Vísir - 23.12.1972, Side 12

Vísir - 23.12.1972, Side 12
Visir. Laugardagur 2:i. desember 1972 Tvö hundruð — og tíu krónurnar Kyrsta barnsástin og fimmkall hafði næstum gert mesta leyndarmál i heimi að draumi sem gat ekki rætzt. En allt fór vel að lokum og það varð skemmtilegasta aðfangadagskvöld Mariu. Ilugljúf litil saga um börn og foreldra. Litil skólastúlka me6 mjóa leggi i grænum sokkum. Skin- andi bros, sem sii'ellt vantaói nokkrar tennur i: vegna þess að hún var á þeim aldri, þegar maður kemur þjótandi inn án þess að loka á ei'tir sér útidyra- hurðinni og lætur mömmu eða pabba la tönn, sem þau eiga að geyma: og þessi tönn er einmitt ein ai' þeim, sem vantar i brosið. Að öðru leyti var hún i rauðri kápu, sem aldrei var hneppt, hún iiagsaði til og frá eins og þvottur á snúru. Alltal' þegar litla stúlkan l'ékk krónu keypti hún sparimerki i skólanum. Hún keypti þau alltaf i átthagafræðitimanum hjá Þuriði kennsiukonu, en timarnir hjá Þuriði fóru oi't meira i spjall en kennslu. Það var enginn agi i timunum hjá Þuriði, aldrei hef- ur einn bekkur sagt kennslukon- unni sinni jafn marga skemmti- lega hluti um lifið. Maria átti þrjár i'ullar spari- merkjabækur i skúffunni sinni, hún átti sér nefnilega leyndar- mál. Það var svo mikið að hún hafði engum sagt frá þvi. Það var mesta leyndarmál i heimi. Hún ætlaði að spara saman tvöhundruð krónur. Henni hafði dottið það i hug i haust, þegar hún var nýbyrjuð i skólanum. Hún sat inni i her- berginu sinu og var að reikna i gulu reikningsbókina sina. Klukkan 4 stakk Gaukurinn höfðinu Ut úr gauksklukkunni og galaði þrisvar. Gauksi var alltaf einum tima á eftir áætlun, en þegar maður vissi af þvi, gerði þaðekkert til. Mamma og pabbi höfðu gefið henni gauksklukk- una i afmælisgjöf. En þennan dag þegar Gaukur galaði þrisvar og klukkan var fjögur, þá datt Mariu það i hug. Stórkostleg hugmynd! Það var dálitið, sem hún ætlaði að gera. Ekki einu sinni Gaukur fékk að vita. Það er aldeilis merkilegt, þegar maður á mikið leyndar- mál og þarf að spara tvöhundr- uð krónur til jóla, hvað hægt er að næla sér i margar krónur á einn eða annan hátt. Hún fór út i bakari fyrir mömmu og fékk túkall. Svo stóð hún við stólinn hans pabba með fæturna i kross og annan handlegginn um hálsinn á honum, og spurði hann hvort hún mætti ekki fá fimmkall. Pabbi hélt áfram að lesa og stakk hendinni i vasa sinn og hún fékk það, sem hann átti af smáaurum. Það voru raunar sjö krónur og hann hélt áfram að lesa. Hún hljóp inn i herbergið sitt og stakk aurunum i penna- veskið sitt. Svo var það krónan, sem hún l'ékk á laugardögum. Guðjón frændi kom lika stund- um i heimsókn og hann var anzi liðlegur ef smápenings var þörf. Það gekk jafnt og þétt að safna sparimerkjunum, hún var hætt að kaupa gotteri. Hver eyr- ir fór i pennaveskið og siðan i sparibaukinn. Dagurinn, þegar hún fann fimmkall á leiðinni heim úr skólanum var ham- ingjudagur. Gaukur sá fimm- kallinn þegar hann kom út tii að gala og hún var komin á fremsta hlunn með að segja honum frá öllu saman. En hún gerði þaðekki. vegna þess að þá hefði allt orðið ónýtt. Þegarsvo vel var á veg komið með söfnunina, varð nokkuð til að eyðileggja allt, næstum þvi. Úti á leikvellinum hitti hún strák, sem hét Kristján og eftir hálftima elskaði hún hann, hún hafði mátt ýta honum i kassa- bilnum hans, sem var gerður úr sápukassa. HUn mátti gera það allan seinni hluta dagsins svo að hún kom allt of seint heim 'og var búin að týna beltinu af rauðu kápunni sinni, en mamma sagði ekki neitt. Mamma klappaði henni á kinn- ina vegna þess að hún hafði rauðar kinnar og át sex vinar- pylsur, svo að mamma og pabbi hlógu og sögðu að skárri væri það nú lystin i litlu manneskj- unni. Vegna þess að hún var skotin i Kristjáni Tómassyni og ýtti honum á hverjum degi, gaf hún honum lika allar krónurnar sin- ar, og stundum gaf hann henni með sér af brauðsneiðunum sin- um. Hún fékk að bita af. þumal- lingursnöglinni á honum. En það gerðist þegar hann var bú- inn að éta tvær fyrstu brauð- sneiðarnar sjálfur. Þá skipti hann þriðju sneiðinni á milli þeirra, hún