Vísir - 26.01.1973, Síða 7

Vísir - 26.01.1973, Síða 7
Visir. Föstudagur 26. janúar 1973 7 sé? Hefur nokkuð á það reynt? I þessu gosi eins og öðrum, sjá- um við, að hópar visindamanna koma á vettvang með allskyns mælitæki. Þeir framkvæma við- tækar efnafræðilegar og eðlis- fræðilegar mælingar. Ekki skal dregin i efa visindalega gagnsemi aðgerða þeirra. En að undan- förnu hafa orðið svo mörg eldgos svo lærdómsrik og vel rannsökuð, að ekki eru orðnar miklar likur til að fleiri eldgos bæti neinum veru- legum fróðleik við. Þeir segja lika að þetta nýja gos sé visindalega ósköp likt siðasta Heklugosi og siðasta Surtseyjargosinu. Það sem er nýtt við Heima- eyjargosið er að stórri og blóm- legri byggð er ógnað. Vegna þeirrar sérstöku aðstöðu finnst mér gefið mál, að eldgosa- rannsóknir nú eigi að beinast inn á nýjar brautir, sem lika eru lang mikilvægastar og raunhæfar, — hvaða ráðum sé hægt að beita til að verja byggð eldgosi og hraun- straumum. Þetta ætti að vera aðalatriðið og það er svo stórkost- lega mikilvægt fyrir þjóð sem býr i eldfjallalandi, að ekkert má til spara. Auðvitað mætir maður þá strax vantrú og þar að auki ekki nógu sterkur á þekkingar- svellinu. En margar hugmyndir fljúga um hugann, — er hægt að sprengja gigbarma og hraun- veggi til að ráða stefnu hraun straums, er hægt að kæla hraun- rennsli á vissum stöðum með vatni til að mynda storkinn vegg, er hægt að reisa stálveggi eða hlaða garða úr stórvöxnu grjóti og salla likt og hafnargarðinn við Grindav. myndi kannski þýða til öryggis að grafa djúpa skurði i slakkanum fyrir ofan byggðina til að sveigja hugsanlegan hraun- straum til hliðar, og myndi e.t.v. þýða að senda dýpkunar'Skip til að grafa hraunrennsli rauf eða farveg á hafsbotni, svo sjórinn taki við meiru og rennslið haldi lengur áfram i austurátt, gæti hugsazt að enn öflugri dýp- kunarskip fengjust erlendis frá. Það má vera að allt þetta yrði kallað vonlaust þvi að verk mannanna séu svo óendanlega smá móti ægistærð og veldi náttúruaflanna. En þessi miklu öfl standa stundum á einkennileg- um skilum jafnvægisstangar og smáhreyfing við skriðu eða hraunstraumi getur leyst marg- faldan kraft úr læðingi með þvi að beina einum steini i vissa átt eða taka burt litla völu sem fyrir stendur. Hvi ekki að reyna? Við sem höfum svo sjálfumglaðir verið að dást að þvi stundum hvi- lik risamannvirki séu fram- kvæmd með fullkomnustu vél- tækni. Væri nú ekki nær að flytja stórvirkar gröfur, krana, ýtur og stórvaxna flutningakagga og birgðir af sprengiefnum til Eyja til að taka upp baráttu heldur en að flytja einkabila i land til að halda áfram flóttanum. Það hefur lika fengið á okkur, að sjá hvernig hraunsletturnar hafa kastazt lengar leiðir og kveikt i húsum og enginn þorir að koma nærri til slökkvistarfa af hræðslu við sletturnar. Er samt ekki hægt að finna einhver ráð við þvi, eru ekki til brynvarðir vagnar sem þola jafnvel kröftugustu sprengikúlur við brynvörn sina og yfir þá mætti þar að auki setja hlifðarþekjur til að bera fram brunaslöngur og berjast við eldinn. Eru ekki jafn- vel til skriðdrekar á Keflavfkur- flugvelli sem nota mætti til þeirra hluta og taka upp vatnsbyssur i stað fallbyssna i skotturnana. Það er lika undarlegt að ekkert skuli hafa verð leitað til varnar- liðsins á Keflavikurvelli, einu skipulegu herflokkanna hér á landi, sem auk þess eru þjálfaðir til að flýja ekki undan hættum. Ætti það ekki að vera óhætt núna pólitiskt þegar þeir eru einmitt hættir að berjast i Vietnam. Þar eru auk þess menn þjálfaðir i not- kun sprengiefna og spurning hvort fallbyssur þeirra gætu ekki komið að gagni til að hafa úrslita- áhrif á rennsli hrauns, er það tvi- nónarviðtil hvorrar handar skuli renna. Hér er kannski fávislega talað en það er skylda að reyna allt. Hér er ekki einungis um að ræða að bjarga einu eða tveimur hús- um i Vestmannaeyjum, heldur upp á framtiðina