Vísir - 23.05.1973, Blaðsíða 10

Vísir - 23.05.1973, Blaðsíða 10
LEIKA í FYRSTA SINN Á HEIMAVELLI í KVÖLD — Árbœjarvöllur Fylkis tekinn í notkun Fyrsti leikurinn í 3. deild i knattspyrnunni á þessu sumri veröur>annaö kvöld, en þá leika Fylkir úr Reykjavlk og Viðir frá Sandgerði. Þetta er fyrsti heimaleikur Fylkis, en leikurinn fer fram á nýja iþróttavellinum I Árbæjar- hverfi. Mikill fjöldi liða hefur til- kynnt þátttöku i 3. deildinni-28 liö,- viðsvegar af landinu og er I k i w* 'Si r wHi ^ í—- r -ll Ppjrj ^.pu. •vir ,-æJ 1 1 „ þeim skipt i 6 riöla. Sigur- vegarar úr riðlunum keppa siöan i tveim riölum i undan- úrslitum og siöan er úrslita- leikurinn milli tveggja efstu liðanna. Ekki er vafi á, að margir ibúar Arbæjarhverfis mæta á völlinn að þessu sinni, en þeir Fylkismenn ætla sér stóran hlut i iþróttalifinu i framtiö- inni, 'og meðal annars gáfu þeirút myndarlegt félagsblað fyrir skömmu —ÓG ■<------« Þetta er forystuliðið í knatt- spyrnumáium Fylkis, og sannarlega geta þeir verið ánægðir, þvi i kvöld hefjast heimaleikir iiöa þeirra. Á myndinni: Sitjandi frá vinstri, Erlingur Björnsson, Steinn Halldórsson, formaður knatt- spyrnudeildarinnar, Gylfi Felixsson. Aftari röð: Sævar Sigurösson, Jakob Halldórsson, Guðmundur Bjarnason og Siguröur Halldórsson. Magnús gegn Rikharði fyrir aganefnd: Hvenœr geta leikmenn og þjálfarar byrjað að svívirða dómarana? „Auðvitað hlýtur aga- nefndin að taka málið fyrir, annars væri hún beinlinis hlægileg”, sagði Magnús Péturs- son, dómarinn, sem tel- ur Rikharð Jónsson hafa kallað sig „aðskotadýr” r Iþróttamaður órsins boðinn til Sviþjóðar t mestu skyndingu varð tþróttamaður ársins, Guðjón Guðmundsson að pakka niður I feröakistur sinar, hann var boðinn til Sviþjóðar i tilefni af kjöri Iþróttamanns Norðurlanda, sem er Lassé Viren, sá stórkost- legi hlaupari. Með Guöjóni fór Jón Asgeirsson u^an, en hann er formaður i samtökum iþrótta- fréttamanna. eftir leik Akurnesinga við Keflavik um siðustu helgi. Eða hvað? Telur nefndin sig hafa lögsögu (svo viðhaft sé vin- sælt orðalag) í þessu máli. Hvert nær valdsvið dómarans. Hefst það viö hliö iþróttavallarins, þegar dómari og leikmenn hafa gengið gegnum það og lýkur vald- sviði dómara, þegar leikmenn hafa yfirgefið leikvanginn? Spurning er: Hvenær geta leik- menn og þjálfarar byrjað að svi virða dómarana. Eða geta þeir það yfirleitt nokkurn tima? „Mér finnst það afar útbreidd- ur misskilningur”, sagði Magnús i gærkvöldi, ,,að menn halda, að strax að leik loknum geti þeir áhyggjulaust farið að senda okkur tóninn og hagað sér eins og örgustu ruddar. Ég tel, að valdsvið dómara hefjist strax og hann mætir á keppnisstaö og ljúki ekki fyrr en hann yfirgefur keppnisstaðinn. Þess vegna fór ég inn i búningsklefa Skagamanna enda ærin ástæða til að minu mati. Framkoma Rikharðar við þetta tækifæri var fyrir neðan allar hellur og þótti mér leitt að kynnast þessari hlið á þeim leik- manni, sem ég hef haft hvað mestar mætur á”! Þá sagöi Magnús, að það væri leitt að kynnast þvi hjá