Vísir - 26.01.1973, Side 5

Vísir - 26.01.1973, Side 5
Vísir. Föstudagur 26. janúar 1973 5 AP/NTB ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson RUSL í SJÓNUM Ilúmlega 35 milljón plastflöskur eru á reki i norðurhiuta Kyrrahafs- ins, fullyrða sex banda- riskir haffræðingar i skýrslu, sem þeir hafa nýlega sent frá sér. Þeir töldu allt rusl, sem þeir sáu á reki á ferð sinni i ágúst i fyrra um 156 ferkilómetra haf- flæmi. En það vill segja, að þeir hafi fundið að meðaltali eina og hálfa plastflösku á hverjum fer- metra. „Jafnvel þótt þetta kynni að hafa verið oftalið,” sögðu haf- fræðingarnir, ,,þá er hryllilegt að hugsa til þess, að við fundum rusl og úrgang 1000 kilómetra frá næstu mannabyggð.” Leiðangur þeirra var þó farinn utan við aðalskipaleiðir. Þessar athuganir rifja upp það, sem Thor Heyerdahl varð áskynja á ferðum sinum á Ra. Hann hélt þvi fram, að sjórinn væri orðinn eins og skolpræsi, fullur af oliuklumpum, plast- flöskum og öðru rusli. Nixon fyrirgefur ekki Liðhlauparnir fá ekki uppgjöf saka í vopnahléinu Vopnahléssamkomu- lagiö/ sem náöst hefur F Víetnam, mun þó ekki hafa það í för með sér, að þær þúsundir ungra Bandarikjamanna, sem leitað hafa hælis erlendis til þess að komast undan herþjónustu, geti snúið heim strax við svo búið. í kosningunum i fyrra gerði Nixon forseti það ljóst, að hann væri ekki á þeim buxunum að gefa liðhlaupum upp sakir. Engar ákveðnar tölur liggja fyrir um, hve margir Banda- rikjamenn flúöu úr landi, en varnarmálaráðuneyti Banda- rikjanna skýrði frá þvi, að 1. ágúst 1972 hefðu 2.391 liöhlaupar verið staddir erlendis. Striðsandstæðingar i Kanada fullyrða, aö meira en 60.000 Bandarikjamenn, sem ýmist hafi flúið herkvaðninguna eða strokið úr hernum, séu staddir þar i landi. Fleiri hundruð liö- hlaupa búa i Sviþjóð. Þingmenn fulltrúadeildarinn- ar hafa áður látið á sér skilja, að strax og friður væri fenginn, mundu þeir beita sér fyrir þvi, að liðhlaupum yrðu gefnar upp sakir. En áðuren þeir hafa gert þær ráðstafanir, sem til þurfa, eiga liðhlaupar refsingu yfir höfði sér. Varnarmálaráðuneytið upp- lýsir, að alls gangi enn 32.557 liðhlaupar lausir. í það heila höfðu 423.422 gerzt liðhlaupar, en 390.865 (eöa 92,3%) sneru aft- ur. Um það bil 24% liðhlaup- anna voru útlendingar, sem sneru aftur til ættjarðar sinnar, þegar þeir sáu fram á herþjón- ustuna. En útlendingar, sem fengið hafa innflytjendaleyfi i Bandarikjunum, verða að sinna herskyldu, ef þeir eru kvaddir til. Friðorverðlaun Nóbels fyrir Richard Nixon? Sœnska akademían fœr uppóstungur fró bandarískum þingmönnum Sænsku akademiunni hafa borizt tvö bréf frá bandariskum þing- mönnum, þar sem lagt er til, að Richard Nixon forseta verði veitt friðarverðlaun Nóbels fyrir árið 1973. Þingmennirnir telja i bréfum sinum liklegt, að akademiunni eigi eftir að berast fleiri slikar uppástungur. Þingmenn eru meðal þeirra, sem hafa rétt til þess að stinga upp á hugsanlegum verðlauna höfum, og fulltrúadeildarþing- maðurinn Vernon Thomson, republikani frá Wisconsin, fór i gær að dæmi flokksfélaga síns, Henry Belmon, öldungadeildar- þingmanns. Hafa báðir i bréfum sinum til akademiunnar talið Nixon óvéfengjanlega verðugan friðarverðlaunanna, eftir ferðir hans til Peking og Moskvu, og svo friðarsamningana i Viet nam. Thomson kallað heimsóknir Nixons sannanir fyrir þvi, að forsetinn væri staðráðinn