Vísir - 23.12.1972, Qupperneq 16
16
Visir. Laugardagur 2:i. desember 1972
SJÓNVARP UM JÓLIN
Sjónvarpið, annan í jólum:
„Þegar dauðir upp rísa^
síðasta verk Ibsens
Á jóladagskvöld verð-
ur eitt af verkum Ibsens
á dagskrá sjónvarpsins.
Það mun vera það síð-
asta, sem hann skrifaði,
en það var gefið út 1899.
Það kann mörgum að finnast
það undarlegt að siðasta verk
Íbsens kemur út sjö árum fyrir
dauða hans. Það er talið vera
vegna þess að þetta er nokkurs
konar andleg sjálfskrufning
höfundarins og uppgjör Ibsens við
sjálfan sig. Þetta er talið hafa
valdið þvi að hann gat ekki skrif-
að meira, varð, ef svo má að orði
komast, andlega geldur þessi sið
ustu sjö ár ævinnar.
,,Þegar dauðir upp risa” gerist
á hressingarhæli og aðalpersón-
urnar eru myndhöggvari og kona
hans. Farið er að kólna á milli
hjónanna, og þegar myndhöggv-
arinn sér gamla fyrirsætu sina
verður úr öllu þessu heilmikið
drama.
— LÓ.
Dansflokkurinn i einu atriðinu, en allt sem flutt verður kynna þau sjálf. Skýringar þeirra eru þýddar
jafnharðan, þannig að það ætti ckki að fara neitt á milii mála, hvað þau eru að fara hverju sinni.
Sjónvarp annan jóladag kl. 20.30:
Húla-húla ó eftir hangikjötsátinu
Það verða vist cngir jólasálm-
ar, sem kyrjaðir verða i sjón-
varpssal að kvöldi annars i jóíum
fyrst i stað. Klukkan liálf níu birt-
asl þar hiirundsdökkir húla-húla-
dansarar frá Suðurhafscyjum og
sýna dansa af ýmsu tagi og
syngja jafnframt við dynjandi
trum huslált.
Sjónvarpið, jóladag kl. 20.20
á jóladag
Þar er á ferðinni dansflokkur-
inn ,,The Polynesian Revue”,
sem skemmtu höfuðborgarbúum
um hálfsmánaðarskeið i Glæsibæ
nú fyrir skömmu.
1 sjónvarpssal flytja þau sama
skemmtiefni og gestum Glæsi-
bæjar var boðið upp á — og eitt-
hvað meira til viðbótar. En þessi
suðræni dagskrárliður stendur i
liðlega hálftima.
Á efnisskránni verða m.a. húla-
húla, elddansar, siva og sverð-
dansar frá ýmsum eyjum i Suður-
höfum, Tahiti, Hawaii, Samoa og
Fijieyjum.
Dansflokkurinn er skipaður sjö
dönsurum, fjórum stúlkum og
þrem karimönnum. Dansinn er
aðeins þeirra tómstundagaman,
raunar aðalatvinna nú um
stundarsakir, en til þessa frábæra
dansflokks var stofnað meir i
gamni en alvöru. Hann átti i
fyrstu aðeins að skemmta á um-
fangsmikilli hátið i heimaland-
inu, en fékk nógu góðar undirtekt-
ir til að hópurinn afréð að ferðast
með skemmtiatriðin um heiminn.
Hingað kom hann frá Danmörku
og hélt svo héðan til Englands til
að skemmta drottningunni. En i
Höl'n verða þau yfir jólin.
Allir hafa dansararnir annan
starl'a, sem fyrr segir. Til dæmis
er fyrirliði hópsins fréttaritari við
viðlesið, enskt blað og skrifar
aðallega efnahags- og stjórn-
málalegar greinar og fréttir. Þá
er ein stúlknanna hjúkrunarkona
O-la-la. llcr sviftist strápils
faguriega á meðan bumbur eru
barðar...
og önnur rafeindatæknifræðing-
ur.
