Vísir - 26.03.1973, Side 9
Vlsir. Mánudagur 26. mari. 1973.
cTlíenningarmál
Á því leikur víst enginn
vafi að verk Halldórs Lax-
ness hafa farið víðast allra
islenzkra rithöfunda. Þau
hafa til þessa verið þýdd á
35 tungumál, en séu þýddar
bækur hans taldar hver um
sig reynist þýðingatalan
alls 172. Sumar bækurnar
hafa komið í mörgum
útgáfum í þýðingu svo að
útgáfutala þeirra erlendis
verður allmiklu hærri,
a.m.k. 252 útgáfur að mér
telst.
Þetta má lesa ásamt öðrum
fróðleik i nýútkominni Árbók
Landsbókasafns, fyrir árið 1971,
skrá um verk Halldórs Laxness á
islenzku og erlendum málumsem
Haraldur Sigurðsson bókavörður
hefur tekið saman i tilefni af
sjötugsafmæli Halldórs i fyrra.
Frá Grænlandi til Grúsiu...
Eins og vænta mátti er mikill
fjöldi þessara þýðinga tilkominn
eftir að Halldór Laxness hlaut
nóbelsverðlaunin — um það bil
tveir þriðjuhlutar af þýðingum á
bókum hans og um það bil þrir
fjórðuhlutar útgefinna bóka hans
erlendis hafa að mér virðist fyrst
birzt eftir 1955. En vitanlega var
farið að þýða bækur hans mjög
viða löngu fyrr. Árin 1930-40 birt-
ust 10 þýðingar þeirra erlendis
1940-50: 11, 1950-60 hvorki meira
né minna en 81 þýðing (og þann
áratug varð útgáfutalan lika
hæst: 114), 1960-70: 57, en frá ár-
inu 1970 hafa 13 nýjar þýðingar
birzt.
Eins og að likum lætur hafa að-
eins fáar bækur eftir Halldór ,
ein, tvær eða þrjár, birzt á ýms-
um þeim málum sem fjarlægust
eru eins og bengalska og kin-
verska, girska og grænlenzka.
Aðeins á norðurlandamálunum
hafa birzt fleiri en 10 bækur eftir
hann, 18 á sænsku, 16 á dönsku, 14
á dönsku, 11 á finnsku. En 5 og
fleiri þýðingar hafa birzt á all-
mörgum málum: eistnesku,
rúmensku, ungversku (5), pólsku,
slóvenisku, spænsku (6), hol-
lenzku, tékknesku (7), ensku,
rússnesku (8, — auk þess þýðing-
ar á 6 önnur sovét-mál en rúss-
nesku) og þýzku (9).
Viðast hefur Sjálfstætt fólk far-
ið i þýðingu (25), þá Atómstöðin
(21), Salka Valka (19), íslands-
klukkan (19), Heimsljós (15),
B r e k k u k o t s a n n á 11 (11),
Paradisarheimt (10). En Salka
Valka hefur orðið viðlesnust þess-
ara bóka, komið út i 48 útgáfum
erlendis svo að hér sé getið, þá
íslandsklukkan (39), Atómstöðin
(38), Sjálfstætt fólk (33),
Heimsljós (22). Það þarf vist ekki
að taka fram að þessar tölur eru
„birtar án ábyrgðar” hér, en von-
andi skeikar ekki miklu á taln-
ingunni. Og Haraldur Sigurðsson
getur þess um skrá sina að visast
vanti eitthvað i hana svo viða sem
verk Halldórs hafa farið.
Auk skáldsagna hans hafa
smásögur Halldórs Laxness birzt
i bókum á 12 tungumálum, 21 þýð-
ing alls á sögum úr Fótataki
manna (11), Sjö töframönnum (7)
og Sjöstafakverinu (3). Úrval úr
ritgerðasöfnum hans hefur komið
á dönsku, norsku og sænsku.
Skáldatimi á sömu málum og
finnsku. Gerzka ævintýrið á
dönsku, Islendingaspjall á
sænsku. Af leikritum Halldórs
hefur Silfurtunglið komið út á
kinversku, rússnesku, slóvakisku
og tékknesku, en á sænsku hafa
komið Prjónstofan Sólin og
Dúfnaveizlan.
Að lokum þessa talnafróðleiks
er þess að geta að á skránni virð-
ist mér að séu taldar 57 bækur eft-
ir Halldór Laxness útgefnar
á islenzku, 40 ritverk, og er þá
t.a.m. tslandsklukkan talin eitt
verk, sagan sjálf og leikgerð
hennar. En ef endurprentanir eru
meðtaldar verður útgáfutala
verka hans á islenzku um það bil
90. Þar við bætast þýðingar
Halldórs (6) sem sumar hafa
komið i mörgum útgáfum, útgáf-
ur (6) og meðhöfundur er hann
talinn að einni erlendri bók.
