Vísir - 26.01.1973, Síða 17
17
Visir. Föstudagur 26. janúar 1973
í DAG \ I KVÖLD | í DAG | í KVÖLD | í DAB |
Sjónvarp í kvöld kl. 20.30:
Frúnni virðist vera mikið niðri fyrir, en Smith lætur þaðekki raska ró sinni —að ráði.
FÉLAGAR Á FORNIIM SLÓÐUM
Það gerist margt spennandi i
gamanmyndaflokknum Karlar i
krapinu að þessu sinni. Og raunar
þarf enginn að verða hissa á þvi,
þegar hafðir eru i huga þeir
þættir, sem áður hafa verið
sýndir i þessum vinsæla mynda-
flokki.
Að þessu sinni gerist það, að
ung og glæsileg kona kemur til
annars þeirra félaga, Smith og
Jones, og biður þá að fylgja sér
til dvalarstaðar útlaga nokkurra,
en þeir félagar dvöldu um tima
meðal þeirra, þegar þeir þurftu
að fara huldu höfði vegna gruns
yfirvalda um, að þeir hefðu
framið afbrot.
Þeir eru i fyrstu fullir grun-
semda, en fallast að lokum á,
gegn góðri þóknun, að fylgja
henni til útlaganna, en hún segir
eiginmann sinn vera þar í felum,
en hann sé grunaður um glæp,
sem hann hafi ekki framið. Hún
segir einnig, að lögreglustjóri sá,
sem á sinum tima var þeim
Smith og Jones hjálplegur, hafi
visað henni til þeirra.
En þegar i áfangastað er
komið, ske ýmsir óvæntir at-
burðir, og málið fer að taka
Hljóðvarp í dag kl. 16.25:
AÐKOMAÁ ÓVART
í dag ætlar örn Petersen að
kynna nýjar plötur eingöngu i
Popphorninu. Meðal annars
hljómsveitirnar Deep Purple,
Beach Boys og Bee Gees.
Einnig mun hann kynna nýlega
hljóðritaða plötu, töluvert um-
talaða, sem hljómsveitin Wings
• • •
spilaði inn á. Þar syngja og spila
með hjónin Paul McCartney og
Linda.
Paul heldur sig þar við gitar-
strengina, en Linda við pianóið.
Það er óhætt að fullyrða, að
þessi hljómlistarþáttur verður
skemmtilegur, og mun jafnvel
koma ýmsum á óvart. —- LTH
Bitillinn frægi, Paul McCartney, og hans ektakvinna, Linda.
nokkuð aðra mynd á sig en búast
hefði mátt við.
LTH
SJÓNVARP •
Föstudagur
26. janúar 1973
20.00 Fréttir
20.25 Vcður og auglýsingar
20.30 Karlar i krapinu.
Bandariskur gamanmynda-
flokkur i kúrekastil. A forn-
um slóðum. Þýðandi Krist-
mann Eiðsson.
21.00 Sjónaukinn.Umræðu- og
fréttaskýringaþáttur um
innlend og erlend málefni.
22.05 llvalir. Fræðslumynd
frá Time-Life um hvali og
hvalveiðar. Þýðandi og þul-
ur Gylfi Pálsson.
22.35 Dagskrárlok.
ÓTVARP •
13.00 Við vinnuna:Tónleikar.
14.15 Búnaðarþáttur. Gisli
Kristjánsson ritstjóri fer
með hljóðnemann i penings-
húsin á Egilsstöðum með
Ingimar Sveinssyni bónda
(endurt. þáttur.)
14.30 Siðdegissagan: „Jón
Gerreksson” eftir Jón
Björnsson. Sigríður Schiöth
les (11).
15.00 Miðdegistónleikar. Anna
Moffo og Sherrill Milnes
syngja italskar óperuariur.
15.45 Lesin dagsrá næstu viku.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
Tilkynningar.
16.25 Popphornið.
17.40 Tónlistartlmi barnanna.
18.00 Létt lög. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 Fréttaspegili.
19.35 Þingsjá. Ingólfur
Kristjánsson sér um þátt-
inn.
20.00 Sinfóníuhljóms veit
tslands á tónleikum i Há-
skólabiói kvöldið áður.
Stjórnandi: Euduard Fisch-
er frá Tékkóslóvakíu. Ein
leikari: Einar G. Svein-
björnsson. a. Sinfónisk
tilbrigði eftir Ivan Jirko. b.
