Vísir - 20.03.1973, Side 3

Vísir - 20.03.1973, Side 3
Vlsir. Þriöjudagur 20. marz. 1973 3 „Sérkennilegur minnisvarði" — ef núverandi kynslóð blœs á landsofmœli, segir Indriði G. Þorsteinsson, framkvœmdastjóri Þjóðhótíðarnefndar 1974 „Það yröi sérkennilegur minnisvaröi, sem núverandi kynslóö reisti sér, ef hún ætlar sér aö veröa fyrsta kynslóðin, sem blæs af hátiðahöld á lands- afmæli”, sagöi Indriöi G. Þor- steinsson framkv.stjóri þjóö- hátíöarnefndar 1974, þegar blaöiö spurði um afstööu hans til þeirra sjónarmiða, aö ekki skuii haldin þjóöhátlö 1974. Þaö er misskilningur, segir Indriöi, ef fólk hefur haldiö, að við ætluðum okkur að fram- kvæma allt það sem við höfum nefnt, að til greina kæmi við þjóðhátiðarhaldið. Þjóðhátiðarnefnd hefur það verkefni að hreyfa málum og viðra þau, og siðan fram- kvæma, eftir að Alþingi og rikisstjórn hafa afráðið um þau. Þess vegna, segir hann, er eöli- legt, að málin hafa „grisjazt” þeim fækkað, þegar á reyndi. „Okkar hlutverk hefur m.a. verið að taka vel i hugmyndir, sem menn hafa komið fram með og viöra þær”. „Nefndin biður eftir ákvörðun um tvö stór atriði i hátiðahöldunum, sem nú eru til athugunar i þingflokkunum, um Þingvallahátið og sögu- aldarbæ. Þá erum við að undir- búa þróunarsýningu atvinnu- veganna. Við höfum nóg aö starfa við framkvæmdir á þeim fjölmörgu atriðum, sem þegar hafa verið samþykkt. 8 milljónum lofað i sögualdarbæ. I sögualdarbæ hafa þegar komið loforð um framlög frá ýmsum aðilum, alls um átta milljónir króna, en bærinn átti að kosta tólf milljónir, svo að það er aðeins litill hluti, sem rikið yrði að leggja fram, en það hefur ekki enn ákveðið framlög”. Nefndinni fannst timabært að reyna að snúa vörn i sókn varð- andi landgræðslu, á þessum timamótum. Nefndin hefur sent forsætisráðherra tillögur um þetta. Visindamenn segja, að 40 þúsund ferkilómetrar landsins hafi veriö grónir, þegar menn komu fyrst til íslands. Nú eru aðeins 20 þúsund ferkilómetrar grónir. Það má kalla það, að verja innri landhelgi landsins að græða þaö og hindra að á gróðurlendi gangi sifellt. Þá hafa nokkur atriði verið lögð fram, sem eru verkefni annarra aðila en okkar, til dæmis um knörrinn, segir Indriði. „Við veitum slikum málum siðferðilegan stuðning, en við höfum ekki ákveðið að leggja fé til þeirra. —HH FISKARNIR ÁLAND ÞEGAR GENGU „Furðuverkið" frumsýnt í Grindavík „Ég kann ekki við þetta, ég er bara ekkert taugaóstyrk. Þetta hefur aldrei komiöfyrir mig áöur að vera að fara að leika á frum- sýningu og finna ekki fyrir þvi”. Þaö var Halla Guömundsdóttir, sem þetta sagöi á leiðinni til Grindavikur. Hún og þrir aörir leikarar ætluðu að fara aö sýna Grindvikingum „Furöuverkiö” á sunnudaginn. Ekki viljum við segja, að Halla hafi haft ástæðu til að vera tauga- óstyrk, þvi að sýningin gekk vel. En hitt er annað mál, að þetta var timamóta frumsýning að þvi leyti, að hún er sú fyrsta, sem Þjóðleikhúsið gengst fyrir utan eigin húss. Mun hún liklega lengur i minnum höfð en ýmsar aðrar fyrir þær sakir og einnig vegna þess, að þetta er i fyrsta sinn, sem áhorfendum hefur gefizt kostur á að leika með á frumsýningu. Klukkutima áður en sýningin byrjaði i hinu stórglæsilega félagsheimili Grindvikinga voru krakkarnir byrjaðir að koma og biðu frammi i forstofu. Aö siðaðra manna hætti rööuðu börnin sér upp i biðröð og stóðu þolinmóð, horfandi i gegnum glerrúðu inn i helgidóminn Blaðamaðurinn spjallaði við dyravörðinn fyrir innan glerið, og sagði dyravörðurinn honum, að ekki léti fólk alltaf svona stillilega fyrir framan þessar dyr eins og nú væri. öldin væri önnur á sveitaböllunum stundum. En nú rennur stundin upp, öllum er hleypt inn, úlpurnar, frakkarnir og kápurnar eru sett i fatahengið. Keyptur smáslatti af gotterii, og siðan er setzt inn. Klukkan er að verða. „Það þýðir aldrei að byrja neitt á réttum tima úti á landi”, segir dreifbýlismaður einn, sem situr við hlið blaðamannsins. „Við sveitamennirnir erum ekkert að æsast að koma á réttum tima. Jæja, mér sýnast Grindvikingar vera fyrirmyndar dreifbýlisfólk hvað stundvisi varðar”. Það er vist ekki að undra, þó að þeir séu komnir á réttum tima, þegar þeir eiga i vændum að sjá Furðuverk, frumsýningu, sköpun heimsins, sköpun mannsins og margt annað, allt á einu bretti. Þegar klukkan var orðin þrjú, slokknuðu