Vísir - 14.07.1973, Blaðsíða 6
6
Vlsir. Laugardagur 14. júli 1973.
VÍSIR
Otgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
y Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611
Afgreiösla: Hverfisgötu 32. Simi 86611
Ritstjórn: Sföumúla 14. Simi 86611 Cl lfnur)
Askriftargjald kr. 300 á mánuöi innanlands
i lausasölu kr. 18.00 einfakiö.
Biaöaprent hf.
Haag hafði ekkert lært
Alþjóðadómstóllinn i Haag hefur ekkert lært og
engu gleymt. Hann hefur nú endurnýjað úrskurð
sinn um, að íslendungar láti brezku og
vesturþýzku togarana i friði, Bretar fái að veita
170 þúsund tonn á ári á íslandsmiðum og Þjóð-
verjar 119 þúsund tonn.
Stefnufesta dómstólsins hefur leitt til þess, að
hann er orðinn kaþólskari en páfinn. Hann gefur
Bretum og Þjóðverjum viðtækari heimildir en
þeir sjáifir bjóða upp á i viðræðum við ís-
lendinga. Meðan dómstóllinn talar um 170
þúsund tonn, eru Bretar að stinga upp á 135-145
þúsund tonnum. Og meðan dómstóllinn talar um
119 þúsund tonn, eru Þjóðverjar að stinga upp á
100 þúsund tonnum.
Dómstóllinn hefur greinilega ekki snefil af
áhuga á náttúruvernd. óyggjandi tölur sýna
fram á, hvernig þorskurinn við ísland fer
siminnkandi og hvernig rányrkjan er að eyða
sterkasta árganginum, áður en hann verður
kynþroska. Dómstóllinn tekur þannig á sig
þyngri abyrgð en hinir finu og öldruðu herrar,
sem skipa hann, geta staðið undir.
Dómstóllinn veitir nýiendustefnu óbeinan
stuðning með þvi að viðurkenna sögulegan rétt,
sem Bretar og Þjóðverjar hafa aflað sér með
vafasömum hætti. Bretar þrengdu sér upphaf-
lega með ofbeldi inn á íslandsmið og kúguðu sið-
an Danakonung til að draga saman landhelgina
við ísland. Ofbeldi er ekki betra fyrir þá sök, að
þrjótnum haldist uppi að fremja það um langan
aldur.
Padillo Nerva, dómarinn, sem studdi Is-
lendinga i fyrra skiptið, er nú hættur, en i hans
stað tóku nú þrir dómarar af fjórtán upp hanzk-
ann fyrir íslendinga. Þessi aukni skilningur á
málstað íslands er eini ljósi pukturinn i annars
óhagstæðum afskiptum Haag-dómstólsins. af
málinu.
Við tökum vissulega ekki mark á bráðabirgða-
úrskurðinum nýja fremur en hinum gamla. En
við vitum samt, að úrskurðurinn hefur áhrif og
veldur okkur erfiðleikum. Þess vegna er okkur
óhætt að naga neglurnar út af þvi að hafa ekki
rekið harðvitugan málflutning fyrir dómstólnum.
Hinn skriflegi málflutningur okkar var einkar
máttlaus. Nokkrar greinargerðir, bréf og skeyti
voru send dómstólnum. Ef við hefðum hins vegar
sent málflutningsmenn, er hefðu rökrætt ýtar-
lega þau atriði sem hagstæðust eru málstað
okkar, hefðu dómararnir öðlast mun betri
skilning á hinum geigvænlegu vandamálum, sem
íslendingar eru að reyna að leysa með útfærslu
fiskveiðilandhelginnar.
Við hefðum getað áskilið okkur allan rétt, þrátt
fyrir munnlegan málflutning. Þess eru mörg
dæmi, að riki hafa fyrirfram lýst yfir þvi, að þau
teldu Haag-dómstólnum óheimilt að hafa afskipti
af ákveðnum málum, en hafa samt sent menn til
að verja mál sitt fyrir honum. Og þau hafa lika
unnið mál sitt. íran neitaði t.d. einu sinni að
fallast á lögsögu dómstólsins i oliudeilu við Bret-
land, en varði samt málið i Haag og vann það.
