Vísir - 14.12.1972, Blaðsíða 20
Fimmtudagur 14. desember 1972
KVEIKTI Í HJÁ
SÉR SJÁLFUM
Slökkvilipiö var kallað að húsi
einu hér I bænum i gær, en þar
hafði kviknað i myndaramma
Eldurinn var smávægilegur og
tjónið er innan við eitt þúsund
krónur. Húsráðandinn var tekinn
til yfirheyrzlu af lögreglunni og
kom fram, að hann hafði sjálfur
kveikt i rammanum. Maðurinn
var undir áhrifum fiknilyfja -bM
Leiðinleg mistök
Leiðinleg mistök urðu i einni
frétt blaðsins i gær um ólöglega
áfengissölu i frihöfninni i Kefla-
vik. Var sagt að þar hefði verið að
verki verzlunarstjóri frihafnar.
Hér var alls ekki um verzlunar-
stjórann að ræða, heldur annan
starfsmann i frihöfninni. Blaðið
biður Ólaf A. Jónsson verzlunar-
stjóra velvirðingar. — EA.
Ögri kominn:
Skrúfon
saman
-orsakir
,,Við liefðum auðvitað ekki far-
ið úl i þctta ef við heföum ekki
hafl trú á þessari nýjung i
islen/.kum sjávarútvegi", sagði
Sverrir Hermannsson þegar Visir
spurði hann um rekstrargrund-
völl skuttogaranna Vigra og
ögra, sem ögurvik er búin að fá.
,,En við höfum náttúrulega litla
reynslu i útgerð slikra skipa og
erum þvi ekki færir um að spá
mikið. Hitt er svo annað mál, að
sjávarútvegur gengur alltaf i
bylgjum, sum ár eru góð og önnur
slæm, aflinn er svo misjafn. Eins
og nú fiskast virðist okkur
rekstrargrundvöllurinn frekar
hæpinn”.
Stuttu eftir komu Ogra i gær, á
meðan fólk var að lita á skipið,
sleit það sig laust og lenti á
togaranum Úranusi. Aðspurður
sagði Sverrir að ekki væri vitað
hvað þessu óhappi olli, en skrúfan
kúplaðist einhverra hluta vegna
saman við aðalvélina, sem var i
gangi, og hefur jafnan snúnings-
hraða. Við þetta fór skipið á fulla
ferð áfram. Nánar verður athug-
að hvað þessu olli.
LÓ.
Líklegra að stjórnin sitji
„Þeir finno ábyggi
lega verstu leiðina1
Liklegt var ta lið i morg-
un, að ríkisstjórn ólafs
Jóha nnessona r sitji
áfram þrátt fyrir þá
kreppu, sem hún hefur
verið i og er enn i. Þar
hefur úrslitaþýðingu, að
Hannibalistar innan rikis-
stjórnarinnar setja ekki
fram kröfu sina um
gengislækkun sem
úrslitakosti um áfram-
haldandi stjórnarsam-
starf. En þetta kemur
fram i viðtali við Hanni-
bal Valdimarsson á for-
síðu blaðsins í dag.
Ljóst cr, að Framsókn er opin
i báða enda i þessu máli eins og
jafnan. Framsókn lagði til að
larin yrði uppbótaleiðin eins og
Alþýðubandalagsmenn, þó að
einstakir þættir tillagna þeirra
væru frábrugðnir. Þegar fram
kom, að Hannibalistum var
mikil alvara með kröfu um
gengislækkun, gleypti Fram-
sókn ofan i sig allar yfirlýsingar
um það, að þessi rikisstjórn
mundi ekki beita gengislækkun
og féllst á kröfur Hannibalista.
Slika lausn munu Alþýðubanda-
lagsmenn hinsvegar ekki sætta
sig við. — Nú eru talin likindi til
þess, að Alþýðubandalagsmenn
og Hannibalistar reyni að finna
málamiölun, en Framsókn mun
auðvitað geta fallizt á næstum
livað sem er. — „Þeir finna
ábyggilega verstu leiðina”,
komst einn helzti oddamaöur
stjórnarandstöðunnar að orði i
inorgun, þegar þcssi mál bar á
góina. — VJ.
Skömmu eftir aðögri, hiðnýja skip ögurvikur, var lagzt við Faxa-
garð, gerðist hið óvænta, að skipið tók á rás á fullri ferð og sigldi á
togarann Úranus, sem lá við bryggjuna fyrir framan það. Landfestar
beggja skipanna slitnuðu. Varla sást á ögra eftir þetta óhapp, en
skemmdirnar á Úranusi getum við séð hér á myndinni.
