Vísir - 26.01.1973, Blaðsíða 9

Vísir - 26.01.1973, Blaðsíða 9
Sjö lands- leikir - 3 í HM-keppni islenzka landsliðið í knattspyrnu mun leika sjö landsleiki í sumar— þar af þrjá í sambandi við riðla- keppni heimsmeistara- Metaðsókn að leik! Þó illa gangi hjá Man- chester United er langt frá þvi, að áhorfendur hafi yfir- gefið liðið eins og oftast vill verða hjá liðum i fallbaráttu. A miðvikudagskvöld, þeg- ar Manch. Utd. og Everton léku á Old Trafford i Manchester i 1. deild voru yfir 59 þúsund áhorfendur á ieiknum — mesti áhorfenda- fjöidi á 1. deildarleik i Eng- landi á þessu leiktímabili. En ekki gaf leikurinn til kynna mikla framför hjá United — að visu náði það stigi i jafnteflisleik án þess mark væri skorað og komst við það úr neðsta sæti. Cryst- al Paiace er nú neðst með 18 stig, en Manch. Utd. hefur 19 stig og hefur leikið tveimur leikjum meira en Lundúna- liðið. WBA og Birmingham hafa einnig 19 stig eftir 25 og 26 leiki. United hefur leikið 27 leiki. FUNDIR Aðalfundur TBR. verður hald- inn þriðjudaginn 30. janúar að Hótel Esju og hefst kl. 20,30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundar- störf. Lagabreytingar. önnur mál (upplýsingar og umræður um húsbyggingarmál). tþróttakennarar, félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 1. febrúar n.k. að Hótel Esju kl. 20,30. Fundarefni: 1. Kjaramál. 2. önnur mál. keppninnar. Tvívegis verð- ur leikið við Hollendinga ytra, og einnig leikið við Noreg hér heima. Þessi lönd eru ásamt Islandi og Belgíu i riðli. Þá verður leikið við Svia ytra i sambandi við Norðurlandakeppn- ina, einn leikur við Færeyinga i Þórshöfn og tveir landsleikir við Austur-Þjóðverja hér heima 17. og 19. júli. Það eru þvi mikil verkefni framundan hjá landsliðinu og á laugardag efnir stjórn KSl til fundar með þjálfurum 1. deildar- liðanna og einnig formönnum knattspyrnudeilda þeirra félaga. A fundinum verður rætt um landsliðsæfingar og væntanlegt fyrirkomulag þeirra. Enn hefur ekki verið ákveðið hver eða hverjir velja landsliðið i sumar. A laugardag gengst mótanefnd KSl einnig fyrir fundi með for- mönnum 1. deildar félaganna. Keino fór heim Hlaupagarpurinn mikli, Keino fra Kenýa, sem fór til Banda- rikjanna i keppnisför hefur snúið heim aftur eftir deilur við Frjáls- íþróttasamband Bandarikjanna. Keino æltaði að keppa i San Francisco nú um helgina en ekkert verður af þvi. Sambandið bandariska mun hafa ætiað Keino að keppa mikiu oftar en hann hafði hug á og þess vegna kom til útistöðu milli hans og forráða- mannanna. Keino hafði keppt einu sinni i Bandarikjunum nú —á innanhús- móti i Los Angeies, þar sem hann varð annar í miluhlaupi á sama tima og sigurvegarinn David Wottle, Olympiumeistarinn I 800 m. Keino varð 33 ára i siðutu viku og sagðist koma næsta ár til Bandarikjanna, en gat þess ekki hvort hann kæmi sem keppandi eða áhorfandi. TEKST NÚ AÐ HALDA MULLERS-MÓTIÐ? Veðurskilyrði hafa verið erfið fyrir skíðamenn hér sunnanlandsi vetur og litið um mót. Mullersmótinu, sem fresta varð á dögun- um, hefur nú verið ákveð- inn dagur að nýju og fer það fram að öllu forfalla- lausu við Skíðaskálann í Hveradölum á morgun og hefst kl. tvö. Nafnakall verður þar á sama stað kl. eitt og skal tekið fram, að keppendur i mótinu verða að vera 17 ára eða eldri. Þá hefur Skiðafélag Reykjavik- ur ákveðið æfingagöngumót á sunnudaginn og hefst það kl. tvö. Nafnakall verður klukkustund áður. Keppt verður i eftirtöldum flokkum. 