Vísir - 21.11.1972, Side 7

Vísir - 21.11.1972, Side 7
7 IIMIMl s íða im I Umsjón: Edda Andrésdóftir STEINAR OG BLONI A AND- LITIÐ, OG GERFIAUGNHÁR SEM SITJA Á í TVO MÁNUÐI Nýjúngar á sýningu Félags snyrtisérfrœðinga Þær mála lófa sina gula og mála svo iljarnar með ýmsum litum og lita svo uppmeð fætinum, þannig að það er næstum eins og þær séu i litrikum og skraut- legum skóm. Frost hét önnur „fantasy” andlitssnyrtingin sem sýnd var á sýningunni. Var andlit þeirrar stúlku sem skreytt var, litað með bláum lit. Það er að segja ennið og gagnaugun, en kinnar og meiri hluti andlitsins hélt sinum upprunalega lit. Varir voru litaðar i köldum bleikum lit og augun eftir þvi. Siðan var andlit stúlkunnar skreytt með litlum silfurlituðum steinum. Hin andlitsskreytingin sem bar nafnið sumar, var lika dæmigerð fyrir sumarið. Andlit viðkomandi stúlku var skreytt með laufgrænum augnskuggum og allir litir voru mjög sumar- legir. Athyglisverðust voru þó litlu blómin, sem fest voru á andlitið. Voru þau i grænum, rauðum og öllum regnbogans litum og voru limd á augabrúnir og kinnar. Það má svo geta þess, að á sýningu sem haldin var i New York fyrir snyrtisörfræðinga viðs vegar úr heiminum fyrir skömmu, var sýnt „fantasy make-up”, og tók það alls fjóra tima fyrir snyrtisérfræðing að skreyta andlit stúlku á þennan hátt, þrátt fyrir að aðstoðar- menn við snyrtinguna voru fyrir hendi. Það tók þó ekki nema tiltölu- lega stuttan tima fyrir islenzku snyrtisérfræðingana á sýning- unní á sunnudaginn að skreyta andlitin, þar sem helzta undir- búningnum var lokið. Onnur nýjung kom fram á þessari sýningu.Það eru gervi- augnahár, sem enn eru ekki komin til landsins nema i mjög litlum mæli. Þau eru þó vinsæl erlendis, en að setja þau á við- komandi tekur nokkuð langan tima og það verður að láta lærð- an snyrtisérfræðing sjá um það. Augnhárin eru sett á eitt og eitt i einu og limd föst. Þau eiga að geta setið á i einn til tvo mán- uði, en þá má búast við að eitt og eitt fari að detta af. Þá er reyndar ekki annað að gera en að lima annað á i staðinn, ef við- komandi kærir sig um. Augnhárin þola vatn og þvott, þau má sofa með og það má jafnvél synda með þáu. Þó ber að varast að engin fita komi ná- lægt þeim, og ekki má lita þau með augnháralit, þar sem hann inniheldur fitu. Þess á heldur ekki að þurfa, þar sem þau eru hæfilega dökk fyrir. Augnhárin er hægt að fá i brúnum og svört- um lit, og hægt er að fá þau i þremur stærðum. Augnhárin má hreinsa með þar til gerðum vökva eða þá veiku andlitsvatni. Ef hin raun- Skyldi það nokkurn tíma verða algeng sjón á götum Reykjavikur- borgar að sjá konur með andlit sín skreytt í öllum regnbogans litum? Það er vissulega algeng sjón að sjá kvenfólk skreytt alls kyns litum, en enn hefur engin kona sézt á götu með blátt enni og með kinnbein sín og augna- brúnir skreyttar rósum og litrikum blómum. En þetta er samt það allra nýjasta i tizkuheiminum, að konur skreyti sig svo mjög. Sér- staklega ryður þetta sér til rúms erlendis. Slikar andlits- skreytingar eru allra vinsæl- astar á grimudansleikjum, en i erlendum blöðum sem sýna nýjustu tizku, eru oft sýnd andlit skreytt á alla vegu við tilheyr- andi samkvæmisklæðnaði. Snyrtisérfræðingarnir Þyri Dóra Sveinsdóttir og Ragnheið- ur Harvey sýndu islenzkum konum i fyrsta sinn á íslandi slika andlitssnyrtingu, en hún er kölluð „Fantasy make-up”. Sem merkir, að i þeirri tegund snyrtingar er allt leyfilegt. Heimilt er að nota steina, blóm og ýmiss konar hluti á andlitið og um að gera að láta hug- myndaflugið ráða. Það var Félag snyrtisérfræð- inga sem gekkst fyrir þessari sýningu, en slikar eru haldnar árlega og þar koma fram helztu nýjungar i andlitssnyrtingu. Það hefur ekki tiðkazt svo mjög Ennið er þakið bláum lit i and- iitssnyrtingu sem ber nafnið: Frost. Siðan eru iimdir á siliur- iitaðir steinar. Slik snyrting getur tekið ailt upp i fjóra tima. hjá hvita manninum að skreyta sig með alls konar hlutum i and- litinu. Frekar ætti þetta heima hjá Indiánaættbálkum eða svert- ingjakonum i fjarlægum löndum, munu sumir segja, Enda láta margar konurnar þar ekki nægja að skreyta andlit sin. Frost og sumar heitir andlitssnyrting þessara tveggja, en þetta er i fyrsta sinn sem sýnt er „Fantasy make-up” á íslandi. A bak við standa þær sem snyrtu. Það tekur lika sinn tima að iíma á eitt og eitt gerviaugnhár i einu og talsverð vinna liggur þar aö baki. En þau eiga iika að sitja á i alit að tvo mánuði. Hér limir Maria Schram augnbár á eina stúlkuna. — Ljósmyndir Bjarn- leifur. Það kom glöggt i ljós þegar vetrarfarðinn var sýndur, að andlitssnyrting verður mjög hugmyndarik og skemmtileg á komandi vetri. Og ef litiö er aftur á tizkubylt- Kauðir og gulir augnskuggar og allir regnbogans litir eru i vetrartizkunni. Verst er að sjá ekki sýnishornin i litum. Snyrti- sérfræðingar: Alma Guðmundsdóttir og Þórdis Sigurðardóttir. verulegu og ekta augnhár eru mjög ljós fyrir, má lita þau að- eins með augnaháralit áður en gerviaugnhárin eru limd á. En svo vikið sé að snyrtingu andlitsins i heild, þá eru hinir skærari litir að hverfa. Mildu litirnir, mildir vara- litir, mildir augnskuggar og milt krem virðist ætla að verða hinum skærari yfirsterkari. Litaúrvalið verður þó gifurlegt eftir öllu að dæma og ekkert siðra þó að litirnir séu ekki eins skærir. Gulir, rauðir, grænir og bláir augnskuggar, allt fyrir- finnst. inguna i andlitssnyrtingunni, ef svo má segja, Fantasy make- up, hver veit þá nema við eigum eftir að sjá vetur, sumar, vor og haust gangandi á götum Iteykjavikurborgar á næstunni. — EA

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.