i bvi að beita valdi og áhrifum Bandarikjanna til þess að koma á friði i heiminum og tryggja sjálfsákvörðunarrett þjóða. Bellmon, öldungadeildarþing- maður, hafði i sinu bréfi á mið- vikudag talið, að Nixon forseti i viðleitni sinni til að koma á friði iheiminum, tæki öðrum þjóðar- leiðtogum langt fram á þessari öld. Þessi hugmynd hefur áður skotið upp kollinum, þegar timarit i New York varpaði henni fram og fékk þá stuðning Hugh Scott, formanns þing- flokks republikana i öldunga- deildinni. Eftir að Willy Brandt fékk friðarverðlaunin fyrir framlag sitt til að draga úr spennunni milli austurs og vesturs i Evrópu, hafa augu manna beinzt að Nixon. Bent er á, að Nixon hafi tekizt að mynda þau tengsl milli Bandarikjanna og Kina, sem enginn hefði trúað fyrir tveim árum að væru möguleg. Ennfremur er bent á, að honum hafi tekizt að binda endi á Viet- namstriðið, sem hefur staðið frá þvi i lok seinni heims- styrjaldarinnar. Bardagarnir harðna 112 árásir í Víetnam síðasta sólarhring. Einn bandarískur her- maður var drepinn og tuttugu og einn særður í eldflaugaárás, sem gerð var á Bien Hoa-f lugvöllinn um 25 kílómetra norður af Saigon seint í gærkvöldi. Rúmlega 20 rússneskar eldflaugar hæfðu flug- stöðina. M.a. byggingar t grennd við lendingarbraut, sem notuð er af orrustuþot- um flotans. Flestir þessara Bandarikja- manna, sem særðust, voru óbreyttir borgarar, sem unnu að viðhaldi og rekstri flugstöðvar- innar — en voru ekki skráðir her- menn. Flestum þessara 23.000 Banda- rikjamanna, sem enn eru eftir i Vietnam, hefur verið komið fyrir á stöðum, þar sem varnir eru taldar traustastar — eins og t.d. i Bien Hoa. En það hefur verið gert til þess að draga úr hættunni á mannfalli þessa siðustu daga, sem þeir eiga eftir að vera i Viet- nam. Það er öllum ljóst orðið, að Norður-Vietnamar og skæruliðar Viet-Cong hafa mjög hert sókn sina þessa siðustu sólarhringa, áður en vopnahléð gengur i gildi, til þess að auka við yfirráðasvæði sin. Tiu suður-vietnamskir borgar- ar létu lifið og aðrir tiu særðust i annarri eldflaugaárás, sem kommúnistar gerðu á herstöðina við Da Nang. Alls skutu kommúnistar 18 eldflaugum að stöðinni. A siðasta sólarhring bárust fréttir um 112 árásir viðsvegar i Suður-Vietnam, en harðastir hafa bardagarnir verið rétt sunnan við hlutlausa beltið, sem samkvæmt gamla Genfarsamkomulaginu átti að skilja að Norður- og Suður- vietnam. leyst í Belgíu Lokið er nú tveggja mánaða stjórnarkreppu Belgiu, eftir að Emond Leburton tilkynnti i gær- kvöldi, að hann hefði myndað þriggja flokka rikisstjórn. Leburton, sem er socialisti, kunngerði þessi tiðindi eftir að hann hafði notið áheyrn- ar Baudouins konungs, til þess að fá samþykki hans fyrir stjórnar- myndun. Rikisstjórn Leburtons verður samsteypa þriggja stærstu flokka landsins, — socialista, kristilegra socialista og frjálslyndra. Rikis- stjórn Belgiu er skipuð 36 mönn- um — 22 ráðherrum og 14 ráöu- neytisstjórum. Stjórnarlaust er búið að vera i Belgiu siðan i nóvember, þegar samsteypustjórn Gastons Eysk- ens sagði af sér, en hún saman- stóð af socialistum og kristilegum socialistum. Þessi mynd var tekin af þeim tveim, Le Duc Tho og Henry Kissingcr, þegar þeir kvöddust með brciðu brosi og þcttu hand- taki eftir siðasta fund þeirra i Paris. Markinu var loks náð. Stjórnarkreppan

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.