Vísir - 28.04.1973, Blaðsíða 9

Vísir - 28.04.1973, Blaðsíða 9
Vísir. Laugardagur 28. aprll 1973. 9 Ljósmyndir: Bragi Guðmundsson BÍLASÝNING 1973 Meiro frá sýningunni í mánudagsblaði SÍGILT FORM OG ÖRYGGI Sígilt form og öryggi SAAB-bllanna hefur skapaö þeim miklar vinsæld- ir, enda hafa þeir bryddaö upp á ýmsum nýjungum, svo sem vökva- fjaörun i höggvara, upphituöu ökumannssæti og þurrkum á ökuljósin. Einn úr plasti Citroen Mehari blllinn (framar á myndinni) vakti mikla eftirtekt sýn- ingargesta I gær, enda nýstárlegur, og ekki siöur fyrir þaö, aö yfir- byggingin er öll úr plasti. Þessi Mehari-jeppi er frekar ódýr, kostar um 304 þúsund krónur. DS-23 billinn á bakviö'er óneitanlega glæsilegur, enda dýrari, kostar riflega eina milljón. Athyglisverður smóbíll frá Renault Hann er óneitanlega rennilegur þessi Renault 15 TS, sem er á miöri myndinni. Þetta er fjögurra manna blll, tveggja dyra meö opnanlegum afturhlera. Veröiö er um 668 þúsund. Á bak viö er Renault 16. Fremst er svo einn at- hyglisveröari bíllinn frá Renault, R5, tveggja dyra rúmgóöur smá- bíll með opnanlegum afturhlera, hann er framhjóladrifinn og hefur hlotiö mjög góöa dóma I ná- grannalöndunum. Miðað viö stærö er hann nokkuð dýr, kostar um 426 þúsund kr. MR SÁ DÝRASTI Aætlunarbifreiðin fremst á myndinni, sem er af geröinni Mercedes Benz, sem og vörubifreiðirnar á bak viö, mun örugglega dýrasta bif- reiðin á sýningunni. Er verð hennar rúmlega 7 milljónir króna, en vörubifreiðirnar slaga hátt þar upp I, eða yfir 3 milljónir. GAMALT OG GRÓIÐ Á NÝJUM SKÓM — rœtt við Sigfús Sigfússon Verulegar breytingar veröa frá og meö þriöjudeginum 1. mal á innflutningi nokkurra helztu bif- reiðategundanna, sem hingaö flytjast frá Bretlandi. Mun fyrirtækiö P. Stefánsson h.f. þá veröa einkaumboösaöili fyrir Austin, Morris, M.G., Triumph, Jagúar, Land Rover, Range Rover og Rover bila á tslandi, en nokkur umboö hafa farið meö umboð fyrir þessar bifreiöa- tegundir fram aö þessu. A bilasýningunni sýnir fyrir- tækiö allar þær tegundir bif- reiða, sem fluttar verða inn á þeirra vegum. Þar hittum við fyrir Sigfús Sigfússon forstjóra P. Stefánssonar h.f. og inntum hann eftir þessum nýju umboö- um. „Astæöan fyrir þessu” sagöi Sigfús, ,,er sú, aö British Ley- land Motor Corporation er búiö aö sameina mörg fyrirtæki inn i eitt og breyta umboösmanna- kerfi um allan heim, og þá sér- staklega I Evrópu. Miöast það við að hafa einn umboðsmann i hverju landi fyrir allar geröir fólksbila, sem þeir framleiöa. Þegar þeir svo komu til okkar, sem voru þeirra söluhæstu aöil- ar hérlendis, það er að segja Land Rover og Range Rover, þá gaf það auga leið, að við gátum ekki farið að selja Morris og Austin samhliða Volkswagen, þá ákváðum viö að endurvekja aftur okkar gamla góða fyrir- tæki P. Stefánsson hf. Viö eigum gott húsnæði viö Hverfisgötu, sem er búið algjörlega að endurbyggja. Þar verður al- hliða verzlunar- og þjónustu- miðstöð fyrir þá