...i austri og vestri
En þótt fróðleg sé vitneskja um
þýðingar og útgáfu á verkum
Halldórs Laxness erlendis, og
Tölur um bœkur
visast hún kitli þjóðerniskenndina
i einhverjum lesendum, verður
fátt eitt ráðið af tölum um þau
efni um viðtökur og afnot bók-
anna i þýðingu nema það sem
e.t.v. má álykta af útgáfufjöldan-
um. En hvernig skyldi Bjartur i
Sumarhúsum taka sig út á al-
bönsku eða oria—máli i Indlandi
Ugla, Búi Arland og organistinn á
kinversku, Salka Valka á
tyrknesku, Þorgeir og Þormóður
svarabræður á grænlenzku?
Eins og fyrr segir er langmest-
ur fjöldi þýðinga tilkominn eftir
nóbelsverðlaun Halldórs 1955, en
einnig er glöggt að pólitiskar
ástæður hafi haft sitt að segja fyr-
ir útgáfu bóka hans, einkum en
ekki aðeins i Austur-Evrópu og
Rússlandi. Þar eru þær ekki gefn-
ar út fyrr en eftir 1953, en eftir
1963, hefur engin ný þýðing birzt á
rússnesku svo séð verði. Þótt
Sjálfstætt fólk kæmi út að nafninu
til, á þýzku árið 1936, voru bækur
Halldórs bannfærðar þar i landi
fram yfir strið fyrsta þýðing kom
1951. Annars voru fyrstu þýðingar
á bókum Halldórs á dönsku, Salka
Valka þegar árið 1934, og siðan
hvað af öðru, Sjálfstætt fólk,
Heimsljós, Islandsklukkan. Salka
Valka birtist einnig á ensku, hol-
lensku, sænsku fyrir strið og á
tékknesku á striðsárunum. Eftir
strið komst fyrst skriður á
þýðingar á sænsku. Eftir Sölku
Völku birtist Sjálfstætt fólk á
ensku 1946 og aftur 1957, en siðan
hafa allmargar bækur eftir
Halldór verið þýddar á ensku, og
þó ekki Islandsklukkan enn i dag.
Af þessu má sjá að vissulega hef-
ur verkum Halldórs verið veitt
eftirtekt erlendis nýjum eða ný-
legum af nálinni.
En skyldi frægð hans úti um
heim hafa orðið til að greiða öðr-
um islenzkum bókum og höfund-
um veg til þýðingar og útgáfu er-
lendis?
Móttökur og áhrif
1 tilefni af sjötugsafmæli
Halldórs i fyrra birtist i Skirni
önnur skrá eftir Harald Sigurðs-
son: um nokkur rit og ritgerðii
um ævi og verk Halldórs Laxness.
Þar er um að ræða leiðarvisi að
þvi helzta sem fjallað hefur verið
um Halldór heima og erlendis. En
einvörðungu eru tekin á skrána
sérstök rit, ritlinga og ritgerðir i
timaritum, en þvinær öllum
blaðagreinum og ritdómum i
timaritum er sleppt, nema það
hafi siðan verið endurprentað i
bókum — enda hætt við að taf-
samt reyndist að safna öllu þvi
efni á skrá.
Eins og vænta mátti fer á
skránni langmest fyrir ritum og
ritgerðum Peter Hallbergs um
Halldór, en hér munu þvi sem
næst allar þær greinar taldar. Sjá
má að fyrir utan bækur Hallbergs
um Halldór, fjórar talsins, út-
gefnar á sænsku, islenzku, ensku,
hollensku, finnsku, hafa bækur
birzt um hann og verk hans á
norsku, þýzku, rússnesku. Hér
heima hafa komið út tvö afmælis
rit til hans auk samtalsbókar
þeirra Matthiasar Johannessens
i fyrra. Og þá helgaði timaritið
Scandinavíca, útgefið i London,
verkum hans sérstakt hefti með
ritgerðum eftir átta höfunda i
jafnmörgum löndum. Engin
frumsamin bók hefur komið út á
islenzku um Halldór, ævi hans
eða verk — en á hinn bóginn
ritlingar eftir Einar Kristjánsson,
Frey, séra Pétur Magnússon og
Guðmund Friðjónsson á Sandi.