forráða- mönnum, hvernig þeir lita á þá, sem dómgæzlunni sinna. „Við fá- um fyrir okkar þörf litið annað en vanþakklæti og tvö boðskort á völlinn. Jú, kostnaður við ferða- lög ei- greiddur að visu, en bún- inga okkar sjáum við um sjálfir, og vissulega kemur það fyrir aö við þurfum að taka upp pyngjuna fyrir að hafa þetta áhugamál. Ekki svo að skilja, að ég sé að fara fram á einhverja umbun i peningum fyrir þetta starf. Þaö hefur aldrei verið mér kappsmál. Hins vegar mættum við öðru hvoru finna eitthvað þakklæti af hálfu forráðamanna félaganna fyrir okkar störf”. — JBP — o Magnús dómari Pétursson sést hér dæma i leiknum milli Kefl- víkinga og Akurnesinga um sið- ustu helgi. Ljósmynd EMM mMm Jjjönusla þeeg {■:LA€ ÍSIAN sjáuni við Bjarna Felixson formann araSambandsins afhenda Hannesi Þ. urftssyni blómvönd f tilefni af 25 ára ..v.í fi hans sem dómara. Þetta gerftist vift upfrhaf ieiks KR og tBV' á mánudags- kvöldift. A milli þeirra stendur Albert (íuömundsson. formaftur Knattspyrnu- sainbands islands. — segir Hannes Þ. Sigurðsson, sem hefur nú starfað í aldar - fjórðung sem dómari bœði í knattspyrnu og handknattleik „EKKI STARF TIL AÐ VERÐA VINSÆLL AF" — Ég mundi ekki ráðleggja neinum að leggja fyrir sig dómarastörf i íþróttum, ef hann ætlaði að skapa sér með því vinsældir, þvi dómarahlutverkið er í eðli sinu óvinsælt, og kannski er það höfuð- ástæðan fyrir þvi, hve fáir fást tii þess að taka það að 6ér. — Þetta voru orð Hannesar Þ. Sigurðs- sonar, hins þekkta knattspyrnu- og hand- knattleiksdómara, en við ræddum við hann i tilefni af því, að hann hefur nú um þessar mundir lagt þann áfanga að baki að starfa að knattspyrnu- dómaramálum í 25 ár. Þaðerekki aðeins, að hann hafi verið einn virkasti og virtasti dómari okkar í knatt- spyrnu, hann hefur lika sinnt handknatt- leiksdómarastörfum jafnlengi, í aldar- fjórðung. Við spurðum Hannes, hver hefðu verið tildrög að þvi, að hann fór að dæma. — Þegar ég á sinum tima æfði og keppti með minu Iþróttafélögin vanrækja mjög þá frumskyldu sina að kenna leikmönnum sinum frumatriði i lögum og reglum hinna ýmsu keppnis- greina. Þaö sé m jög oft orsök misskilnings og leiðinda, aö leikmenn vantar kunnáttu á þessu sviði og mikið verkefni sé þarna óunnið. Hér talar Hannes af langri og viðtækri reynslu, þvi auk almennra dómarastarfa hefur hann staðið fyrir ótal dómara- námskeiöum, bæði i knatt- spyrnu og handknattleik. Einnig væri mjög nauðsyn- legt að fræða áhorfendur meira en gert hefur verið um leikreglur og geti sjón- varpið komið þar að góðum notum, ásamt öðrum fjöl- miðlum. Aö sjálfsögðu hefur Hannes ákveðnar skoðanir á iþróttaskrifum blaðanna og aðspurður sagði hann meðal annars eftirfarandi um þeirra hlut i iþróttastarfinu: byggjast á sanngirni og þekkingu, þá fyrst kemur hún að gagni. Það væri efni i margar blaðagreinar að ræða um störf Hannesar að dómara- málum auk allra þeirra starfa, sem hann hefur unnið fyrir iþróttahreyfinguna i landinu. Viö getum ekki stillt okkur að geta nokkurra merkra áfanga i dómaraferli hans. Hann hlaut alþjóðleg dómararéttindi i handknatt- leik árið 1954, og hefur hann dæmt 11 handknattleiks- landsleiki auk tveggja leikja i Evrópukeppni. 