Vísir - 05.02.1973, Blaðsíða 20

Vísir - 05.02.1973, Blaðsíða 20
Fjölskyldan kemur öll aftur. þegar húsift er Ibúöarhæft.sagöi Trausti Þorsteinsson. Mánudagur 5. febrúar 1973 ,Sendið Vísi áfram' Áœtlun um moksturinn tilbúin: 260 MILLJÓNIR KOSTAR ÞAÐ OG 23 VIKUR TEKUR MOKSTURINN Það mun kosta 260 milljónir króna að moka i Vestmannaeyj- um. Almenna verk- fræðistofan hefur á veg- um Vestmannaeyja- nefndar gert áætlun um mokstur, miðað við nú- verandi ástand, og komizt að þessari niður stöðu. í öðru lagi hefur verkfræðistofan gert áætlun, sem miðast við 30% meira gosmagn en nú er, og kostnaður þeim mun meiri. Pétur Stefánsson, einn forráftamanna Almennu verk- fræöistofunnar, segir í viötali við blaðið, að áætlunin taki til kostnaðar, vélaþarfar og mann- aflaþarfar. Gert er ráð fyrir, að sex stórar mokstursvélar verði notaðar og 40-60 stórir bilar, auk urmuls af hjálpartækjum. Aðalmoksturinn taki þrjá og hálfan mánuð, og er þar um að ræða grófa hreinsun bæjarins. Síðan verður finhreinsað á lóð- um og götum, og loks mokað svæöi utan bæjarmarkanna. Að öllu samanlögðu á þessi mokst- ur að taka 23 vikur, gróf- og fin- hreinsun samtals. Þar er miðað við, að magn ösku og vikurs aukist ekki frá þvi sem er, en veröi aukning að ráði, lengist hreinsunartiminn að sjálfsögðu að sama skapi. ,,Þá á að verða grænt og fint aftur i Eyjum”, segir Pétur Stefánsson. — HH. ,PATT0N# TOK VIÐ STJÓRN í EYJUM Við upphaf gossins á Heimaey rikti skipulagsieysi og nokkur óreifta á ölium hlutum. Og heldur engin furfta þó aft svo hafi verift, og fæstir býsnast yfir þvi. En nú er öidin önnur. Gott skipulag virftist komift á alla hluti og menn fá nú sinn næstursvefn eins og hver annar. Flestir aft minnsta kosti. Þegar slökkviliösstjórinn á Keflavikurvelli tók að sér stjórn um það bil 280 manna i Eyjum fyrir skömmu, fékk hann fljótt á sig nafnið Patton, en heitir i raun og veru Sveinn Eiriksson. Eitthvað virðist þeim i Eyjum honum hafa svipað til Pattons hershöfðingja, að minnsta kosti var stjórnað af mikilli röggsemi, og þess gætt, að menn fengju sinn svefn. Að visu er „Patton” nú farinn fráEyjum, en þegar hringt var á slökkvistöðina og beðiö um Svein, sagði sá, sem svaraði: Þú meinar Patton! Sagt er, að eitt sinn þegar Magnús bæjarstjóri i Eyjum hringdi á slökkvistööina og vildi fá aö tala við slökkviliös- stjórann, hafi hann sagt: „Góðan daginn, þetta er Eisenhower. Er Patton við?” Þetta er aðeins litið dæmi um þann anda, sem nú virðist rikj- andi i Eyjum, og gott dæmi um það, að þó að gangi á ýmsu, og þó að mikil eyðilegging hafi orðið, þá er margur hver staðfastur i trúnni á, að allt muni aftur blómstra i Eyjum. -EA. — Ég hef aldrei afþakkað hann, segir Trausti Þorsteinsson, sem fór aldrei úr húsi sínu í Vestmannaeyjum Kirkjan á eldsvœðinu — en sóknarbörn nývígða Eyjaprestsins dreifð um allt land að heita mó fog hef atdrei afþakkaft Visi. Eg vii þvi biöja þig aft skila þvi til áfgreiðslu biaösins, aft þeir sendi mér Vísi áfram eins og hingaft til. fcg hef ekki farift hér úr húsi minu og hef ekki ætlaft mcr aft fara, sagfti Trausti Þor- steinsson, vélvirki, Birkihliö 8, Vcstmannaeyjum, vift blafta- mann Visis á laugardaginn. Trausti var þá aft keppast vift aft moka frá húsi sinu meft aftstoft traklorsgröfu. Eg er fyrst og fremst að moka frá bilskúrnum, svo ég geti sett þar inn kúta úr vél- smiöju, sem við faðir minn rekum, Vélsmiðju Þorsteins Steinssonar. Hluti af þakinu i vélsmiöjunni hefur gefiö sig. Til aö koma kútunum úr hættu, ætla ég að koma þeim inn i bil- skúrinn hérna og ýta aftur fyrir. Þar veröa þeir siðan geymdir meðan við erum að tjasla upp á vélsmiðjuna. Við ætlum að hefja starfrækslu hennar um leiö og það er búið, segir Trausti. Mér lizt hreint ekki illa á þetta, segir Trausti. Það er hraustlega mælt, þegar það er haft i huga, að hann talar úr meira en mannhæöardjúpri gryfju. Ég sé ekki betur, en vikurfalliö sé nú miklu minna, þrátt fyrir mikið gos. 011 min fjölskylda hér i Eyjum er ákveöin i þvi, að koma aftur um leið og húsið verður ibúðarhæft að