Vísir - 26.03.1973, Side 11
Sigraði
með 2-0
Keflavík rauf langa
sigurgöngu Eyjamanna
Hooley — hinn enski sömu g'etu og hinir og reyndari i Lið IBV var með daufara móti Arsæli. Vafalitið eiga Eyjamenn
biálfari Keflvíkinqa_qaeti vörninni. í framlinunni voru þeir og undrar vist engan eftir það eftir að sýna vigtennurnar, þegar
wafalítiA woriA^cl/íUinn Steinar og Friðrik kvikir og sem á hefur dunið. Litið kvað að á liður —
vatailTlO verio SKaiainu Skeinuhættir. öðrum en þeim Tómasi, Erni og —emm
sammála, um, að hjörtum
FH vann
á Akranesi!
Litla bikarkeppnin hófst á
iaugardag með leik uppi á
Akranesi — FH-ingar komu i
heimsókn og unnu öruggan
sigur, sem var verð-
skuldaður 2-0. Þeir Dýri
Guðmundsson og Helgi
Ragnarsson skoruðu mörk
Hafnarfjarðarliðsins — Dýri
beint úr aukaspyrnu. Lið
Akurnesinga náði sér aldrei
á strik I leiknum.
mannanna svipi saman i
Sudan og Grímsnesinu (ef
hann fer austur fyrir fjall)
— en hvað veðráttuna
áhrærir, þá er hún víst
mjög ólfk í Sudan og á
Suðurnesjum. Það hefur
Hooley fengið að reynslu
þá fáu daga, sem hann
hefur dvalið hér á landi.
Það var lika allt annað en
Sundan-sólarveður, sem á var,
þegar IBV og IBK léku sinn
annan leik i Meistarakeppni KSl i
gærdag á frosthörðum malarvell-
inum i Keflavik. Hvöss suð-
austan átt með snjóhraglanda,
þegar á leikinn leið, gerði leik-
mönnum mjög erfitt um vik með
að hemja knöttinn. Leikurinn var
þvi fremur tilviljanakenndur og
sjaldan brá fyrir skemmtilegum
samleik en þess meira var af
langspyrnum og hæðarsend-
ingum, sem Kári gamli bar langt
af leið.
Hvorugt liðið virðist komið i
fulla æfingu, en skipulag Kefl-
vikinga var öllu betra en Eyja-
manna, sem ekki voru i essinu
sinu — og það gerði gæfumuninn.
Þótt Hooley hafi hvorki verið
heillaður af verðurfarinu né leik
sinna lærisveina, getur hann þó
glaðst yfir þvi, að með sigri
sinum tókst þeim að rjúfa langa
sigurgöngu IBV, sem m.a. sigraði
IBK i þeirri hrinu 6- 1.
Fyrsta hættulega tækifærið til
að skora átti Orn Óskarsson, en i
stað þess að skjóta, sendi hann
knöttinn að marki, en knötturinn
rann svo til yfir tærnar á tveimur
félögum hans og út fyrir enda-
mörk.
Eftir 20 min. jafnan leik var
knettinum varpað inn til Guðna
Kjartanssonar, sem kominn var
inn i vitateig IBV. Guðni skallaði
knöttinn aftur fyrir sig — til
Steinars Jóhannssonar, sem
þegar virðist kominn á skotskóna.
Hann var ekkert að tvinóna við
hlutina —sendi knöttinn af öryggi
framhjá Arsæli Sveinssyni mark-
verði — i netið 1-0
Strax eftir upphafsspyrnu náðu
Keflvikingar knettinum og
skyndilega var Steinar frir.
Hann sendi knöttinn i átt að
mannlausu markinu, en á siðustu
stundu tókst varnarmanni að
spyrna frá á marklinu — en lenti
sjálfur þangað sem knettinum
var ætlað — i netinu.
I byrjun siðari hálfleiks sóttu
Eyjamenn öllu meira, en heima-
menn. En þeim tókst aldrei að
rjúfa varnarmúr IBK, þrátt fyrir
heiðarlegar tilraunir. Tómasar
Pálssonar og Arnars Öskars-
sonar — á eigin spýtur.
Eigi að siður áttu þeir Jón
Ólafur og Steinar fyrstu færin i
siðari hálfelik, sem bæði mis-
tókust. Einnig varði Ársæll mark-
vörður þrumuskot frá „harð-
jaxlinum” Grétari Magnússyni —
mjög glæsilega. Nokkrum min,
siðar urðu honum hins vegar á
alvarleg mistök — sendi knöttinn
óvart til Friðriks Ragnarssonar,
sem lyfti honum i mannlaust
markið 2.-0
Undir lokin færðist nokkur festa
i leikinn og fengu þeir Grétar og
Ásgeir Sigurvinsson áminningu
frá mjög góðum dómara leiksins,
Eysteini Guðmundssyni.
Hvort strax er farið að gæta
áhrifa frá hinum nýja þjálfara
IBK er ekki gott að segja um.
Hins vegarorkaði liðið ölluliflegra
en i fyrrasumar. Vörnin traust og
nú virðist Gunnar Jónsson,
ungur bakvörður, vera að ná
FLUGFELOG KEYPTU ENN 47
TRISTAR ÁRIÐ 1972
Það dregur úr hávaða
í 3 álfum
Sigurganga TriStar hélt áfram árið 1972.
All Nippon Airways í Japan pantaði 21
þotu. ANA er níunda stærsta flugfélag í
heimi og fyrsta Asíuflugfélagið sem pantar
3ja hreyfla breiðþotu. British European Air-
ways (BEA) pantaði 18. Delta Airlines bætti
sex þotum við pöntun sína.
Þýzka leiguflugfélagið LTU pantaði tvær.
(Það er önnur pöntunin frá slíku flugfélagi.
Brezka leigufIugfélagið Court Line pantaði
fimm TriStar þotur 1971).
Nú hafa verið keyptar hjá okkur 199 þot-
ur af þessari gerð. Þá hafa sex af stærstu
flugfélögum heims valið TriStar: Air Can-
ada, ANA, BEA, Delta,
Eastern og TWA.
PSA, leiguflugfélag
í Kalifornfu, hefur einnig kosið L-1011.
Pantanir 1972 voru fyrir meira en 850
milljón dollara.
Mest er þó um vert hversu TriStar dregur
úr hávaða, hljóðmengun.
Áður en L-1011 kom inn í flugsamgöng-
urnar í fyrra hafði Sameiginlegt flugráð
Bandaríkjanna, FAA, staðfest að TriStar er
hljóðlátasta risaþota í heimi.
Til þessa hafa 20 þotur verið afhentar
Eastern, TWA og Air Canada.
Við afhendum 34 í viðbót á þessu ári.
Þetta þýðir allt annað líf fyrir fólk sem
lifir og starfar í nánd
Lockheed L-1011 við flugvelli.
Hljóðlátasta risaþotan
V