Vísir - 26.03.1973, Blaðsíða 1

Vísir - 26.03.1973, Blaðsíða 1
 Yakir fyrir heimsmet - t f VISIR og góðgerðarfé P, J Sjálfdœmi stofnana um kostnað „Astandið i Tryggingastofn- uninni er skýrt dæmi um, hvernig rikisbákniö getur þanizt út og sligað þjóö- félagið. Cti i atvinnulifinu keppast fyrirtækin við að halda rekstrarkostnaði i skefjum til að lifa af i harðri samkeppni. Rikisstofn- anirnar finna ekki fyrir slikum hvata samkeppn- innar. Þær hafa meira eða minna sjálfdæmi um sinn rekstrarkostnað”. Svo segir m.a. i leiðara VIsis i dag, en þar er fjallaö um rekstrar- rannsóknina á Trygginga- stofnuninni og lærdóma, sem af henni má draga. Sjá leiðara á bls. 6. og frétt á bls. 2. Nú smygla þeir skynlausum skepnum Meinleysislegt koffort, sem var merkt „verkfæri”, kom á hraðbrautarstöðina I New- Jersey I mai I fyrra. Einn starfsmanna undraðist brak og urr, sem barst frá einu koffortinu. Hér reyndist um að ræða smygl á dýrum, en það er eitt af nýjustu vanda- málum tollgæzlunnar vestra. — Sjábls.6. Laxness hefur víða flogið — 35 tungumúl og 172 þýðingar — sjá menningarsíðu á bls. 7 ,í þetta hús á að vera gott að koma' — sagði borgarstjóri við opnun sýningarhússins á Miklatúni. — Sjá bls. 3. ÉG BYGGI AFTUR Á SAMA STAD... Snjór og blcyta. bleyta og snjór. Það skiptir oft um veður þessa dagana. Maður veit aldrei fyrir víst, hvaöa veöur er úti, nema maöur sé úti sjálfur. Jafnvel þá er maöur ekki alveg viss stundum. Þeim, sem þetta skrifar, fannst vissara að Ifta út um gluggann, meðan hann var aöskrifa þetta, til að fullvissa sig um, að það væri ennþá þlöa, og næstum allur snjór væri farinn. En þaö er eins vist, að einhver detti á hausinn i hálku, á meðan hann er að tesa þetta i Visi klukkan rúmlega eitt. Að visu vár spáin ekki alveg svo róttæk hjá Jónasi Jakobssyni. Hann spáir skúrum og stydduéljum idag, en snjóéljum ekki fyrr en siö- degis og frosti ekki fyrr en I nótt. Næstu daga verða aö likindum umhleypingar. —LÓ arg SKUTU HVOR Á ANNAN Ægir skaut kúlu og púðri og Brucella neyðarblysi Skotið var kúluskoti púðurskotum og neyðarblysi og reynt að sigla skip niður. Siðustu ásiglingartil- raun lauk með hala- klippingu. Það mátti heita, að raunverulega væri barizt á iand- helginni. Sá bardagi stóð frá um fjögur i gær fram til miðnættis, að kalla. Þar áttust við brezku tog- ararnir Wyre Defense og Brucella og varöskipið Ægir. Þetta byrjaði um fjögur- leytið, þegar varðskipið Ægir stuggaði við brezkum tog- urunum tveimur, sem voru að veiðum 12 sjómilur suður af Surtsey. Brucella hifði fljótlega og gerði itrekaðar tilraunir til að sigla á varöskipið. Hitt skipið hélt i fyrstu áfram veiðum. Varðskipið skaut einu kúluskoti fyrir framan Brucellu til að fá Bretann til að hætta viö fyrir- ætlun sina og tveimur púður- skotum að togaranum. A meðan hafði Wyre Defense hift og tekið þátt i ásiglingartil- raunum Brucellu um hrið. Þeir hættu þó, eftir að skotiö hafði verið. Varðskipið átti siðan viðskipti við Brucellu rétt fyrir klukkan sex og hindraði togarann i að hefja veiðar. Brucella skaut þá neyðarblysi