aö afla sér reynslu i hvað hægt sé að gera til að verja byggð gegn eldgosum. Ég gæti vel hugsað mér að dr. Sigurði Þórarinssyni sem unnið Það er eins hér og annars stað- ar, að það eru ekki alltaf réttir menn á réttum stöðum. Ég hef litið haft af ráðamönnum islenzka sjónvarpsins að segja, en það hefur einhverja stjórn, er það ekki? Ég veit þó allavega að það er til sem stofnun. Ég veit ekki til að stjórnendur sjónvarpsins hafi látið svo litið að spyrja eftir heilsu minni þegar ég lenti i bil- slysi hér og varð að liggja á sjúkrahúsi. En einmitt þá fann i hlýhug margra annarra. Þegar við komum til landsins að hefja kvikmyndatökuna var Jón Þórarinsson, yfirmaður is- lenzka sjónvarpsins i frii, og var ekki hægt að ná af honum tali. Hugsa sér, þegar á að fara út i fyrirtæki sem kostar gifurlegt fé, þá er forstöðumaður þess hvergi nærri. Ég veit bara að þetta gæti ekki skeð i Þýzkalandi. Raunar hef ég ekkert séð af þessum manni nema reikninga sem hann hefur sent okkur Þjóðverjunum. En Sveinn Einarsson reyndist mér ómetanleg hjálparhella og hann á ekki litinn heiður af þvi hve verkið heppnaðist vel. — Þú ert sem sagt ánægður- með árangurinn? Það er bæði alvara og kæti i þessu verki eins og öðrum verk- um Laxness og ég geri mér stórar vonir um þessa kvikmynd. Tæknimenn og leikarar unnu sin störf mjög vel. Halldór Laxness og Jón Laxdal veittu mér geysi- mikla hjálp og aðstoð. Ég held, að þessi kvikmynd sé ekki siður fyrir ungt fólk en það sem komið er á fullorðins ár. Ég býst við að um 30 milljónir manna muni sjá mynd- ina i sjónvarpi i Þýzkalandi, og vafalaust verður hún tekin til sýningar i öðrum löndum. Læknaðist i Moskvu Nú fer Rolf að ræða um islenzk skáldrit sem hann hefur komizt i kynni við: — Mig langar mikíð til að kynna hin fögru ljóð Steins Stein- arr. Sérstaklega er ég ánægður með ljóðið Kreml, enda höfum við Steinn þar sömu sögu að segja. Sjálfur fór ég sjúkur af hrifningu til Moskvu, en kom læknaður til baka úr þeirri för. Þá hef ég kynnt mér verk Halldórs Laxness og ennfremur hef ég lesið nokkuð eftir Kristmann. Nú erum við Jón L.axdal að þýða i sameiningu Dúfnaveizluna og einnig Domino eftir Jökul Jakobsson en það leik- rit hafði sterk áhrif á mig. Vera min hér á fslandi hefur verið mikið ævintýri, og ég er að byrja á að skrifa greinarflokk um hana i Akzente i MUnchen. Fyrstu kynni min af tslandi voru þegar ég gerði kvikmynd um islenzka hestinn erlendis, og siðan hef ég haft áhuga á landinu. Ekki minnkaði hann þegar ég komst i kynni við Jón Laxdal. Hann er frábær leikari og samstarfsmað- ur, og alltaf er gott að vinna með mönnum sem ekki eru haldnir þeirri firru að þeir hafi fundið upp filmuna. Rolf Iladrich — íslenzkir tæknimenn fá góða einkunn Áhugi á íslandi — Hvað heldurðu um undirtekt- ir i Þýzkalandi? ' Sá mikli áhugi sem nú rikir á tslandi, bæði vegna skákeinvigis- ins og landhelgismálsins verður ábyggilega tii þess að auglýsa hana mikið. Laxness er talsvert þekktur i Þýzkalandi, og ég hef þá trú að margir verði forvitnir að fylgjast með Brekkukotsannál. Þetta er myndræn og spennandi kvikmynd, og ég geri mér stórar vonir um hana eins og ég sagði áðan. Fæstir sjónvarpsnotendur eiga litasjónvarp, ég veit ekki hvort það er nokkuð verra að sjá myndina i svart-hvitu. Litirnir beina oft athygli fólks að natural isma sem ekki er nauðsynlegt i þessu tilfelli. Og áfram höldum við að spjalla vitt og breitt. Þrátt fyrir von- brigði leikstjórans vegna af- skiptaleysis ráðamanna sjón-' varps, hælir hann mörgu og gefur islenzku tæknimönnunum góðar einkunnir. Nú liður að kvöld- matartima og Rolf verður alvar- legur á svip: Heyrðu, það vantar algjörlega hótel i þennan bæ sem býður uppá jafngóðan mat og islenzkar hús- mæður búa til, segir hann og dæs- ir mæðulega. Að siðustu leggur hann áherzlu á nauðsyn þess, að við varðveit- um landið óspillt sem lengst. Það séu auðæfi sem