fékk af nöglinni. Þetta gat haldiö lengi áfram, þvi þegar maður gefur bara krónu i einu, þá er ekki mikið gefið og ef maður gefur hana með gleði er hún vel gefin og hún elskaði Kristján Tómasson, kom skitug heim og át sex vin- arpylsur. En það var þetta með Gauk, i hvert skipti, sem hann kom út til að gala, kom leyndarmálið með honum. Hún hætti að læra lexi- urnar i herberginu sinu, hún fór með skóladótið sitt á borðið i eldhúsinu. Það er ekki gott að vita hvað hefði orðið ofan á i huga Mariu, liklega hefði það orðiö Kristján Tómasson þvi að það var hægt að koma viö hann og hann gat sagt: ,,Jæja nú keyrum við af stað, Maria!” En einn daginn var Kristján ekki lengur á vellinum. Hann kom aldrei aftur. Hún beið og beið og beið. Að lokum rölti hún af stað heim til sin i rökkrinu, litil og þögul eftir götunum, næstum ósýnileg. Nú var gott að hafa Gaukinn og leyndarmálið. Maria fékk strax eitthvað að hugsa um. Nú var mikið að gera við að bæta sér upp allar þær krónur, sem ástin hafði fengið hana til að gefa og þær voru margar. Dag einn átti hún svo fjórar bækur fullar af sparimerkjum og hún sagði manninum að hún vildi gjarnan fá tvöhundruð krónur fyrir þær. Maðurinn sagði að þá yrði pabbi hennar eða mamma að skrifa undir, hún væri ekki nógu gömul til að fá peningana sjálf. Þetta hafði henni ekki dottið i hug. Um kvöldið fór hún til pabba sins. ,,Pabbi, ég get ekki sagt það,” sagði hún ,,það er leyndarmál, mikið leyndarmál, mesta leynd- armál í heimi, pabbi og maður getur ekki sagt frá svoleiðis pabbi, er það?” Hún stakk puttunum i munn- inn og leit upp á hann. Það lyftist á honum brúnin eins og þegar hann ætlaði að vera skemmtilegur. „Jóla- leyndarmál?” sagði hann og það lá vel i honum. Hún kinkaði ört kolli án þess að taka fingurna út Ur munnin- unr. Næsta dag náði hún i tvö- hundruð krónurnar og fór i búð- ina. „Þetta þarna” sagði hún og benti. Það var tekið niður og þvi pakkað inn. HUn hafði komið að glugganum næstum á hverjum degi til að skoða það. Hún lagði tvöhundruð krónurnar á borðið. „Litla vinkona, þetta kostar tvöhundruð og tiu krónur,” sagði konan. Maria hafði ekki tekið eftir að það stóð núna 210 kr. á verðmið- anum, það hafði nefnilega ný- orðið verðhækkun. Hún roðnaði. „Er það?” „Já, það kostar það nú vist. Þú getur séð að það stendur hér. Þú átt kannski ekki tiu krónur i viðbót?” „Nei,” litla telpan var að bresta i grát. „Það var synd. Hvað getum við gert i þvi?” Maria var svo rugluð og óhamingjusöm að hún sneri sér allt i einu við og þaut út um búð- ardyrnar. Konan kallaði, „heyrðu, biddu aðeins væna min!” Hún hefði slegið tiu krón- um af verðinu, en þetta gerðist með svo skjótum hætti að hún hafði ekki náð að segja það. Það var vist ekki annað að gera en að taka pappirinn aftur utanaf. Tiu krónurnar voru synda- gjöld, en.brátt komst þó allt i lag aftur, og Maria kom arkandi inn i búðina stolt á svip og lagði tvö hundruð og tiu krónur á borðið. , „Fékkstu það hjá mömmu?” sagði konan brosandi. „Nei, hjá pabba.” ,,ÞU hlýtur að eiga góðan pabba.” Maria setti upp brosið sitt. Heima sat hún við gluggann og horfði á, þegar verið var að kveikja ljósin. Mamma köm ut- an úr búð. „Situr þú hér i myrkrinu,” sagði hún, en lét svo litlu stúlkuna sina sitja áfram og fór inn i eldhús að sýsla við matseldina. Allt var svo dásam- legt. Svo kom pabbi heim, og þegar þau voru búin að borða bjuggu þau til jólaskraut, sem þau hengdu svo upp i stofuna. Hún sofnaði að lokum við öxlina á pabba og hann háttaði hana og bar inn i rúm. Það þurfti ekki að þvo henni, sagði mamma. „Þaö er synd að við getum ekki gefið henni eitthvað meira,” sagði mamma. „Þið eigið vist leyndarmál saman,” sagði pabbi. „Hún er búin að safna tvöhundruð og tiu krónum.” „Það vissi ég ekki” sagði mamma. „Nú ekki það?” Maria hafði rumskað meðan á samtalinu stóð og gat heyrt að pabbi talaði léttur á brún. „Ég get fullvissað þig um að mig grunar ekki einu sinni hvað um er að vera”, sagði mamma. „Hún sagði mér reyndar að hún ætti sér leyndarmál”, sagði pabbi.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.