Fiðlukonsert i e-moll op.64
eftir Felix Mendelssohn-
Bartholdy. c. Sinfónia nr. 9 i
e-moll op. 45 eftir Antonin
Dvorák.
21.35 Ben Lindsay. Ágústa
Björnsdóttir les fyrri hluta
frásögu eftir Magnús
Helgason skólastjóra úr
!■■■■■■■■■
..r ^
'«í.
u
Spáin gildir fyrir laugardaginn 27. janúar.
Hrúturinn, 21. marz-20. april. Fremur þung-
lamalegur dagur frameftir, en svo verður allt
auðveldara. Þú hefur i ýmsu að snúast i sam-
bandi við einhvern undirbúning.
Nautið, 21. april-21. mai. Þú þarft sennilega að
taka einhverja mikilvæga ákvörðun i sambandi
við helgina, en hætt er við að hún sæti nokkurri
mótspyrnu þinna nánustu.
Tviburarnir, 22. mai-21. júni. Þetta getur orðið
skemmtilegur dagur, en hætt er við að hann
verði dálitið þreytandi eigi að siður. Vinir og
kunningjar munu koma við sögu.
Krabbinn, 22. júni-23. júli. Þú munnt þurfa að
gera einhver skil i dag, sem geta orðið að ein-
hverju leyti flókin, nema þú búir þig undir þau
með sómasamlegum fyrirvara.
Ljónið, 24. júli-23. ágúst. Farðu gætilega i dag,
og láttu ekki allt uppskátt um fyrirætlanir þinar
á næstunni við hvern sem er. Þú mátt gera ráð
fyrir nokkrum töfum.
Meyjan, 24. ágúst-23. sept. Þetta verður að
mörgu leyti ánægjulegur dagur, en gerðu samt
ekki neinar fastar áætlanir. Ekki heldur i sam-
bandi við helgina framundan.
Vogin, 24. sept.- 23. okt. Farðu gætilega i um-
ferðinni i dag, eins i sambandi við vélar og raf-
magn, ef svo ber undir. Kvöldið ættirðu að taka
snemma og reyna að hvila þig vel.
I>rekinn,24. okt—22. nóv. Farðu þér ekki óðslega
að neinu. Láttu hlutina koma sem mest af sjálfu
sér, einkum þegar á daginn liður. Kvöldið
ánægjulegast i fámenni.
Bogmaðurinn, 23. nóv.-21. des. Dagurinn getur
orðið eitthvað þungur i vöfum frameftir, en svo
ætti það að lagast. Það getur farið svo að kvöldið
þarfnist aðgæzlu.
Steingeitin, 22. des.-20. jan. Það litur út fyrir að
dagurinn verði þér skemmtiiegur er á liður. Ein-
hver mannfagnaður virðist einnig á næsta leyti,
og verða ánægjulegur.
Vatnsberinn, 21. jan.-19. febr. Farðu gætilega i
dag i peningamálunum. Gerðu ekki neinar
fastar áætlanir i sambandi við kvöldið eða
helgina framundan.
Fiskarnir 20. febr.-20. marz. Með sæmilegri
gætni verður dagurinn góður. Kvöldinu getur
afturá móti brugðið til beggja vona, jafnvel þótt
gætni sé viðhöfð.
kvöldræðum hans i Kenn-
araskólanum.
22.00 Fréttir.
22.15 V e ð u r f r e g n i r .
(Jtvarpssagan: „Haust-
ferming” eftir Stefán
Júlíusson. Höfundur les
22.45 Létt músik á siðkvöldi.
Færeyska hljómsveitin
„Manningin”, Solli Sigurðs-
son frá Winnipeg og finnski.r
listamenn syngja og leika.
23.45 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast i gröft og fyllingu vegna
fyrirhugaðra byggingarframkvæmda við
Höfðabakka í Reykjavik. útboðsgagna
má vitja til Almennu verkfræðistofunnar,
Fellsmúla 26, gegn 2 þús. kr. skilatrygg-
ingu. Tilboð verða opnuð mánudaginn 5.
febrúar n.k.
Vélstjóra vantar á
á Sjóla R..E. 18 til linu- og netaveiða.
Uppl. í sima 52170 og 30136.
Ung kona
óskar eftir vinnu hálfan daginn við
afgreiðslu- eða skrifstofustörf. Vön.Uppl. i
sima 10896.