Vísir - 29.12.1972, Blaðsíða 6
6
Vísir. Finimtudagur 28. desember 1972,
VISIR
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjóri
Fréttastjóri
Ritstjórnarfulltrúi
Auglýsingastjóri
Auglýsingar
Afgreiðsla
Ritstjórn
Reykjaprent hf.
Sveinn R. Eyjólfsson
Jónas Kristjánsson
Jón Birgir Pétursson
Valdimar H. Jóhannesson
Skúli G. Jóhannesson
Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611
Hverfisgötu 32. Simi 86611
Siðumúla 14. Simi 86611 (7 linur)
Áskriftargjald kr. 225 á mánuði innanlands
i lausasölu kr. 15.00 eintakið.
Blaðaprent hf.
Brottför er ótímabær
Ef rikisstjórnin fer eftir þeirri kröfu Alþýðu-
bandalagsins að þoka varnarliðinu úr landi á kjör
timabilinu, gengur hún i berhögg við almennings-
álitið i landinu. Ný skoðanakönnun Visis, sem sagt
var frá i blaðinu á miðvikudaginn, sýnir, að enn
sem fyrr eru tveir þriðju hlutar íslendinga andvigir
þvi, að varnarliðið hverfi úr landi á kjörtimabilinu.
í september 1968 voru 63% andvigir þvi, að
varnarliðið færi brott ,,innan tiðar”. í október 1971
voru 67% andvigir þvi, að varnarliðið færi ,,á kjör-
timabilinu”. Og núna eru 68% andvigir brottför
varnarliðsins ,,á kjörtimabilinu”. Þetta eru ein-
dregnar niðurstöður, sem ekki verða dregnar i efa,
þótt ýmsar skekkjur geti verið i skoðanakönn-
ununum.
Þar með er ekki sagt, að almenningur vilji hafa
varnarliðið hér um aldur og ævi.Visir spurðii júli
1970 að þvi, hvort menn vildu, að varnarliðið færi
einhvern tima úr landi. Voru þá 55% andvigir brott-
förinni. Þetta bendir til þess, að menn skiptist nokk-
urn veginn i tvo jafna hópa i hinni almennu afstöðu
til varnarliðsins, þegar litið er til langs tima, en ein-
dreginn meirihluti manna vilji hafa það áfram enn
um sinn.
Almenningsálitið er raunsætt i þessu máli. Það er
afar eðlilegt, að menn vilji ekki lita á dvöl erlends
herliðs hér á landi sem varanlegt ástand. Aðstæður
i heiminum eru sifellt að breytast. Þær geta hæg-
lega breytzt á þann veg, að varnarliðið verði óþarft.
Og jafnframt kunna að opnast möguleikar á, að ís-
lendingar geti sjálfir tekið að sér eftirlit á svæðun-
um umhverfis landið, eins og margir hafa stungið
upp á.
Þess vegna er réttmætt, að stjórnvöld taki afstöð-
una til varnarliðsins til gaumgæfilegrar endur-
skoðunar, ekki aðeins i þetta sinn, heldur aftur og
aftur með vissu millibili. Við ölum þá von i brjósti,
að viðræðurnar um öryggismál Evrópu og vaxandi
samstarfsvilji austurs og vesturs efli friðarhorfurn-
ar i heiminum. En við erum lika nógu raunsæ til að
sjá, að þiðan, sem nú stendur yfir, þarf ekki að
hindra, að frostakaflar séu framundan.
öryggismálaráðstefna Evrópu, sem væntanlega
verður haldin á næsta ári, getur leitt til þess, að
austur og vestur fari smám saman að draga úr vig-
búnaði sinum með skipulegum hætti. Slik þróun er
forsenda þess, að við getum i alvöru farið að ræða
um brottför varnarliðsins. Hitt er einnig hugsan-
legt, að Bandarikjamenn verði svo þreyttir á stuðn-
ingi við bandamenn sina, að þeir telji ekki lengur
svara kostnaði að halda úti varnarliði hér á landi.
Að óbreyttu ástandi væri hreint flan að fara að ýta
varnarliðinu úr landi. Enn er engin reynsla komin
á, hve mikil alvara er á bak við yfirlýsingar ráða-
manna Sovétrikjanna um friðarvilja sinn. Meðan sú
reynsla er ekki fengin, eigum við ekki að fyrra
bragði að visa varnarliðinu brott. Mikill meirihluti
þjóðarinnar er sammála um þessa raunsæju af-
stöðu.
