Vísir - 26.03.1973, Blaðsíða 3

Vísir - 26.03.1973, Blaðsíða 3
Vísir. Mánudagur 26. marz. 1973. Viö opnun sýningarinnar, forsetinn Kristján Eldjárn og frú, ásamt borgarstjóra og Hannesi Kr. Davlössyni arkitekt. /# I þetto hús á að vera gott að koma — sagði borgarstjóri, þegar nýja sýningarhósið /# á Miklatuni var opnað — Markmiðið var, að þetta yrði bygging, þar sem fólk gæti i kyrr- láiu og hljóðu andrúmslofti skoðað þær sýningar, sem hér verða. Þetta sagði Hannes Kr. Daviðsson arkitekt nýja tnynd- listarhússins við Miklatún, þegar Vísir ræddi við hann á laugar- daginn, en húsið var þá opinber- lega tekið í notkun. Athöfnin hófst með þvi að borgarstjórinn, Birgir Isl. Gunnarsson, flutti ræðu. I henni rakti hann byggingarsögu hússins. 1965 samþykkti borgar- ráð að gangast fyrir byggingu myndlistarhúss samkvæmt nánara samkomulagi við lista- menn. Helmingur hússins á að vera undir almennan sýningarsal en hinn hlutinn sérstaklega ætlaður til sýninga á verkum Jóhannesar S. Kjarval. „Samkvæmt þessu á húsið að geta orðið vettvangur mynd- listar, tónlistar, bókmennta- kynninga, ráðstefna og umræðu- funda um hvers kyns menningar- mál, svo að nokkuð se nefnt. Um fram allt á hús þetta að verða menningarmiðstöð borgarbúa. Hér a áð rikja það andrúmsloft sem dregur borgarbúa til sin. Menningarlegt umhverfi þar sem fólki liður vel , en þó engin logn- molla. Hér eiga menn að geta tekið afstöðu með eða móti stefnum og straumum i listum og menningarmáhum. Rökrætt og deilt ýmist á fundum eða sin á milli yfir kaffibolla. 1 þetta hús á að vera gott að koma" sagði borgarstjóri i lok ræðu sinna. Þá flutti Hannes Kr. Daviðsson formaður Bandalags Isl. lista- manna ávarp. 1 sýningarsölum „Kjarvals- staða" eins og húsið hefur verið nefntergengið þannig frá loftum, að full not verða af dagsbirtunni meðan hennar nýtur við. Sólar- geislar brotna og eiga þvi ekki að valda óþægindum i sýningar- sölunum. I húsinu eru nú tvær sýningar, báðar með verkum eftir Jóhannes S. Kjarval. Á annarri sýningunni eru myndir.isem borgin á sjálf eftir listamanninn, en á hinni myndir, sem fengnar hafa veriö að láni frá ýmsum aðilum. Á göngum eru ljósmyndir, sem Jón Kal,dal tók af Kjarval á ýmsum timum. Þar eru einnig sýndar höggmyndir eftir Ásmund Sveinsson, Sigurjón Ólafsson, og Guðmund Benediktsson. 1 kjallara hússins er veitinga- stofa og hefur verið samið við Miklagarð hf. um rekstur hennar. Kjarvalsstaðir eru rúmlega 13000 rúmmetrar en jarðhæð er 2100 fermetrar. Sérstök hússtjórn sér um rekstur hússins og er Páll Lindal formaður hennar. Stjórn sýningarsalsins i vesturhíuta hússins er þó i höndum sérstaks sýningarráðs sem skipað er hús- stjórn og fjórum fulltrúm Banda- lags isl. listamanna. Forstöðu- maður hússins er Alfreð Guðmundsson. Sýningin á verkum Jóhannesar S. Kjarvals mun standa i nokkurn tima en ekki er ákveðið endanlega um hvaða sýningar verða i húsinu þegar henni likur. —ÓG ISFELAG VESTMANNA- EYJA KAUPIR FRYSTIHÚS JÚPITERS OG MARZ „eðlileg viðbrögð að við kontum okkur fyrir á meginlandinu, segir form. félagsins „Það eru eðlileg viðbrögð að minni hyggju að við komum okkur fyrir hér á meginlandinu fyrst við getum ekki starfað i Vestmannaeyjum", sagði Björn Guðmundsson, stjórnarformaður isfélags Vestmannaeyja i viðtali við Visi i morgun. tsfélag Vestmannaeyja h.f. hefur nú undirritað bráða- birgðakaupsamning við Júpiter h.f. Marz h.f. um kaup á frysti- luisi síðarnefnda aðilans á Kirkjusandi. Kaupverðið er rétt tæpar 200 milljónir króna. Viö höfum haft 15-16 báta i við- skiptum í Eyjum. Við teljum okkur hafa skyldum að gegna við þessa báta áfram og viljum m.a. þessvegna halda áfram starfsemi félagsins. Þetta eru bátar hlut- hafanna í félaginu og reiknum við með þvi að þeir komi til okkar fljótlega eftir að við tökum við húsinu 1. apríl n.k. sagði Björn. — Hann sagðist þó vilja taka skýrt fram, að þegar möguleikar væru til þess mundi Isfélagið flytja starfsemi sina aftur út i Eyja, ef húsin skemmast ekki. Björn sagði óvist, hvort vélar og tæki Isfélagsins, sem flutt hafa verið frá Eyjum verði sett upp i frystihúsinu á Kirkjusandi. — Húsið er ágætlega búið tækjum hjá Tryggva og sé ég þvi varla neina ástæðu til að að bæta við tækjakostinn, nema kannski eitt- hvað óverulega, sagði hann. fsfélag Vestmannaeyja h.f. er nú elzta starfandi hlutafélag landsins, stofnað 1901. Það hefur alla tið starfað við fiskvinnslu. — VJ BJÖRGUÐUST í LAND A STIGA A myndinni sjáum við hvar Valþór GK-25 liggur uppi i Stekkjarhömrum, en þangað rak hann stjórnlaust eftir að hafa fengið eitthvað i skrúfuna, þegar hann var að koma inn i Kefla- víkurhöfn um miðnætti laugar- dagsnóttina eins og sagt var frá i Visi á laugardag. Norðaustan rok og leiðindaveður var, þegar slysið átti sér stað, en áhöfnin komst af eigin rammleik frá borði. Stiginn, sem áhöfnin notaði til að komast i land, sést greinilega aftur með skipinu. Myndina tók Magnús Gislason. CONIAKS PIPUR nýkomnar Sérstök og falleg vara LITAÐUR KRISTALL FALLEGT ÚRVAL ANTIK KRISTALL með gulli ' og postulíni TEKK- KRISTALL Skólavörðustig 16 simi 13111

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.