— Sverrir Hermannsson virðir hið nýja skip fyrir sér, er það var
að leggjast að bryggju i fyrsta sinn.
„Enginn sviptur ökuleyfinu"
- segir Pétur Sveinbjarnarson framkvœmdastjóri Umferðarráðs
Smi SAUMAVÉL f
PANT— MAN EKKI
HJÁ HVERJUM
,,Það er alrangt, sem fram hef-
ur komið i skrifum nokkurra les-
cnda i VIsi, aö ökumenn hafi verið
sviptir ökuleyfi, ef þeir hafa ekki
staðizt könnunina hjá okkur”,
sagði Pétur Sveinbjarnarson,
framkvæmdastjóri Umferðar-
ráðs I morgun.
Mjög hlýtt er I Vestur-Evrópu
um þessar mundir, og I morgun
var til dæmis 13 stiga hiti I Lond-
on. Að því er veðurfræðingar
sögðu okkur i morgun er þessi hiti
á þessum tima talsvert fyrir ofan
meðallag, og á islandi er til dæm-
,,Ef viðkomandi hefur ekki
staðizt fyrri könnun hefur
ökuskirteini hans verið afturkall-
aö um sinn, eða þar til hann hefur
staðizt könnunina að nýju og er
það i samræmi við 48. grein
reglugerðar um ökukennslu, próf
ökumanna o.fl.”, sagði Pétur.
is frostlaust um allt Suðurland.
Ileitast er i Vcstmannaeyjum,
fjögra stiga hiti i morgun.
Hæg suðlæg átt er rikjandi um
allt Suðurland, en á Norðurlandi
er úrkoma. Norðan til á Vest-
Pétur kvað grundvallarmun á
afturköllun ökuréttinda um sinn,
eða sviptingu ökuleyfis, sem er
aðgerð framkvæmd af dómstól.
Pétur mun á morgun rita i blað-
ið grein um þetta mikla hitamál,
sem upp hefur komið i umferð-
inni. — JBP —
fjörðum er norðan strekkingur og
slydda.
Um jólaveðrið geta veður-
fræðingar litið sagt ennþá og vilja
ekkert láta hafa eftir sér. Þó
segja þeir að margt geti skeð og
að margar lægðir séu nú á sveimi
um Atlantshafið.
En spáin fyrir daginn i dag er
samt til staðar. Suðaustan kaldi
verður liklegast rikjandi i dag, og
skúrir sums staðar og þiðviðri. t
nótt mun sennilega snúa til
austanáttar og búizt er við
nokkru hvassviðri. — EA.
Það er heldur óskemmtilegt að
setja dýra hluti i pant fyrir skuld,
en geta svo ekki haft uppi á veð-
takaranum þegar greiða á skuld-
ina. Maður einn varð fyrir þessu
núna i byrjun desember.
Hafði maðurinn verið að
skemmta sér og var eitthvað við
skál og þá heimsótt kunningjafólk
sitt. Þegar maðurinn fór frá
kunningjafólki sinu, tók hann með
sér i einhverju hugsunarleysi
nýja saumavél. Saumavélin var
aðeins hálfsmánaðar gömul og
verðhennar mun vera yfir 20 þús-
und krónur. Maðurinn var aura-
litill, og þegar hann ætlaði að
greiða leigubilinn sem hann var
með, hafði hann ekki næga pen-
inga og skildi þvi saumavélina
eftir i bilnum. Þegar maðurinn
ætlaði siðan að borga leigubil-
stjóranum reikninginn og fá
saumavélina, mundi hann ekki
hvaða bill það var né frá hvaða
stöð billinn var.
Maðurinn hafi aldrei ætlað að
stela saumavélinni, heldur hafði
hann tekið saumavélina með sér i
einhverju hugsunarleysi, og vildi
hann gjarnan hafa uppi á henni til
þess að geta skilað kunningjafólki
sinu vélinni.
Maðurinn sneri sér þvi tilrann-
sóknarlögreglunnar, og er leigu-
bilstjórinn sem er með saumavél-
ina, vinsamlegast beðinn að skila
vélinni til rannsóknarlögreglunn-
ar og fá reikninginn fyrir bilnum
greiddan. —ÞM
Hiti talsvert fyrir ofan
meðallag í Evrópu