8-14 ára og verður geng- inn einn kilómeter. 15-19 ára þátt- takendur ganga 3 km., 20-40 ára sömu vegalengd, en eldri tvo kfló- metra. Mótstjóri i Mullersmótinu verð- ur formaður Skiðafélags Reykja- vikur Leifur Muller, en mótstjóri göngumótsins hinn kunni, sigl- firzki skiðamaður Jónas Asgeirs- son. Allar upplýsingar um þessi mót verða gefnar i Skiðaskálan- um keppnisdagana — fyrir há- degi. „Ætti að hafa sér- Þrjár beztu í stórsviginu í keppninni um heimsbikarinn i Saint Gervais i Frakklandi 20. janúar. Anna Maria Pröll (I miðið) brosir cftir sigurinn en tilhægri er Monika Kaserer, sem varö önnur, og til vinstri Rouvier Frakklandi, er þær eru einnig i þessari röð I stigakeppninni. keppni fyrir hana" — Enn sigrar Anna María Pröll í keppninni um heimsbikarinn „Þetta er ekki rétt og ekki skemmtilegt — þaö ætti aö vera sérkeppni fyrir hana", sagði franska skíðakonan Christine Rol- land eftir að Anna Maria Pröll frá Austurríki hafði sigrað í brunkeppninni um heimsbikarinn í Chamonix i Frakklandi í gær— sigrað með gifurlegum yfirburð- um. Hún hefur þar með sigrað í öll sex skiptin, sem keppt hefur verið í bruni í heimsbikarkeppninni i vet- ur og hefur auk þess sigrað tvivegis í stórsvigi. Anna Maria, sem siðustu þrjú árin hefur orðið heimsmeistari i alpagreinum kvenna sagði eftir keppnina. „Mér likaði vel við brautina, þar sem hún var hörð og kraföist mikillar tækni. Já, ég hafði mjög gaman af þessu”. Þetta var 38 Kandahar-keppnin, sigildasta keppnin i alpagreinum. Brautin var 3050 metrar og fall- hæð 710 metrar. Þó keppt væri i Frakklandi voru austurrisku stúlkurnar að venju mjög snjallar — áttu i fyrstu fimm af sex fyrstu, en sið- an var ein þeirra dæmd úr leik. Úrslit urðu þessi: 1. Pröll, Austurriki, 2:06.61 2. W. Drexel, Aust. 2:09.57 3. J. Rouvier, Frakkl. 2:11.12 4.1. Gfolner, Aust. 2:11.86 5. B. Schröll, Aust. 2:12.43 6. Wenzel, Lichtenst. 2:13.16 7. M. Hefti, Sviss, 2:13.28 8. Mittenmaier, V-Þ. 2:13.53 9. S. Cochran, USA, 2:13.63 10. L. Kreiner, Kanada, 2:14.16 Bezt af norrænu keppendunum var Marit Ellen Bröste i 22. sæti — tiu sekúndum á eftir Onnu Mariu. Stigakeppnin i keppninni um heimsbikarinn er nú þannig. 1. Anna Maria Pröll 200 stig. Monika Kaserer, Austurriki, 126 stig. 3. Jacquelina Rouvier, Frakklandi, 86 stig. 4. Hanny Wenzel, Lichtenstein, 63 stig. 5. Rosi Mittermaier, Vestur-Þýzka- landi, 61 stig og 6. Wiltrud Drexel, Austurriki, 59 stig. Best fyrir vestan Glaumgosinn George Best gerir nú litið af þvi að sparka bolta —hann fór til Kanada ný- lega ásamt framkvæmdastjóra sinum, hafði einnig hárskera sinn með i förinni! Talið var, að Best hefði í huga að gera samn- ing við knattspyrnulið i Toronto — en ekkert varð af þvi. Förinni er nú heitið til Los Angeles i Bandarikjunum, þar sem at- huguð verða tilboð, sem Best hafa borizt i sambandi við kvik- myndaleik i Hollywood — og einnig sjónvarpstilboð. Best er enn i leikbanni hjá félagi sinu, Manchester United, en ekki virðast miklar likur á þvi, að liann leiki framar fyrir félagið — eða það hafi einhvern hagnað af sölu á honum. Myndin hér til hliðar er tekin af Best á Toronto-flugvelli.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.