að Ægi, en skotið fór yfir. Lina blyssins lenti þó á varðskipinu Laust fyrir miðnættið klippti Ægir á báða togvira Wyre Defense, eftir að Bretinn hafði gróflega reynt að sigla á varð- skipið. Þaö gerðist 15 sjómilum suð- vestur af Surtsey. Lauk svo þessari lotu. —HH Enn skorið í morgun Enn var skorið á togvira i morgun. Varðskip skar um tiu- leytið á báða togvira brezka togarans St. Leger, sem var að ólöglegum veiðum 17,5 sjómilur suðvcstur af Surtsey. —HH — sagði Vestmannaeyingur, sem hafði horft á 5 milljóna króna hús sitt fara undir hraun Talið er að um 20 hús hafi farið undir hraun i nótt eftir aö mikill skriður koinst á rennslið að Vest- mannaeyjabæ um klukkan nlu i gærkveldi. Um tima rann hraunið áfram á 45 metra hraða á klukkustund og lagöi hvert húsið á fætur öðru á kaf. 1 morgun átti hraunið eftir um 30 metra i lifæö Vestmannaeyja þessa daga, nefnilega rafstöðina. Ef rafstöðin fer undir hraun, er hætt viðað litið verði úr starfsemi og björgunaraögeröum hér i Eyjum. Um klukkan niu fór skriður að komast á hraunið á svæðinu frá Heimagötu niður að sundlaug staðarins á um það bil 300 metra breiðu svæði. Litill skriður var á hraun- rennslinu i fyrstu og var það ekki fyrren undir miðnætti, sem virki- lega fór að kveða að þvi. Glóandi hraunið skreið þá hægt og sigandi áfram og enginn mannlegur máttur gat varnað því að komast leiöar sinnar. Þeirri tilfinningu, sem greip áhorfendur verður sennilega aldrei með oröum lýst. Einn af þeim, sem misstu, 5 til 6 milljón króna hús, Hjörtur Hermannsson, sagði, þegar hann var að þvi spurður, hvernig honum litist á: — Eg byggi aftur á sama síað. Hús Hjartar var aðeins þriggja ára gamalt. Aðrir tveir húseigendur, sem i gær horfðu á heimili sin hverfa undir hraunið sögðu, að þeir væru búnir að horfa á hraunið gleypa i sig svo mörg önnur hús, að þótt þarna hafi horfiö þeirra eigin heimili, þá tæki það þá ekki svo sárt. Það hefði ekki svo mikið meiri áhrif á þá að horfa sin eigin hús hverfa en annara „Ö, að ég hefði bara rúllað upp teppunum i gærkveldi eins og ég ætlaði mér”, sagöi ung kona, sem horfði á hús sitt brenna. Búið er að koma fyrir dælum við rafstöðina, og eru sex dælur þar, og aðrar sex við Heimagötu. Reynt er á allan hátt að hefta framrás hraunsins. Og eru vonir bundnar við það að þannig megi koma i veg fyrir meiri skemmdir en ella, þegar hraunrennslið svo loksins stöðvast. Starfsemin i rafstöðinni gengur sinn vanagang og mun að öllum likindum gera það fram undir það siöasta. En ef skriöur helzt áfram á hrauninu fram eftir degi, má gera ráð fyrir, að rafstöðin verði horfin undir það áður en dagurinn er allur. 1 morgun virtist hraunið vera farið að hægja á sér, en áfram var dælt á það sjó af fullum krafti. Gos var mikið i gærkveldi og sprengingar geysilega miklar. 1 morgun var gosið fabið að lægja, en enn heyrðust þó talsverðar sprengingar. —EA Síðustu fréttir kl. 12.10: Vatnsleiðslan frá landi er komin í sundur á Skansinum. Hraunið er komið nœr rafstöðinni. Nokkur hús brenna.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.