Vísir - 23.12.1972, Page 13
Visir. Laugardagur 23. desember 1972
☆ $r
„Það hlýtur að vera mjög
merkilegt úr þvi að hvorugt
okkar veit um það,” sagði
mamma. Ég segi þér það satt ég
veit ekkert um það. Ó þið eruð
nú meiri rebbarnir, alltaf að
rotta ykkur eitthvað saman.”
&
Aðfangadagskvöldið kom.
Það var raðað undir jólatréð.
Fyrst hafði Maria laumað pakk-
anum inn á klósettið, horft lengi
á það sem i honum var og skrif-
að innan á lokið til hvers það var
og setti það svo inn i jólapappir.
Þetta tók allt langa stund og á
meðan hafði mamma komið og
tekið i hurðarhúninn og éngu
munaði að Maria missti allt nið-
ur á gólf. Við mömmu hinum
megin við dyrnar sagði hún, að
hún skyldi flýta sér en hún væri
ekki búin ennþá.
Og mamma beið brosandi i
eldhúsinu og söng og rótaði i
eldhúsáhöldunum, svo að litla
stúlkan heyrði að það væri i lagi
að koma fram með pakkann og
stinga honum lengst inn undir
tréð.
Þegar verið var að taka utan
af jólagjöfunum, var Mariu
næstum alveg sama hvað hún
fékk, hún bara beið og var á
verði, það varð að opna þennan
ákveðna pakka seinast af öllum.
Loks kom að honum.
„Það stendur ekkert nafn á
honum,” sagði pabbi. „Hvér á
að taka hann upp?”
„Ég!” sagði Maria og tók ut-
an af pakkanum skjálfandi
fingrum á meðan pabbi og
mamma héldust i hendur og
horfðu með ákafa og spenningi á
Mariu.
Nú er búið að taka utan af.
Nú er þetta ekki leyndarmál
lengur.
Þetta er gauksklukka.
„Ég er svo...” sagði mamma.
„Er hún til okkar?”
Skyndilega varð Maria eld-
rauð og skömmustuleg i fram-
an. Þaðkom allt i einu yfir hana
að hún hafði steingleymt að gefa
pabba sinum og mömmu nokk-
uö, hún hafði notað alla pening-
ana i „leyndarmálið”.
Og þau litu út eins og þau
vildu gjarna eignast gauks-
klukku.
„Hvað er að sjá elskan min,
ertu að gráta”, sagði mamma.
,,Já.” snökkti Maria, „þessi
klukka er alls ekki til ykkar. Ég
keypti ekkert handa ykkur. Ég
gleymdi þvi. Þetta er handa
Gauki.”
„Handa Gauki???”
„Já af þvi að — uu-uu-huu —
Gaukur er alltaf svo einmana."
Nú sáu mamma og pabbi að
það stóð skrifað með grænum
vaxlit á lókið: TIL GAUKS.
„----Af þvi að Gaukur er svo
einmana?"
„Jaahúúú ... Þessi átti að
hanga á hinum veggnum og
heita Gauksa, frú Gauksa. Svo
áttu þau að gala á hvort annað.
En nú finnst mér þetta svo leið-
inlegt af þvi, að þið fáið ekki
neitt.
Tárin runnu niður rauðu kinn-
arnar og hún faldi augun i oln-
bogabótinni.
Nú var mikið að gera hjá
mömmu og pabba.
„Þú mátt ekki gráta elskan
min, við erum svo glöð vegna
þess hve fallega þú hugsaðir til
Gauksins.”
„Einmitt" sagði pabbi ákat'-
ur, „við höfum einmitt verið að
tala um að Gaukur þyrfti fé-
lagsskap, er það ekki
mamma?” Pabbi sagði annars
aldrei mamma við hana.
„Komdu.nú þurrkum við augun
og grátum ekki meira.”
Maria leit upp.
„Hafið þið virkilega talað um
það?” spurði hún.
„Já, það höfum við! Oft!”
sagði pabbi og lét hana fá vasa-
klútinn sinn, sem hún notaði
viðutan.
„En þið virtust ekki vera
glöð," sagði Maria. „Og þá hélt
ég að það væri af þvi að þið
fenguð ekkert — og þá gat ég
bara ekki annaö en grátið....”
Nú var hún farin að gráta aftur.
„Virtumst við ekki glöð?”
sagði mamma. „En það var
ekki af þvi að við fengum ekk-
ert. Það var vegna — vegna —
jú vegna þess að við urðum
hrædd um að við hefðum lánað
honum Jóni hérna i næsta húsi
hamarinn og pabbi man ekki
hvort allir naglarnir eru búnir
eða ekki, við verðum þó áð
hengja frú Gauksu upp.”
„Nú var það bara þess-
vegna,” sagði Maria og henni
létti óskaplega og varð
hamingjusöm. „Þá þurfið þið
ekki að vera hrædd lengur, þvi
að ég leit nefnilega i verkfæra-
kassann i gær og sá að hamar-
inn var þar og nóg af nöglum.”
Það sem eftir var af þessu
jólakvöldi, fór i að hengja frú
Gauksu upp og það var spenn-
andi að vita hvort hún galaði nú
rétt. Það tók pai _ næstum tvo
klukkutima að fá frú Gauksu til
að gala einum tima á eftir áætl-
un eins og Gaukur.
Nú gala þau hvort á annað á
klukkutima i'resti og Maria veit
hvar litla skrúfan er, sem á að
snúa bara pinulitið til að gera
frú Gauksu rétta þegar hún, ein-
staka sinnum, kemur of fljótt út
um dyrnar sinar.
Óskum viðskiptavinum vorum og öðru landsfólki
GLEÐILEGRA
JÓLA
7
og farsœis
komandi árs
Einar J. Skúlason
skrifstofuvéiaverzlun
og verkstæði.
Hverfisgötu 89, simi 24130.
Fasteignaþjónustan
Austurstræti 17, simi 26600.
Fatapressan tJðafoss
Vitastig 12, simi 12201.
Félagsheimili Kópa-
vogs — Kópavogsbió
simi 41391
Frimerkjahúsið
Lækjargötu 6A, simi 11814.
G. Albertsson,
Garðastræti 38, simi 16101.
G.J. Fossberg
Skúlagötu 63, simi 18560.
Grill-inn
Austurveri, simi 34555.
Grænmetisverzlun
landbúnaðarins
Siðumúla 34, simi 81600.
Guðmundur Þor-
steinsson gullsmiður.
Bankastræti 12, simi 15421.
Gúmmibátaþjónustan
Grandagarði, simi 14010.
Hafskip hf.
Hafnarhúsinu við Tryggva-
götu, simi 21160.
Happdrætti DAS
Simi 17117.
Hárgreiðslustofan
Perla
Vitastig 18A, simi 14760.
Hekla hf.
Laugavegi 170-172, simi 21240.
Hf. Ofnasmiðjan
Einholti 10, simi 21220.
Hjartarbúð
Suðurlandsbraut 10, simi
81529.
Hlutafélagið Hamar
Simi 22123.
Hreyfill
Simi 85522.
íjt(vmm()cri)s braidur
Laugavegi 24, simi 18125.
Ingólfscafé — Iðnó
Simi 12350.
ísarn hf. — Landleiðir
hf.
Reykjanesbraut 10-12, simi
20720.
jpGudí€msson hf.
Shulagötu 26
(ry)W£>
Járnvöruverzlun Jes
Zimsen hf.
Hafnarstr. 21 Suðurlandsbr.
32. simi 13336.