ekki verði metin til fjár. — Mér likaði sérstak- lega vel að vinna með unga fólkinu, sem margt hefur frábæra hæfileika fyrir þetta starf. Það var ekki hægt að finna hjá þvi neinn rangan metnað eða hroka, það var aðeins blátt áfram og elskulegt. Mig lang ar mikið til að gera kvikmynd um nútima ísland. Þetta er siðasta eyjan þar sem hið mannlega skiptir miklu máli. Svo sagði Rolf Hadrich, hinn þýzki leikstjóri Brekkukotsannáls i samtali við Visi skömmu áður en hann hélt af landi brott. Eins og rækilega var frá sagt átti að frumsýna fyrri hluta myndarinn- ar hér á landi á mánudagskvöld — en nú hefur þvi veriö frestað á siðustu stund. Rolf er enginn byrjandi i kvik- myndastjórn. Hann hefur haft þann starfa á hendi i ein 17 ár og gert milli 50 og 60 kvikmyndir. Eftir að vinnu við Brekkukot lauk fór hann að vinna við gerð kvik- myndar um spánska rannsóknar- Or Brekkukotsannál: Gúðmún- sen kaupmaður, Garðar Hólm, Björn i Brekkukoti og Alfgrimur litli á hlaðinu. réttinn, myndin byggð á sögu Jerzy Andrejevski. Hann segist hafa haft hug á að verða rithöf- undur, en hafi siðan valið kvik- myndina sem tjáningarform i stað orðsins listar. Brekkukotsannáll og Islenzka sjónvarpið En Rolf fér fljótt að tala um Brekkukotsannál og kvikmynd- unina og ber margt á góma. — Hvernig likaði þér samstarf- ið við islenzka sjónvarpið? cyyienningarmál Rœtt við Rolf Hadrich, leikstjóra Brekkukotsannóls: Ekki alltaf réttir menn á réttum stððum eftir Sœmund Guðvinsson hefur svo frábært starf við visindalegar rannsóknar á eld- gosum, yrði nú fengið tækifæri til að flytja þekkingu sina inn á raunhæft svið og hann yrði skipaður fyrsti hershöfðingi okkar i fyrstu styrjaldaraðgerð- um okkar við eldhraun. Sálrænt er það mikilvægast fyrir okkur móti slikum náttúru- hamförum að efla viðnámið. Mér fannst sorglegt þegar sú mikla kempa Einar riki fór að segja i Timanum, að engin atvinnustarf- semi yrði i Eyjum i vetur. Mig hefði langað meira til að sjá hann herða upp hugann og hrópa her- hvöt um að staðið skyldi meðan stætt væri, jafnvel meðan gosið stæði yfir skyldi gera allt hið ýtrasta til að halda við atvinnu- starfsemi. Fara að eins og Bjarni i Garðshorni til að byrja bara i rólegheitum að sópa stéttina. Þetta er nú mikilvægasta at- riðið i öllum Vestmannaeyjamál- um að koma upp þvi viðnámi, sem hver striðandi þjóð verður að sýna á neyðarinnar stund. Og við þetta þarf aðstoð hins opinbera fyrst og fremst að miðast. Það verður þvi erfiðara að snúa til baka eftir þvi sem lengra liður. Eittmeginatriðiðerað tryggja og ábyrgjast fjárhagsgrundvöll við- reisnarstarfs og þjónustu. Þó bankastofnanir hafi flutt sin plögg til varðveizlu i Reykjavik, er fyrsta skylda þeirra að reyna að starfa áfram i Eyjum og sama gildir um hverskonar þjónustu- starfsemi, þar þarf að hafa opna verzlun, bensinstöð, simstöð, matsölur, i stuttu máli leggja aftur grundvöllinn að þvi að sam- félag geti starfað þar og barizt sameiginlega gegn hættum og erfiðleikum. Og það þarf að flytja þangað stórvirk grafar- og jarð flutningatæki og stofna nýja tegund brunavarna. Ef einhver bátur skyldi nú fá loðnu fyrir Austurlahdi, þá væri það stærsta hjálpin við Vestmannaeyjar að koma gegnum öskureykinn og landa farminum til vinnslu svo hjólin fari aftur að snúast. Ég geri mér grein fyrir þvi að ég tek á mig áhættu að gefa Siik ráð, kalli menn það gapaskap, en menn og það stærri menn en ég verða á hættustundum að taka á sig áhættu Og fyrst og ofar öllu verður að miða aðgerðir við það að efla viðnámið og baráttuvilj- ann. Þar er karlmennskan mest. Annars munu menn siðar eiga erfitt með að horfa inn i eigin samvizku og hugsa um hið blómlega og yndislega byggðarlag, sem lagðist i auðn.- kannski ekki mest vegna hætt- unnar — heldur meira vegna við- námsleysis mannanna gegn hætt- unni. Þorsteinn Thorarensen

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.