Hinir virðulegu dómarar i Haag fengu þvi mið-
ur ekki aðstöðu til að kynna sér ofan i kjölinn
málstað Islands. Þess vegna hafa þeir ekkert
lært og engu gleymt, siðan þeir kváðu upp sinn
illræmda úrskurð i fyrra. Endurtekning þess
dóms er ekki til þess fallin að halda uppi sóma og
virðingu dómstólsins og leiðir þvi siður til neinn-
ar lausnar á fiskveiðideilunni. —JK—
Portúgalar hafa svo
sannarlega ekki verið
meðal tiu efstu á
vinsældarlistanum á
Bretlandseyjum síðustu
dagana, eftir ásakanir
kaþólsku prestanna um,
að hersveitir Portugals
hafi staðið að fjölda-
morðum Mozambique,
nýlendu Portugáls.
Frómt frá sagt hafa þeir ekki
veriömeöal tiuefstu neinsstaðar,
þvi aö meira aö segja Kurt Wald-
heim, framkvæmdastjóri
Sameinuöu þjóðanna, hefur ekki
setið á sér viö að hnýta ögn i þá,
meb þvi að óska skýringar þeirra
á þessum fréttum.
1 gærmorgun fréttist, að Kurt
Waldheim hefði hringt i fastafull-
trúa Portúgals hjá Sameinuðu
þjóöunum til þess að láta i ljós
„þungar áhyggjur” sinar vegna
fréttanna um fjöldamorð hundr-
uö afrikanskra þorpsbúa i
Mozambique. Sagt var, að fasta-
fulltrúinn, Antonio Patricio, hafi
verið fjarverandi, þegar fram-
kvæmdastjórinn hringdi, en
sendiráðsritari hans svaraði i
staðinn og benti Walsheim á, að
Portugal heföi þegar borið þessar
fréttir til baka og neitað
áburöinum. En Waldheim vildi fá
ritarann á sinn fund, til að út-
skýra máliö betur.
Siðar sagði svo talsmaður S.Þ.,
Caetano, forsætisráöherra Portúgais,
l>ug.
hefur visað áburði prestanna á
UPPSPUNI EÐA
IHÝR BLETTUR
A SÖGUNNI?
að það hefði veriö einn aðstoðar-
framkvæmdastjjórinn, en ekki
Waldheim sjálfur, sem hringt
hafði og óskað eftir, þvi, að
Portúgalinn kæmi á fund Wald-
heims. En út á eitt kemur, þvi að
slikt hefði enginn aðstoðarfram-
kvæmdastjjóri tekið upp hjá
sjálfum sér án fyrirmæla Wald-
heims.
Þessi harðfylgni Waldheims i
kröfunni um skýringu af hálfu
stjórnar Portúgals, þykir
óvenjuleg harka af hálfu fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóö-
anna gagnvart einu aðildarrikj-
anna. En Portúgal hefur nær ein-
angrast innan Sameinuðu þjóð-
anna vegna stefnu sinnar i
Afriku, en hún hefur einmitt verið
skotspónn margra ályktana
Sameinuðu þjóðanna, sem
Afrikurikin hafa I sameiningu
staðið að, og borið upp.
En þetta sýnir einmitt, hvernig
hugur manna stendur til þessarar
frásagnar prestanna af fjölda-
morðunum i Mozambique. Flestir
trúa skýrslum þeirra, og enginn
hefur borið brigöur á þær — nema
Portugal, sem segir, „að faðir
Hastings sé löngu kunnur fyrir
fjandskap sinn i garð Portugals,
og þeir, sem þekki hann persónu-
lega, segi hann vinstrisinnaðan
og ekki mark á fullyrðingum hans
takandi”. Þannig var yfirlýsing
sendinefndar Portugals hjá
Sameinuðu þjóðunum.