1961 hlaut hann viöurkenningu sem al- þjóðadómari i knattspyrnu, og er hann eini islenzki dómarinn, sem hlotið hefur „FIFA’’ merkið, en það er merki, sem veitt er af al- þjóðaknattspyrnusam- tökunum til þeirra dómara sem dæmt hafa tvo A-lands- leiki. Að sögn Hannesar er hann farinn að hugleiða að minnka við sig dómara- störfin, enda sé nóg að starfa og dómgæzla sé starf sem geri miklar kröfur til Hkamlegs úthalds, enda hafi það verið reiknað út, að dómari hlaupi að meðaltali 11 til 13 kilómetra i venju- legum knattspyrnuleik. Visir vill nota tækifærið og óska Hannesi Þ. Sigurðssyni til hamingju með þennan áfanga og vonar, aö iþrótta- hreyfingin fái aö njóta starfskrafta hans sem lengst, bæði við dómarastörf og á öðrum vettvangi gamla og góða félagi, FRAM, varð ég fyrir þvi óhappi aö meiða mig I fæti, þannig aö ég gat ekki verið eins mikið með i keppni eins og mig langaði til. Þráinn Sigurðsson var þá formaður Fram, og hann tók sig til og fékk okkur nokkra Frammara til að fara á dómaranámskeiö hjá Norö- manninum Gunnari Akselssyni, sem var hér lengi og starfaöi hér mikið að knattspyrnumálum, aðal- lega i Vlkingi. — Þekkingu leikmanna á reglunum ábóta- vant Meöal þeirra Frammara, sem þátt tóku í námskeiöinu með Hannesi var Rikarður Jónsson, hinn kunni knatt- spyrnukappi, sem þá lék með Fram. En það er að áliti Hannesar eitt höfuð vandamál iþróttanna, hve Hlutverk fjölmiðla mikilvægt og verður að vanda til íþróttaskrifa — Ég tel það vera skýlausa skyldu blaðanna við hinn al- menna lesanda, að skrifað sé um iþróttir af kunnáttu og þekkingu, en þvi miður hefur mikiö skort þar á að minu áliti. Blöðin verða að vanda miklu meira heldur en gert hefur verið oft á tiðum til þeirra manna, sem þau fá til þessara verka. Skoðana- myndun almennings byggist að miklu leyti á þessum skrifum og i þeim má ekki koma fram neinn lágkúru- légur félagarigur eða persónuleg hagsmunapóli- tik. Gagnrýni er alls staðar nauðsynleg — ekki siöur i iþróttunum en á öðrum sviðum, en hún verður að 13 ára gömul og bœtti íslandsmet sitt um 45 sekúndur Hún 'er ekki nema 13 ára hún Anna Haralds- dóttir úr FH, en samt setti hún íslandsmet i gærkvöldi á Innan- félagsmóti FH á Mela- vellinum, bætti sitt eigið met um heilar 45 sekúndur i 3000 metra hlaupi kvenna. Anna hljóp á 11.19.2 Lára Halldórsdóttir, aðeins 12 ára hljóp þetta lang- hlaup kvenna á 12.05.2 min. A þessu móti FH kom i ljós að Friðrik Þór Óskarsson virðist i ágætri æfingu, stökk 6.66 léttilega og átti lengri stökk, en var óheppinn og gerði ógilt. Hafdis Ingimarsdóttir UMSK, varð sigurvegari i langstökki kvenna með 4.92. Liljá Guð- mundsdóttir, 1R, stökk 4,43 og Björk Eiriksdóttir, tR, 4.36. Sigurinn i 800 metra hlaupi karla féll Sigurði Pétri Sig- mundssyni úr FH i skaut, hann hljóp á 2.09.6. Einar P. Guð- mundsson, FH á 2.35.0. Annars hefst timabil