bíla, sem við seljum.” Áherzla lögð á 4 tegundir Sigfús tók fram, að þótt fyrir- tækið hefði umboð fyrir Jagúar, Triumph, M.G. Austin, Morris og Rover þá væri ætlunin að flytja aðeins inn fjórar tegundir, það er að segja Austin Mini, Morris Marina, en hann verður til i ýmsum gerðum, og svo einnig Land Rover og Range Rover. Austin Mini billinn verð- ur fyrst um sinn að minnsta kosti aðeins til i einni útgáfu, en með þvi vill fyrirtækið tryggja það að geta selt ódýran og góðan bíl. Austin Mini mun verða ódýrasti billinn á markaðnum, innan við 300 þúsund, og jafn- framt veitt eins fullkomna þjón- ustu og unnt væri. ,,Þó að við seldum nokkra Jagúarbila, M.G. sportbila og Triumph, þá væri sllkt ekki hagkvæmt af varahluta- og þjónustuástæð- um, hvorki fyrir fyrirtækið né kaupendurna,” Sagði Sigfús, að það sem alltaf hefði vakaö fyrir þeim væri að veita fullkomna þjónustu, og þaö væri aðeins hægt með þvi að vera ekki með of margar tegundir. ,,Þó að þessi breyting verði á rekstri Heklu”, sagöi Sigfús, ,,þá vil ég taka það fram, að það verða algjörlega sömu aðilar sem standa að fyrirtækinu jafnt og áður. Það sem gerir þessa skiptingu nauðsynlega er af- staða erlendu fyrirtækjanna, þ.e. Leyland og Volkswagen, þau myndu aldrei samþykkja, að sömu aðilarnir færu með sölu beggja.” Varðandi eldri tegundir a f Austin og Morris, sem væru i umferð tók Sigfús fram, að þeir gætu ekki veitt eigendum þess- ara bifreiða fullkomna vara- hlutaþjónustu, en reyndu eins og hægt væri að útvega þá vara- hluti, sem þyrfti, með þvi að panta þá aö utan. Sigfús sagði, að i sölu Land Rover og Range Rover hefði Is- land ávallt verið i efsta sæti i heiminum miðað við fólks- fjölda, og miðað við Evrópu væri Island stór markaður. Við værum stærstir fyrir utan sviss- neska herinn. Það sem hefði háð þeim fram aö þessu væri það, að ekki hefði verið unnt að afgreiða nægilega marga bíla hingað til lands. Af Range Rover væru nú komnir um 170 bilar i umferð hér, en þeir hefðu hiklaust getað selt 120 bilum fleira, ef þeir hefðu fengizt afgreiddir. Sama máli hefði gilt um Land Rover þeir hefðu aldrei fengið nóg af bilum. Að lokum vildi Sigfús taka það fram, að allt það fólk sem veitti forstöðu hinum ýmsu deildum P. Stefánsson h.f. kæmi frá Heklu, og þetta væri fólk sem hefði mikla reynslu og hefði unnið hjá þeim i mörg ár. P. Stefánsson h.f. væri elzta fyrir- tækið i islenzkum bifreiðainn- flutningi, þótt það hefði legið niðri i fimm ár. Fyrirtækið var stofnað árið 1906, en Sigfús Bjarnason i Heklu keypti það árið 1953, og hafa fyrirtækin verið rekin i nánum tengslum siðan. _.tr Austin Mini mun vera ódýrasti blllinn á sýningunni, rétt innan viö 300 þúsund krónur. Binda þeir hjá P. Stefánssyni hf. miklar vonir við að vinsældir hans veröi miklar á markaði hér, eins og I nágrannalöndum okkar. P. Stefónsson h.f. tekur við umboðum British Leyland ó íslandi

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.