Þau létu öll vel af dvölinni hér
og lýstu yfir eindregnum vilja i þá
átt að heimsækja okkur aftur.
Hér væri þeim nánast hvild af að
dvelja miðað við allt amstrið og
hraðann, sem er á ferðum þeirra
um önnur lönd. — ÞJM.
Þessa náunga kannast orðið
flestir við. Þeir eru fastagestir í
kvöldstundinni, sem i vetur hefur
verið annan hvern laugardag. Á
jóladagskvöld verða þessir firar
og fleiri i jólaskapi á skerminum.
Meðal þeirra, sem koma fram
auk þeirra, eru Jónas og Einar,
sem syngja ásamt Stúlknakór
öldutúnsskólans, sem einnig
syngur einn sér. Hljómsveit Ingi-
mars Eydal verður lika með,
Trúbrot, Sigursteinn Hákonarson
(Steini úr Dúmbó og Steini), Erla
Stefánsdóttir, Þorvaldur Hall-
dórsson og Ivar Hauksson, sem er
bara sjö ára. Þá ber til að nefna
þá Július Brjánsson og Gisla
Rúnar Jónsson, en það eru þeir
sem myndin er af, og siðast en
ekki sizt skal til nefna Rióstrák-
ana sem kynna atriðin og tengja
saman. —Ló
Þ RIÐJUDAGUR
26. desember
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.30 Sunnan um höfin.
Dansflokkur frá Suðurhafs-
eyjum, fjórir piltar og fimm
stúlkur. Sýnir og kynnir
dansa og söngva frá
heimky nnum sinum .
Upptakan var gerð i sjón-
varpssal. Þýðandi Jón. O.
Edwald.
21.05 Torsóttur tindur. Mynd
um leiðangur brezkra fjall-
göngumanna, sem einsettu
sér að klifa næsthæsta tind
Himalaja-fjalla og völdu af
ásettu ráði erfiðustu leiðina.
Þýðandi Ellert Sigur-
björnsson.
20.00 Þegar dauðir upp risa.
Leikrit eftir Henrik Ibsen,
litið eitt breytt og staðfært.
Leikstjóri Per Bronken.
Aðalhlutverk Knut Wigert,
Lisa Fjelstad og Henny
Moan. Þýðandi Óskar
Ingimarsson. Leikurinn
gerist á hressingarhæli, þar
sem myndhöggvari nokkur
og kona hans dveljast. Þau
eru bæði leið á lifinu og
hjónaband þeirra i
megnasta ólestri. Á hælinu
hittir myndhöggvarinn
fyrrverandi fyrirsætu sina.
Þau rifja upp gömul kynni,
en sú upprif jun verður þeim
báðum örlagarik.
(Nordvision—Norska
sjónvarpið)
23.05 Dagskrárlok.
MÁNUDAGUR
25. desember
Jóladagur
16.30 Kristrún i Hamravik.
Leikrit eftir Guðmund
Gislason Hagalin. Leik-
stjóri Baldvin Halldórsson.
Persónur og leikendur:
Kristrún Simonardóttir-
Sigriður Hagalin, Anita
Hansen-Ingunn Jensdóttir,
Falur Betúelsson-Jón Gunn-
arsson, Jón hreppstjóri
Timótneusson-Jón
Sigurbjörnsson. Stjórnandi
upptöku Tage Ammendrup.
Áður á dagskrá 21. febrúar
1971.
18.00 Stundin okkar.
Jólaskemmtun i
sjónvarpssal. Nemendur úr
Arbæjarskóla flytja helgi-
leik. Glámur og Skrámur
spjalla saman. Umsjónar-
menn Ragnheiður Gests-
dóttir og Björn Þór Sigur-
biörnsson.
Illé.
