Vísir - 26.03.1973, Blaðsíða 5

Vísir - 26.03.1973, Blaðsíða 5
Vlsir. Mánudagur 26. marz. 1973. 5 AP/INITB ÚTLÖNDÍ MORGUN UTLÖND I MORGUN UTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson Einn fundinn eftir 3 daga hrakninga 23 ára gamall skip- brotsmaður fannst i gærkvöldi eftir að hann hafði hrakizt i ólgusjó, snjóhrið og vonzku- veðri i þrjá sólarhringa i Atlantshafi. Annar skipsfélagi hans af norksa skipinu „Norse Varient” sást úr flugvél um 40 sjó- milur frá honum, en var ófundinn i morgun, þegar siðast fréttist. Tveir froskmenn voru sendir i fallhlífum niður til Stein Gabrfelsen, þar sem hann fannst á reki á lestarhlera um 250 sjómílur suðaustur af May- höfða í New Jersey, og var honum bjargað um borð i olíu- skip, sem kom fyrst á staðinn. Þrátt fyrir að hafa hvorki bragðað vott eða þurrt í þrjá sólarhringa, gat Gabrielsen vakið athygli á sér með þvi að veifa kröftuglega til flugmanna leitarvélanna, sem sveimað hafa yfir svæðinu siðan aðfara- nótt föstudags. Hann var siðan fluttur um borð i flugmóðurskipið, „Independence”, sem hefur sjúkrahúsaðstöðu um borð. og siðustu fréttir i nótt hermdu, að hann væri við góða liðan. Gabrielsenfannst um 180 kiló- metra suðaustur af þeim stað, sem gefinn var upp, þegar „Norse Varient” sendi út neyðarskeyti sitt aðfaranótt föstudagsins. Skipið hafði lent i ofsaroki og stórsjó, og höfðu lestarhlerar þess brotnað, og lestin fyllst af sjó. Sökk það fljótlega. Leitarskip og flugvélar hafa komið auga á gúmibáta og brak úr skipinu, en aðrir af áhöfninni hafa ekki fundizt. Skipstjórinn hafði þó sagt í siðasta neyðar- skeyti sinu, að áhöfnin væri á leið i bátana. Þessi floti franskra bila biður i frlhöfninni I Kaupmannahöfn eftir þvi að vinnudeilan leysist, svo að þeir geti haldið áfram til Noregs, Sviþjóðar og islands. — Samningaviðræður eru nú hafnar, og á meðan þær standa yfir, munu ekki fieiri aöilar fara I verkfall, en alls eru um 258.000 launþegar ýmist í verkbanni eða verkfalli. Bíða verkfallsloko „Svarti september" — dulnefni Ekki sérstök hreyfing, heldur leyniþjónusta Al Fatah-skœruliða Palestinu skæruliða- foringi, sem situr í ævi- löngu fangelsi i Jórdaníu, hefur játað, að hreyfingin ,,Svarti séptember” sé ekki til. Heldur sé hún aðeins dulnefni yfir leyni- þjónustu skæruliða- hreyfingarinnar A1 Fatah. Skæruliðaforinginn, Abou Daoud, sem morðingjar banda- riska sendiherrans i Libýu kröfðust lausan úr haldi, á að hafa játað þetta i siðasta mánuði. Hann var þá dæmdur til dauða ásamt 15 félögum sinum, eftir að þeir voru fundir sekir um að reyna að steypa stjórn landsins úr stóli. En Hussein kon- ungur breytti dauðadómunum i ævilangt fangseli. Útvarpið i Amman skýrði frá þessu i gær, og þvi jafnframt. að einn af leiðtogum A1 Fatah, maður að nafni Aboq Iyad, bæri ábyrgðina á fjöldamorðunum við Olympiuleikana i Munchen og einnig á morði ísraelsmannsins i Madrid. Morðtilraun Annar A1 Fatah-foringi á að hafa staðið að baki aðgerðunum við oliuleiðslurnar i Italiu og gas- leiðsiurnar i Hollandi. Þessi skæruliðaforingi heitir Ali Hassan Salameh og á að hafa staðið að morðunum á fimm Jórdönum i Hamborg og skemmdarverkunum á einu skipi ísraelsmanna i bandariskri höfn. Salameh var einnig sá, sem skipulagði morðtilraunina á sendiherra Jórdaniu i London og tilraunirnar til þess að ofsækja sovézka Gyðinga i Austurriki. Flugvélarón Útvarpið i Amman hélt þvi einnig fram, að Abou Daoud, hefði ennfremur upplýst, að það hefði verið A1 Fatahforinginn, Abou Youssuf, sem skipulagði ránið á farþegaflugvélinni, sem farið