Vísir - 26.01.1973, Side 1
vísm
63.árg.— Föstudagur 26. janúar 1973 — 22. tbl.
Ekkert Brekkukot á
Á mánudagskvöid átti að
frumsýna kvikmyndina um
Brekkukotsannál i sjónvarpinu
eins og kunnugt er. Þvi hefur nú
fyrirvaralaust veriö frestað og
er ekki ákveðið hvenær myndin
verður sýnd hér á landi. — A
menningarsföu er viðtal við Rolf
Hadrich, leikstjóra kvik-
myndarinnar, þar sem hann
gefur islenzkum tæknimönnum
sjónvarps góða einkunn, en er
minna hrifinn af skiptum sinum
við yfirmenn sjónvarpsins.
mánudag
Frumsýningin mun verða 12.
febrúar, a.m.k. er stefnt að þvi.
Jón Þórarinsson, dagskrár-
stjóri, er farinn til Hamborgar á
frumsýninguna, sem átti að
verða i kvöld, en ekki er ljóst
hvort af henni veröur.
— SJABLS. 7
„Trúi, að
talsvert
verði eftir
af bœnum"
— segir Sigurður
Þórarinsson
„Ég er ekkert bjartsýnn á
þetta gos persónulega, sagði
Sigurður Þórarinsson, jarð-
fræðingur I morgun. „Auðvit-
að halda menn i vonina i
lengstu lög, en ekki heid ég, að
Vestmannaeyjar verði með i
spilinu I þessari vetrarútgerð.
Ég tel þó, að möguleikar
hljóti að vera á að byggja upp
aftur. Þótt höfnin færi, mætti
byggja nýja höfn. Ég trúi þvi,
að talsvert verði eftir af bæn-
um, þegar þessum ósköpum
lýkur.
Gosið gengur nokkuð nor-
malt, eins og eðlilegast er um
slik gos. Það gæti haldið
áfram með þessum hætti um
hríð, kannski eitthvað dregið
úr þvi, en varla unnt að spá
um það, segir Sigurður. —HH
Margir vilja
fó Eyjamenn
í vinnu
Mjög margir hafa orðið til
aö bjóða Vestmannaeyingun-
um vinnu hér á meginiandinu,
en sem vonlegt er, hafa fáir
enn byrjað aö leita sér aö
starfi. Fólk er hvorki búið að
koma sér fyrir ennþá,né hefur
það gefið upp alla von um að
komast heim bráðlega.
Vinnumiðlun hefur enn ekki
verið opnuð, en að sögn þeirra
Jónasar Guðmundssonar og
Garðars Júliussonar, sem
voru að vinna i Hafnarbúðum i
morgun, þá hefur veriö hringt
víðsvegar að af landinu og
ýmsir aðilar falast eftir Eyja-
búum til vinnu.
„Fólk er ekki komið i sam-
band ennþá, held ég,” sagði
Jónas. „Það er ennþá að átta
sig á ástandinu og sjá til hvort
ekki rætist úr hlutunum. Það
verður liklega ekki fyrr en eft-
ir næstu helgi, aö fólk fer að
lita i kringum sig eftir at-
vinnu.” —LO
Svíar leggja lið
— safna fé til
styrktar Vestmanna-
eyingum
Sænska dagblaðið Göten-
borgs-Posten hóf i gær söfnun
til styrktar Vestmannaeying-
unum. Þetta blað mun vera
stærsta dagblaö Sviþjóöar
utan Stokkhólms, með upplag
nálægt hálfri milljón.
Að sögn Axels Miltander,
hjá Götenborgs-Posten, varð
strax mjög mikil hreyfing I
sambandi við söfnunina.
Gamall maður kom i gær eftir
að blaðið kom út, með 1000
krónur sænskar, sem er ná-
lægt 20 þúsund islenzkum.
Siminn þagnaði varla á
ritstjórninni vegna fólks, sem
hringdi til að spyrja nánar um
söfnunina og tilkynna sin
væntanlegu framlög. —LÓ
SAUTJÁN HÚS BRENNA
— Róðgert er að allir yfirgefi Heimaey upp
úr hódeginu í dag nema björgunarmenn
Enn brenna hús í Eyjum.
Nú síðast þrjú fyrir vestan
Suðurver svokallað. Öll
fremur ný. Fimm voru
að minnsta kosti vitað um
eitt eða tvö, sem voru að
brenna. Annars mun vera
orðið illmögulegt að gera
sérgrein fyrir hversu mörg
hús hafa nú orðið hrauni og
eldi að bráð, en nefnd er
talan 17.
Rétt fyrir hádegi fékk blaðiö þær
upplýsingar frá fréttamönnum i
Eyjum, að breytt hefði þannig um
vindátt, að vikurinn leggur ekki
eins yfir miðbæinn.
Jarðýtur puðuðu við að ryðja
braut þeim bilum, sem aka þeirri
búslóö, sem menn fá að hafa með
sér um borð i skipin. Og eins
þurfti aö vera hægt aö aka nokkr-
um bilum niður að skipi sem flytti
þá af stað til lands um klukkan
eitt.
