Vísir


Vísir - 26.01.1973, Qupperneq 13

Vísir - 26.01.1973, Qupperneq 13
Vísir. *Föstudagur 26. janúar 1973 13 „Vonlaus maður enginn maður7' „Viljalaus maður eins og stjórnlaust skip fyrir vindi," segir Stefón Árnason fyrrv. yfirlögregluþjónn Ef álfur hefði komið út úr hól fyrir framan Hafnarbúðir, hefði hon- um liklega helzt boðið i grun að þarna væri kosningaskrifstofa. Sá grunur hefði ekki horfið, þó að hann hefði gengið inn. Bilar komu og fóru, fólk stóð á tröppunum fyrir framan húsið og inni sat fólk við að skrá niður nöfn og heimiiis- föng . Hvað sem annars má segja um blaðamann og ljósmyndara Visis, þá eru þeir ekki álfar út úr hól og vissu að þarna sat útlagastjórn Vest- mannaeyjakaupstaðar og fólkið var landflótta Eyjabúar. Þegar inn var komið sveif blaðamaðurinn á einn þeirra, sem var að vinna þarna og veita upplýsingar. Það var Guðmundur Guðjónsson skólastjóri tónlistar- skólans i Eyjum. „Það eina, sem við getum gert fyrir fólk er að veita upplýsingar og þá helzt um heimilisföng Vest- mannaeyinga i Reykjavik. Ann- ars spyr fólk um allt mögulegt. Mikið er til dæmis spurt um skir- teini og skilriki alls konar. Slikt hefur yfirleitt orðið eftir heima og erfitt er að vera án slikra hluta, til dæmis sjúkrasamlagsskir- teinis. Við höfum auðvitað ekkert um- boð til að gefa slikt út og er þetta þvi i sumum tilfellum atriði, sem ekki er hægt að hjálpa fólki með. Skráin yfir fólkið er hins vegar komin i gott og handhægt form og við erum fljót að finna nöfnin og heimilisföngin.” Guðmundur er með litla skrá i höndunum. Þegar við spyrjum Guðmund, hvort fólk komi mikið til þeirra vegna peningavandræða þá segir hann að ekki sé mikið um það , fólk hjálpi hvort öðru eftir getu. Sparisjóðsbækurnar urðu flestar eftir i flýtinum en svo vel vill til að starfsfólk útibúsins i Eyjum starfar hér og það þekkir flesta af viðskiptamönnum bankans þar, þannig að sparisjóðsbækur eru ekki nauðsynlegar. En nú er fólk- Stefán Árnason er mörgum kunnur, þvi að hann hefur stjórnaö ófáum þjóðhátiðum i Eyjunum um dagana. Hann spjallaði við biaðamenn Visis og var ómyrkur i máli að vanda. Ljósmyndir Bjarnleifur. VESTMANNAEYINGAR Lœknisþjónusta Tilkynning frá Vestmannaeyja- læknum og Læknafélagi Reykja- vikur, um læknisþjónustu fyrir Vestmannaeyinga á Reykja- vikursvæðinu. Höfum opnað stofur i Domus Medica, Egiisgötu 3. Viðtalstimar verða eins og hér segir: Ingunn Sturlaugsdóttir, kl. 9—11,30 og 13—15, simi 26519. Ein- ar Guttormsson, mánudaga og föstudaga kl. 14—16. Aðra daga, nema iaugardaga, kl. 10—12, simi 11684. Kristján Eyjóifsson, hér- aðslæknir, kl. 10—12 i sima 15730. Einnig viötalstimi að Digranes- vegi 12, Kópavogi, kl. 14—16 i sima 41555. ÓliKr. Guðmundsson, yfirlæknir. Timapantanir eftir samkomulagi I sima 15730. Einar Valur Bjarnason, yfirlæknir. Timi auglýstur siðar. Einn læknir mun annast þjón- ustu að staðaidri I Vestmannaeyj- um og skiptast læknarnir á um hana. Heilsugæzla verður sem hér segir: Ungbarnaeftirlit verður I Heilsuverndarstöð Reykjavikur og er heilsuverndarhjúkrunar- kona frá Vestmannaeyjum stað- sett þar. Fólki, sem staösett er I Kópa- vogi, Garðahreppi og Hafnarfirði, er heimiit að leita til heilsuvernd- arstöðva viðkomandi svæða. Timapantanir æskilegar. Mæðraeftirlitið fyrir Stór- Reykjavikursvæðiö verður I Heilsuverndarstöð Reykjavlkur. Timapantanir æskilegar. Liklega hafa komið nálægt þrjú hundruö manns I Hafnarbúðir þann hálftima, sem Visismenn stóðu þar við. Sumir komu til að leita upplýsinga eða að láta skrá sig, en aðrir bara til að hitta kunningjana og ræða málin. ið fariö að verða óþolinmótt og Guðmundur snýr sér að þvi og