20.00 Fréttir,
20.15 Veðurfregnir.
20.20 Kvöldstund i
s j ó n v a r p s s a 1. Ág ú s t
Atlason, Helgi Pétursson og
Ölafur Þórðarson taka á
mótijólagestum i sjónvarps-
sal. 1 þættinum koma fram
Þorvaldur Halldórsson,
hljómsveitin Trúbrot,
Stúlknakór öldutúnsskóla,
Jónas og Einar, Ein-
söngvarakvartettinn og
margir fleiri.
20.55 Vikingur og dýrlingur.
Mynd um Ölaf konung
helga, sem var við völd i
Noregi i rúman áratug á
öndverðri elleftu öld, en
vann sér þó meiri hylli
komandi kynslóða en flestir
aðrir konungar landsins.
Ólafur var vikingur á yngri
árum, en snerist til kristni
og hóf trúboð á Norður-
löpdum. Hann féll i orustu á
Stiklastöðum árið 1030, og
var tekinn i tölu helgra
manna rúmri öld siðar.
Sögu Ólafs konungs hefur
Snorri Sturluson ritað i
Heimskringlu sem kunnugt
er. Þýðandi Karl Guð-
mundsson. Þulir Hrafn-
hildur Jónsdóttir,
Höskuldur Þráinsson og
Karl Guðmundsson.
21.35 Eplavin með Rosie.
Brezkt sjónvarpsleikrit,
byggt á sögu eftir Laurie
Lee. Leikstjóri Claude
Whatham. Aðalhlutverk
Rosemary Leach og þrir
drengir, sem allir leika
sömu persónuna á misjöfn-
um aldri. Þýðandi Dóra
Hafsteinsdóttir. Leikurinn
lýsir uppvaxtarárum
drengs i ensku sveitaþorpi.
23.15 Að kvöldi Jóladags. Sr.
Sigurður Sigurðarson á Sel-
fossi flytur hugvekju.
23.25 Dakskrárlok.
SUNNUDAGUR
24. desember
Aðfangadagur jóla
14.00 Kréttir.
14.15 Þotufólk. Bandarisk
teiknimynd úr gaman-
myndaflokknum um Jón
Jetson og félaga hans.
Þýðandi Jón Thor
Haraldsson.
14.40 livolpajól. Teiknimynd.
Þýðandi Heba Júliusdóttir.
14.45 Lina Langsokkur
Lokaþáttur
myndaflokksins. Þýðandi
Kristin Mantyla.
15.05 Sliari Lcwis skcmmtir.
Brezkur skemmtiþáttur
með ýmiss konar gleðskap
og jólaefni. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir.
15.30 Jólasveinninn.
Teiknimynd. Þýðandi Heba
Júliusdóttir.
15.40 Snædrottningin Brúðu-
leikrit, byggt á samnefndu
ævintýri eftir H. C.
Andersen. (Nordvision —
Danska sjónvarpið). Þulur
Guðrún Ásmundsdóttir.
16.25 Jólasvcinarnir.Þáttur úr
sýningu Litla leikfélagsins
og Leikfélags Reykjavikur,
„Einu sinni á jólanótt"
Þátturinn er byggður á jóla-
sveinaþulu eftir Jóhannes
úr Kötlum. (Aður flutt i
Stundinni okkar á jólunum
1971)
16.40 lllé.
22.00 Aftansöngur jóla. Biskup
Islands, herra Sigurbjörn
Einarsson, þjónar fyrir
altari og predikar i sjón-
varpssal. Kór Háteigskirkju
syngur. Martin Hunger
stjórnar og leikur á orgel.
22.50 Tónleikar.
Kammerhljómsveit
Tónlistarskólans leikur
Branderborgarkonsert nr.
5, fyrir pianó, flautu og
strengjasveit, eftir Johann
Sebastian Bach. Stjórnandi
Björn Ólafsson. Einleikarar
Gisli Magnússon og Jón. H.
Sigurbjörnsson.
23.15 Dagskrárlok.