Vísir - 20.11.1972, Page 12

Vísir - 20.11.1972, Page 12
12 Hlutu fyrstu sigra úti gegn taplausum liðum heimafyrir! Martin Chivers hefur nú skoraö i 1. deild tvo laugardaga i röð. Hið óvænta virðist nú algjörlega ráða ríkjum í ensku knattspyrnunni laugardag eftir laugar- dag. Lundúnarliðið West Ham tapaði sl. laugardag sinum fyrsta heimaleik á keppnistimabilinu — sömuleiðis Stoke City. Og auðvitað þu(rjtu lið, sem engan útileik höfðu unnið fyrr á leiktímabilinu, að hljóta þessi óvæntu stig á Upton Park og Victoriu- leikvanginum i Stoke-on- Trertfc Sem sagt meistarar Derby County og Birmingham City, sem komst upp í 1. deild í vor — lið, sem vægast sagt höfðu sýnt nöturlegan leik á útivöllum fram að þessu. Sannarlega óvænt — en það voru einnig úrslitin í mörgum leikjum á Englandi á laugardag — en kannski ekkert eins óvænt og sigur áhuga- mannaliðsins Hayes 1-0 gegn Bristol Rovers úr 3. deild i 1. umferð ensku bikarkeppninnar (FA- cup) og þó munum við, að ekki alls fyrir löngu sló Bristol-liðið Manch.Utd. út úr deildabikarnum og það i Manchester. Peter Cormack, skozki lands- liðsmaðurinn, scm Liverpool keypti frá Nottm. Forest i suniar, hefur virkilcga notið sfn i nýrri stöðu sem framvörður. Aður lék hann alltaf sem mið- herji. Liverpool heldur sinu striki i 1. deildinni og vann niunda heimasigurinn — eða hvern einasta leik á Anfield frá þvi leikirnir hófust i ágúst. Nú var það á kostnað Newcastle, sem náð hefur mjög athyglisverðum árangri að undanförnu. Liver- pool fékk óskabyrjun og mikið heppnismark strax á 4 min. Peter Cormack ætlaði þá að gefa fyrir mark Newcastle, en óvæntur snúningur kom á knött- inn, þegar hann snerti völlinn, og hann snérist inn i markið. Leikmenn Newcastle stóðu eins og steingervingar. John Tudor jafnaði fyrir Newcastle á 27 min. með fallegu skallamarki, en markvörður Newcastle, Ian McFaul, hljóp út fyrir vitateig- inn með knöttinn á 34. min. og aukaspyrna var dæmd. Tommy Smith ýtti knettinum til bak- varðarins Alec Lindsay, sem skoraði með hörkuskoti af 20 metra færi. 1 byrjun siðari hálfleiks jók John Toshack i 3-1 fyrir Liver- pool. Malcolm McDonald hélt spennunni i leiknum með góðu marki — og svo spyrnti fyrirliði Liverpool, Tommy Smith, l'ramhjá marki úr vitaspyrnu. Þriðja vitaspyrnan, sem hann skorar ekki úr á leiktimabilinu. Úrslitin á islenzka getrauna- seðlinum urðu þessi: 1 Arsenal-Everton 1-0 1 Coventry-Sheff.Utd. 3-0 X C.Palace-Leeds 2-2 2 Leicester-Tottenham 0-1 1 Liverpool-Newcastle 3-2 1 Man.City-Man.Utd. 3-0 1 Norwich-WBA 2-0 1 Southampton-Chelsea 3-1 2 Stoke-Birmingham 1-2 2 West Ham-Derby 1-2 2 Wolves-Ipswich 0-1 2 Nottm.For-Preston 0-1 Crystal Palace hafði tvö mörl yfir i leikhléinu gegn Leeds!! Það dugði þó ekki til — Leedí tókst aö jafna og allir fjórii leikir liðanna frá þvi Palact komst i 1. deild hafa orðið jafn tefli — það- er á Selhurst Park Þetta var frábær leikur, þai sem enginn lék betur en Charlit Cooke hjá Palace. Áhorfendui voru 38 þúsund, svo milljón irnar, sem Palace hefur lagt lið sitt að undanförnu, hafa kveikt mikinn áhuga þarna Suður-Lundúnum. John Craven sem keyptur var i fyrra frá Blackpool, skoraði á 9. min. og 43 min. i f.h. og það óvænta virtist ætla að eiga sér stað i þessum leik. En Leeds keyrði upp hraðann i siðari