reynir að leysa úr vandamálun- um. Við köstum á hann kveðju og snúum okkur að mönnum, sem sitja á bekk i grenndinni og ræða vandamállíðandi stundar. ,,Ef fólkið fer ekki strax aftur til Eyja og það kemur sér fyrir hér, þá fer það aldrei aftur þangað,” segir Þórarinn Grims- son. ,,Það á að senda allt friskt fólk aftur út i Eyjar og byrja að gera þaðan út. Ekkert vandamál væri að koma þessu fólki burtu, ef hraunið tæki að renna i átt til bæjarins. En sjálfsagt væri að skilja gamalt fólk og lasburða eftir hér. Það eina, sem getur gerzt til að koma i veg fyrir að hægt væri að stunda útgerð er að höfnin lokist, en það gerist nú ekki i einu vett vangi.” Spallið heldur áfram og þegar einn kemur inn I salinn og segir I spaugi hvers lags eiginlega ástand þetta sé hérna, þá svarar annar, að það sé nú litiö annað að gera en að taka þessu, ,,það er hvort eð er engin leið að setja tappa i og loka fyrir þetta.” Stebbi pól Nú gengur einn maður léttum sporum i salinn, hressilegur i sjón og tali. Þetta er Stefán Árnason fyrrverandi yfirlögregluþjónn i Vestmannaeyjum. Hann fellst á að spjalla svolitið við okkur. ,,Ég er nú ekki sá spámaður að ég geti imyndað mér hvenær þessu slotar, enda væru allar slik- ar spár út i hött, en hitt er annað mál að góðar vonir spilla ekki. Vonlaus maður er enginn maður, hann gerir ekkert og honum verður ekki við bjargað. Viljalaus maður er eins og skip, sem er stefnis- og stýrislaust og rekur fyrir vindi.” Og það er greinilegt að Stefán er hvorki von- né viljalaus þvi að hann iðar i sætinu og talar með öllum likamanum, þó að hann sé kominn á niræðisaldur. „Mér finnst sérstaklega gleði- legt hvaö við höfum fengið góðar viðtökur og skilningur er mikill á okkar hlutskipti. Grimseyingar hljóta að vera einstakt öndvegis- fólk, það er mikil rausn að gefa 1500 krónur á mann. Ég held bara að ég flytjist til Grimseyjar! Annars er ég mikið á móti þvi að gera hlutina svartari en þeir kannski eru i raun og veru, ég held að fólkið finni bezt sjálft hvernig ástandið er og ekki sé vert að vera að draga kjarkinn úr þvi. Það er annars merkilegt hvað skepnurnar finna á sér, þegar svona náttúruhamfarir eru vænt- anlegar. Ég heyrði einu sinni sögu um visindamenn, sem voru að rannsaka eldfjallið Vesúvius. Þeir gátu ekki með neinu móti séð að gos væri i aðsigi, en það kom. Viku áður en gosið byrjaði hafði hvert einasta lifandi kvikindi komið sér i burtu utan mann- fólkið, sem bjó á þessum slóðum.” Nú verður Stefán að hverfa á braut þvi að i ýmsu er að snúast og við kveðjum hann. A leiðinni út heyrum við á tal manna, sem eru að tala um fréttaflutning af gosinu og af- leiðingar þess. Ég kom frá Eyjum i gærkvöldi” sagði einn, „og það lá við að hárin risu á höfðinu á mér þegar ég heyrði fréttasendingar útvarps- ins frá gosinu, þó að mér liði prýðilega þar sem ég var stadd- ur inni i húsi. Ef að ég hefði ekki veriðstaddur þarna, þá hefði mér hreint ekki orðið um sel að vita af öllu minu þarna. En ég verð nú að viðurkenna, að þegar ég fór út skömmu seinna og kom i námunda við gosstöðvarnar, þá stóð mér ekki á sama. Það hefur mikil áhrif á mann að vera stadd- ur i nálægð við þessar hamfarir. — Ló Mikið var um að vera hjá Hafnarbúðum. Menn stóðu á tröppunum og ræddu saman, bllarnir, sem komu að húsinu voru sumir hlaðnir af fötum og sængum. Þegar Vlsismenn voru á leiðinni út bar þessa sjón fyrir augu. Búslóð, sem kom með báti og eigandinn hafði ekki vitjaö, var sett upp I flutningabil, þviað dóttirin á heimilinu hafði rekið augun i húsgögnin og tók það upp á sitt eindæmi að drifa dótið „hcim” á leið.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.