Áreiðanlega mætti rekja fróð-
lega sögu af þeim viðtökum sem
verk Halldórs Laxness hafa hloti
frá þvi þau komu fyrst út og fram
á þennan dag, einkum þó heima
eftir Ólaf Jónsson
fyrir. Þessi skrá i Skirni er að svo
komnu helzta yfirlit um þá stund
sem fræðimenn um bókmenntir,
heima og erlendis, hafa lagt á
verk Halldórs. En heimildir
viðtökusögunnar eru vitaskuld
miklu viðar og einkum þó i blaða-
greinum og ritdómum um bækur
hans.
Bækur um bækur um bæk-
ur....
Fyrir nokkrum árumvar tekin
upp sú nýlunda að birta i árlegu
fylgiriti með Skirni skrá um það
sem skrifað er ár fyrir ár um is-
lenzkar bókmenntir seinni tima,
heima og erlendis: Bókmennta-
skrá Skirnis. Skrif um islenzkar
bókmenntir seinni tima.... Einar
Sigurðsson tók saman 1968 og sið-
an. Skráin tekur til alls timabils-
ins frá og með Jóni Arasyni og
fram á okkar dag, en eins og að
likum lætur fer þar mest fyrir
greinum um samtimabókmennt-
ir, og er mest af þvi vitaskuld
blaðaefni. Skrá þessi er sem sé
þvi sem næst tæmandi, og fer þá
ekki hjá þvi að sitthvað smálegt
fljóti með þar sem hvaðeina er
talið sem birtist i blöðum,
timaritum og bókum, viðtöl, rit-
og leikdómar i blöðum ásamt
meiriháttar greinum og ritgerð-
um. En af þessu leiðir á meöal
annars að af skránni á að mega
ráða þær viðtökum sem nýjar
bækur fá á hverjum tima og rekja
nokkurn veginn til hlitar hvað
skrifað er um tiltekna höfunda og
verk þeirra frá ári til árs og raun-
ar umfleiii.greinar bókmennta en
skáldskap. Það má ætla að hún
verði þegar frá liður nauðsynleg
handbók hvarvetna þar sem fjall-
að er um bókmenntir seinni tima
á islenzku. Bókmenntaskráin
kom út i fljórða sinn i fyrra, fyrir
árið 1971.
Bókmenntaskrá Skirnir er all-
mikil að vöxtum ár hvert. En
tvennt kemur brátt i ljós ef skrá-
in er lesin. Annað er það sem vit-
að var fyrir, að gagnrýni og um-
ræða samtimabókmennta fer að
langmestu leyti fram i dagblöð-
um, blöðin hafa að mestu ef ekki
alveg öllu leyti tekið við hlutverki
hinna fyrri timarita i þessum efn-
um. Hitt er hve fátt birtist ár fyrir
ár af fræðilegum ritum og rit-
gerðum um bókmenntasögu
seinni alda, ekki bara samtima-
bókmennta heldur einnig t.a.m.
19du aldar þótt hún sé okkar
nálægasta gullöld”. En áhugi
fræðimanna um bókmenntir i.eða
utan Háskóia Islands beinist enn
sem fyrr fyrst og fremst að
klassiskri fornöld islenzkra bók-
mennta.
Konunglega bókasafnið i Kaup-
mannahöfn gefur út árlega bók-
menntasögulega bókfræði rita og
rannsókna i norrænum fræðum.
BONIS, og kom ritið út i 9da sinn i
fyrra: Bibliography of Old Norse-
Icelandic Studies. 1971. Edited by
Hans Bekker-Nielsen. Munks-
gaard 1972. Þar er birt ár fyrir ár
skrá um útgáfur fornrita, bækur,
greinar, og ritdóma i timaritum
umviðfangsefni i norrænum fræð-
um, og er skráin hið handhægasta
yfirlit og leiðarvisir að þvi sem
fram vindur i þessum fræðum á
alþjóðlegum vettvangi.
BONIS er einkar myndarlegt
rit, og fylgir ritskránni sjálfri
jafnan einhver meirháttar rit-
gerð. t fyrra var það önnur bók-
fræði, bókfræðilegur inngangur
að norrænum miðaldafræðum
eftir Peter Buchholz: A Biblio-
praphical Introduction to Media-
evel Scandinavia. Skráin skiptist
i fjóra meginkafla, bókfræði,
handbækur, yfirlitsrit, og útgáfur
heimilda, timarit. En kynlega
kemur það fyrir að sér-islenzku
efni er sleppt úr skránni — á
þeirri forsendu að þvi séu næg
skil gerð i öðrum bókfræðiritum.