frjáls- iþróttanna annað kvöld með Vor- móti IR að venju á Melavellinum. Mjög gaman er að sjá hina góðu þátttöku i hlaupagreinunum, t.d 13. keppendur i 3000 metra hlaupi, en þar má búast við sannkölluðu einvigi milli þeirra Halldórs Guð- björnssonar Agústs Asgeirssonar og Sigfúsar Jónssonar. Þá verður gaman að sjá hvernig til tekst i kast- greinunum, en margir reikna með miklum framförum hjá Erlendi Valdimarssyni og ekki sizt sterka Strandamanninum, Hreini Halldórssyni, sem margir spá að muni nú varpa kúlunni i fyrsta sinn yfir 18 metra strikið. STUTTAR FRÉTTIR Fá viðurkenningu fyrir Miklatúnshlaup Frjálslþróttadeild Armanns hefur ákveðið að veita þeim kepp- endum i Miklatúnshlaupi I vetur, sem náð hafa beztum meðaltima úr þremur hlaupum, sérstaka viðurkenningu nú aö afloknu siðasta hlaupinu að þessu sinni. Alls mættu rúmlega 100 börn og unglingar til þessarar keppni á aldrinum 6-18 ára. Er alveg öruggt, að meöal þeirra eru ein- staklingar, sem ættu að geta náð langt, ef þeir leggja rækt við þessa íþróttagrein I framtiöinni. Eftirtaldir keppendur urðu hlut- skarpastir og unnu til verðlaun- anna: Keppendur f. 1959 og fyrr: 1. Ásgeir Þór Eiriksson, 2. Kjartan Einarsson, 3. Guðm. R. Guðmundsson. 1. Inga Daviðsdóttir Keppendur f. 1960-1961 Drengir: 1. Gestur Grétarsson 2. Kristinn Kristinsson 2. Ómar Banine Stúlkur: 1. Ingibjörg Guðbrandsdóttir 2. Stigrún Asmundsdóttir 3. Þorbjörg Ragnarsdóttir Keppendur f. 1962-1963 Drengir: 1. Birgir Jóakimsson 2. Hafliði Harðarson 3. fllfar Ólfarsson Stúlkur: 1. Katrin Sveinsdóttir 2. Eyrún Ragnarsdóttir 3. Björk Harðardóttir Keppendur f. 1964 og siðar. Drengir: 1. Guðjón Ragnarsson 2. Styrmir Snorrason Stúlkur: Halldóra Guðjónsdóttir Fú hundrað þúsund í verðlaun, — ef.... Það eru nokkuð frumleg verð- laun, sem Rolf Johansen, stór- kaupmaður hefur heitið i Bridgcstone-Camcl keppnina i golfi, en sú keppni verður i Leir- unni hjá Golfklúbbi Suðurnesja um næstu hclgi. Hundrað þúsund krónur cöa jafnvirði þeirra á sá golfmaður að fá, sem slær boltann holu i höggi i keppninni. Að visu eru likurnar einn á móti milljón, en hvað um það, allt gctur gerzt. Hitt er svo spurning hvort viö- komandi golfmaöur yröi ekki dæmdur atvinnumaöur, ef hann fengi 100 þús. króna verölaun I golfkeppni áhugamanna. ÓSIGRAÐIR AF DÖNUM halda aftur til keppni utan Þessum Víkingsstrákum barst heldur en ekki gott boð á dögun- um. Þeir fá fritt uppihald i Rödovre i Danmörku í 10 daga og keppa þar á alþjóðamóti I knatt- spyrnu ásamt 9 liðum öðrum. Virðist þarna vera sterkt ung- lingamót, þvl liöin koma frá þekktum félögum viöa um Evrópu. Annars eiga Vikingarnir óvenju glæislegan feril I Danmörku, léku þar fyrir nokkrum árum sem 3. flokks leikmenn, unnu hvern sig- urinn af öðrum og héldu heim ósigraðir. Liklega hafa Danirnir I Rödovre inunað þetta, þvi hingað sendu þcir boðsbréf og höfðu þá þetta sama lið I huga. Vikingarnir halda utan til Rödovre 2. júni og verða sem fyrr seeir I 10 daea vtra.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.