Einar Ágústsson utanrikisráðherra hefur lýst þvi
yfir, að ákvörðun um brottför varnarliðsins verði
ekki tekin, fyrr en að athugun lokinni. Sú stefna er
án efa i samræmi við vilja meirihluta stuðnings-
manna flokks hans. Ráðherrar Alþýðubandalagsins
hafa hins vegar lýst þvi yfir, að stjórnin standi og
falli með brottför varnarliðsins. Sú stefna nýtur
sjálfsagt meirihlutafylgis i þeim flokki.
En i þessu mikilsverða máli á þjóðin sem heild að
eiga siðasta orðið.
Milliónamœrinqurinn
HOWARD HUGHES
VARí MANAGUA
og slapp naumlega fró jarðskjálftunum
,,Milljónamæringurinn
ósýnilegi" — hinn leyndar-
dómsfulli Howard Hughes
— kann nú að vera til-
neyddur til þess að koma
fram fyrir almennings-
sjónir, en hingað til hefur
honum tekizt að hliðra sér
hjá því. — Það eru hartnær
tuttugu ár liðin, síðan hann
sást siðast á almannafæri.
Og það, sem helzt gæti
komið þessu í kring, er
ekki stór hlutur. Nefnilega
eitt lítið vegabréf og tólf
dollara gjald!
Howard Hughes þarf
nefnilega að fá sér nýtt
vegabréf.
Smáuppistand, sem varö á
þegar hótelið, sem hann bjó á i
Managúa, hrundi i jarðskjálft-
unum. beir foröuðu sér út úr rúst-
unum, og i tvo sólarhringa dvaldi
Hughes i hjálparbúðum, sem
skotið var upp fyrir bágstadda,
þar til einkaþota hans kom frá
Kaliforniu til þess að bjarga
honum.
Hópurinn flaug fyrst til Miami,
þar sem hvilzt var og skotið á
ráðstefnu. Siðan var flogið til Ný-
fundnalands, en þaðan yfir
Atlanzhafið ti! Shannon á Irlandi
og loks til Gatwickflugvallar.
Hughes vonaðist til þess að
smjúga inn i landið með sömu
leyndinni og hann hefur háft yfir
ferðum sinum undanfarin 20 ár.
En lormfastir vegabréfs-
skoðunarmenn spilltu þeim
áformum hans.
Leyniþjónustumenn frá þeirri
deild „Special Branch”, sem fer
með mál pólitiskra glæpamanna,
llvernig lloward llughcs lítur út i dag er ennþá ekki vitað, en þessi
mynd er frá árinu 1947, er hann kom fyrir nefnd öldungadeildar
Bandarikjaþings.
Gatwick-flugvelli fyrir utan
Lundúnir á miðvikudagsmorgun,
átti eflir að setja flestar frétta-
stol'ur á annan endann. Litil 14
sæta forstjóraþota hafði lent þar,
og með vélinni var maður, sem
ekki hafði vegabréf.
bað höfðu komið skilaboð eftir
diplómatiskum leiöum frá
Bandarikjunum, að i vélinni væri
amcriskur rikisborgari, vega-
bréfslaus að visu, en það þyrfti að
greiða götu hans framhjá vega-
bréfaskoðuninni, svo að hann
fengi að koma inn i landið. bað er
þó við ramman reip að draga, þar
sem eru annars vegar brezkir
tollþjónar og vegabréfaeftirlit,
og þá verður ekki framhjá þeim
komizt með þvi einu að veifa
hendi. bað upphófst stapp, þref
og töf við afgreiðslu þotunnar,
sem vakti athygli á flugvellinum
og barst til eyrna fréttamanna.
Og þá sprakk sprengjan!
betta var einkaþota Howards
Hughes, milljónamæringsins,
sem virðist ekki þola dagsljósið
og forðast fréttamenn eins og
pestina. botan var að koma frá
Managúa i Nicaragua, en það er
einmitt hald manna, að þar hafi
Hughes hafzt við.
Ekki höfðu blaðamennirnir
lengi þurft að spyrja, þegar þeir
þóttust fullvissir um að Howard
Hughes væri sjálfur i vélinni.
Lundúnablaðið Daily Express
hefur það eftir einum aðstoðar-
manna Hughes, John nokkrum
Eckersky, að milljónamær-
ingurinn hafi sloppið naumlega,
llllllllllll
ffl
tóku á móti vélinni, þegar flug-
stjórinn ók henni að dimmum
stað á Gatwick, þar sem einka-
flugvélar eru venjulega af-
greiddar. Vegabréf Hughes var
löngu útrunnið og þvi ógilt. En
fyrir beiðni, sem borizt hafði frá
yfirvöldum i Bandarikjunum, var
Hughes Hleypt inn i Bretland,
eftir að hann hafði sannfært vega-
bréfsskoðunina um, að hann væri
raunverulega sá, sem hann
gagðist vera. Á meðan höfðu að-
stoðarmenn Hughes haldið sima-
linum glóandi frá Gatwick til
Lundúna til þess ,,að liðka
fyrir”.
