsinna um „sósialisma”, til þess að þeir létu stjórnarandstæðinga fá atkvæði sin. Þessir útreikningar reyndust alrangir. Brandt vann sigur sinn ekki i skjóli litillar kjörsóknar, eins og sumir töldu hans beztu von fyrir kosning- arnar. Kjörsókn varð þvert á móti með eindæm- um góð. Kjósendur i Vestur-Þýzkalandi hafa lagt bless- un sina á raunsæisstefnu i utanrikismálum. Þeir treysta þvi, að Willy Brandt og stuðningsflokkar hans, jafnaðarmenn og frjálsir demókratar, muni ekki rasa um ráð fram. Þeir hafa lagt sitt að mörkum til friðarstarfs. i Menntamanna- nnninm mciimumunna m mm flóttinn úr þróunarlðndum Umsjón Guðmundur Pétursson í skýrslu frá Samein- uðu þjóðunum eru þró- unarlöndin hvött til þess að skapa yngri kynslóðum sinum betri skilyrði til þess að ganga menntaveginn heima fyrir og starfa þar að námi loknu - ef þessi lönd ætla sér að stemma stigu við flótta mennta- manna sinna til Bandarikjanna og Kvrópu. „Höft á ferðir námsmanna erlendis eru óráðleg, en á hinn bóginn ætti að stuðla á jákvæðan hátt að þvi, að sem flestir náms- menn rækji sitt nám i heimalandi sinu”, segir í skýrslu i Rannsóknarstofnun Sameinuðu þjóðanna um menntunar-lekann” frá sex þróunarlöndum, Cameroon, Colombiu, Libanon, Filippseyjum, Trinitad og Tobago. Litið er á þessi fimm riki, sem dæmigerð fyrir þau lönd, er eiga þúsundir námsmanna i skólum i Evrópu og Norður-Ameriku. Og flestir þessara námsmanna verða um kyrrt erlendis, en það leiðir til efnahagslegs tjóns fyrir heima- lönd þeirra, og dregur úr þróun þeirra. ,,Ef þeir stunduðu nám sitt heima”, segir áfram i skýrslunni, „minnka likurnar á þvi, að þeir flytjist út og setjist að erlendis. Þvi að i skólum heimavið læra þeir bezt að skilja land sitt og þjóð, bindast vináttusamböndum og gerast virkir aðilar i menning- ar-, félags- og stundum stjórn- málalifi sins lands”. Upplýsingar, sem lagðar eru til grundvallar skýrsiunni, hafa meðal annars að geyma: I. Filippseyjar. — Eftir breytingar á innflytjendalögum Bandarikjanna, varð gifurleg aukning á fólksflutningum frá Filippseyjum til USA. Um leið átti sér stað fækkun á iðn-, tækni- og háskólamenntuðum mönnum i Filippseyjum. Arlegur fjöldi menntamanna,- sem flutti frá Filippseyjum til Bandarikjanna jókst úr 382 upp i 3350 árið 1967, þar á meðal er stór hópur hjúkrunarkvenna, hjúkrunar- 1 Colombiu er mikil þörf tæknimenntaðra manna, eins og i öðrum þróunarrikjum, en þeir eira ekki i heimalandinu, heldur setjast að ann- ars staðar, sem dregur úr þróun landsins, eins og t.d. í landbúnaðinum, þar sein bændafólk notast við fornaldarlandbúnaðartæki. þjálfara og læknismenntaðs fólks. — Meir en 1000 iðn- og tækni- menntaðra Filippseyinga flytzt árlega til Kanada. En flótti háskólamenntaðra manna úr Filippseyjum er ekki talinn eins alvarlegur i skýrsl- unni. „Með þeim hópi hafi þó far- ið einn af fimm mestu hæfileika- mönnum þjóðarinnar”. Af háskólamenntuðum Filippsey- ingum flytjast út 7% þeirra, sem menntast hafa heima, og um það bil 40% þeirra, sem nema erlend- is, snúa ekki heim aftur. 2. Trinitad og Tobago. — A ár unum frá 1962 til 1968 fluttust 10.912 sérmenntað fólk þaðan. Aðallega til Kanada, Bretlands og Bandarikjanna. 