Vísir - 28.04.1973, Side 10

Vísir - 28.04.1973, Side 10
Ensku deildakeppninni lýkur i dag — það er flest liðin ljúka þá leikjum sinum, en örfá eiga þó fleiri en einn leik eftir. t>ar hefur Evrópukeppni og bikar- keppni spilað inn i. Leikmenn Liverpoo) verða krýndir sem enskir meistarar á Anfield eftir leikinn við Leicester — áttundi meistaratitill Liverpool i ensku knattspyrnunni.en það er jafnt meti Arsenal. Manch. Utd. hefur unnið titilinn sjö sinnum — þar af fimm sinnum eftir heimsstyrjöldina siðari. Það verður hart barizt i mörgum leikjum i dag, þó svo meistara- titillinn sé i höfn, og fallbarátt- I VIKULOKIN unni lokið i 1. deild. Efstu sætin gefa rétt i hin ýmsu Evrópumót — þrjú efstu liðin i 1. deild fyrir utan deildameistarana, Liverpool, sem fer i Evrópu- keppni meistaraliöa, komast i UEFA-keppnina ásamt Tottenham, sem vann deilda- bikarinn. Ef Leeds vinnur enska bikarinn nk. laugardag fer liðið i Evrópukeppni bikarmeistara — annars i UEFA-keppnina. Einn þýðingarmesti leikurinn i sambandi við hana verður á Upton Park. Þar leika Lundúnaliðin West Ham og Arsenai — West Ham þarf aö sigra til að geta gert sér von um Evrópukeppni. Myndin efst til hægri er frá Upton Park, þegar Wcst Ham og Leeds léku þar I vetur. Kannski táknræn mynd fyrir þá þróun sem á sér stað ensku knattspyrnunni — þeldökkir leikmenn setja æ meiri svip á hana. Þarna eru þeir Clyde Best — sá i dökku peysunni — Bermudasverting- inn hjá West Ham, og Paul Reaney, múlattinn i Leeds-liðinu, sem fæddur er t: Lundúnum. ☆ Bjarnieifur ljósmyndari brá sér inn i búningsherbergi Vals eftir sigurinn i 1. deild á dögun- um. Þar var auðvitað mikil gleði — loksins eftir átján ár var islandsmeistaratitillinn Vals — og kampavinsflöskum var brugðið á loft. Þarna eru Gunn- steinn Skúlason, fyrirliði, Jón Karlsson og Bergur Guðnason (myndin til vinstri) — leikmenn, sem keppt hafa að þessum áfanga um langt árabil, og vissulega var ástæða til fagnaðar. Margra ára æfingar, óteljandi svitadropar, höfðu loks gefið æðstu verðlaunin I is- lenzkum handknattleik af sér. A myndinni fyrir neöan er einnig kappi, sem lengi hefur veriö i fþróttum — Jón Guð- laugsson úr Skarphéðni. Hann er lengst til hægri á myndinni og er að leggja af stað ásamt öðrum keppendum í 58. víða- vagnshlaup 1R — í átjánda sinn, sem hann tekur þátt I hlaupinu. Það hafa fáir hlaupiö oftar — sennilega enginn nema Oddgeir Sveinsson, KR. Til vinstri á myndinni er Ágúst Asgeirsson, ÍR, sem sigraöi f hlaupinu. Hann varð einnig sigurvegari f fyrra. Næstur honum með húf- una er félagi hans, Sigfús Jóns- son, sem varð þriðji i hlaupinu. I DAG KNATTSPYRNA: Tveir leikir verða háðir I Litlu bikarkeppninni i meistaraflokki i dag og hefjast kl. :i. Þá leika Hafnarfjörður og Keflavik, og Akranes — Kópavogur. Einn leikur verður i Reykjavikurmót- inu á Melavelli. Ármann og Valur leika. HANDBOLTI: Úrslitaleikir I yngri flokkunum halda áfram i dag. í Hafnarfirði leika kl. 15: 2. flokkur kvenna Þróttur — KR Valur — Völsungur 4. flokkur karla Frain — KR :t. flokkur karla Stjarnan — Haukar Fram —KR i Laugardalshöll kl. ts.'.io: :!. flokkur kvenna Fylkir — Víkingur ÍBK — Völsungur 2. flokkur karla FH — Vikingur Frarn — KA SKÍDI Lokamót i bikarkeppni Skiöa- félags Reykjavikur verður i dag kl. :i við Armannsskálann í Blá- fjöllum. Nafnakall kl. tvö. t móts- lok verða bikarar, sem Sportval gaf til keppninnar, afhentir. ¥ GLtMA Fyrsta bikarglima unglinga og drengja verður háð i íþrótta- skemmunni á Akureyri og hefst kl. 1.30. Keppendur eru frá sex félögum og samböndum viös veg- ar að af landinu. Auk venjulegra verðlauna verða veitt verölaun fyrir hæfnisglfmu samkvæmt stigagjöf þriggja dómara. Að lok- inni keppninni efnir glfmuflokkur Glfmusambands islands til glimusýningar. BADMINTON islandsmótið f badminton hefst i Laugardalshöll með setningu kl. 17.30. Siöan hefst keppni i undan- rásum. Úrslitaleikir verða á mánudag og hefst keppnin kl. 20.00.1 dag verða alls leiknir 107 leikir á átta völlum. HANDBOLTI Lokakeppni islandsmótsins f yngri flokkum veröur i Laugar- dalshöllinni og hefst kl. 12.30. Þá leika 3. flokkur kvenna Fylkir — Völsungur ÍBK — Vikingur 2. flokkur kvenna Þróttur — Völsungur Valur — KR 4. flokkur karla Þróttur — KR 3. flokkur karla Stjarnan — KA Fram — Haukar 2. flokkur karla FH — KA Fram — Vikingur Á MORGUN

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.