Hughes sækir annars illa að
Bretum um þessar mundir, þar
sem menn eru almennt mjög við-
kvæmir, þegar um er að ræða að
hleypa útlendingum inn i landið.
Vegna mikils umframboðs á
vinnumarkaðnum vilja Bretar
draga úr sókn útlendinga til
dvalar i landinu, en öðrum sýnist
ósanngjarnt að loka úti þegna
samveldisins eða fyrrverandi
samveldislanda, þaðan kemur þó
mestur fólksstraumurinn.
Nema Hughes var hleypt i gegn
og með miklu irafári stjakað inn i
Rolls Royce-drossiu, sem beið
ásamt heilum bilaflota, og ekið i
snarhasti á brott. Gluggar
bilanna voru myrkvaðir, svo að
ekki sæist inn.
Blaðamenn voru hindraðir i þvi
að fylgja bilalestinni eftir, en með
þvi að njósna um hótelin i
Lundúnum komust þeir á snoöir
um það, að ,,N.M. Rothschild” -
Umsjón:
Guðmundur Pétursson
viðskiptabanki Hughes i
Lundúnum — haföi tekið á leigu
heila álmu i lúxusgistihúsinu,
,,Inn of the Park”. Og það stóð
heima, að þessi álma var vand-
lega einangruð, allar dyr harð-
læstar — jafnvel eldvarnarút-
gangar — og þeirra vandlega
gætt. Eini aðgangurinn, sem
opinn var til umferðar, var út-
búinn dyrasima, og óþekkt rödd,
sem svaraði i simann, neitaði að
hleypa nokkrum inn og vildi
ekkert kannast við, að þar væri
neinn Howard Hughes.
„Milljónamæringurinn ósýni-
legi” var aftur kominn i felur.
En það vöknuðu aftur vonir hjá
fréttanjósnurunum, þegar þeir
fréttu hjá bandariska sendiráðinu
i Lundúnum, að frá Washington
hefði komið ábending til Hughes
um að honum væri fyrir beztu að
endurnýja vegabréfið sitt. Og
sendiráðsmenn sögðu, að til þess
þyrfti Howard Hughes að koma til
sendiráðsins, fylla út umsóknar-
eyðublað og greiða 12 dollara
gjald.
,,Rétt eins og allir aðrir þurfa
að gera. Út af þvi hefur aldrei
nokkurn tima verið breytt, svo að
mér sé kunnugt um”, sagði tals-
maður sendiráðsins. ,,beir koma
alltaf til okkar. Við förum aldrei
til þeirra”.
barna eygðu menn góðar vonir
til þess, að loks yrði Howard
Hughes að sýna sig.
En það er hreint ekki svo ein-
falt. Hughes þarf nefnilega ekkert
vegabréf til þess að vera um
kyrrt i Bretlandi, eftir að hann er
einu sinni kominn inn ilandið.Og
hann þyrfti ekki á þvi að halda
heldur til þess að komast til
Bandarikjanna, ef hann getur
sannað rikisborgararétt sinn með
öðru móti.
Hann þarf þvi aðeins á þvi að
halda, að hann ætlaði til annars
rikis, sem ekki væri jafnstima-
mjúkt og Bretland að hleypa
honum inn fyrir landamærin
vegabréfslausum.
Svo að horfur eru á þvi, að
Howard Hughes geti enn farið
huldu höfði án þess að rjúfa
venju sina hann er enn einusinni
sloppinn úr greipum fréttamann-
anna, sem hafa verið á Slóð hans
tugi ára.
bó er hann ekki alveg búinn að
bita úr nálinni með það að
komast vegabréfslaus til Bret-
lands.
bingmenn Verkamannaflokks-
ins hafa sumir mótmælt þessari
sérmeðferð, sem milljónamær-
ingurinn hlaut. Einn jjeirra, John
Grant, sagðist mundu vekja máls
á þessu i þinginu: „Manni sýnist
þetta hreint og beint fáránlegt,
að láta undan duttlungum sér-
vizkulegs milljónamærings,
meðan venjulegt ferðafólk má
þola ýmsar tafir og óþægindi,
þegar það kemur til landsins”.
Grant sagði, að rikisstjórnin
(Ihaldsflokksins) væri að undir-
búa sérstakar inngöngudyr, þar
sem mönnum væri hleypt inn i
landið, „eftir þvi hve stórar
bankainnistæður þeirra eru”.
bó er ekki liklegt, að stjórnar-
andstöðunni takist að kynda slika
elda undir rikisstjórninni úr
þessum eldivið, að hún neyðist til
þess að krefjast þess, að Hughes
sýni vegabréf sitt.
Hver veit þó?