Vísir - 19.02.1973, Page 1

Vísir - 19.02.1973, Page 1
„Ja, þessi dekurbörn!" Þaö er ekki svo lítið sem smábörn geta orðið reið. „Ja, þessi dekruðu börn”, heyrist kannski frá einhverj- um, þegar barnið kastar sér æpandi á gólfið i kjörbúðinni. Og hvað á eiginlega til bragðs að taka. Sjá INN-sfð- una á bls. 7. Þjófurinn og só rœndi Enginn er óhultur um eigur sinar. Þeir eru ófáir, sem hafa misst dýrmæta hluti til óráðvandra manna. Þjófur einn tók ófrjálsri hendi for- láta frakka og kuldaskó úr prentsmiðju i miðborginni i siðustu viku. Næstu daga gerðist ýmislegt markvert I þessu máli. Við segjum þessa þjófnaðarsögu eins og hún gekk fyrir sig, enda er hún liklega ekki ólik þvi sem stundum verður i svipuðum tilvikum. — Sjá bls. 2 Höfðu toppkratar áhrif á Frakka? Frakkar standa nú frammi fyrir þingkosningum. Pompidou er dauðhræddur um að alheimsþing jafnaöar- manna á dögunum hafi verið haldið i Frakklandi i þvi skyni að ýta undir fylgi jafnaðarmanna þar i landi. Og nú er talið, að heimsókn helztu jafnaðarmanna- brodda heimsins þangað muni hafa tilætluð áhrif. — Sjá bls. 6 Lögreglan varð að flýja eiturhœttuna — sjá baksíðuna Vísindamenn til Eyja: Nýir sprengju- frœðingar og eitur- efnafrœðingar Bandariskur eiturefna- fræðingur, Betts að nafni, fór til Eyja i morgun til að rannsaka eiturgas og leggja á ráðin um ráöstafanir. t Eyjum hafa bandariskir menn undanfarna daga mælt eiturefni i andrúms- loftinu. Tveir kunnir bandarisk- ir sprengjusérfr. frá Kali- forniu fóru til Eyja i gær, dr. Colgate, sem er eðlisfræðingur, og O’Hara, sem er jarðfræðing- ur. Munu þetta vera færustu sprengjufræðingar, sem komið hafa til Eyja, að sögn blaðafull- trúa varnarliðsins, Caroline Hess. Rannsóknir héldu áfram án afláts á möguleikunum á sprengingum til að breyta hraunstraumi. Herkúlesvélarnar héldu áfram flutningum i morgun. Flugskilyrði voru hagstæð. Þær höfðu i morgun farið átta ferðir og flutt 90 tonn, að sögn blaða- fulltrúa varnarliðsins. —HH Gœti drepið mann á 2 mín. þar sem verst er Gasið i Vestmannaeyjum er nú það sem mest hrjáir starfsliðið þar Að þvi er Haukur Tómasson, jarð- fræðingur, sagði okkur i morgun, getur það hæglega drepið mann á tveimur minútum, þar sem verst er í kjöllurunum og á öðrum stöðum neðarlega, ef loft kemst ekki að. Það er lika auðheyrt á þeim, sem talað er við i Eyjum þessa dagana, að eitthvað óhreint er i loftinu, kvefpest og hæsi hrjáir mannskapinn. Ekki er þó vitað um nein alvarleg veikindi. Gasið virðist ekkert hafa breiðzt út, og enn er starfað á Rafstöðinni i Eyjum, og allar vélar eru i gangi. Þó er oröið slæmt að hafast við þar, og til dæmis er búið að panta vararaf- stöð á Hótel HB I Vestmanna- eyjum, þar sem hluti lögreglu- liðsins hefst við. Hótelið stendur á mörkum hættusvæðisins, Heiðarvegi, en ef rafmagnið færi, yrði erfitt um vinnu. Læknir, sem nú er staddur i Eyjum, hefur einnig alla sina aðstöðu á hótelinu. Að þvi er Haukur Tómasson tjáöi okkur i morgun, hefur hækkað nokkuð i sjálfum gignum, en gos viröist i meðal- lagi. Það var með minna móti i gærdag en jókst aftur i nótt. Suö- vestan átt er rikjandi i Eyjum og öskugos er. Fellur askan öll yfir hraunið, en svartur mökkur teygir sig i loftið. Mjög litið hraunrennsli er, en hraunlæna rennur þó til austurs. Hraun er viöast hvar um 50-90 metra þykkt. Vatnskerfið i Eyjum gaf sig i gærdag, og var vatnslaust á tima- bili. Reynt er nú að lagfæra þær skemmdir sem urðu. -EA. BÍLARNIR