Vísir - 20.11.1972, Síða 9
9
Visir. Mánudagur 20. nóvember 1972
Albert áfram formaður KSf
Albert Guðmundsson
var endurkjörinn for-
maður Knattspyrnu-
sambands íslands á árs-
þingi KSÍ i gær. Þegar
kom að formannskjöri
um sex leytið stakk
Gunnar Eggertsson, for-
maður Ármanns, upp á
Albert sem formanni.
Aðrar tillögur bárust
ekki og var kjöri Alberts
fagnað með miklu og
langvarandi lófataki
þingfulltrúa.
Þrir menn áttu að ganga úr
stjórn auk formanns, þeir Friðjón
Friðjónsson, Helgi Danielsson og
Hörður Felixson. Höröur gaf ekki
kost á sér til endurkjörs, en
stungið varuppá Friðjóni. Helga,
Axel Kristjánssyni, Vilberg
Skarphéðinssyni, Bjarna Felix-
syni, Gisla Guþlaugssyni og Haf
steini Guðmundssyni. Hafsteinn
baðst undan kjöri.
Hófst nú spennandi kosning. 90
manns höfðu atkvæðisrétt,
Friðjóni Friðjónssyni, gjaldkera
KSI, var sýnt óvenjulegt traust.
Hann hlaut 88 atkvæði, en tveir
seðlar voru ógildir. Bjarni
Felixson hlaut 56 atkvæði. Mikil
spenna var i sambandi við þriðja
sætið — en Axel Kristjánsson i
Hafnarfirði hlaut einu atkvæði
meira en Vilberg Skarphéðins-
son, Viking, sem fulltrúar KRR
stungu upp á, og Helgi kom rétt á
hæla þeirra. Axel hlaut 38 at-
kvæði, Vilberg 37 (fulltrúar KRR
voru 38 á þinginu), og Helgi 33
atkvæði. Gisli Guðlaugsson hlaut
12 atkvæði.
I varastjórn voru kjörnir
Haraldur Snorrason, Helgi
Danielsson og Vilberg Skarp
héðinsson. I dómstól KSÍ voru
kjörnir Bjarni Guðnason, Halldór
V. Sigurðsson og Jón Tómasson,
en endurskoðendur reikninga KSÍ
Hannes Þ. Sigurðsson og Sæm-
undur Gislason.
Ársþingið hófst á laugardag og
setti formaður KSl, Albert Guð-
mundsson, það. Siðan hófust
í'h"b, IÞ 4
Hin nýja stjórn KSÍ. Fremri röð frá vinstri. JónMagnússon, Albert Guðmundsson, formaður, Friðjón
Friðjónsson. Efri röð. Axel Kristjánsson, Jens Sumarliðason, Bjarni Felixson og Hreggviður Jónsson.
Skólaskrifborð
ný gerð af
skólaskrifborðum
var að koma
Greiðsluskilmálar hvergi betri.
1000.— útborgun og 1000.— á mánuði
Trésmiðjan VÍÐIR h.f.
Laugaveg 166 — Símar 22222 — 22229
þingstörfin undir stjórn Her-
manns Guðmundssonar, sem var
þingforseti og stjórnaði þinginu af
miklum skörungsskap.
A laugardag var rætt um
skýrslu KSI og gjaldkeri, Friðjón
Friðjónsson, lagði fram endur-
skoðaða reikninga, sem sýndu
glæsilegan hag KSI. Miklar um-
ræður urðu um skýrsluna. Ýmsar
tillögur voru samþykktar á þing-
inu og breytingar á lögum KSl.
Tillaga kom fram um fjölgun liða
i 1. deild næsta keppnistimabil og
var henni visað til nefndar.
Stjórnarkjörið var siðasta mál
á dagskrá. Fyrir i stjórn voru Jón
Magnússon, Hreggviður Jónsson
og Jens Sumarliðason. Þeir Frið-
jón, Bjarni og Axel voru kjörnir
til tveggja ára — en formaður til
eins árs að venju. Eftir stjórnar-
kjör flutti Gisli Halldórsson, for
seti ISl, ræðu og þakkaði gott
samstarf við KSl, sem er fjöl-
mennasta sérsambandið innan
ISl með 25% iðkenda iþrótta á
Islandi. Albert Guðmundsson
þakkaði Gisla hlýleg orð og það
traust sem þingfulltrúar sýndu
honum. Sagðist hann taka það
sem traust á alla stjórn KSI og
hún myndi starfa áfram á sama
grundvelli sem fyrr. Siðan
þakkaði hann þingfulltrúum störf
þeirra og gestum komuna á
þingið. Að þvi búnu sleit Her-
mann Guðmundsson þingi. Nánar
verður sagt frá þinginu siðar hér i
blaðinu.
lyklar
aðréttu
cu
<3
svari
FUÓTANDl KOMMA
OG STILLANLEQ
NIÐURSTAÐA
e DEILING íM
MARGFÖLDUN ÍÉ
ÚJ SKIPTI - TAKKI c
o FRÁDRÁTTUR M-
vt SAMLAGNING M +
i - MlNUS MARGFÖLDUN MC
BAKK - TAKKI MR
SJÁLFVIRKUR
PRÓSENTUREIKN.
SAFN - TAKKI
REIKNIVERK
HREINSAÐ
MlNUS - MINNI
PLÚS - MINNI
MINNI HREINSAÐ
NIÐURSTAÐA - MIKjNI
VERÐ KR. 25.950.-
ricoiviac rafreiknirinn
hefur ýmislegt umfram vélar
í sambærilegum verðflokki.
Komið og kynnið yður kosti
hjá söludeiid okkar Hverfisgötu 33.
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
— t* Hverfisgotu 33
ýjfpy ^ Sím' 20560 ~ PÓSthÓ,í 377