hálfleik og tókst að jafna með mörkum Mike Jones á 55 min. og Johnny Giles á 70. min. Leeds hafði mikla yfirburði i þessum hálf- leik, en þó munaði sáralitlu að Craven skoraði sitt þriðja mark á lokaminútunni. Leikur Manchester-liðanna var ekki eins ójafn og tölurnar gefa til kynna — en City, var þc betra liðið. Colin Bell skoraði strax á 7. min., þegar Alec Stepney, markvörður United, missti knöttinn fyrir fætur hans. Og þannig stóð þar til fimm minútur voru eftir af leiknum. United virtist hafa mikla mögu- leika á að jafna, þvi Ian Moore gat orðið gert hvað sem hann vildi á vinstri kantinum gegn hinum „aldna” fyrirliða Manch.City, Tony Book (38 ára), og sóknarlotur Manch. Utd. voru hættulegar. En á 85 min, náði City snöggu upphlaupi og Martin Buchan sendi knött- inn i eigið mark eftir fyrirgjöf Bells. Og tveimur min. siðar var Bell aftur á ferðinni og skoraði eina fallega markið i leiknum úr þröngri stöðu. Bell átti snilldar íeik hjá City, en hjá United börðust þeir Buchan og Bobby Charlton hetjulegri baráttu án árangurs. Ahorfendur voru 52 þúsund, svo þrátt fyrir neðsta sætið „trekkir” Manch.Utd. enn mest bæði úti og heima. Bertie Mee hjá Arsenal kom á óvart fyrir leikinn við Everton þegar hann tók Peter Simpson framyfir fyrirliða Arsenal, Frank McLintock — en Simpson hefur ekki leikið i aðalliðinu um tima vegna meiðsla. Frank var ekki saknað og vörn Arsenal, þar sem Jeff Blockley lék sinn bezta leik frá þvi hann var keyptur frá Coventry, var mjög sterk i leiknum. Að minnsta kosti alltof sterk fyrir „feimna” framlinumenn Everton, sem litið hafa sýnt þann tima, sem Joe Royle hefur verið frá vegna meiðsla. Aðeins eitt mark var skorað i leiknum — John Rad'fbrd fyrir Arsenal á 36 min. eftir sniðuga sendingu Alan Ball. Arsenal sótti miklu meira i leiknum, þar sem mikið var um góða knattspyrnu. En Charlie George fór illa að ráði sinu — skallaði yfir og spyrnti siðan beint á Lawson, markvörð Everton, úr auðveldum stöðum. Auk þess varði Lawson snilldar- lega skot frá Marinello og George. Loksins léku meistarar Derby i 1. deild eins og þeir hafa gert i Evrópubikarkeppni meistara- liða. Liðið skoraði tvivegis fyrstu 15 min. gegn West Ham og var Kevin Hector að verki i bæði skiptin. Fyrra markið á annarri min. var þó „gjöf” svertingjans John Charles,. sem lék nú bakvörð eftir langa fjarveru, en hann var fastur maður i liðinu hér áður fyrr. Fæddur FLundúnum. Charles mistókst þá alveg sending aftur til Bobby Ferguson, mark- varðar. Siðara markið skoraði Hector með fallegum skalla, eftir.að John O’Hare hafði átt skot i þverslá. 1 siðari halfleik skoraði „Pop” Robson fyrir West Ham — 13. mark hans i 1. deild i haust og er hann markhæstur þar. En West Ham tókst ekki að jafna, þó Bermudasvertinginn Clyde Best kæmi inn á siðasta stundarfjórðunginn. Derby var miklu nær að Skora fleiri mörk — átti tvö skot i stangir loka- minúturnar. Martin Chivers, miðherji Tottenham og Englands, sem litið hefur skorað i l. deild á þessu leiktimabili skoraði eina markið i Teiknum á Filbert Street i Leicester á 56. min. eftir að Alan Gilzean hafði splundrað vörn Leicester. Þessir tveir leikmenn höfðu verið erfiðir vörn Leicester i fyrri hálfleik, en það næsta, sem þeir höfðu komizt að skora, var skot Gilzean i