Vikurlagið er taliö vera jafn-
falliö á að gizka 30 til 40 senti-
metrar upp i 1. metra háar
hrúgur þar sem hruniö hefur af
húsþökum og þar sem að nær er
gosstöövunum.
Klumparnir, sem borizt hafa
niöur i bæinn eru allt upp undir
hnefastórir og ullu sársauka
þegar þeir féllu á axlir manna i
nótt.
Hinn griðarlegi gufustrókur,
sem jafnvel sást héðan úr höfuð-
borginni, fer af stað þar sem
hraunið rennur til norö-austurs út
úr gignum og út úr gigopinu þar
sem það er.
Hraunið rennur hvergi, og
stefnir hvergi, i átt að innsigling-
unni, heldur leitar það öllu frekar
til austurs.
Óhugnanlegan vikurstrók
legguryfir Helgafell og hrynur úr
mekkinum yfir efstu byggðina á
Heimaey.
Útlitið var oröið mjög iskyggi-
legt á miðnætti i nótt og héldu þá
margir af stað til lands. Siöan var
ákveðið i morgun að allir, sem
eftir væru, skyldu koma sér af
eynni fyrir klukkan eitt. Aöeins
Hjálparsveitarmenn skyldu
verða áfram en þeir eru um eitt-
hundrað talsins.
Staöið var i flutningum fram á
siðustu stundu. Kindur voru
fluttar með flugvélum, en hús-
búnaöur niður i miðbæinn. Var
búið aö flytja innbú húsanna i
austurbænum og er það mest-
megnis geymt i og við Fiskiðju-
verið, það sem siöast hefur veriö
flutt.
Að sögn fréttamannanna i
Eyjum er einstakt áð virða fyrir
sér Dalfellið, sem öðru hvoru er
hvitt af snjó, en annarsvegar er
svo hið nýja fjall, sem logar i og
bullar, og sendir frá sér svarta
vikurstróka.
Sannkallað land sýnishorna af
veðri og náttúruöflum, Islandið
okkar.
—EA/ÞJM
brunnin i gær, en í nótt var
Gosstrókurinn og mökkurinn voru tignarlegir I veðurbliöunni eftir birtingu I morgun. Mynd þessa tók
Bjarnleifur kl. 11 i morgun. .
AÐSTOÐUM EKKI VIÐ AÐ
FLYTJA BURT ATVINNUTÆKI
— segir Magnús Magnússon, bœjarstjóri í Eyjum. Stefnt að því að
bœjarlífið verði sem nœst óbreytt, þegar gosinu lýkur.
Nei, ég er alls ekki svo svart-
sýnn aö ég telji hættu á þvi, aö
byggð leggist af i Eyjum. Þvert á
móti leggjum við nú höfuðáherzlu
á það, að lifið geti hafizt hér af
krafti um leið og gosið hættir, eða
jafnvel fyrr, sagði Magnús
Magnússon bæjarstjóri Vest-
mannaeyja i viðtali við Visi i
morgun.
Magnús sagði, að samþykkt
hefði verið í bæjarstjórn Vest-
mannaeyja, að stuðla ekki að þvi
að menn flyttu atvinnutæki, vélar
og annað frá Eyjum. Raddir hafa
komið upp um það, að flytja eigi
vélar og tæki i burtu, sagði
Magnús. Við getum auövitað ekki
bannað þeim, sem eiga atvinnu-
tæki, að flytja þau burtu, en okkar
tæki verða ekki notuö i þvi skyni.
Við munum gera það, sem i
okkar valdi stendur, til að koma i
veg fyrir, að Vestmannaeyingar
týnist uppi á meginlandinu.
Þannig ætlum við t.d. að reyna að
koma þvi þannig fyrir, að bekkja-
deildir héðan verði sem mest
óskertar, þó að kennsla hefjist i
þeim á höfuðborgarsvæðinu,
sagði Magnús. Þá hefur komið
fram, að útvegsbændur héðan
leggja áherzlu á það, að allir út-
vegsmenn fái fyrirgreiðslu eða
enginn. 1 samningum sinum við
frystihús i landi setja þeir þann
fyrirvara, að þeir haldi til Eyja
með aflann um leið og verður
fært.
Við ætlum að hafa fiskimjöls-
verksmiðjurnar og aðrar fisk-
vinnslustöðvar tilbúnar hérna,
þannig að þær geti farið af stað
um leið og það verður fært, sagði
Magnús. Eftir þvi, sem lengra
liður frá þvi að gosið hófst, þeim
mun meiri likur eru á, að ösku-
fallið minnki og er þá hugsanlegt
að hefja fiskvinnslu, þó að gosið
sé ekki hætt.
Magnús sagði, að nú hefði verið
ákveöið að láta alla þá, sem
ekki hafa bráðnauðsynlegum
skyldustörfum að gegna, fara frá
Eyjum. Seinna i dag er ætlunin að
athuga,. hvort unnt verði að leyfa
fólki að koma og sækja bila sina
og smámuni. Hér var alls ekki lift
i nótt og hætta þvi á ferðum, sagði
Magnús. —VJ