Vísir - 28.04.1973, Qupperneq 5
Vísir. Laugardagur 28. aprfl 1973.
5
150 sálir
Mannsöfnuðurinn
niðri á götunni, sem
mænir upp á manninn,
borðandi kvöldverð sinn
uppi á þaki sóknarkirkj-
unnar, er auðvitað
undrandi á þessum
kúnstum i manninum.
Þetta var i bænum Kenova i
Vestur-Virginiu núna i vikunni,
og sá sem hreykir sér uppi á
kirkjuþakinu, er sóknarprestur-
inn sjálfur, hann séra Karl Hart-
man.
Hvað hann sé að gera með að
borða uppi á kirkjuþakinu? — Jú,
það er einfalt að svara þvi, hann
er að efna loforð sitt, eins og
sæmir manni af hans stétt.
Einhvern tima við guðsþjón-
ustu i desember siðastliðnum
þoldi hann ekki mátið yfir lélegri
kirkjusókn sóknarbarna sinna.
Hann hét þvi, að hann skyldi
borða kvöldverðinn sinn uppi á
kirkjuþaki, ef kirkjusóknin kæm-
ist upp I 150 sálir. ' inn sinn. Það mættu nefnilega 153
Hann var heppinn, aö hann sálir við guðsþjónustu hjá honum
skyldi ekki heita þvi að éta hatt- um daginn.
Dean Martin kvœnist í
þriðja sinn
„Þetta er bezta brúð- sér að eiginkonu 25 ára
kaupið, sem ég hef verið gamla fyrirsætu,
við,” sagði Dean Martin Catherine Hawn.
eftir að hann hafði tekið Og hann lék á als oddi við gesti
íí/ -* ■••> ■'-■
!■ *■' ■ ■ ,;■.
■ . ■ ■ ■ .........................................................................................................................................................................-
Svaramaöur var Frank Sinatra, sem hér sést á golfvellinum meö Bar-
böru Marx, fyrrum eiginkonu Zeppo Marx, en þau tvö uröu nr. 15 í golf-
keppni i Palm Springs núna á dögunum. Þau hafa sézt töluvert saman,
en blaöafuiltrúi Sinatra þrætir fyrir, aö þau séu f nokkrum giftingar-
hugleiðingum. — Barbara sást oft leika tennis viö Spiro Agnew vara-
forseta, en hann og Sinatra eru miklir vinir.
Dean Martin og Jeanne, eiginkona
hans I nær samfleytt 22 ár.
og viðstadda fréttamenn. Þessi
fyrri mótleikari Jerry Lewis
grinkarls sagði þjónunum að
leyfa aldrei vinglösum gestanna
að tæmast meira en til hálfs.
Svaramaður var auövitað
vinurinn Frank Sinatra, en
brúöarmær var hin 6 ára gamla
dóttir brúðarinnar frá fyrra
hjónabandi hennar.
Þetta er hins vegar þriöja
hjónaband Martins, sem er 55 ára
gamall oröinn og tuttugu árum
eldri en brúðurin, sem hann leiddi
við hliö sér fyrir prestinn, en
hjónavigslan fór fram i hóteli i
Beverly Hills núna á fimmtudag.
Boðsgestir voru 85 sérstakir vild-
arvinir brúðgumans og brúðar-
innar.
Veizlusalurinn var skreyttur
með 200 tylftum af liljum, öðrum
200 tylftum af rauðum rósum og
nær hundrað tylftum af túlipön-
um, en öll þessi blómamergð
hafði verið fengin með flugvél frá
Paris.
Meðan á móttöku gesta stóð,
voru opnaðir tuttugu og tveir
kassar fullir af dúfum og þeim
hleypt út. Meðan gestirnir virtu
fyrir sér fuglana, dreyptu þeir á
frönsku kampavini og gæddu sér
á kaviar frá Iran.
„Manni þykir þetta ekki dýrt,
þegar maður er ástfanginn,”
sagði Martin við fréttamenn.
011 sjö börn hans voru viðstödd
brúðkaupið, fjögur frá fyrsta
hjónabandi og þrjú frá 23ja ára
hjónabandi hans og fyrirsætunn-
ar Jeanne Diagger, sem lauk
með skilnaði i nóvember síöast-
liðnum og 6,5 milljón dollara lif-
eyri, sem hann varð að greiöa
henni.
Uppboð
Eftir beiöni Sakadóms Reykjavikur veröur opinbert upp-
boöaö Borgartúni 7, laugardag 5. mal n.k. kl. 13.30. Veröa
þar seldir ýmsir óskilamunir, svo sem reiöhjól, fatnaöur
töskur, úr o.m.fl. Greiösla viö hamarshögg.
Borgarfógetaembættiö I Reykjavik.
Skrifstofumaður óskast
Stórt iðnfyrirtæki óskar eftir að ráða
skrifstofumann. Æskilegt er að viðkom-
andi sé vanur launaútreikningum og al-
mennum skrifstofustörfum. Uppl. i sima
33942 mánud., þriðjud., og miðvikudags-
kvöld kl. 7-9.
Verzlun til sölu
Þekkt vefnaðarvöruverzlun i mjög fjöl-
mennu hverfi, nýstandsett, litill lager, um
1200-1300 þús. Verð kr. 900 þús. Útborgun
450 þús. Tilboð sendist augld. Visis merkt
„4836”.