nýju;-segir Trausti. Hann sagði blaðamanni Visis, að hann hefði aldrei farið úr húsinu fyrst meðan öskufall hafi verið. Það heföi verið eins gott að hafa einhvern i húsinu til að henda út glóandi hraun- molunum um leiö og þeir komu inn. -VJ. „Ég sé ekki fram á verkefna- skort”, sagöi Karl Sigurbjörns- son, sem i gær var vígður prestur, og er nú annar tveggja presta þeirra Vestmannaeyinga. Þegar Visir spurði Karl, hvort hann hefði þegar hafið störf, sagði hann að hann heföi unnið um nokkurt skeið við skipulagn- Brutust inn á Langholtsvegi fundust á Egilsstöðum Tveir 16 ára piitar brutust inn i söluturn við Langholtsveg að- faranótt laugardags og stálu þar 22 þúsund krónum. Lögregluna grunaði strax þessa tvo um verknaðinn, en ekki náðist til þeirra á laugardaginn. Fréttir bárust af strákunum á sunnudag, en þá voru þeir komnir til Egils- staða. Höfðu þeir farið á ær- legt fylliri og þvælst með flug- vél austur. Þeir voru svo send- ir til Reykjavikur á sunnudag, og játuðu þá á sig verknaðinn við yfirheyrslur. Þá voru þeir búnir að eyða meirihluta peninganna, en eftir voru um 5-6 þúsund krónur. Drengirnir eru „gamlir kunningjar” lögreglunnar. — ÞM. ingu og stjórn á barnastarfi, sem fram hefur farið i Neskirkju. Að sögn Karls munu þeir skipta með sér verkum, hann og hinn presturinn, sem þjónar Vest- mannaeyingum, en það er ekki komið á hreint ennþá hvernig sú skipting verður. Sóknarbörnin eru dreifð vitt og breitt, en mest- ur fjöldinn mun þó vera á suð- vesturhorni landsins, þar af um helmingur i Reykjavik. Eins og önnur ár, eru mörg börn, sem eiga að fermast núna, liklega nálægt 100, og munu þeir prestarnir skipta þeim á milli sin. Karl var vigður. til prests i gær, og sagði hann aðspurður, að hann heföi verið mjög ánægður með þá athöfn og sérstaklega þótti hon- um vænt um að margir Vest- mannaeyingar voru viðstaddir, og hefði veriö uppörvandi fyrir sig á byrjun starfsferilsins að fá hlýjar heillaóskir frá þeim. Þegar blaðið spurði Karl, hvernig það hefði komið til, að hann væri orðinn starfandi prest- ur, svo skömmu eftir að hann heföi lokið prófi, sagði hann: — Það hafa verið starfandi tveir prestar i Vestmannaeyjum, bæði vegna fólksfjölda og lfka vegna einangrunar. Svo var það, að þegar séra Jóhann Hliöar sótti um Nesprestakall og fékk það, þá vantaði þangað prest og embættið var auglýst laust. Enginn sótti um, og þá fóru Vestmannaeying- ar þess á leit við mig, að ég tæki starfið að mér, þegar ég hefði lok- ið prófi, og féllst ég á það. Eftir aö ósköpin gengu yfir var þessi áskorun itrekuð, þar sem sóknar- nefndinni þótti ekki siður þörf á tveim prestum eftir að þetta gerðist en áður. — Verður þú ekki að vera mik- iö á ferðinni, Karl, þar sem sóknarbörn þin eru jafn dreifð og raun ber vitni um? — Jú, það er áreiðanlegt, þvi að þó helmingur fólksins sé hér i Reykjavik, þá er mikið af fólki bæði i ölfusborgum, Hveragerði, Selfossi, og mikið verður trúlega einnig i Keflavik og jafnvel á Akranesi. Helztu verkefnin sem biða min eru liklega i sambandi viö barna- starfiö og svo að vera i sambandi við fólkið á þeim stöðum, sem það finnst, sagði Karl að lokum. — LÓ. STAKK16ÁRA UNG- LING MEÐ HNÍF Rúmlega þrítug kona veitti 16 ára pilti áverka með hníf sl. laugardags- nótt. Hlaut hann áverka á þremur stöðum á líkamanum, en ekki voru þeir alvarlegs eðlis. Hafði konan komið af balli ásamt drengnum, og höföu þau farið i hús eitt i Arbæjar- hverfinu. Yfirgáfu þau húsið saman, en stuttu seinna kemur pilturinn aftur og er þá al- blóðugur. Hringt var strax i lögregluna og henni tilkynnt um atburöinn. Fannst konan i húsi við Suðurlandsbraut, þar sem hún var komin i annað partý. Konan var úrskurðuð i gæzlu- varðhald og geðrannsókn, en hún er ekki talin heil á geðs- munum. Konan var undir áhrifum áfengis er atburðurinn átti sér stað. -ÞM. Hér er biskupinn yfir islandi ásamt þrem sona sinna, sem allir eru prestar. Frá vinstri eru Karl, nývigftur Vestmannaeyja prestur, Einar og Arni. (Ljósm. Visis Bj.Bj.)

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.