3. Colombia. —Frá 1955 til 1968 leituðu 38.400 tækni- og sérmennt- að fólk sér atvinnu erlendis, og rúmlega 20.000 þeirra snéru ekki aftur, (settust flestir að i Bandarikjunum). 4. Libanon — Frá 1960 til 1968 fluttust 4.882 Libanir til Bandarikjanna. Frá 1956 til 1968 fluttust 7295 Libanir til Kanada. Frá 1951 til 1965 fluttust nær 20.900 Libanir til Kuwait. Og áætlað er, að milli þrjú og fjögur þúsund flytjist árlega til Astraliu, Evrópu og Afriku. 5. Canieroon — Umtalsverður landflótti sérmenntaðra manna, og Cameroon er einna skýrasta dæmið um, hvernig slikt dregur úr þróun og uppbyggingu lands ins, og gerir það háð aðstoð þró- aðri rikja. Frá 1962 til 1969 flutt- ust 2965 til Frakklands, 793 til Bretlands og 3672 til annarra landa. í skýrslu sinni gerir stofnunin ýmsar tillögur um, hvað gera mætti til þess að draga úr land- flótta menntamanna. Svo sem eins og: — Taka upp breytta stefnu i at- vinnumálum og gera ungu fólki störf i afskekktari héruðum eftir- sóknarverðari, en þar er þörfin mest fyrir sérmenntað fólk, — Að endurskipuleggja stirðnaða uppbyggingu stjórn- kerfisins, svo að stöðuhækkanir verði örari og betri nýting fáist á þekkingu og vinnuafli yngra fólksins. Stöðuveitingar á grund- velli aldurs og ættarbanda eða þjóðfélagsstöðu eru oft megin- undirstaða ánægjunnar, segir i skýrslunni. — Hækkun launa, þar sem slikt kann að vera maklegt. — Draga úr þeirri einangrun, sem sérm.enntað fólk kann að finna fyrir i heimalandi sinu, með þvi að veita þvi aðgang að vis- indaritum, og skipuleggja með nægilegri tiðni utanlandsferðir á fullum launum. ER BEN BARKA-MORÐIÐ AÐ UPPLÝSAST? Yfirvöld í Brazilíu halda þvi fram, að mafían og glæpahringar í Frakk- landi hafi haft á prjónun- um ráðagerðir um að gera Brazilíu að miðstöð fíkni- efna- og vopnasmygls. Þaöan hafi átt að dreifa eitur- lyfjuni og vopnum til fjölmargra landa i svo stórum mæli, aö nema mundi hundruöum milljóna dollara. Þetta var fullyrt i yfirlýsingu, sem stjórnin gaf út viku eftir handtöku þrjátiu og fjögurra manna i Rió de Janeiro og Sao Paulo. Fólk þetta- var allt talið viðriðið þetta ráðabrugg. Sjö mannanna — sex Frakkar og einn Itali (allir eftirlýstir i heimalöndum sinum vegna morða) — var visað úr landi i Braziliu. Yfirlýsing þessi byggðist á yfir- heyrzlum hópsins, og skýrðu yfir- völd frá þvi, að i hópnum væri maður að nafni Christian Jacques David (41 árs) og væri hann við- riðinn morðið á Ben Barka, leið- toga stjórnarandstöðu Marokko á sinum tima, en það hefur enn ekki verið upplýst. — Skýrt var frá þvi, að David hefði þegið 150.000 dollara af Mohammed Oufkir, fyrrum varnarmálaráðherra Marokko, fyrir að grafa lik Ben Barka, og aðrir 450. 000 dollarar runnu til glæpaflokksins, sem sá um brott- námið og morðið. Þvi var haldið fram' að glæpa- klika þessi hefði sambönd i flestum Suður-Amerikurikjunum, svo og Frakklani, Italiu og Bandarikjunum. Þá var upplýst að i Braziliu hefði glæpaklikan haft. fjóra lögreglumenn á mála til þess að falsa skjöl og vera þeim á annan hátt til þægðar. 1 siðasta mánuði komst lögreglan yfir 40 milljón dollara sendingu af kókaini um borð i bandariska skipinu Mormac- Altair, sem var á leið frá Arg'entinu til New York.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.