NEITUÐU #/ AÐ FARA LENGRA — 30 bilar í hrakningum ó Holtavörðuheiði /f Hér stendur einn af reyndustu langferðabilstjórum Oliufélagsins, Þóröur Svcinsson, viö bil sinn uppi á miðri heiði, en bak við hann sér i langa lest bila, sem stöðvuðust. (Ljósmynd Gunnar Jónsson, Húsavik) „Þegar við vorum uppi á heið- inni, snemma á laugardaginn, var þar vitlaust veður. Það er óhættað segja að veðurhæðin hef- ur ekki verið minni en 10-12 vind- stig. Enda drápu bilarnir lika á sér og við urðum aö gefast upp við að fara lengra. Horfið var að þvi ráði að snúa einni rútunni við, það þurfti að gera með jarðýtu, þvi að ekki gat rútan snúið við sjálf.” Þetta sagði Gunnar Jónsson, langferðabilstjóri, okkur i morg- un, en hann kom til Reykjavikur i gærkvöld eftir þessa hrakninga. Þarna uppi á Holtavörðuheiði voru 30 bilar, þar af tveir lang- feröabilar frá Norðurleiðum og þrir jeppar. Það var brugðiö á það ráð, að allur mannskapurinn, sem hafði verið með þessum bilum, alls 70 manns, fóru með þessum eina langferðabil til byggða aftur, og var fólkinu dreift niður á Reykja- skóla, Staðarskála, simstöðina á Brú og nokkra bæi. Fólkið var á þessum stöðum um nóttina. ,,Um hádegi daginn eftir var veðrið farið að lægja það mikið, að menn hugðu til þess að fara upp á heiðina að vitja bilanna, sem þar biðu. Bilstjórarnir fóru með rútunni aftur upp á heiðina i fylgd með ýt- unni, og þegar að bilunum kom varð fljótlega ljóst, að ekki yrði auðhlaupið að þvi að koma þeim i gang. Svo mikið hafði fennt inn á vélarnar að það tók fjóra tima að koma þeim i gang,” sagði Gunnar ennfremur. ,,Og það get ég sagt ykkur, að bilstjórar, sem eru búnir að aka þessa leið i 16 ár hafa ekki komið að bilunum sinum i jafn slæmu ástandi.” 1 sem skemmstu máli sagt, þá gekk heimleiðin með þvi móti, að rútan fór aftur að ná i fólkið og allir komust ofan af heiðinni. Meðal þeirra, sem með bilun- um voru var Pálmi Jónsson, al- þingismaður frá Akri, en hann átti að flytja ræðu á Húnvetninga- móti i gærkvöldi og rétt slapp timanlega til að tala. Seinna mátti það ekki vera. —LÓ „Þess vegna studdum við ísland ekki," segja Norðurlandamenn „ÁGREININGUR UM ORÐALAG" Þeir heföu kannski viljaö að þeir hefðu breytt ööruvisi viö at- kvæðagreiðsluna á þingi Sam- einuöu þjóðanna. Sú var skoðun Ólafs Jóhannessonar forsætis- ráðherra á afstööu Norðurlanda til samþykktar S.Þ. um auðlind- ir hafsins. A þingi Norðurlanda- ráðs hafa danskir þingmenn lagt til, að Norðurlöndin miðli málum I landhelgisdeilunni. Forystumenn Norðurlanda hafa látið i það skina, að þeir hefðu viljað styðja tillögu Is- lendinga hjá S.Þ. ef orðalagi hefði verið brey.tt, en íslending- ar hefðu ekki viljað breytingu. Um þetta sagði Ólafur Jóhannesson, að hann gæti ekki sagt, að þetta væri raunhæf við- bára, en greinilega hefði af- staða stjórna Norðurlandanna komið mörgum stjórnmála- mönnum þar á óvart. Nyboe Andersen, fyrrum danskur ráöherra, mæltist til þess, að Norðurlönd miðluðu málum i landhelgisdeilunni, og fékk hann stuðning danska við- skiptaráðherrans Nörgaard. Fulltrúar sænskra hægri manna og kommúnista gagn- rýndu afstöðu sænsku stjórnar- innar á þingi Sameinuðu þjóð- anna i þessu máli. Ólafur Jóhannesson sagði, að auðvitað yrði tillögum um málamiðlun Norðurlanda ekki visað á bug. Hins vegar mundu Islendingar halda sinu striki og halda áfram viðræðum við Breta og Vestur-Þjóðverja sem fyrr. — HH.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.