var með til ísraels. Enn- fremur stóð hann að baki árásinni á sendiráð lsraels i Bangkok og morðinu á forsætisráðherra Jórdaniu. Wasfi Tell. Margt hefur þurft að sitja á hakanum þessi árin, sem Vletnamstrfðið hefur staðið, og meðan ibúum Hanoi hefur fjölgað (vegna flóttamannastraumsins) hefur farartækjum ekki fjölgaö að sama skapi, og er stundum slegizt um að komast-með farþegalestunum á milli hverfa. Fangarnir vildu ekki Síðustu fangarnir bíða um sinn Rúmlega 200 norður-- vietnamskir og Vietcong striðsfangar höfnuðu þvi i gær að verða sendir til Norður-Vietnam. Erlendir fréttamenn, sem staddir voru á flug- vellinum i Bien Hoa, voru vitni að þvi, þegar þessir 210 striðsfangar neituðu að stiga um borð i flugvélina, sem flytja átti þá til Quang Tri. Þeir áttu að fylgja siðustu fangasendingu Suður-Vietnams. Fulltrúar alþjóðaeftirlits- ráðsins voru kvaddir til þess að vera vitni að þvi, að fangarnir hefðu ekki verið þvingaðir til þess að taka þessa ákvörðun. Bui Tin, offursti frá Norður- Vietnam, fulltrúi i sameiginlega herráði deiluáðilanna, kallaði atvikið grinieik og áróðursbragð Suður-Vietnama. I annan stað urðu frávik frá áætlunum um afhendingu striðs- fanga, þegar Norður-Vietnamar iögðu fram lista yfir siðustu 107 bandarisku striðsfangana, sem þeir ætla að láta lausa um íeið og Bandarikjamenn senda siðustu hermenn sina úr Vietnam. Bandarikjamenn söknuðu á listanum nöfn niu Bandarikja- manna, sem teknir voru til fanga Stjórn Egypta sagði af sér Rikisstjórn Egyptalands, undir forystu Aziz Sidky, forsætisráð- herra, sagði af sér — eftir þvi sem fréttir hermdu frá Kairó i gær. Anwar Sadat forseti mun sjálfur taka við embætti forsætis- ráðherra og hrinda i framkvæmd nýrri innanrikis- og utanrikis- stefnu. — Var búizt við þvi, að hann skýrði frá afsögn stjórnar- innar á þingfundum i dag. Hin nýja stjórnarstefna ku i aðalatriöum eiga að miða að þvi að eíla hernaðarmátt Egypta, svo að þeir verði færari um að mæta tsraelsmönnum i nýju striði og geti unnið aftur hernumdu herúðin. Egyptar hafa að undan- förnu tekið upp herskárri afstöðu heim i Laos (auk svo 340 Bándarikja- manna annarra, sem týnzt hafa i Laos), og kröfðust þeir þess, að þessir niu yrðu látnir lausir einnig. — Norður-Vietnamar bera þvi hinsvegar við, að striðsfangar i Laos hafi ekki átt að fylgja með þessum fangaskiptum, sem samið var um, þegar vopnahlé náðist i Vietnam. Hefur Bandarikjastjórn nú fyrirskipað 6.200 manna herliði sinu, sem ennþá er eftir i Viet- nam, að vera um kyrrt, þar til fangarnir hafa verið afhentir til deilunnar við Israelsmenn, og er búizt við, að fjölgað verði að þessu sinni herforingjum i rikis- stjórninni. Fjölmiðlar i Egyptaiandi halda þvi þó fram, að Sadat sé ekki að fullu búinn að gefa frá sér alla von um friðsamlega” lausn deil- unnar. Hóta Frökkum herskipum Astralska stjórnin segist stað- ráði'n i þvi að senda herskip inn á tilraunásvæði Frakka í Kyrra- hafi, ef þeir halda áfram kjarn- orkuvopnatilraunum sinum. Einn ráðherra Astraliu, sem staddur er i heimsókn á Nýja- Sjálandi, lýsti þessu yfir í gær, og um leið lýsti ný-sjálenzka stjórnin þvi yfir, að hún mundi einnig senda freigátu inn á tilrauna- svæðið, ef nauðsyn krefði. s Meðal Kyrrahafsrjkjanna og Suður-Amerikurikja hefur verið megn óánægja með tilraunir Frakka við ikjarnorkusprengjur á Kyrrahafseyjum. Bæði Nýja-Sjáland og Astralia munu senda á næstunni fulltrúa sina til Frakklands til þess að ræða við stjórnvöld þar um kjarn- orkuvopnatilraunirnar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.