þverslá. Coventry heldur áfram sigur- göngunni og lék sinn sjöunda leik i röð án taps gegn Sheff. Utd. Hinn ungi Brian Alderson skoraði tvö mörk á fyrstu 25. min. leiksins. Fyrst lék hann i gegnum vörn Sheff.Utd. og skoraði, og lék siðan aftur sama leikinn og nú einnig á markvörð Sheff.Utd., Tom MaAlister, áður enJiann renndi knettinum i mark. Þriðja mark Coventry á 35. min. var sjálfsmark McKenzie. Norwich — nýja liðrð i 1. deild — heldur sinu striki á heima- velli og er nú eina taplausa liðið heima i 1. deild ásamt Liver- pool. Það átti léttan dag gegn WBA og skoraði eitt mark i hvorum hálfleik — fyrst Dave Stringer og siðan Graham Paddon, sem skoraði beint úr aukaspyrnu rétt utan vitatiegs. Dýrlingarnir hlutu sigur gegn Chelsea með tveimur mörkum Ron Davies siðustu sex minútur leiksins — en það kom á óvart i fyrri viku, að Davies var ekki valinn i landslið Wales gegn Englandi. Peter Osgood náði forustu fyrir Chelsea á 9 min. eftir að Eric Martin hafði slegið knöttinn frá eftir spyrnu John Garner. En Brian O’Neill jafnaði fyrir Southampton rétt fyrir hlé með spyrnu af 35 metra færi, sem hinn ungi Steve Sherwood (18 ára) réð ekki við. Dýrlingarnir sóttu mjög i siðari hálfleik og i lokin skoraði Ron tvivegis — fyrst með spyrnu, siðan sinum „fræga skalla”, sem við eitt sinn fengum tæki- færi að sjá hér á Laugardals- vellinum, þegar hann kom með Norwich. Allt gengur nú á afturfótunum hjá Úlfunum á heimavelli eftir jafnteflið „fræga” þar við Crystal Palace. Siðan hafa Úlfarnir tapað þar öllum leikjum sinum — fyrst gegn Leeds, þá Arsenal og nú Ipswich. Trevor Whymark skoraði eina markið i leiknum á 52. min. eftir að Johnson, sem Ipswich fékk nýlega i Skiptum frá Everton fyrir Rod Belfitt, hafði leikið frá eigin vallarhelmingi upp i vitateig Úlfana. Þá kom að þvi að Stoke tapaði á heimavelli og það gegn Birmingham. Jimmy. Greenhoff náði þó forustu fyrir Stoke á 3. min„ en það dugaði skammt. Bob Latchford jafnaði þremur minútum siðar og skoraði svo sigurmarkið á 61 min. eftir fallegt upphlaup Gordon Taylor og Bob Hatton. Liverpool er nú efst i 1. deild með 26 stig úr 18 leikjum. Arsenal hefur 25 stig, en hefu(f- leikið einum leik meira, og siðan kemur Leeds með 24 stig úr 18 leikjum. Tottenham hefur 22 stig, Ipswich og Norwich 21. Chelsea og Newcastle 20, öll úr 18 leikjum. Manch.Utd. er nú aftur komið á botninn með 12 stig. Leicester hefur einnig 12 stig, en betri markatölu. Stoke City,WBA og C.Palace hafa 13 stig — öll úr 18 leikjum en Birmingham 14 stig úr 19 leikjum. í 2. deild hefur Burnley nú tveggja stiga forustu eftir sigur i Brighton á laugardag 0-1. Burnley hefur 25 stig, en QPR — sem tapaði óvænt á heima- velli fyrir neðsta liðinu i deildinni Millvall 1-3 — er i öðru sæti með 23 stig. Aston Villa og Luton hafa 22 stig, en Luton sigraði Aston Villa i Birmingham á laugardag 2-0. Það var annar tapleikur hins fræga Birmingham-liðs á heimavelli á leiktimabilinu. Ekki var leikið i 3. og 4. deild vegna 1. umferðar FA-- bikarsins. Auk ’sigurs Hayes gegn Bristol Rovers var mjög óvænt. að Margate úr Suður-- deildinni 'vann Swansea 1-0. 1 bikarkeppni i fyrra skoraði Ted McDougall — nú Manch.Utd. niu mörk hjá Margate fyrir Bournemouth — hsim.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.