ljósin og Arni Elfar byrjaði aö laða fram furðuhljóma úr rafmagnsorgeli úti undir einum veggnum. Strax og leikurinn byrjaði var auðséð, að krakkarnir máttu vera með og gripa fram i þegar þau lysti. Krakkarnir voru spurðir um Sköpunina, og var greinilegt, að himnavaldið átti sér trúa fylgis- menn meðal barnanna. Þessir málsvarar almættisins skutu svo inn i öðru hvoru, að þetta hefði nú guð gert á sinum tima. Krakkarnir I Grindavlk eru siöaöar manneskjur, fara I röö og blöa stillt og prúö eftir aö komast inn aö sjá leikritiö I flna félagsheimilinu slnu. Þaö var uppselt á frumsýninguna. Reykjavíkurleikrit í Iðnó: SKÓIASTJÓRI FYRIR AUSTAN SEMUR, - LEIKSTJÓRINN ER sagðist hafa haft mikla ánægju af þvi aö vinna við þetta verk, þetta væri siður en svo nein lognmolla, heldur hvini hressilega i tálknum á stundum. Leikmyndir gerir Steinþór Sigurðsson. Leikendur eru Arnar Jónsson og Hrönn Steingrims- dóttir, sem leika Pétur og Rúnu, Sigriður Hagalin, Sigurður Karls- son, Margrét H. Jóhannsdóttir, Jón Sigurbjörnsson, Karl Guðmundsson og Pétur Einarsson. Ætlunin er, að hitt verðlauna- verkið úr afmælissamkeppninni, Kertalog, eftir Jökul Jakobsson, verði fyrsta verk Leikhússins næsta haust. —ÓG BÓNDI í SÖMU SVEIT Þaö er ekki á hverjum degi sem frumsýnt er nýtt fslenzkt leikhús- verk, en þaö ætlar Leikfélag Reykjavikur aö gera i næstu viku. Leikritið heitir Pétur og Rúna og er eftir Birgi Sigurðsson. Þetta er fyrsta leikverk Birgis, sem kemur fyrir almenningssjónir, en áður hefur hann gefið út ljóða- bókina Réttu mér fána, sem kom út hjá AB 1968. Birgir sagði okkur, að leikritið væri um ungt fólk i Reykjavik á okkar timum. Aðalpersónurnar eru Pétur og Rúna, ung nýgift hjónakorn. Þau eiga auðvitað við sin persónulegu og þjóðfélagslegu vandamál að striða og leikurinn er um siglingu þeirra gegnum til- veruna. Einnig koma þar við sögu tengdamóðirin, ættingjar og vinir. Höfundurinn, sem er skóla- stjóri i Gnúpverjahreppi, hlaut verðlaun fyrir þetta verk sitt i samkeppni Leikfélagsins i tilefni af 75 ára afmæli þess. Leikstjóri er Eyvindur Erlendsson, en undanfarin ár hefur hann leiðbeint og stjórnað leikritum viðsvegar um landið. Eyvindur rekur nú myndarlegt kúabú austur i sveitum. Hann Hér yfirgefa leikararnir leikhúsiö sitt til aö frumsýna á þess vegum úti á landsbyggöinni. Þaö er ekki annaö aö sjá en aö feröin leggist vel I þau. Aö neöan og uppúr sjáum viö Kristlnu Magnúss Guöbjartsdóttur leikara, leikstjóra og aöalhöfund, Herdisi Þorvaldsdóttur, Iiöllu Guö- mundsdóttur, Sigmund örn Arngrimsson og dóttur hans og efstan sjá- um viö siöan Ijósameistara Þjóöleikhússins Kristin Danielsson. Hann hefur liklega verið i þessum hópi, strákurinn, sem við spurðum i hléinu: Hvernig finnst þér? „Það er voða gaman að þessu". — Trúirðu þvi sem fólkið segir? „Neeei, svo mikið barn er ég nú ekki! Maður ætti nú ekki annað eftir en að trúa, að fiskar hafi allt i einu gengið á land”. En hvora, sem við eigum að kalla vantrúðaða, þá, sem ekki trúðu þvi, sem Furðuverkið sagði frá, eða hina, sem ekki leggja trúnað á sköpunarsögu bibli- unnar, þá áttu báðir hópar þarna marga fylgismenn. Meðal þess, sem krakkarnir gerðu meðan á sýningunni stóð, má nefna, að þegar leikararnir voru i hálfgerðum feluleik, þá var aldrei verið lengi að finna, þvi að krakkarnir voru hjálpsamir að visa á felustaðina. Einu sinni, þegar Sigmundur Orn Arngrims- son lék fumstæðan apa i leit að æti, hoppandi á hækjum sinum leitandi að æti á sviðinu, þá var hent til hans sælgæti. Þegar Kristin Magnús mjálmaði einu sinni hástöfum og spurði, hvaða dýr gæfi frá sér svona hljóð, þá heyrðist fyrst ekki mannsins mál i salnum. Hver talaði i kapp við annan og sagði Kristinu, hvaða dýr þetta væri. Loksins gnæfði ein rödd upp úr: Það er ljón! Herdis Þorvaldsdóttir bað krakkana um skilaboð til hinna leikaranna, þegar hún var á sviðinu og þurfti að skreppa burt. Og það voru engin vandkvæði á að fá þvi skilað. Um leið og hinir leikararnir komu inn á sviðið og fóru að furða sig á, hvar Herdis væri, þá kom skriða af skila- boðum utan úr sal. Ef öll börn eru jafnhress i anda og börnin i Grindavik, þá ætti Furðuverkið að verða vinsælt, þegar það verður sýnt um allar trissur nú á næstunni. —LÓ

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.