1 Bretlandi höföu risið upp
háværar raddir, sem meö Harold
Wilson i broddi fylkingar
kröfðust þess, að stjórnin aflýsti
opinberri heimsókn Marceilo
Afrikanskir skæruliöar: Til að hefna fyrir hermdarverk þeirra, eru
Ródesiumenn og Portúgalar sagðir hafa unnið ódæðisverk á innfædd-
uin i Mozambique.
Caetano, forsætisráðherra
Portugals, sem væntanlegur er
þangað i næstu viku.
Frásagnir Lundúnablaðsins,
The Times, hafa æst menn mjög á
móti Portúgölum, þvi að blaðiö
hefur tekið ásaknir prestana upp i
leiðara sina og lýst þvi yfir við
lesendur, að það leggi fullan
trúnaö á frásögn þeirra.
Vinstri sinnuð öfl i Bretlands-
eyjum hafa bundizt samtökum og
tilkynnt, að þau muni standa að
mótmælaaðgeröum, meðan á
heimsókn Caetanos forsætisráö-
herra stendur, en Heath forsætis-
ráðherra lýsti þvi yfir í neðri
málstofu brezka þingsins, að
heimsókninni yrði ekki aflýst.
Jafnframt þessum mótbyr hafa
veriö rifjaðar upp fyrri ásaknir á
hendur Portugölskum yfirvöldum
um að beita pyndingum og
þvingunum gegn pólitiskum and-
stæðingum, og fangelsunum án
dóms og laga. — Krafizt hefur
verið opinberrar rannsóknar á
atferli Portugala i nýlendunni.
Eins og menn muna hafði faðir
Adrian Hastings skýrt frá þvi I
The Times, að spænskir trúboðar
heföu sagt honum af morðum 400
Ibúa þorpsins Wiriyamu I
Mozambique. Spænskur prestur
skýrði frá þvi, að honum væri
kunnugt um að herflokkur
Rodesiumanna hefði komið yfir
landamærin og myrt 8 ættingja
eins þorpshöfðingjans. Þessi
hryðjuverk áttu að hafa verið
unnin I hefndarskyni við
hermdarverk Frelimo, skæru-
liðahreyfingarinnar afrfikönsku.
Von var, aö slikar sögur vektu
óhugnað, en samt eru þó þeir,
sem vilja trúa svona söguburði
varlega. Það hefur orðið til þess
að rugla menn aftur i riminu, að
fréttamaður Daily Telegraph,
Bruce Loudon, hefur sent fréttir
innan úr frumskógum
Mozambique og hefur hann eftir
innfæddum, að þeim sé ekki
kunnugt um nein fjöldamorð á
þessum slóðum.
„Það er mitt álit”, skrifar
Loudon, „að spænsku prestarnir
hafi haft fréttirnar frá þriðju og
fjórðu hendi”.
Enginn hinna innfæddu, eöa þá
dáta portugalska hersliðsins, sem
hann náði tali af, vissu um þorp
meö nafninu Wiriyamu — sagði
Loudon. Eini staðurinn, sem
minnt gat á nafnið, var yfirgefið
þorp meö nafninu „Mariano”, en
þar hafa ekki verið unnin nein
óhæfuverk þessi tiu árin, sem
Portugal hefur átt i striði við
skæruliða Frelimo.
The Times minnir aftur á móti
á það, að menn hafi tekið með
trotryggni sögunum - af
útrýmingarfangabúðum nazista i
siðari heimstyrjöldinni, og
meðferð þeirra á Gyðingum, eða
orðrómnum um þrælkunarbúðir
Stalins, eða Katynfjöldamorð-
unum, fjöldamorðum komm-
unista við Hue og Bandarikja-
manna við My Lai.