Bókfræöi og bókaútgáfa
Arbök Landsbókasafns er ann-
ars helzta heimild um islenzka
bókfræði og bókaútgáfu frá ári til
árs: árleg skrá sem þar er birt
um islenzkan ritauka safnsins,
siðast fyrir árið 1970 með viðauk
um og leiðréttingum, ásamt sér-
stakri skrá um rit á erlendum
tungum eftir islenzka menn eða
um islenzk efni. Þessi skrá á að
vera öldungis tæmandi, en
óneitanlega óskar lesandi þess að
hún væri aðgengilegri, gerði skil
á bókum og ýmsum ritlingum,
smáprenti og sérprenti sem ekki
telst til eiginlegrar bókagerðar,
og efnisskipting væri gleggri. Ef
til vill gæti árleg bókaskrá Bók-
sölufélags Islands komið að gagni
i hennar stað ef betur væri til
þeirrar skrár vandað birt efnis-
flokkun og ásamt stafrófsskrá og
tryggt að skráin tæki til allrar
bókaútgáfunnar. En slik útgáfa
er að sönnu varla i verkahring
Bóksalafélagsins — sem einungis
er að gefa út verðlista um nýút-
komnar bækur.
Árbók Landsbókasafns er
myndaríegt rit og flytur gjarnan
skránna og starfsskýrslu safns-
ins. 1 þetta sinn eru þar nokkrar
greinar um bókfræðileg efni þar á
meðal grein eftir Guðmund Jóns-
son um Sigurð Þórðarson tón-
skáld ásamt skrá um handrit að
tónverkum Sigurðar sem nú eru
varðveitt i Landsbókasafninu.
Hvað er í söfnunum?
Um erlendan ritauka Lands-
bókasafns hafa til skamms tima
engar skýrslur birzt. En árið 1970
tók safnið að gera út Samskrá um
erlendan ritauka islenzkra rann-
sóknabókasafna sem kemur út i
tveimur hlutum tvisvar á ári, og
tekur annar hlutinn (A) til svo-
nefndra hugvisinda en hinn til
raunvisinda (B). 1 skránni eru
taldar erlendar bækur i átta
bókasöfnum: Læknisfræðibóka-
safni Borgarspitalans, Bókasafni
Hafrannsóknastofnunar,
Háskólabókasafni, Bókasafni
Hæstaréttar, Tæknibókasafni
Iðnþróunarstofnunar Islands,
Læknisfræðibókasafni Land-
spitalans og Bókasafni Orku-
stofnunar auk LandsbókasafnS.
Fyrir utan fræðimenn i við-
komandi greinum er þetta rit
vitaskuld einkar þarflegt fyrir þá
sem vilja fylgjast með og nota sér
með einhverjum hætti erlendan
bókakost t.a.m. i Landsbóka-
safni —en not hans munu reyndar
hafa verið fjarska litil um langan
aldur.
Fyriri nokkru gaf Háskóla-
bókasafn út fjölritaða Skrá um is-
lenzk blöð og timarit frá upphafi
til 1966. Böðvar Kvaran og Einar
Sigurðsson tóku saman, Reykja-
vik 1970. Þar eru alls talin 1955
timarit, og komu 345 út á árinu
1966. Ritin eru talin i stafrófsröð,
upplýsingar takmarkaðar um
hvert og eitt er efnisflokkun
vantar, en þar fyrir er þetta hið
fróðlegasta rit, ómissandi hand-
bók öllum áhugamönnum um út-
gáfu og sögu blaða og timarita.
Um erlend timarit i islenzkum
bókasöfnum hafa engar skrár
verið til, en fyrirhuguð mun út-
gáfa samskrár erlendra timarita
i likingu við samskrá erlendra
bóka. Meðan hennar er beðið
hefur Háskólabókasafn gefið út
Skrá um erlend timariti safninu,
einnig stafrófsskrá eftir heitum
án nánari greiningar. Þar eru
talin 1472 timarit og ritraðir i eigu
safnsins, eldri og yngri, 938 þeirra
i áskrift. Þessi eina tala sýnir
glöggt hversu hér er um að ræða
mikið efni, en nauðsynlegt er að
vanda sér i lagi slik fastakaup svo
að þau komi að gagni. Má þvi ætla
að samskrá erlendra timarita
yrði brátt einkar notadrjúgt rit, i
fyrsta lagi fræðimönnum og
stúdentum sem reglubundin
skipti eiga við rannsóknabóka-
söfn, en einnig almennum not-
endum bókasafna og þá sér i lagi
Landsbókasafns.
En það er á meðal annarra orða
efni sem furðu sjaldan er getið i
öllum umræðunum um hina
margumræddu þjóðarbókhlöðu —
fyrirhugað starf safnsins i þágu
almennra lesenda og viðskipta-
manna sinna og almenningsbóka-
safna i þeirra þágu.